Dagur


Dagur - 18.11.1987, Qupperneq 9

Dagur - 18.11.1987, Qupperneq 9
8 - DAGUR - 18. nóvember 1987 18. nóvember 1987 - DAGUR - 9 Svatfdœlinga samtökin í Reykjavík 30 ára Á þessu ári fagna Svarfdæl- ingasamtökin í Reykjavík 30 ára afmæli sínu. Á hverju hausti er haldin vegleg árshátíð samtakanna sem verið hefur ein aðaltekjulind þeirra. Á þessa árshátíð fjölmenna Svarfdælingar á höfuðborgar- svæðinu og gjarnan bregða norðanmenn sér suður yfir heiðar til fagnaðar með sveit- ungum sínum. Síðastliðið laugardagskvöld var haldið slíkt Svarfdælingamót í Félagsheimilinu á Seltjarnar- nesi. Hátíðin var fjölmenn að vanda og fögnuðu Svarfdælingar þessum merka áfanga í starfi samtaka sinna. En áður en skemmtuninni verða gerð skil er rétt að rifja upp stofnun samtak- anna fyrir 30 árum. Svarfdælingar búsettir í Reykjavík og nágrenni ákváðu að koma saman til fundar þann 22. mars árið 1957 í því skyni að ræða hugsanlegan félagsskap sín á milli. A þessum fundi var kosin undirbúningsnefnd sem kannaði málin frekar en formlegur stofn- fundur samtakanna var haldinn 26. nóvember 1957. Þar var ákveðið að þessi félagsskapur skyldi hljóta nafnið Svarfdælinga- samtökin í Reykjavík. Aðalhvatamaður að stofnun þessara samtaka var Snorrí Sig- fússon, fyrrverandi skólastjóri og námsstjóri. Snorri varð fyrsti for- maður félagsins en með honum í stjórninni voru Gísli Kristjánsson ritstjóri og Kristján Eldjárn þjóðminjavörður og síðar forseti íslands. Pessir menn unnu mikið og gott starf í þágu félagsins en einnig er vert að geta Egils Júlíussonar sem starfaði með þeim nánast frá stofnun félagsins og varð síðar stjórnarmaður í samtökunum. Samkomugestir ganga að hlaðborðinu Fjörug afmælishátið Eins og áður segir var afmælis- hátíðin síðastliðinn laugardag fjölmenn og fólk í hátíðarskapi. Veislustjóri var Gunnlaugur Snævarr en hann hefur haft veislustjórn á árshátíðum Svarf- dælingasamtakanna með hönd- um síðustu árin. Kristján Jónsson, núverandi formaður Svarfdælingasamtak- anna í Reykjavík rifjaði upp stofnun og starf samtakanna í 30 ár. Fyrir hönd stjórnar Svarfdæl- ingasamtakanna færði Kristján fjórum Svarfdælingum blómvendi sem komið hafa að norðan á árshátíð samtakanna síðustu árin. Þetta eru þeir Sigurður Marinósson, Eiður Steingríms- son, Ríkharður Gestsson og Hallgrímur Einarsson. Þeir félag- ar færðu síðan samtökunum gjöf í tilefni afmælisins, Svarfaðar- dal, ljóð Hugrúnar, skorið út á Starfsemin í starfsreglum samtakanna segir að þau séu stofnuð til kynningar og skemmtunar og til að efla tengslin við gamla heimahaga. Ennfremur að ræða og vinna að verkefnum sem varða svarf- dælska menningu fyrr og nú. Með öðrum orðum mætti ef til vill segja að fyrir mönnum hafi vakað félagsskapur sem stuðlaði að eflingu kunningsskapur meðal fólks af svarfdælskum uppruna syðra, en væri þó jafnframt ætíð til taks ef hann teldi sig geta lagt einhverju því málefni lið sem gömlu átthögunum væri til gagns og sóma. Starfsemi félagsins hefur verið með nokkuð svipuðum hætti í gegnum árin. Árshátíðin hefur verið hápunktur starfsins og Svarfdælingakórinn syngur. Stjórnandi og undirleikari er Kári Gestsson, Fylgst með skemmtiatriðum. Næstur á myndinni er Gunnlaugur Snævarr, veislustjóri. Fyrir miðri mynd er Björn Þorleifsson skólastjóri og oddviti I Svarfaðardal ásamt konu sinni. einnig ein aðaltekjulindin. Þá réð- ust samtökin í stórt verkefni sem var að gefa út sögu Svarfdælinga, tveggja binda ritverk sem að kalla má sögu Svarfaðardals. Strax í upphafi var áhugi fyrir slíkri söguritun í stjórn Svarf- dælingasamtakanna og var þessi hugmynd í mótun allt fram til ársins 1964 er ráðist var í sögurit- unina. Stefán Aðalsteinsson fræðimaður og ættfræðingur var fenginn til að semja ritið og kom fyrra bindið út árið 1976 en það síðara árið 1978. Hér var á ferð- inni mjög vandað ritverk, glöggt dæmi um hvað öflugt félagsstarf sem Svarfdælingasamtökin í Reykjavík getur leitt af sér. Þá hafa samtökin staðið fyrir spilakvöldum og öðrum minní samkomum á hverjum vetri auk þess sem þau hafa einnig staðið fyrir hópferðum félagsmanna undanfarin 5 sumur. Hafa þessar ferðir mælst vel fyrir og verða vonandi einn fastaþáttur í félags- starfinu á komandi árum. tréplatta. Hátíðarræðu kvöldsins flutti Bjarki Elíasson, yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík. Bjarki rifjaði upp bernsku sína í Svarfaðardal og á Dalvík og minntist þá sér- staklega minnistæðrar sumar- dvalar á Grund. Eitt og annað til að kitla hlát- urtaugarnar var líka á afmælis- skemmtuninni. Bjöm Þorleifs- son, skólastjóri og oddviti í Svarfaðardal flutti nokkra frum- orta bragi og gamanmál, Atli Rúnar Halldórsson rifjaði upp bernskupör í Sláturhúsinu á Dalvík, Svarfdælingakórinn söng nokkur lög, eftirherma skemmti gestum og fleira. Eftir að samkomugestir höfðu sungið og hlýtt á gamanmál var tekið til við dansinn. Hljómsveit Vilhelms Guðmundssonar lék fyrir dansi og þurfti ekki að segja fólkinu tvisvar að drífa sig á gólfið. Dansinn var stíginn óspart fram eftir nóttu og höfðu menn á orði að hátíðin hefði tekist í alla staði vel. JÓH Sveinn Ganialíclsson. Bjarki Elíasson flytur hátíðarræðu kvöldsins. Ekki hægt að spá um framtíðina Átthagafélög eins og Svarfdæl- ingasamtökin eru nokkur starf- andi í Reykjavík. Þar er Eyfirð- ingafélag, Eskfirðingafélag, Þingeyingafélag o.s.frv. Því er ekki að ástæðulausu að menn deila um gildi þess að hafa svo mörg félög starfandi og víst má til sanns vegar færa að hagkvæmara væri að hafa þessi félög færri og stærri. „Auðvitað er heldur ekki að vita hvernig starfsemi þessara félaga verður eftir að okkar kyn- slóð dregur sig út úr þessu starfi. Það er ekki hægt að spá fyrir um hvort unga fólkið vill taka við þessum félagsskap og halda hon- um uppi. Þó höfum við ekki ástæðu til að örvænta vegna þess að ungt fólk hefur verið duglegt við að mæta á árshátíðir hjá Svarfdælingasamtökunum og sýnir því mikinn áhuga að halda félaginu gangandi," segir Sveinn. - Hversu fjölmennur félags- skapur eru Svarfdælingasamtökin í Reykjavík? „Ætli að það séu ekki 200-300 manns á félagaskrá. Þetta er allt fólk sem er úr Svarfaðardalnum, flestir fæddir og uppaldir þar.“ - Hvert hefur aðalstarfið verið? „Starfið hefur að mestu snúist um að halda samkomur t.d. kaffi fyrir aldraða, basar, spilakvöld, árshátíð og þess háttar. Síðan er náttúrlega saga Svarfdælinga stærsta verkefni sem samtökin hafa ráðist í. Kristján Eldjárn og Snorri Sigfússon voru aðalhvata- menn að því að ráðist var í þetta stórverkefni og þeir fylgdu því eftir að þetta ritverk var gefið út. Loks hefur félagið gert mikið af því að styrkja ýmsa hluti í heimabyggðinni. Þannig hefur félagið styrkt minjasafnið sem nú er verið að opna á Dalvík og einnig stóð félagið fyrir fjársöfn- um til styrktar byggingu Dvalar- heimilis aldraðra á Dalvík. í heild tókst okkur að safna um einni milljón króna.“ Samhjálpin rík í Svarfdæiingum Að halda úti stórum félagasam- tökum á höfuðborgarsvæðinu er ekki einfalt mál. Þetta kostar mikla vinnu þeirra sem í stjórn félaganna eru á hverjum tíma því að oftar eru það stjórnarmenn sem mest mæðir á. En félagi eins og Svarfdælingasamtökunum í Reykjavík væri ekki hægt að halda gangandi ef ekki væri vilji hjá fólkinu fyrir hendi. Ég spurði Svein hvað hann teldi valda því að Svarfdælingar í Reykjavík halda svo mikið saman sem raun ber vitni. „Já, þetta getur til dæmis kom- ið til af því að byggðin í Svarfað- ardal var þétt og fólk þekktist vel, eins og reyndar er enn þann dag í dag. Samhjálpin er nokkuð rík í Svarfdælingum og ég mundi telja að þessi tvö atriði eigi stærstan þátt í hve Svarfdælingar halda vel saman hér á höfuðborg- arsvæðinu. Annars er líka gott samband milli fólks utan við starfsemi sam- takanna. Fólk kemur saman í heimahúsum og með þessu móti viðhelst kunningsskapurinn og fólk heldur sambandi sín á milli.“ - Hvað með aðsetur fyrir sam- tökin hér í Reykjavík? „Við höfum aldrei haft fast aðsetur hér í Reykjavík. Stjórn- arfundir eru oftast haldnir heima hjá formanninum en við leigjum húsnæði undir þær skemmtanir sem við höldum,“ sagði Sveinn Gamalíelsson að lokum. JÓH Fastagestir að norðan hciðraðir. Frá vinstri: Sigurður Marinósson, Ríkharður Gestsson, Hallgrímur Einarsson og Eiður Steingríms- son. Kristján Jónsson í ræðustólnum. Kristján Jónsson formaður Svarfdælingasamtak- anna í ræðustól. Sveinn Gamalíelsson er einn þeirra burtfluttu Svarfdælinga sem starfað hafa í Svarfdæl- ingasamtökunum í Reykjavík um alllangt skeið. Sveinn er fæddur á Hamri árið 1910, sonur hjónanna Gamalíels Hjartarsonar og Sólveigar Hallgrímsdóttur. Sveinn flutt- ist 11 ára að Skeggstöðum þar sem hann ólst upp. Til Reykja- víkur flutti Sveinn áríð 1934 en í Svarfdælingasamtökunum hefur hann verið síðan árið 1976. Þá kom hann á sitt fyrsta spilakvöld hjá samtökunum og eftir kvöldið var hann orðinn stjórnarmaður, sér sjálfum mest á óvart. „Ég kom þarna eitt kvöld á spilakvöld hjá samtökunum í Óddfellowhúsinu. Ég ætlaði bara á spilakvöld eins og gengur en þá átti að vera aðalfundur samtak- anna um leið. Þá voru í stjórninni þeir Snorri Sigfússon, Gísli Krist- jánsson og Kristján Eldjárn. Ég hafði sáralítið starfað í Svarfdæl- ingasamtökunum fram að þessu en á þessum fundi var farið að kjósa í stjórn og það atvikaðist þannig að ég var kjörinn í stjórn eftir að Gísli Kristjánsson hafði stungið upp á mér til kjörs. Þarna var ég kosinn í stjórn og nokkr- um dögum síðar var ég settur for- maður sem ég var næstu sex árin,“ segir Sveinn. „Samhjálpin er rík í Svarfdælingumu - rætt við Svein Gamalíelsson, fyrrverandi formann Svarfdælingasamtakanna í Reykjavík

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.