Dagur - 26.10.1987, Síða 1
70. árgangur
Akureyri, mánudagur 26. október 1987
202. tölublað
All± ■fyrir'
hterrsunst
HAFNARSTRÆTI 92 . 602 AKUREYRI. SÍMI 96-26708 . BOX 397
Húseiningar á Siglufirði:
Gengiö frá kaupum
i dag eða a morgun
- drög að kaupsamningi
við Konráð Baldvinsson liggja fyrir
Á föstudaginn var gengið frá
drögum að samningi um sölu á
öllum eignum þrotabús Hús-
eininga hf. á Siglufirði. Kaup-
andinn er Konráð Baldvinsson
byggingameistari á Siglufírði
en hann rak áður tvær verslan-
ir, trésmíðaverkstæði og
steypustöð.
A skiptafundi fyrir rúmum
mánuði bárust tvö tilboð í þrota-
búið, frá Konráð og Birgi Guð-
laugssyni sem rekur trésmíða-
verkstæðið Bút hf. Tilboð Birgis
var eingöngu í fasteignir þrota-
búsins en ekki vélar og tæki og
þótti of lágt og var því hafnað.
Viðræður hófust hins vegar við
Féll 5 metra
- niður í stórgrýtisfjöru
Árangur af merkisdögum
Slysavarnafélags íslands hefur
sennilega hvergi verið jafn
áþreifanlegur og í Hrísey á
laugardaginn.
Vegna þess að félagar björgun-
arsveitarinnar voru á ferð, gengu
björgunaraðgerðir þegar ungur
Norðmaður hrapaði á suðaustur-
hluta eyjarinnar, mjög hratt fyrir
sig.
Maðurinn var að klifra í klett-
um og varð honum fótaskortur
með þeim afleiðingum að hann
féll um 5 metra niður í stórgrýtis-
fjöru.
Aðstæður á slysstað eru með
þeim hætti að sækja þurfti mann-
inn á bát.
Maðurinn hlaut áverka á baki
og höfði en líðan hans er góð eft-
ir atvikum. ET
Konráð og eins og áður segir var
gengið frá drögum að kaupsamn-
ingi fyrir helgina.
Konráð Baldvinsson sagði í
samtali við Dag í gær að fyrir lægi
samkomulag við veðhafa í þrota-
búinu en þeir eiga þó flestir eftir
að skrifa undir. Um er að ræða
ríkissjóð, Útvegsbanka íslands,
Iðnlánasjóð, Iðnþróunarsjóð og
Byggðasjóð.
Konráð gekk í síðustu viku frá
sölu á byggingavöruverslun sinni
og var kaupandinn Jón Sigurðs-
son á Siglufirði. ísafold hf. keypti
síðan húsnæðið þar sem tré-
smíðaverkstæðið var til húsa og
steypustöðina keypti vélaleigan
Bás á Siglufirði.
Konráð hyggst flytja tækin af
trésmíðaverkstæðinu í húsnæði
Húseininga og reka áfram inn-
réttingasmíði samhliða eininga-
framleiðslu þá sem Húseiningar
ráku. Starfsmönnum fyrirtækis-
ins mun eitthvað fjölga.
Árni Pálsson bústjóri þrota-
búsins sagðist í samtali við Dag
telja víst að gengið yrði frá mál-
inu í dag eða á morgun. ET
Leikfélag Akureyrar frumsýndi Lokaæfingu sl. föstudagskvöld. Svava Jakobsdóttir var viðstödd og var henni vel
fagnað í lokin, svo og leikurum og leikstjóra. Sjá leikdóm bls. 5. Mynd: tlv
Útgerðarfélag Akureyrínga
kaupir Dagstjömuna frá Keflavík
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
hefur fest kaup á skuttogaran-
um Dagstjörnunni KE 3 sem
áður var í eigu útgerðarfyrir-
- kaupverðið 180 milljónir
tækisins Stjömunnar hf. í Kefla-
vík. Kaupsamningur var undir-
ritaður á stjórnarfundi félags-
ins á laugardag og er kaupverð
hins 743 lesta skips 180 millj-
ónir. Skipið verður afhent fé-
laginu 29. október og eru tog-
arar félagsins þá orðnir sex.
Stórglæsilegir vinningar
í áskrifendagetraun Dags
Dagur hefur ákveðið að efna
til glæsilegrar áskrifenda-
getraunar, sem hefst í byrjun
nóvember. Óhætt er að full-
yrða að sjaldan eða aldrei hef-
ur dagblað hér á landi boðið
áskrifendum sínum upp á jafn
góða vinninga í áskrifenda-
getraun. Verðlaun Dags eru
hljómtækjasamstæða að verð-
mæti um 70 þúsund krónur,
ferð fyrir tvo til Thailands að
verðmæti um 160 þúsund
krónur, ferð fyrir tvo til Kanarí-
eyja að verðmæti allt að 115
þúsund krónur, húsgagnaút-
tekt fyrir 100 þúsund krónur,
sumarferð með Samvinnuferð-
um/Landsýn að verðmæti allt
að 100 þúsund krónur og síðast
en ekki síst Opel Kadett fólks-
bifreið að verðmæti rúmlega
500 þúsund krónur. Heildar-
verðmæti vinninga er vel á
aðra milljón króna.
„Dagur hefur áöur efnt til
áskrifendagetrauna en þessi er
tvímælalaust sú glæsilegasta,"
sagði Jóhann Karl Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Dags. Jóhann
sagði ennfremur að dregið yrði
um einn vinning á mánuði, næstu
sex mánuði. Fyrst verður dregið
þriðjudaginn 15. desember n.k.,
um hljómtækjasamstæðuna.
Að sögn Jóhanns Karls geta
einungis þeir áskrifendur, sem
eru skuldlausir við blaðið, tekið
þátt í getrauninni. Getrauna-
seðill fyrir nóvembermánuð birt-
ist í blaðinu um miðjan nóvember
og verður tekið á móti innsend-
um seðlum til mánaðamóta.
Getraunaseðill fyrir desember
birtist síðan um miðjan desember
og verður dregið úr innsendum
seðlum um miðjan janúar. Þann-
ig gengur þetta koll af kolli þar til
í vor, er dregið verður um bílinn.
Til að auka á spenninginn,
verða innsendir seðlar látnir
liggja áfram í pottinum, eftir að
dregið hefur verið hverju sinni.
Því munu þeir áskrifendur, sem
taka þátt í leiknum frá upphafi til
loka, eiga sex seðla í pottinum
þegar dregið verður um hvaða
áskrifandi hljóti bílinn. Get-
raunaseðill hvers mánaðar birtist
aðeins einu sinni og leikurinn
verður léttur. Spurningarnar
verða tengdar efni blaðsins þann
dag og áskrifendur þurfa ekki að
gera annað en skrifa rétt svör á
getraunaseðilinn, klippa hann út
úr blaðinu og senda til Dags,
ásamt nafni og heimilisfangi við-
komandi. Það skal áréttað að
áskrifendur þurfa að vera skuld-
lausir við blaðið, til að vera gjald-
gengir þátttakendur í getraun-
inni.
Dagur mun auglýsa áskrif-
endagetraunina nánar næstu
daga og eru lesendur hvattir til að
kynna sér málið vandlega og taka
þátt í leiknum frá upphafi. Þeir
sem ekki eru áskrifendur að Degi
geta bætt úr því snarlega með því
að hafa samband við afgreiðsl-
una. Hver vill ekki fá Dag reglu-
lega inn um bréfalúguna og geta
átt von á utanlandsferð, hljóm-
tækjasamstæðu, húsgögnum eða
nýjum Opel Kadett í kaupbæti?
„Kaup á skipi hafa staðið til
alveg síðan Sólbaki var lagt,“
sagði Vilhelm Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa í samtali við Dag í
gær. Vilhelm vildi ekki gefa upp
hversu mikil lán hvíla á skipinu
en þau voru öll yfirtekin við
kaupin. Vilhelm hélt til Reykja-
víkur í dag til að ganga endan-
lega frá kaupunum.
Aðspurður staðfesti Vilhelm
að með þessum kaupum væri í
rauninni verið að kaupa kvóta
fyrir skip sem Útgerðarfélagið
lætur smíða fyrir sig síðar.
Hvenær af því verður eða hvort
nýtt skip verður smíðað innan-
lands eða utan gat hann ekkert
um sagt að svo stöddu. Dag-
stjarnan er sóknarmarksskip með
rúmlega 2000 tonna kvóta.
Sem fyrr segir verður skipið
afhent 29. október. Þá munu fara
fram einhverjar endurbætur á því
en að þeim loknum mun skipið
fara á veiðar undir merki ÚA og
með nýja áhöfn um borð. Hversu
langur tími líður þangað til skipt
verður upp í nýtt skip verður svo
tíminn að leiða í ljós. Hitt er víst
að salan á skipinu mun verða mál
málanna á Suðurnesjum á næst-
unni en þar var nýlega stofnað
hlutafélag um kaup á skipi til
byggðarlagsins. ET