Dagur


Dagur - 26.10.1987, Qupperneq 2

Dagur - 26.10.1987, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 26. október 1987 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 55 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík, ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. leiöari.___________________________ Gallagripur félagsmálaráðherra í síðustu viku lagði Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra fram frumvarp um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins. Þegar er ljóst að framsóknarmenn og sjálfstæðismenn hafa ýmislegt við frumvarpið að athuga. Sjálfstæðismenn telja að með frumvarpinu sé verið að innleiða nýtt skömmt- unarkerfi í húsnæðislánakerfið og fólk sé að vissu leyti svipt lífeyrissjóðsréttindum sínum. Framsókn- armenn munu einrng ganga óbundnir til umræðu um frumvarpið og áskilja sér allan rétt til að leggja til breytingar á því í meðförum þingsins. Þeim þykir ákvæðið um breytilega vexti innan hvers lánaflokks orka mjög tvímælis og vera illframkvæmanlegt nema með gífurlegri aukningu á skriffinnsku innan Húsnæðisstofnunar. Framsóknarmenn hafa rétti- lega bent á að nær væri að nota skattakerfið til að koma fram sanngjörnum og eðlilegum leiðrétting- um á vaxtabyrðinni. Þeir hafa einnig gert fyrirvara við frumvarpið á þeirri forsendu að það sé ekki í samræmi við veigamikil atriði í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins, sem skuldabréfakaup lífeyris- sjóðanna byggjast á. Félagsmálaráðherra hafði ekkert samráð við aðila vinnumarkaðarins um breytingar á fyrrverandi löggjöf, sem þó var samin í nánu samráði við þessa aðila. Þá eru framsóknar- menn ósáttir við greinargerð þá, sem fylgir frum- varpinu og telja að í henni sé að finna villandi og rangar staðhæfingar. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur lýst því yfir að það muni leiða til alvarlegs þver- brests í stjórnarsamstarfinu ef ráðherrar sam- starfsflokkanna standi ekki við fyrirheit sín um stuðning við húsnæðisfrumvarpið hennar. Þessi yfirlýsing ráðherrans kemur nokkuð á óvart, enda var honum kunnugt um að bæði þingmenn Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks höfðu sterkan fyrirvara á þessu frumvarpi eins og það var lagt fram. Hvorugur flokkur hafði því heitið skilyrðis- lausum stuðningi við frumvarpið í núverandi mynd. Það hlýtur að teljast mjög undarlegt ef Alþýðu- flokkurinn ætlar sér að leggja stjórnarsamstarfið að veði í þessu máli og verður reyndar að teljast frá- leitt. Staðreyndin er sú að húsnæðisfrumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra er að mörgu leyti slæmt frumvarp. Vissulega hefur komið fram talsverð gagnrýni á núverandi lánakerfi, t.d. í sambandi við sjálfvirknina og að menn hafi jafnvel fengið lán út á tvær íbúðir. Slíka agnúa ætti að vera auðvelt að sníða af með einföldum leiðréttingum á þeim reglum sem nú gilda. Síst af öllu má flækja málið með því að setja nýjar reglur sem auka enn á skriffinnskuna í húsnæðis- lánakerfinu og skapa aukinn óróa og óvissu í sam- bandi við lánamálin. En einmitt það boðar hús- næðislánafrumvarp félagsmálaráðherra í núver- andi mynd. BB. -j/iðtal dagsins. Þegar ekið er fram Sæmund- arhlíð í Skagafirði og komið að bænum Dæli framarlega í Hlíðinni, er fyrir girðingarhlið á veginum. Framan við girð- inguna þrengist vegurinn og er að sjá sem hann versni til muna. Girðingin og útsýnið fram Hlíðina, melhólar eins langt og augað eygir, fær mann til að halda að Dæli sé fremsta byggða bólið í Hlíðinni, en svo er ekki. Skammt þarna framan við er býlið Skarðsá, þar sem kona hátt á níræðisaldri býr í torfbæ. Er það sá síðasti frá tímum torfhúsabyggða hér á landi, sem enn er búið í. Blaðamaður Dags heimsótti Pálínu Konráðsdóttur á Skarðsá í síðustu viku. Pálína Konráðsdóttir. „Hér er ég alltént ekki fyrir neinum“ - segir Pálína Konráðsdóttir á Skarðsá Pálína hefur frá sex ára aldri átt heima á Skarðsá og frá árinu 1950 hefur hún búið þar ein. Pál- ína hefur verið heilsuhraust um ævina og sárasjaldan þurft að leggjast á sjúkrahús, en þó hefur það komið fyrir. Margir héldu að þegar Pálína var komin á Sjúkra- húsið á Sauðárkróki síðasta vetur, væru dagar hennar á Skarðsá taldir og hún færi ekki fram eftir aftur. En Pálína var á annarri skoðun og strax er vorið gekk í garð tók Pálína pokann sinn og hélt fram í Skarðsá að nýju, og þar var hún í allt sumar. „Hvaðan kemur þú,“ var það fyrsta sem Pálína sagði er hún hafði heilsað komumanni. „Það er furðulegt að vera að ómaka sig alla þessa leið,“ tuldraði hún fyrir munni sér inn dimm göngin. Undirrituðum var satt að segja alveg hætt að lítast á blikuna þar sem hann þreifaði sig í myrkrinu inn göngin á eftir gömlu konunni, sem virtist fara þetta eftir minni. „Þeir höfðu göngin svona löng til að auðveldara væri að halda hita inni,“ sagði Pálína þegar við vorum komin inn í baðstofuna. Hundurinn hennar stökk geltandi með moldugar loppurnar upp á komumann. Og þegar hann fór að dusta buxurnar, afsakaði Pál- ína framkomu hundsins. „Seppi segir að hann viti ekkert um að hann hafi verið skítugur á fótun- um. Þú hlýtur að geta hreinsað þær, segir seppi. Honum finnst gott að láta klóra sér og klappa greyinu," segir Pálína, sem greinilega metur félagsskap dýr- anna mikils og framan við gamla olíueldavél malar kötturinn í hin- um mestu makindum. En þrátt fyrir að olíuvélin sé þarna hefur Pálína tekið rafmagn og síma í sína þjónustu og inni í baðstof- unni mátti sjá rafmagnseldavél, ísskáp, frystikistu og útvarp. í fyrstu innti blaðamaður Pálínu eftir því hvað hún væri orðin gömul? „Heldurðu að ég muni það?“ sagði hún og hló. „Jú ég er orðin 87, svo ég hafi það eins og ég man best.“ - Hvað það er bara dúndur húmor í þér. „Það þýðir ekkert annað en vera dálítið léttlyndur. Það er • Hvíhafa konur heila? Góð spurning og verðugt rannsóknarefni, eins og hann Hallfreður fjallar réttilega um í Helgar-Degi. Glöggur mað- ur Hallfreður og ekki fyrir alla að fara í fötin hans. (Kannski ekki allir eins feitir og illa vaxnir.) # ... fyrst karlar haf’ ann ekki? En þetta er sennilega það sem er kjarni málsins hjá Hallfreði. Konurnar hafa heila, en greinilega ekki karl- arnir og það vekur að vonum öfund i garð kvenna að þær skuli vera svona miklu betur úr garði gerðar. # Eitthvað fyrir jafnréttis- nefnd? Nú á þessum miklu jafnrétt- istímum er þetta allsendis ófært að kynjunum sé mis- munað svona. Hvar eru nú jafnréttiskvinnurnar í jafn- réttisnefnd? Skyldu þær sak- ir fjöl/cvenn/s hafa látið hjá líða að láta þetta mál til sín taka? Sjá þær ekki hve þetta eru mikil forréttindi? Eða gleyma þær að sjá þetta af því að þetta eru forréttindi kvenna? Hvar er nú ailt jafn- réttistalið þeirra? # Engin slys Gramur bílstjóri í Hafnarfirði vatt sér að lögregluþjóni sem varð á vegi hans og sagði: „Hvers vegna er ekki sett upp skilti til að vara við þessari stórhættulegu beygju hérna?“ „Við höfðum svoleiðis skilti hérna,“ svaraði lögreglu- þjónninn. „En þar sem slysin hættu að koma fyrir, tókum við það niður...“ • Glöggur í reikningi Kennarinn: „Jæja, Pétur, get- urðu sagt mér hvenær Þrjátíu ára stríðið byrjaði?" „Nei,“ svaraði Pétur galvask- ur. „En ég veít vel hve lengi það stóð yfir!“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.