Dagur - 26.10.1987, Page 16

Dagur - 26.10.1987, Page 16
Snyrtivörur í úrvali - Okkar merki - Snyrtivörur í úrvali Vel heppnuðu Iðnþingi lokið - aukablað á morgun 42. Iðnþingi Islendinga lauk í Alþýðuhúsinu á Akureyri á laugardag. Þingið sátu um 150 fulltrúar frá aðildarfélögum sambandsins auk gesta. í tengslum við þingið má áætla að um 300 manns hafí verið gestkomandi í bænum og var allt gistirými upptekið. Þingið í heild þótti takast mjög vel en það sem hvað mesta hrifn- ingu vakti var ráðstefna sem haldin var í tengslum við það á föstudag undir yfirskriftinni Ný tækni í iðnaði - aukin framleiðni. Á þinginu kom fram sú tillaga meirihluta löggjafar- og skipulags- nefndar að nafni sambandsins yrði breytt og eftir talsverðar umræður var milliþinganefnd fal- ið að gera tillögur um það og innra skipulag sambandsins fyrir aukaþing sem haldið verður að ári liðnu. Haraldur Sumarliðason var endurkjörinn forseti Landssam- bands iðnaðarmanna. Með Degi á morgun mun fylgja fjögurra síðna aukablað þar sem þinginu verða gerð nán- ari skil í máli og myndum. ET Fiskmarkaður Norðurlands: Loksins uppboð - ellefti aðilinn tengdur og ísfirðingar volgir ,Þetta er aðeins að fara af stað aftur og ég er því feginn,“ sagði Sigurður P. Sigmundsson í samtali við Dag en á föstu- daginn fór loks fram annað Breyta farvegi Svarfaðar- dalsár! „Áin veldur töluverðum skemmdum með því að grafa undan bökkunum og við ákváðum að breyta farvegi hennar til að forða frekari röskun af hennar völdum,“ sagði Ingvi Baldvinsson, bóndi á Bakka í Svarfaðardal, en framkvæmdir eru nú hafnar við nýjan árfarveg í landi jarð- arinnar. Að sögn Ingva liggur Svarf- aðardalsá í mörgum hlykkjum um Bakkaland en nýr árfarvegur mun liggja í beinni línu. Vatns- veita Dalvíkur á leiðslu meðfram árbökkunum á þessum stað og viss hætta er á skemmdum þegar áin er í vexti og rífur af bökkun- um. Kostnaðinn af framkvæmd- unum greiðir Landbrotssjóður á móti bændum í hlutfalli og er þá miðað við ákveðna prósentutölu kostnaðar. „Það eru mörg ár síðan við gerðum okkur grein fyrir því að eitthvað þyrfti að gera í þessum málum því mikið af landi hefur skemmst af vatnavöxtum um dagana og sumt af því er hrein- lega að klárast. Á þessu verður nú ráðin bót því ætlunin er að setja ána í stokk út fyrir Grund- arbakka þegar fram líða stundir. Á þessu stigi er ætlunin að taka eins kílómetra langan kafla og ljúka því verki fyrir áramót,“ sagði Ingvi Baldvinsson á Bakka. EHB uppboðið á markaðinum. Uppboðið gekk mjög vel fyrir sig og virðast tæknilegir byrj- unarörðugleikar nú að baki. Fiskurinn sem var boðinn upp var 5 tonn af óslægðum þorski úr Sjöfn ÞH. Fiskinum var landað á Grenivík en báturinn hefur til þessa lagt allan afla sinn upp hjá Kaldbaki hf. þar á staðnum. Aflinn skiptist til helminga í tvo flokka eftir stærð, undir og yfir tveimur kílóum. Fyrir stærri fiskinn fengust 36 krónur á kílóið og 29,5 krónur á kílóið fyrir þann minni. Kaupandinn að hvoru tveggja var Birgir Þórhallsson á Akureyri. Fjórir aðilar buðu í aflann og sá sem hvað harðast keppti við Birgi var aðili á Kópaskeri. Hinir voru Kaldbakur hf. og ÚKE Grenivík. Ellefti aðilinn tengdist mark- aðinum fyrir skömmu og var þar um að ræða fiskverkun Zophoní- asar Cecilssonar á Grundarfirði. Einnig er að sögn Sigurðar líklegt að aðilar á ísafirði tengist mark- aðinum innan skamms. ET Bjarni Bjarnason skipstjóri á Súlunni EA glaðbeittur á svip, kominn um borð í skip sitt, sem á laugardagskvöld hélt loks á loðnuveiðar eftir langvar- andi brælu á miðunum. Mynd: et Húsavík: Nýrúti- bússtjóri Lands- bankans Árni Sveinsson hefur verið ráðinn útibússtjóri Lands- banka íslands á Húsavík og mun hann hefja störf þar eftir næstu mánaðamót. Sigurður Pétur Björnsson útibússtjóri verður sjötugur um næstu helgi og hættir því störfum við bankann um áramót. Sigurður hefur verið útibússtjóri síðan Landsbankinn yfírtók Spari- sjóð Húsavíkur en áður starf- aði hann við sparisjóðinn frá því um 1940. Árni er fæddur á Akureyri 1933, sonur hjónanna Bjargar Vigfúsdóttur og Sveins Bjarna- sonar. Hann lauk prófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni og starfaði m.a. hjá Síldarverk- smiðjum ríkisins og Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi. Árni hóf störf fyrir Landsbank- ann 1956, hann hefur starfað við endurskoðunardeild, bókhald og verið eftirlitsmaður útibúa en síðan 1980 hefur hann gegnt starfi útibússtjóra bankans á Neskaupstað. Merkisdagar SVFÍ: „Fólk tók yfirieitt brosandi á móti okkur“ „Þetta gekk mjög vel og fólk tók yfírleitt brosandi á móti okkur,“ sagði Svala Halldórs- dóttir formaður Slysavarna- deildar kvenna á Akureyri en Slysavarnafélag íslands stóð um helgina fyrir svokölluðum „merkisdögum“ um allt land. Svala gat ekki sagt til um það hver hagnaður af sölunni um helgina var en deildirnar fá helm- ing af ágóða merkjasölunnar í sinn hlut og allan ágóða umfram 1500 krónur fyrir sölu á vegg- plöttum. Merkisdagarnir voru einkum hugsaðir til að byggja upp aðstöðu fyrir sjódeildir slysa- varnafélagsins. Það má svo fylgja með að ef einhver hefur misst af sölufólkinu “Free-style“ keppnin: r Mikil tilþrif í Sjallanum Á laugardagskvöldið fór fram í Sjallanum keppni í frjálsri aðferð við hárgreiðslu, svo- kölluð „frístælkeppni“. Keppt var í tveimur flokkum. í flokki hárskera voru keppend- ur 15 talsins frá Akureyri og Reykjavík og þar varð Sigur- karl Aðalsteinsson Akureyri hlutskarpastur. Akureyringar voru einnig í þremur næstu sæt- unum. í flokki hárgreiðslufólks voru 10 keppendur frá Akur- eyri, Reykjavík, Húsavík og Sauðárkróki. Þar varð Málfríð- ur Vilmundardóttir Reykjavík hlutskörpust. Nánar verður fjallað um keppnina í máli og myndum síðar í vikunni. ET Málfríður Vilmundardóttir hampar verðlaunum sínum. um helgina þá getur sá hinn sami haft samband við Svölu í síma 22922 og keypt merki og platta. ET Stal bíl og velti Lögreglan á Akureyri hafði í ýmsu að snúast um helgina. Sex smávægilegir árekstrar urðu og talsvert var um ölvun. Þurftu nokkrir að sofa úr sér í fangageymslum lögreglunnar. Aðfaranótt föstudags var brot- in upp hurð á vinnuskúr við nýbyggingu DNG við Lónsbakka en engu var stolið. Aðfaranótt sunnudags var brotin rúða í hús- gagnaverslun og náðist sá sem það gerði. Á föstudagsmorgun varð bíl- velta norðarlega á Hlíðarbraut. Ökumaðurinn var undir áhrifum áfengis og hafði hann stolið bíln- um af stæði við Geislagötu. Áður en hann velti keyrði hann utan í kyrrstæða bifreið í grenndinni. Ökumaðurinn meiddist lítillega og fékk aðhlynningu á Fjórð- ungssjúkrahúsinu áður en lög- reglan tók hann í sína vörslu. Þess má geta að lyklarnir voru í bílnum sem stolið var og því hæg heimatökin að taka ökutækið ófrjálsri hendi.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.