Dagur - 26.10.1987, Page 13

Dagur - 26.10.1987, Page 13
skaðlausu hægt að grisja stofninn verulega. Sumir þéttbýlisbúar eiga fleiri hross en góðu hófi gegnir en mikið af þeim fer í hagagöngu út í sveitirnar. Ný viðhorf Horfur eru á að enn létti verulega á afréttarlöndum ekki aðeins vegna fækkunar heldur einnig vegna styttingar á beitartíma. Bændur eru hvattir til að flýta göngum til að koma dilkum fyrr til slátrunar og sjást nú þegar merki slíkrar þróunar. Fækkun fjár og fjárbænda leiðir trúlega til þess að æ fleira sauðfé verði í heimalöndum sumarlangt, en nú gengur vart meira en helmingur sauðfjár landsmanna í afréttum. Ósennilegt er að stóðhrossabeit aukist í afréttum. A nokkrum gróðurvinjum í hálendinu er álag vegna beitar ferðahesta of mikið, sérstaklega þegar stórir hópar fara um, og brýnt er fyrir hesta- mönnum að taka með sér fóður í slíkar ferðir og treysta ekki á beitina. Hvað aðra beit varðar ganga nautgripir að mestu á rækt- uðu landi og ekki eru líkur á að geitum fjölgi, en þær eru mjög eru oftast viðkvæm mál og breyt- ingar hægfara. Að tvennu ætla ég að víkja sér- staklega sem oft ber á góma þeg- ar rætt er um bætta beitarhætti, þ.e.a.s. beitarþolsmat og ítölu annars vegar og girðingar og frið- un hins vegar. Mat á beitarþoli ítala er þekkt frá fornu fari því að um hana eru ákvæði í Grágás, elstu lögbók íslendinga. Ákvarð- aður er tiltekinn fjöldi beitar- gripa á ákveðnu svæði í ákveðinn tíma og er nú í gildi ítala á nokkr- um stöðum á landinu samkvæmt ákvæðum afréttarlaga. ítölu má gera fyrir heimalönd jafnt sem afrétti og skal leggja til grund- vallar niðurstöður beitarþols- rannsókna frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins eftir því sem við verður komið. Mikið liggur fyrir af gögnum frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins sem varðar beit- arþol svo sem gróðurkort, mæl- ingar á uppskeru gróðurlenda og niðurstöðu víðtækra beitartil- rauna. f>essi gögn nýtast þó ekki sem skyldi, m.a. vegna þess að sjálfu sér er misskilningur, en þar sem þeir vildu stuðla að gróður- bótum lögðu þeir sérstakt gjald á afréttarféð og fóru út í upp- græðsluframkvæmdir neðarlega í afréttinum í samvinnu við Land- græðslu ríkisins. Sú framkvæmd hefur tekist vel og hafa verið græddir upp um 400 hektarar (4 ferkílómetrar) á ógirtu landi sem gefa mikla beit. Árið 1980 hættu þeir upprekstri hrossa, en þau höfðu verið í girðingu í Hvítár- nesi. Afréttarfénu hefur fækkað stöðugt og í sumar fóru 2800 ærgildi í Biskupstungnaafrétt. Bændurnir telja sig hafa verið langt innan ítölumarka um árabil og þeim finnst landið mun minna bitið en það var fyrir 20 árum. En þá víkur sögunni aftur til Rannsóknastofnunar landbúnað- arins. Þaðan hefur komið það álit síðustu árin, bæði í ræðu og riti, að friða þurfi Biskupstungna- afrétt fyrir beit. Petta álit var undirstrikað í fréttaþætti í Ríkis- útvarpinu skömmu eftir mold- viðrið í sumar og höfðað til skyn- semi bænda í Biskupstungum. Sömu aðilar sem tilkynntu bænd- um að afrétturinn hefði beitarþol fyrir 9.000 ærgildi árin 1969 boða nú alfriðun þegar beitarálagið er komið niður í 2800 ærgildi. Hvorki hafa beitarþolstölurnar frá 1969 verið dregnar til baka né þeim breytt. „Er þá reiknaða beitarþolið einskis virði?“ spyrja bændurnir. Lái þeim hver sem vill. Hér er því miður ekki um eins- dæmi að ræða. Með bréfi til stjórnar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins dags. 16. júlí sl. hefi ég farið fram á alhliða úttekt og endurskoðun á aðferðum og útreikningum á beitarþoli úthaga. Eg el þá von í brjósti að í framtíðinni verði unnt að ákvarða beitarþol úthaga með mun meiri nákvæmni en hingað til og má í því sambandi minna á ályktun 70. Búnaðarþings frá 15. ágúst sl. um gerð jarðabókar o.fl. Þá kemur betur í ljós hvar ítölu Víða má í íslensku landslagi sjá miklar andstæður. „Meðal bænda er töluverður áhugi á nytjaskógrækt, gjarnan í tengslum við hefðbundinn búskap.“ fáar og ganga í heimalöndum. Engu skal spáð um gæsa- og álftabeit en þær ganga sums stað- ar nærri landi og reynslan sýnir að þeir aðilar sem vinna að gróð- urvernd eru mótfallnir því að hreindýrin dreifist út fyrir Aust- urland. Ýmiss konar gróður- skemmdir af völdum hreindýra eru þekktar þar, m.a. á lerki- skógum og á fléttugróðri, og verstu beitarskemmdir sem ég hef séð í úthaga voru af völdum vetrarbeitar hreindýra í Beru- firði. Raunhæfar úrbætur Þótt víða megi greina úrbætur í meðferð beitilanda má margt betur fara. Jafnframt ber að meta að verðleikum það sem vel er gert. Áfram verður haldið á þeirri braut og svigrúm er fyrir frekari gróðurverndaraðgerðir á komandi árum innan ramma nú- gildandi laga. Æskilegt er að opinber afskipti verði sem minnst og reynslan sýnir að gróðurvernd verður að byggjast á góðu sam- starfi hlutaðeigandi stofnana, gróðurverndarnefnda og bænda. Það sem skiptir mestu máli er að stilla fjölda beitarfénaðar í hóf, að fækka þar sem land er ofsetið. Þær breytingar sem nú eru að verða á búskaparháttum stuðla að þeirri þróun. Við skul- um þó ætíð minnast þess að mál- ið er ekki aðeins hagfræðilegt heldur einnig félagslegt og varðar búsetu í sveitum og eignar- og afnotarétt á landi. í beitarmálum eru engar einfaldar lausnir. Þetta mikil skekkja virðist vera í mati á útreiknuðu beitarþoli. Tökum Biskupstungnaafrétt sem dæmi en þar er mikill upp- blástur á köflum. Árið 1969 fengu bændur í Biskupstungna- hreppi í hendur frá Rannsókna- stofnun landbúnaðarins þær upp- lýsingar að reiknað beitarþol væri rúmlega 1,35 milljón nýtanlegar fóðureiningar sem nemur um 9.000 ærgilda beit þann tíma sem féð er í afréttinum. Þetta töldu bændurnir jafngilda ítölu, sem í er þörf og unnt verður að sam- ræma beitina betur landkostum. Þótt ég telji nokkuð skorta á fræðilegan grundvöll ítölugerðar stendur það vonandi til bóta og ég álít ítölu færa leið. Lausaganga minnkar Girðingar og friðun eru lausnar- orð sumra sem láta sig gróðurmál varða. Hvað bændur áhrærir má reikna með að þeir leggi fremur í girðingaframkvæmdir í heima- löndum en í afréttum. Girðingar 26. október 1987 - DAGUR - 13 eru dýrar, bæði uppsetning og viðhald og vart er við því að búast að bændur leggi út f stór- felldar girðingaframkvæmdir á næstu árum. Rafgirðingar eru að vísu ódýrari en það skipti ekki sköpum að mínum dómi. Nú þegar eiga upprekstrarfélögin fullt í fangi með að viðhalda af- réttargirðingum sínum og hólfun afrétta tel ég nær undantekning- arlaust óarðbæra og jafnvel til bölvunar. Sé um ofbeit að ræða er raunhæfasta aðgerðin að draga úr beitarálagi með því að stytta beitartímann og fækka fénaði á landinu. Við erum nú þegar á þeirri braut eins og áður var vikið að. Þótt afgirt heimalönd verði væntanlega nýtt í æ ríkari mæli til beitar tel ég algerlega óraun- hæft að reikna með því í fyrirsjá- anlegri framtíð að bændur haldi öllu búfé í girðingarhólfum. Bann gegn lausagöngu kemur helst til greina í þéttbýlum sveit- um og í kaupstöðum og kauptún- um og nágrenni þeirra. Til dæmis hefur verið í gildi bann gegn lausagöngu búfjár á Suðurnesj- um í réttan áratug. Um þessar mundir er slík skipan að festast í sessi á öllu höfuðborgarsvæðinu, þ.e.a.s. frá Hafnarfirði til Kjal- arness neðan samfelldrar vörslu- girðingar sem skilur á milli mest allrar byggðar og ræktunarlands annars vegar og fjalllendis og heiða hins vegar. Þetta eru hinar þarflegustu framkvæmdir. Nú þegar er í gildi bann gegn lausa- göngu hrossa í mörgum sveitum, en sums staðar gengur þó illa að framfylgja því einkum að vetrar- lagi. Beit og skógrækt Nú þegar eru stór svæði friðuð fyrir beit einkum á vegum Land- græðslu ríkisins og Skógræktar ríkisins og Náttúruverndarráðs og væntanlega munu slíkar fram- kvæntdir halda áfram eftir því sem þörf krefur og fjárveitingar leyfa. Meðal bænda er töluverður áhugi á nytjaskógrækt, gjarnan í tengslum við hefðbundinn búskap. Þar er um langtíma fjár- festingu að ræða en ekki er til- tækt nægilegt fjármagn til átaks á þessu sviði. í ákveðnum tilvikum kemur til greina að beita sauðfé og öðru búfé í skóg að sumarlagi, og ég tel það afskaplega slæman og úreltan málflutning þegar búfjárrækt og skógrækt er stillt upp sem andstæðum. Breyting frá hjarðbúskap til ræktunarbú- skapar gerir það að verkum að þessar tvær greinar landbúnaðar geta dafnað hlið við hlið. Á Bretlandseyjum er nú talað um Agro-Forestry þegar bændur búa áfram á jörðum sínum með búfé eftir aðstæðum og rækta nytja- skóg á völdum spildum í stað þess að láta stórtæk skógræktar- umsvif fækka byggðum býlum. Á réttri leið Ég tel ástæðu til bjartsýni í gróð- urverndarmálum á komandi árum. Framfarirnar munu ráðast mjög af veðráttunni. Veðurfars- fræðingar hafa bent á að hugsan- lega hlýni loftslag samfara aukn- ingu kolsýrulofts (CO;) á jörð- inni. En við þurfum samt að vera við öllu búin og gera ráð fyrir áföllum af völdum harðinda svo að ekki sé minnst á hættu á kóln- andi veðri vegna áhrifa eldgosa eða kjarnorkusprenginga. Við getum þó treyst því að með bætt- um beitarháttum batnar meðferð landsins. Við erum á réttri leið. Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur. Sykur og brauð - Ný bók frá Bókaútgáfunni Punktum Bókaútgáfan Punktar sendir frá sér nýja bók eftir Pétur Gunnars- son, Sykur og brauð. Um er að ræða sýnishorn þátta, greina, pistla, erinda og hugvekja frá síð- ustu fimmtán árum. Sumt er óbirt, annað flutt á mannamótum eða öldum ljósvakans og svo loks efni úr blöðum og tímaritum. Sykur og brauð er 167 bls. að lengd og fæst bæði innbundin og í kilju. Bamasaga - eftir Peter Handke Út er komin hjá Bókaútgáfunni Punktum Barnasaga, frásögn eft- ir austurríska rithöfundinn Peter Handke. Peter Handke er ekki aðeins í hópi fremstu höfunda hins þýskumælandi heims nú á dögum, heldur hefur hann unnið sér alþjóðlegt nafn sem einn frumlegasti og mikilvægasti sam- tímahöfundurinn. Bækur hans hafa verið þýddar jafnóðum á fjölda tungumála en á Islandi hafa verið sýnd eftir hann leikrit- in Kaspar og Svívirtir áhorfend- ur. Barnasaga er að hluta ævisögu- leg frásögn. Ung hjón eignast barn, slíta samvistum og faðirinn annast barnið. Leikurinn berst til útlanda þar sem faðir og barn halda gangandi veröld sem þrátt fyrir smæð sína speglar bæði alheim og veraldarsögu. í Barnasögu birtast helstu höfundareinkenni Peter Handke: Orðfæð, markhittni og klisjufælni ásamt sjaldgæfum hæfileika til að opinbera þann veruleika sem enginn tekur eftir en allir gera tilkall til þegar tekst að koma orðum að honum. Barnasaga er 88 bls. að lengd og þýdd af Pétri Gunnarssyni. Nýjasta bók Heinesens - komin út á íslensku Pýdinga ú tgáfan og Forlagið hafa í sameiningu sent frá sér nýjustu bók sagnameistarans WiÚiams Heinesen. Á dönsku heitir þessi bók Laterna Magica en hefur fengið nafnið Töfralampinn á íslensku. í Töfralampanum eru 10 sjálf- stæðar frásagnir sem þó eru margvíslega tengdar innbyrðis þannig að heild bókarinnar verð- ur meiri en tíðkanlegt er í vana- legum smásagnasöfnum. Með þessum hætti er sagnaþulurinn í Þórshöfn að bæta enn nýjum streng í frásagnarleikni sína og feta ótroðnar slóðir, enda tæp- lega orðinn hálfníræður þegar hann lauk þessu verki. Undirtitill bókarinnar er: Nýj- ar minningasögur. Þýðandi þessarar nýju bókar er Þorgeir Þorgeirsson sem áður hefur þýtt fjöldamargar bækur Heinesens við einróma lof bæði lesenda og gagnrýnenda. Töfralampinn er 132 blaðsíður að stærð. Bókin er prentuð og bundin í Odda. Bókarkápa og myndskreytingar eru verk höf- undarins sjálfs sem lengi hefur einnig talist með bestu myndlistarmönnum Færeyinga.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.