Dagur - 26.10.1987, Page 9

Dagur - 26.10.1987, Page 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson 26. október 1987 - DAGUR - 9 Körfubolti 1. deild: - fyrir sunnan um helgina Körfuknattleikslið Tindastóls gerði góða ferð suður um helg- ina en liðið lék þar tvo leiki í 1. deildinni og vann þá báða. A föstudagskvöld sigraði liðið Skallagrím í Borgarnesi 79:64 en fór daginn eftir til Sand- gerðis og lagði Reyni að velli 66:46. Borgnesingar byrjuðu leikinn á föstudagskvöld af miklum krafti og náðu yfirhöndinni. Tindastóls- menn voru nokkuð seinir í gang en sóttu sig er á leikinn leið. í hálfleik höfðu þeir náð yfirhönd- inni og leiddu þá með 11 stigum, 33:22. Seinni hálfleikur var mjög sveiflukenndur en Tindastóls- menn höfðu þó alltaf yfirhöndina og sigurinn var aldrei í hættu. Mestur var munurinn 18 stig en minnstur 6 stig. Þegar flautað var til leiksloka höfðu norðanmenn skorað 74 stig á móti 59 stigum heimamanna. Björn Sigtryggsson lék mjög vel í þessum leik fyrir Tindastól og skoraði 28 stig. Eyjólfur Sverrisson skoraði 20, Sverrir Sverrisson 11, Karl Jónsson 6 en aðrir minna. Hafsteinn Þórisson var stigahæstur Borgnesinga með 16 stig. Handbolti 3. deild: Völsungur lá fyrir ÍS Með örlítið meiri leikreynslu og jafnvægi hefði Völsungur átt að sigra í leiknum gegn IS. Þegar rúmar fímm mínútur voru eftir af leiknum var stað- an 17:17 en taugarnar brugðust hjá Húsvfldngunum og Stúdent- arnir skoruðu fímm mörk gegn einu Völsunga og leiknum lauk því með sigri ÍS 22:18. „Við getum ekki ætlast til að vinna leik þar sem við gerum svona mikið af vitleysum. Hins- vegar er leikur liðsins á réttri braut og Róm var ekki byggð á einum degi,“ sagði Arnar Guð- laugsson þjálfari Völsunga eftir leikinn en Völsungar létu markmann ÍS verja hvorki meira né minna en fimm vítaskot frá sér þannig að það er ekki von að Arnar hafi verið ánægður. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi. IS var ætíð á undan að skora en Völsungarnir hleyptu þeim aldrei meira en tveimur mörkum fram úr. Staðan í hálf- leik var 9:8 ÍS í vil. Dómararnir komu þó nokkuð mikið við sögu í þessum leik og gáfu tveimur leik- mönnum Völsunga rautt spjald, Pálma Pálmasyni í fyrri hálfleik og Sigmundi Hreiðarssyni í þeim síðari. Báðir brottrekstrarnir orkuðu mjög tvímælis og hafði þetta að sjálfsögðu áhrif á leik liðsins. Seinni hálfleikur var ekki eins vel leikinn og sá fyrri og var mik- ið um mistök hjá báðum liðum. Það sem réði úrslitum var léleg vítanýting Völsunga og tauga- óstyricur í lok leiksins. Bestu leik- menn Völsungs í þessum leik voru Skarphéðinn ívarsson sem gerði 7 mörk í leiknum, Helgi Helgason sem stjórnaði spili liðs- ins eftir að Pálmi var rekinn út af í fyrri hálfleik. Svo stóð Bjarni Pétursson sig vel í markinu að vanda og varði m.a. eitt vítakast. Mörk Völsunga: Skarphéðinn ívarsson 7, Haraldur Haraldsson 3, Helgi Helgason 3, Sigurður Illugason 2, Pálmi Pálmason, Gunnar Jóhannsson og Sigmund- ur Hreiðarsson eitt hver. Mörk ÍS: Atli Þorvaldsson 6, Valdimar Björnsson 4, Sigurjón Kristinsson 4, Stefán Guðmunds- son 3, Einar Björnsson 3, Þórar- inn Guðnason 2 AP Helgi Helgason skorar eitt þriggja marka sinna í leiknum gegn ÍS á föstu- dagskvöld. Mynd: AP Reynir-UMFT Sauðkrækingar byrjuðu leikinn gegn Reyni mun betur en gegn Skallagrími og voru fljótlega komnir með 20 stiga forystu. Heldur dofnaði yfir þeim þegar leið á fyrri hálfleikinn og þegar flautað var til leikhlés höfðu Reynismenn minnkað muninn niður í 9 stig, 35:26. Það var mun meira jafnvægi í síðari hálfleik, Tindastólsmenn höfðu þó ætíð yfirhöndina og þeir juku muninn jafnt og þétt. I lokin var hann orðin 20 stig 66:46. Ágúst Kárason var bestur norðanmanna í þessum leik en Eyjólfur Sverrisson var stiga- hæstur með 24 stig. Björn Sig- tryggsson skoraði 14, Sverrir Sverrisson 11, Kári Marísson 8 og Kristinn Baldvinsson 6. Magnús Brynjólfsson var stiga- hæstur Reynismanna með 13 stig. Björn Sigtryggsson átti góðan leik í Borgarnesi. Tveir sigrar Tindastóls ttu við Þorvald Geirsson Valsara í leiknum á föstudagskvöld. Jón Már Héðinsson lu búinn. Mynd: TLV Úrvaisdeildin í körfubolta: iveiklaðir Þórs- lágu fyrir Val öllinni á Akureyri á föstudagskvöld í augnayndi. Leikmenn beggja liða ín gerðu sig seka um fjölmörg ns mistök og þá sérstaklega Þórsar- ar ai\ Leikmenn Þórs virtust mjög iti taugaveiklaðir og þeim gekk ef flestum illa bæði í vörn og sókn. la Þeir lentu að venju í villuvand- « ræðum og var Eiríkur Sigurðsson Jn kominn með 4 villur eftir 12 mín. Hann fór þá útaf fram yfir leikhlé ,s. en fékk síðan sína 5. villu í upp- ’ hafi síðari hálfleiks. Þegar langt (r_ var liðið á leikinn fór Björn ’ Sveinsson einnig af velli með 5 villur. Konráð Óskarsson var , langbestur Þórsara en einnig átti • i Bjarni Össurarson góða spretti í 1 seinni hálfleik. im an Valsmenn voru lítt sannfær- ;ja andi í þessum leik og þeir koma lf- varla til með að blanda sér í topp- 21 baráttu með slíkri spilamennsku. nn Einar Ólafsson var bestur Vals- ist manna. lt- Stig Vals: Einar Ólafsson 23, ur Torfi Magnússon 18, Leifur ls- Gústafsson 14, Tómas Holton 12, >tu Svali Björgvinsson 10, Þorvaldur Geirsson 9, Bárður Eyþórsson 8, an Páll Arnar 6, Jóhann Bjarnason 4 'ar og Alfreð Tuliníus 2. ar Stig Þórs: Konráð Óskarsson ls- 23, Bjarni Össurason 17, Guð- ði, mundur Björnsson 12, Jón Héðinsson 9, Einar Karlsson 6, tið Eiríkur Sigurðsson 6, Hrafnkell Tuliníus 4, Jóhann Sigurðsson 3 og Ágúst Guðmundsson 2. Jón Otti Ólafsson og Ómar Scheving dæmdu leikinn þokka- lega. íslenska piltalandsliðið í hand- knattleik varð í 1.-2. sæti á fjögurra liða æfíngamóti sem fram fór í V.-Þýskalandi og lauk á laugardag. Liðið gerði jafntefli við það v.-þýska í síð- asta leiknum en áður höfðu bæði liðin lagt Norðmenn og Tékka að velli. Fyrsti leikur íslendinga í mót- inu var gegn Norðmönnum og sigraði liðið í þeim leik 23:19. Á sama tíma unnu Þjóðverjar Tékka 23:16. Annar leikur íslenska liðsins var gegn Tékkum og sigraði liðið mjög örugglega í þeim leik 28:21. Þjóðverjar unnu Þjálfaramál KA: Sævar til viðræðna Sævar Jónsson hefur ákveðið að koma til viðræðna við knattspyrnudeild KA um að hann þjálfi 1. deildarlið félags- ins næsta keppnistímabil. Sævar hefur dvalið erlendis að undanförnu, bæði í Belgíu og Frakklandi, þar sem hann hef- ur verið að reyna að komast í atvinnumennsku á ný. Nú er það nær öruggt að hann fer ekki í atvinnumennsku og því hafa líkurnar á því að hann þjálfi og leiki með KA næsta sumar, aukist verulega. Sævar er nú í Sovétríkjunum með landsliðinu en kemur heim um næstu helgi. Ef hann semur við KA eru allar líkur á því að Þorvaldur Þor- valdsson verði honum til aðstoð- ar. Þorvaldur hefur þjálfað kvennalið félagsins undanfarin ár með mjög góðum árangri. Norðmenn 28:24 og voru því með fullt hús eftir tvo leiki eins og íslenska liðið og einnig voru liðin með sömu markatölu, 51:40. Leikur íslendinga og V-Þjóð- verja var hnífjafn og spennandi en heimamenn höfðu yfir í hálf- leik 10:8. Þegar 5 mín. voru til leiksloka var staðan jöfn 18:18. íslendingar komast yfir 19:18 þegar 3 mín. voru til leiksloka en Þjóðverjar jöfnuðu 19:19. íslenska liðið bætti þá við 20. markinu en þegar örfáar sek. voru til leiksloka, náðu heima- menn að jafna 20:20. Handboltamót í Þýskalandi: Góður árangur íslenska liðsins - Hafnaði í 1.-2. sæti

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.