Dagur - 26.10.1987, Blaðsíða 5

Dagur - 26.10.1987, Blaðsíða 5
26. október 1987 - DAGUR - 5 Leikfélag Akureyrar: Ahrifamikil Lokaæfing Lilja kemur óvænt inn í einangraða tilveru Ara og Betu. Hún verður að vonum hissa á ástandi hjónanna, en ýmis- Iegt hefur gengið á niðri í kjarnorkubyrginu. Mynd: Páii A. Páisson Leikfélag Akurcyrar: Lokaæfing Höfundur: Svava Jakobsdóttir Leikstjóri: Pétur Einarsson Leikmynd og búningar: Gylfi Gíslason Lýsing: Ingvar Björnsson Persónur og leikendur: Ari: Theódór Júlíusson Beta: Sunna Borg Lilja: Erla Ruth Harðardóttir Er raunveruleikinn fáránlegur eða er fáránleikinn raunveru- legur? Þessi spurning kemur oft upp í huga minn við lestur verka eftir Svövu Jakobsdótt- ur. Sérstaklega er það í smá- sögum hennar sem absúrdism- inn ræður ríkjum eins og þegar maður biður um hönd konu og konan heggur höndina af sér og gefur honum. í annarri sögu fá hjartað ög heilinn svipaða meðferð. En hér er ekki ætlun- in að fjalla um smásögur Svövu heldur leikritið Lokaæfingu. Lokaæfing var frumsýnd hjá Leikfélagi Akureyrar síðastliðið föstudagskvöld og var uppselt á sýninguna og stemmningin góð. Þetta var í fyrsta skipti sem ný leikgerð Lokaæfingar var sýnd hérlendis en þessi leikgerð var frumsýnd hjá Bátsleikhúsinu í Kaupmannahöfn í september. Svava Jakobsdóttir var viðstödd frumsýningu L.A. og var henni vel fagnað í lokin svo og leikur- um og leikstjóra. Lokaæfing er magnað verk sem hreyfir við manni. Það er raunsætt, fjallar um veruleika, íslenskan veruleika, þótt sumum finnist það kannski dálítið fjar- stæðukennt á köflum. Manneskj- an sjálf er í öndvegi og þetta verk er dálítil sálfræðileg afhjúpun á manneskjunni. Við sjáum Ara og Betu breytast smátt og smátt, gamanið verður að skelfingu, æfingin að alvöru. Hvorki er það ætlun mín að hvekkja áhorfendur með því að rekja söguþráð verksins né að fella óhagganlegan dóm yfir sýn- ingu Leikfélags Akureyrar. Ég ætla hins vegar að viðra skoðanir mínar, burtséð frá því hvernig þær falla öðrum í geð, en hver einstakur áhorfandi upplifir leiksýningu á sinn persónulega hátt. Mér finnst þessi gerð Loka- æfingar mjög heilsteypt. Að vísu hef ég ekki séð fyrri gerð nema í bókarformi en þar var nokkur aðdragandi að flutningi Ara og Betu niður í kjamorkubyrgið. Hér ganga þau beint niður í byrg- ið og þar fer leikritið fram. Þau höfðu sagt ættingjum að þau væru að fara til Kýpur, en í raun ætla þau að dvelja í kjarnorku- byrginu, í kjallaranum undir kjallaranum, í heilan mánuð. Sú dvöl verður örlagarík en Ara er nauðsyn á því að gera allan aðbúnað sem bestan og komast fyrir mistök til að geta lifað af þegar (ekki ef) til kjarnorkustyrj- aldar kæmi. Þetta gerir hann með aðstoð tölvu. Leikritið skiptist í 5 þætti og tíminn spannar á fjórðu viku. Það er vor. Stígandi er í verkinu allt til loka er það rís sem hæst og endar í lausn, sem er kannski dálítið óvænt. Leikritið er fyrst og fremst afhjúpun á Ara og Betu. Þau hafa ólíkan bakgrunn. Beta hafði aldrei þurft að líða skort og aldrei þurft að hugsa mjög mikið. Enda er það ein- kennandi fyrir konur í verkum Svövu hvað þær eru „heilalaus- ar“, a.m.k. á yfirborðinu. Ari braust hins vegar úr fátækt með miklum dugnaði sem gekk út í öfgar, t.d. hafði hann enn ekki fundið tíma til að eignast barn með Betu eftir um 20 ára sambúð. Með þessa vitneskju til hlið- sjónar er fróðlegt að fylgjast með andlegum breytingum á Ara og Betu í verkinu. Ari kemur kannski ekki svo mjög á óvart en öðru máli gegnir um Betu. Hún virðist svo einföld í jarðbundinni skynsemi sinni, en hvað kemur á daginn? Ekki ætla ég að svara því, en eitt lítið batterí er greini- lega mikilvægara fyrir sálarlífið en flestir hefðu haldið. Theódór Júlíusson leikur verkfræðinginn Ara. Teddi hefur vaxið mjög sem leikari síðustu ár og er nú einn mikilhæfasti leikar- inn í röðum Leikfélags Akureyr- ar. Skapgerðarhlutverk henta honum vel, sálarlífssveiflur virka sem eldur á þá olíu sem rennur um æðar hans og honum tekst því að gera Ara einstaklega trúverð- ugan. Hins vegar virkaði Theódór ansi stressaður á frumsýningunni, sérstaklega í byrjun, og framsögn hans bar þess merki. Þegar á heildina er litið var leikur Theódórs stórbrotinn og það er einmitt heildarútkoman sem skiptir mestu máli. Sunna Borg leikur Betu og er þetta hennar stærsta hlutverk til þessa. Hún túlkar þessa ofvernd- uðu konu á sannfærandi hátt en líkt og Teddi var hún dálítið strekkt þetta kvöld, enda mikið í húfi. Að mínu mati tókst henni að leysa erfitt verkefni og á hrós skilið. Bæði aðalhlutverkin eru 3á Skotveiðifélag mBt Eyjafjarðar Fundur verður haldinn að Norðurgötu 2a (gamla útvarpshúsinu) í kvöld mánudaginn 26. október kl. 20.30. Félagar fjölmennið. Nýir félagar velkomnir. Stjórnin. sem strembið próf, með ýmsum túlkunarmöguleikum. Báðir leik- ararnir virðast hitta á réttu leið- ina með aðstoð Péturs Einarsson- ar leikstjóra og skapa áhrifamikla sýningu. Erla Ruth Harðardóttir er nýtt andlit hjá L.A. og býð ég hana velkomna til starfa, ekki síst eftir að hafa séð óaðfinnanlega túlkun hennar á Lilju. Lilja hefur verið í píanótímum hjá Betu (er ekki dóttir hennar eins og ranglega var sagt í blaðinu fyrir skömmu) og kemur óvænt við sögu í lokin. Auk þess er Erla sýningarstjóri leikritsins. Lokaæfing er gullnáma fyrir leikara, en hún er líka gullnáma ein og sér. Texti Svövu er stór- kostlegur, fyndinn, beinskeyttur og fullur af vísunum. Alltaf virð- ist hún hitta á réttu orðin. Leik- mynd Gylfa Gíslasonar er líka hrein snilld eins og væntanlegir áhorfendur munu komast að raun um. Lýsing Ingvars Björns- sonar studdi leikmynd og leikara vel og var raunar óaðfinnanleg. Þrátt fyrir að sumir telji kjarn- orkuvá fara minnkandi trúi ég ekki öðru en að Lokaæfing muni gera mikla lukku. Enda er kjarn- orkuógnin aðeins umgjörð utan um átök hjónanna. Hafi ég verið á þeirri skoðun að mig langaði til að eyða 30 dögum með konunni í friði og ró, algerri einangrun, þá er ég blessunalega laus við þær langanir núna. SS Leðurjakkar herra. Stærðir 50-56. Verð kr. 9.965.- Fóðraðir gallajakkar á fullorðna. Stærðir M-L-XL. Verð kr. 2.725.- Fóðraðir gallajakkar á bömin. Stærðir 120-170. Verð kr. 2.497.- Opið laugardaga 9-12. JO l|i Éyfjörö WWW. Hjaiteyrvgötu 4 simi 22275 Bifreiðaeigendur - Bifreiðastjórar Þokuluktir. Viftureimar. Þurrkublöð. Öryggisbelti. Barnastólar. Öryggisbelti fyrir börn. Startkaplar. Hleðslustöðvar. Sætaáklæði. Og margt fleira. Véladeild Óseyri 2 - Símar 21400 og 22997. SKJOTT SKIPAST VEÐIIR í LOFTI Nú ér vetur genginn í garð og viljum við beina því til viðskiptavina okkar, að ganga vel frá vörum sínum til flutnings til að fyrirbyggja skemmdir. Þótt hitastig í vörugeymslum okkar fari ekki niður fyrir frostmark, eru oft vörusendingar sem ekki þola mikla hita- breytingu. Þess vegna er nauðsynlegtað náigast þær sem fyrst eftir komu skips, því sumar vörur eru geymdar úti og/eða í gámum. rrostlög skyldi að sjálfsögðu setja í kælivatn véla og tækja sem geymd eru SK/PADE/LD SAMBANDSINS LINDARGÖTU 9A SIMI 698100/28200

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.