Dagur - 20.11.1987, Qupperneq 22
22 - DAGUR - 20. nóvember 1987
við Hvannavelii.
Símar 24119 og 24170.
:»ubaru Justy J10 árg. ’87.
Ek. 8000 km. Sóllúga. Eins og nýr.
‘ffl íþróttadeild
Léttis
Félagsfundur verður haldinn sunnudagskvöld kl. 20.30
að Hvammshlíð 6.
Umræðuefni:
Inngangur Í.D.L. í l'þróttasamband fslands.
Önnur mál.
Stjórnin.
MMC Lancer station 4x4 árg. ’87.
Ek. afteins 6000 km.
Subaru sendill E10 árg. ’87.
Ek. 10.000 km. M/sætum og gluggum.
MMC Pajero langur Turbo Disel árg. ’85.
Ek. 60.000 km.
Isuzu Troper árg. ’82.
Ek. 71.000 km.
Suzuki Fox SJ413 árg. ’85.
Ek. 67.000 km.
MMC Pajero stuttur Disel árg. ’83.
Ek. aðeins 36.000 km.
Toyota Corolla GT Twin Cam 16 árg. 87.
Ek. 25.000 km.
Einnig höfum við mikið úrvai
fjórhjóia á staðnum í hlýjum og
rúmgóðum sýningarsal.
GLERÁRGÖTU 341. HÆÐ
INNGANGUR AÐ AUSTAN
Mikið úrval
★ Sturtuklefar
★ Sturtuhorn
★ Sturtuvinklar
★ Sturtuhurðir
★ Baðkarshurðir
★ Baðkarsveggir
Litir, brúnt, hvítt, állitað.
Gott verð.
£> Byggingavörur
Glerárgötu 36
Sími 96-21400.
Skátarnir
75 ára
starfs á
Á fimmtudagskvöldið í fyrri
viku minntist Skátafélagið Ei-
lífsbúar á Sauðárkróki 75 ára
afmælis skátastarfs á íslandi.
Var það gert með kvöldvöku
sem haldin var undir berum
himni í Grænuklauf.
Skátarnir ætluðu að halda
kvöldvökuna á Borgarsandi en
vegna norðan fræsings þennan
dag var leitað skjóls í klaufinni.
Skemmtiatriði og söngur skát-
anna setti mark sitt á kvöldvök-
minnast
skáta-
íslandi
una, sem margir foreldrar og
aðstandendur sóttu. Þá voru
skátaranir með kaffi og kakósölu
og kom það sér vel fyrir fólk til
að ylja sér á í nepjunni. Að sögn
Ingu Andersen skátaforingja
tókst kvöldvakan mjög vel þrátt
fyrir erfið skilyrði. Eilífsbúar
áforma að fara næsta sumar með
30 manna hóp á vinabæjamót í
Köge í Danmörku. Er fjáröflun
fyrir þá ferð hafin og hafa
skátarnir ýmislegt á prjónunum í
því sambandi. -þá
Frá kvöldvöku skátanna í Grænuklauf/ Mynd: -þá
Leiðrétting
- vegna greinar Regínu Sigurðardóttur
um heilsugæslu
Vegna mistaka í umbroti rugluð-
ust klausur í hluta greinar Reg-
ínu Sigurðardóttur um heilsu-
gæsluþjónustu, sem birt var í
blaðinu í gær. Við birtum þann
hluta greinarinnar aftur hér að
neðan - og réttan að þessu sinni.
Einnig er skylt að taka það
fram að okkur láðist að fá leyfi
höfundar fyrir birtingu þessa
erindis, enda var það fremur
hugsað sem slíkt en sem blaða-
grein. Við biðjum hlutaðeigandi
aðila velvirðingar á þessum
mistökum.
Á rannsóknarstofunni, sem er
mjög fullkomin miðað við stærð
sjúkrahússins eru gerðar rann-
sóknir í blóðmeinafræði, mein-
efnafræði og sýklafræði. Með því
að hafa svona fullkomna rann-
sóknarstofu höfum við sparað
mikið fé vegna kostnaðar við
sendingar á rannsóknum suður.
Á röntgendeild er hægt að gera
allar helstu röntgengreiningar, að
vísu erum við með 17 ára gömul
röntgentæki, sem eru orðin léleg.
En á næstunni munu koma ný og
betri tæki, sem vafalaust eiga eft-
ir að létta mönnum störfin.
Auk þessa eru á 1. hæð lækna-
stofur fyrir 5 lækna sem eru í
50% starfi við sjúkrahúsið auk
þess að starfa á heilsugæslustöð-
inni. Aðstaða fyrir læknaritara og
símavakt er í þröngu húsnæði á
1. hæð. Á 2. hæð er almenn
deild, svo kölluð blönduð deild.
Þar eru lagðir inn aðgerðarsjúkl-
ingar, sjúklingar í lyfjameðferð,
endurhæfingu og fleira. Auk
þessa er fæðingardeild með 4
rúmum, góðri barnastofu og
fæðingarstofu. Á þriðju hæð
hússins eru 34 sjúkrarúm fyrir
langlegusjúklinga sem því miður
fullnægir engan veginn þörf fyrir
langlegu plássum.
Þó sjúkrahúsið sé ekki stórt,
sjáið þið að þarna fer fram fjöl-
breytt starfsemi, og til að reka
þetta sjúkrahús er áætlað að þurfi
um 130 milljónir og 395 þúsund
úr ríkissjóði auk sértekna á árinu
1987, og finnst okkur, sem eigum
að ráðstafa þessu fé, naumt
skammtað. Margt verður að sitja
á hakanum og því miður er það
svo að þær framkvæmdir sem
bíða, verða yfirleitt bæði dýrari
og erfiðari, þegar þær loks eru
gerðar, því gjarnan er ekki hafist
handa fyrr en í eindaga er komið.
Við erum í dag með nærri 20
ára gamla sjúkrahúsbyggingu,
sem þarfnast bæði viðhalds og
endurbóta. Til þess þarf meiri
peninga því það fé sem sjúkra-
húsinu er ætlað nægir ekki einu
fyrir rekstrarkostnaði. Því miður
er Sjúkrahúsið á Húsavík ekki
það eina. Ég er hrædd um að
sama sagan sé hjá flestum sjúkra-
húsum í landinu. Þarna verður að
verða breyting á og helst sem
fyrst.
Ég sagði áðan að heilsugæslu-
stöðin væri í húsnæði sjúkrahúss-
ins. Hún hefur allt of lítið hús-
næði og við á Húsavík erum orð-
in ansi langeyg eftir nýrri heils-
ugæslustöð. Ef af verður, eins og
tillögur hafa komið fram um að
rekstur og bygging heilsugæslust-
öðvar flytjist alfarið yfir á sveita-
félögin er hætt við að við verðum
því miður að bíða í mörg ár í
viðbót. Þess vegna er nú lögð
höfuðáhersla á byggingu nýrrar
heilsugæslustöðvar strax á næsta
ári. f rauninni má segja að það sé
lífsspursmál fyrir framtíð heils-
ugæslustöðvar á Húsavfk að svo
verði.