Dagur - 26.10.1987, Page 10
10 - DAGUR - 2$. október ,1987
Jþróttic
Enska knattspyrnan:
David Pleat hættur hjá Spurs
David Pleat sagði upp starfi
sínu sem framkvæmdastjóri
hjá Tottenham á föstudaginn
eftir að bresku dagblöðin
höfðu verið fuli af sögum um
einkalíf hans. í stuttri yfirlýs-
ingu frá félaginu voru honum
þökkuð störf hans fyrir félagið
síðan hann tók við í maí 1986.
Jafnframt var aðstoðarmanni
hans, Trevor Hartley falið að
stjórna liðinu sem Pleat hafði
þegar valið í leiknum gegn
Nottingham For. á útivelli.
Fullvíst er talið að Tottenham
muni reyna að fá Terry Vena-
bles sem nýlega var rekinn frá
Barcelona til að taka við fram-
- Vandræði hjá Tottenham - Toppliðin á sigurbraut
arfi Liverpool hefur aldrei kunnað efni á að misnota í tveim næstu S>
David Pleat tók pokann sinn og
kvaddi eftir lestur föstudagsblað-
anna.
Tekst Tottenham að lokka Terry
Venables úr sólinni á Florida, heim í
þokuna í London?
kvæmdastjórastöðunni, en
hann er nú staddur I fríi á
Florida þannig að einhver bið
gæti orðið á svari frá honum.
Tottenham steinlá í leik sínum
gegn hinu léttleikandi liði Forest
á laugardag. Franz Carr náði for-
ystu í fyrri hálfleik, eftir að mark-
vörður Tottenham Tony Parks
missti frá sér boltann eftir auka-
spyrnu Stuart Pearce sem átti
stórleik með Forest. Bobby Rob-
son landsliðsþjálfari Englands og
Graeme Souness framkvæmda-
stjóri Rangers í Skotlandi voru
meðal áhorfenda að fylgjast með
Pearce.
í síðari hálfleik bættu Neil
Webb og Nigel Clough við mörk-
um fyrir Forest, en sigur liðsins
var þó of stór miðað við gang
leiksins. Osvaldo Ardiles tók að
sér stjórn Tottenhamliðsins inná
leikvellinum, leikurinn var lífleg-
ur og skemmtilegur og Clive
Allen óheppinn að skora ekki í
leiknum. Nottingham liðið leikur
mjög skemmtilega knattspyrnu,
en óvíst hvernig hinir ungu og
nettu leikmenn liðsins bregðast
við þegar vellirnir fara að þyngj-
ast þegar h'ður á veturinn.
Liverpool
vel við sig á gervigrasinu hjá
Luton og því voru margir aðdá-
enda liðsins hræddir um sína
menn á laugardaginn. Það kom í
ljós að ótti þeirra var ekki
ástæðulaus, Luton var sterkari
aðilinn í leiknum og tvívegis skall
hurð nærri hælum við mark
Liverpool, fyrst í fyrri hálfleik
þegar Mick Harford átti skot í slá
og síðan á síðustu mín. leiksins
er sami leikmaður átti hörku-
skalla í þverslá hjá Bruce
Grobbelaar markverði Liver-
pool. En það var hið leikreynda
lið Liverpool sem hirti öll stigin
úr leiknum, varnarmaðurinn
Gary Gillespie skoraði eina mark
leiksins á 72. mín. með skalla eft-
ir hornspyrnu. Ray Houghton
sem Liverpool keypti í vikunni
frá Oxford fyrir £800.000 kom
inn í liðið í stað Craig Johnston,
en lítið bar á honum í leiknum.
Q.P.R. lenti í kröppum dansi á
heimavelli sínum gegn Ports-
mouth og var heppið að fá ekki á
sig mark strax í upphafi leiksins,
en náði síðan forystu á 15. mín.
þegar bakvörðurinn Warren
Neill braust fram og átti fast skot
að marki sem lenti í hné John
Byrne og þaðan í netið. Ports-
mouth hélt áfram að sækja í síð-
ari hálfleik og jafnaði á 13. mín.
þegar Ian Baird skallaði fyrirgjöf
Vince Hilaire í mark. Heima-
menn efldust við mótlætið og
Martin Allen átti skot í stöng.
Það virtist allt stefna í jafntefli
þar til 5 mín. fyrir leikslok að
Terry Fenwick tryggði Q.P.R.
sigur með glæsilegu marki beint
úr aukaspyrnu. Alan Ball fram-
kvæmdastjóri Portsmouth var
heldur óhress á laugardaginn og
sagði fréttamönnum að svo gæti
farið að hann hætti hjá Ports-
mouth vegna deilna við stjórnar-
formann félagsins.
Arsenal hefur gengið mjög vel
að undanförnu og það virtist sem
liðið ætlaði að bursta Derby í
heimaleik sínum á Iaugardag,
aðeins 54 sek. voru liðnar af
leiknum þegar Arsenal hafði tek-
ið forystu. Mike Thomas sendi
fyrir mark Derby og Kevin
Richardson sem lengi lék með
Everton, en var keyptur til
Arsenal í haust eftir stuttan stans
hjá Watford fyrir £250.000, skor-
aði sitt fyrsta mark fyrir félagið.
Á 10. mín. komst Arsenal í 2:0
með marki Mike Thomas úr víta-
spyrnu eftir að Mark Wright
hafði fengið boltann í hendi. En
Derby gafst ekki upp og á 16.
mín. skallaði Andy Garner bolt-
ann í mark Arsenal. Þrátt fyrir
mikla yfirburði heimamanna í
síðari hálfleik urðu mörkin ekki
fleiri, Peter Shilton varði vel frá
David Rocasfle og Alan Smith og
Paul Merson átti skalla í þverslá.
Derby átti þó hættulegar skyndi-
sóknir og undir lokin slapp
Arsenal með skrekkinn er Nigel
Callaghan átti hættulegt mark-
tækifæri. Arsenal hefur nú sigrað
í 9 leikjum í röð og virðist ætla að
veita verðuga keppni um meist-
aratitilinn í vetur.
Meistarar Everton unnu
öruggan sigur á heimavelli gegn
Watford, en verða þó að leika
betur ef þeim á að takast að verja
titilinn. Adrian Heath skoraði
fyrir Everton á 10. mín. og eftir
20 mín. leik í síðari hálfleik bætti
Graeme Sharp við öðru marki
Everton méð skalla eftir fyrirgjöf
Gary Stevens. Everton hefði get-
að bætt við mörkum, en leik-
mönnum liðsins mistókst í góð-
um færum, sem þeir hafa ekki
leikjum sem eru báðir gegn
Liverpool á Anfeild, fyrst í deild-
arbikarnum í vikunni og síðan í
deildinni á laugardag. Þar fær
framkvæmdastjóri Everton Colin
Harvey tækifæri til að meta stöðu
liðs síns í hópi þeirra bestu.
Bikarmeisturum Coventry
gengur ekki sem best þessa dag-
ana, töpuðu á heimavelli gegn
Newcastle um helgina. Paul
Goddard skoraði fyrst fyrir
Newcastle, Cyrille Regis jafnaði,
en Paul Gascoigne náði aftur for-
ystu fyrir Newcastle í fyrri hálf-
leik. Það var síðan Darren Jack-
son sem gulltryggði sigur New-
castle með eina markinu í síðari
hálfleik.
Charlton situr áfram á botnin-
um í 1. deild. Eftir markalausan
fyrri hálfleik skoruðu Martin
Foyle og Dean Saunders fyrir
Oxford áður en Andy Jones lag-
aði stöðuna fyrir Charlton með
sínu fyrsta marki fyrir félagið. Til
þess að bæta gráu ofan á svart var
Mark Reid rekinn út af hjá
Charlton fyrir gróft brot.
Sheffield Wed. náði þrem dýr-
mætum stigum úr heimaleik sín-
um gegn Norwich, Nigel Pearson
skoraði eina mark leiksins í fyrri
hálfleik.
Southampton sigraði í sínum
þriðja ieik í röð, er liðið lagði
Chelsea á The Dell eftir marka-
lausan fyrri hálfleik með þrem
mörkum gegn engu. Graham
Baker, Colin Clarke og Danny
Terry Fenwick fyrirliði Q.P.R.
skoraði sigurmark liðs síns á laugar-
dag.
Neil Webb skoraði eitt marka For-
est gegn Tottenham á laugardag.
Wallace skoruðu á sex mín. kafla
um miðjan síðari hálfleik.
Bradford er enn efst í 2. deild,
John Hendrie kom Bradford yfir
í fyrri hálfleik gegn Reading, en
Colin Gordon jafnaði fyrir Read-
ing í síðari hálfleik.
Tony Morley skoraði þrjú
mörk fyrir W.B.A. í 3:2 sigri liðs-
ins gegn Huddersfield sem er
langneðst í 2. deild og greinilega
erfitt verk framundan fyrir hinn
nýja framkvæmdastjóra liðsins
Malcolm Macdonald að verjast
falli.
Crystal Palace sigraði Swindon
á heimavelli 2:1, Bright og Gray
skoruðu fyrir Palace, en Steve
White fyrir Swindon sem lék í
drullugum búningum af unglinga-
liði sínu í leiknum, þar sem bún-
ingar liðsins gleymdust heima.
Enn leynist lífsmark með
Leeds Utd. Bob Taylor, Peter
Swan og David Rennie gáfu lið-
inu þriggja marka forystu í fyrri
hálfleik og það veitti ekki af, því
í sfðari hálfleik skoruðu
Hefferman og Richards fyrir
Bournemouth. Þ.L.A.
Jafntefli í sjón-
varpsleiknum
Sjónvarpsleikurinn á Englandi
um helgina var viðureign West
Ham og Manchester Utd. í
London. Það eru 20 ár síðan
Manchester Utd. vann síðast á
Upton Park heimavelli West
Ham og á sunnudag misstu
þeir af góðu tækifæri til að
binda enda á það lélega gengi.
Liðið hóf leikinn mjög vel, en
þeir Brian McClair og Gordon
Strachan misnotuðu báðir góð
tækifæri strax í byrjun. En Utd.
náði þó forystu rétt fyrir leikhlé
þegar Colin Gibson skoraði úr
aukaspyrnu af um 25 metra færi,
boltinn lenti í varnarvegg West
Ham og þaðan í netið. Þrátt fyrir
nokkra yfirburði Utd. í síðari
hálfleik tókst West Ham að jafna
um miðjan hálfleikinn, Paul
McGrath felldi þá Mark Ward
innan vítateigs og Ray Stewart
skoraði úr vítaspyrnunni. Tony
Cottee fékk síðan gott tækifæri
fyrir West Ham stuttu síðar, en
mistókst að skora. Mótlætið fór
mjög í taugarnar á leikmönnum
Manchester Utd. og fyrirliði
þeirra, Bryan Robson var bókað-
ur undir lok leiksins. Þ.L.A.
Mark Colin Gibson af 25 metra færi
dugði Utd. ekki til sigurs á West
Ham.
Knatt-
spymu-
úrslit
Úrslit leikja í 1. og 2. deild
ensku knattspyrnunnar um
helgina urðu þessi:
1. deild:
Arsenai-Derby 2:1
Coventry-Newcastle 1:3
Everton-Watford 2:0
Luton-Liverpool 0:1
Nottm.Forest-Tottenham 3:0
Oxford-Charlton 2:1
Q.P.R.-Portsmouth 2:1
Sheff.Wed.-Norwich 1:0
Southampton-Chelsea 3:0
West Ham-Man.United 1:1
2. deild:
Birmingham-Middlesbro 0:0
Blackburn-Plymouth 1:1
C.Palace-Swindon 2:1
Hull-Leicester 2:2
Ipswich-Sheff.Utd. 1:0
Leeds-Bornemouth 3:2
Man.City-Barnsley 1:1
Reading-Bradford 1:1
Shrewsbury-Oldham 2:3
Stoke-Aston Villa 0:0
W.B.A.-Huddersfield 3:2
Getraunaröðin er þessi: 121-
211-111-XX2
Staðan
1. deild
Liverpool
Q.P.R.
Arsenal
Nottm.Forest
Man.United
Everton
Chelsea
Tottenham
Oxford
Southampton
Coventry
Newcastle
Derby
Portsmouth
Wimbledon
West Ham
Luton
Norwich
Sheff.Wed.
Watford
Charlton
10 9-1-0
12 9-1-2
12 8-2-2
12 8-2-2
13 6-6-1
13 6-4-3
13 7-1-5
13 6-2-5
12 5-2-5
12 4-4-4
12 5-1-6
11 3-4-4
12 3-4-5
12 3-4-5
11 3-3-5
12 2-6-4
12 3-3-6
13 3-1-9
13 2-3-8
11 2-2-7
12 1-2-9
29: 6 28
18:10 28
22: 7 26
22: 9 26
22:13 24
21: 9 22
22:20 22
16:13 20
17:19 17
18:19 16
14:19 16
15:18 13
9:14 13
13:25 13
12:1512
12:15 12
14:18 12
9:18 10
12:26 9
5:14 8
9:23 5
Staðan
2. deild
Bradford
IIull
Middlesbro
Aston Villa
Ipswich
C.Palace
Swindon
Millwall
Birmingham
Stoke
Man.City
Barnsley
Leeds
Leicester
Blackburn
Sheff.United
Plymouth
W.B.A
Bornemouth
Oldham
Shrewsbury
Reading
Huddersileld
15 10-3-2 28:14 33
15 8-6-125:14 30
15 8-3-4 22:13 27
16 6-7-3 21:13 25
15 74-418:12 25
14 7-3-4 29:21 24
14 7-3-4 23:15 24
14 7-3-4 22:18 24
15 6-5-4 17:20 23
16 5-5-6 9:18 20
14 5-5-5 24:2119
15 5-4-6 17:1819
16 4-7-514:1919
15 5-3-7 23:21 18
15 4-6-518:1918
15 5-3-717:2018
16 4-5-7 26:28 17
16 5-2-9 20:28 17
15 4-4-719:2216
14 4-4-613:2116
14 2-7-5 11:1613
14 3-4-7 15:24 13
14 0-5-914:31 5