Dagur - 24.11.1987, Síða 1
70. árgangur Akureyri, þriðjudagur 24. nóvember 1987 224. tölublað
Hlíð og Skjaldarvík:
Mikill hallarekstur
dvalarheimilanna
- fjöldi hjúkrunarsjúklinga á almennum deildum
Fjöldi hjúkrunarsjúklinga á
almennum deildum dvalar-
heimilanna á Akureyri ásamt
launahækkun valda þeim mikla
halla sem þegar er orðinn á
rekstri Hlíðar og Skjaldarvík-
ur, samkvæmt niðurstöðum
Cecils Haraldssonar, fram-
kvæmdastjóra öldrunarmála.
Hallarekstur dvalarheimilanna
verður um 27 milljónir króna á
þessu ári.
Cecil Haraldsson sagði að
ýmislegt gerði það að verkum að
hallinn væri svo mikill sem raun
ber vitni. Fyrst bæri að telja
launaliðinn. Launahækkun ófag-
lærðra starfsmanna er milli 35 og
40%, sjúkraliða um 23% og
hjúkrunarfræðinga liðlega 50%,
miðað við septembermánuð í
fyrra. Launahækkun umfram
áætlun nemur ein og sér milljón-
um króna.
Vegna of fárra starfsmanna
verða öll forföll dvalarheimilun-
um dýrkeypt. Ef starfsmaður for-
fallast og kalla verður annan út í
hans stað kemur mikið álag á
laun viðkomandi. Talsvert er um
forföll í þessum störfum sem
rekja má beint og óbeint til
mikillar hjúkrunarþyngdar, en
margt af því fólki sem nú dvelst á
dvalarheimilunum á þar í raun
ekki heima heldur á sjúkradeild-
um.
Á dvalarheimilinu Hlíð eru 19
manns á sjúkradeildinni en 18 til
viðbótar hafa mjög háa hjúkrun-
arþyngd, þ.e. þarfnast mikillar
umönnunar, sem búa við óviðun-
andi aðstæður. í Skjaldarvík eru
17 sjúklingar, sem svipað er
ástatt um, á almennum herbergj-
um, en þar er ekki starfrækt
hjúkrunardeild. í Seli I og II er
pláss fyrir 35 manns en í raun
þyrfti rými fyrir mun fleiri.
Cecil sagði að lokunt að
skekkjumörk fjárhagsáætlunar
hefðu þurft að vera rýmri en þau
atriði sem að ofan greinir vegi
langþyngst í hallarekstrinum.
EHB
Starfsfólk frystihúss ÚA teygir vcl á í upphafi vinnudags.
Mynd: TLV
Útflutningur á kartöflum:
Samiö um tilrauna-
sendingu til Noregs
Fyrir helgina voru forsvars-
menn Landssambands kartöflu-
framleiðenda í Noregi í þeim
erindagjörðum að ræða við
Norðmenn um hugsanlega sölu
á kartöflum frá íslandi til
Noregs. Samið var um að 12
tonna tilraunasending fari út
nú á næstunni en ef kaupandi
verður ánægður með vörunum
er hann tilbúinn til að kaupa
alla umframframleiðsluna sem
er um 3000-4000 tonn.
Páll Guðbrandsson formaður
Landssambands kartöfluframleið-
Starfsmaður KEA með kartöflur af
Eyj afj arðars væðin u.
enda segir að í þessari sendingu
verði 5 tonn af gullauga, 5 tonn af
rauðum kartöflum og 2 tonn af
premíer kartöflum. Sendingin fer
fljótlega til Noregs þar sem kaup-
andinn mun kynna vöruna fyrir
sínum viðskiptavinum.
Um það verð sem fæst fyrir
kartöflurnar í Noregi sagði Páll
að það væri of lágt. „Við nánast
getum þetta ekki hjálparlaust.
Þetta verð er það lágt að við þurf-
um að gera þetta sameiginlega og
með hjálp frá landsmönnum,"
sagði Páll.
Páll sagði að kaupandinn ræddi
um mismunandi verð eftir því
hvort vörunni verði pakkað hér
heima. Norðmenn tala um að
greiða 8-9 krónur fyrir kílóið
með pökkun en það er rúmlega
sú upphæð sem kostar að pakka
kartöflunum hér heima þannig að
ljóst er að þennan útflutning
verður að styrkja að verulegu
leyti.
I framhaldi af þessari sendingu
verður viðræðum haldið áfram en
ef um semst bæði innanlands
og erlendis gætu kartöflurnar
verið fluttar út upp úr næstu ára-
mótum. JÓH
Hefur þú kynnt þér
fjármálaráðgjöf
Kaupþings Norðurlands?
éélKAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 - Akureyri • Sími 96-24700
Óhapp við byggingu fiskvinnsluhúss á Hauganesi:
Nýsteypt loftplata hrundi
niður í heilu lagi
- heildartjón skiptir milljónum
Á laugardagskvöld varð óhapp
við byggingu fiskvinnsluhúss á
Haugancsi á Árskógsströnd er
nýsteypt loftplata hrundi niður
í heilu lagi. Mesta mildi var að
enginn maður var undir plöt-
unni en menn höfðu klukku-
stundu áður lokið við að ieggja
niður steypu í plötuna og voru
komnir frá húsinu. Ljóst er að
þarna hefur orðið milljóna-
tjón en svo virðist sem ein
uppistaða í mótunum hafi gef-
ið sig með þessum afleiðing-
um.
Um kl. 19 á laugardagskvöld
var lokið við að steypa plötuna
en þessi plata er um 400 fermetr-
ar að stærð. Klukkustundu síðar
gerðist óhappið og þá hrundi
platan niður í heilu lagi. Steypu-
magnið í plötu sem þessari er
heldur ekkert smáræði því að í
plötunni voru um 100 rúmmetrar
af steypu sem eru á bilinu 250-
260 tonn. Krafturinn er platan
hrundi var slíkur að tvær súlur í
byggingunni brotnuðu.
Verktaki við verkið er Aðal-
geir Finnsson hf. á Akureyri.
Órn Jóhannsson, verkstjóri sagði
að fyrirtækið hefði orðið fyrir
miklu tjóni í þessu óhappi því
þarna eyðilögðust öll loftamót
fyrirtækisins sem eru að verð-
mæti um tvær milljónir. Auk þess
má taka í reikninginn steypu,
járn og vinnu við uppslátt og
steypu þannig að í heild gæti tap
fyrirtækisins verið um þrjár millj-
ónir króna.
Örn sagði að tæring virðist
hafa orsakað að ein uppistaða í
mótunum hafi gefið sig með þeim
afleiðingum að öll platan hrundi
niður. Orn sagði ekki ljóst hvort
tryggingafélag fyrirtækisins bætti
tjónið en þó bættu tryggingar
skaða þann sem þriðji aðili hafi
orðið fyrir, þ.e. eigendur fisk-
vinnsluhússins.
Einn sólarhring tók að hreinsa
út úr bygginunni og verður senn
hafist handa við að slá upp nýrri
plötu. Þetta óhapp kemur til með
að tefja bygginguna unt hálfan
mánuð. JÓH
Fiskverð:
Samkomulag
ekki náðst
Tveir fundir voru í gær haldnir
í yfirnefnd verðlagsráðs sjávar-
útvegsins en það hefur frá 15.
nóvember reynt að ná sam-
komulagi um nýtt fiskverð.
Síðari fundinum var ekki lokið
þegar blaðið fór í prentun og
fiskverð lá því ekki fyrir.
Að sögn Sveins Hjartar Hjart-
arsonar fulltrúa LÍU í yfirnefnd
ber nokkuð í milli kaupenda og
seljenda í nefndinni en hann vildi
engu um það spá hvenær nýtt
verð lægi fyrir.
Aðspurður um það hvaða for-
sendur nefndin notaði við verð-
ákvörðun sagði Sveinn að meðal
annars væri litið til þess sem sam-
ið hefur verið um víða um land.
ET
Hvað verður í jólamatinn?
Mikil eftirspurn eftir rjúpum
Nú fara jóiin að nálgast og
þar með verður að fara að
huga að jólamatnum. Margir
eru þeir sem hafa fyrir sið að
borða rjúpur á jólum og virð-
ist þeim lieldur fara tjöigandi
sem taka upp þennan sið. En
okkur lék forvitni á að vita
hvort mikið framboð væri á
rjúpum í versiunum í Ijósi
þess að veiðin hefur ekki
verið með besta móti i
haust.
„Við höfum fcngið talsvert af
rjúpum í haust en ég held að
það sé hægt að selja mun meira
af rjúpum. Eftirspurnin er alltaf
töluverð á þessum tíma og
einnig virðist vera lítið af Öðru
fuglakjöti á markaðnum þannig
að rjúpurnar seljast örugglega,“
sagði Leifur Ægisson hjá Kjöt-
iðnaðarstöð KEA en stöðin hef-
ur tckið við rjúpurn fyrir mat-
vöruverslanir KEA.
Leifur sagðL að nú væri búið
að selja nieira af rjúpu en í
fyrra. Um 800 rjúpur seldust frá
stöðinni í fyrra en Leifur bjóst
við að nú færu um 1000 rjúpur f
gegnum stöðina þar sem eftir-
spurn færi nú vaxandi. Rjúpur
kosta nálægt 300 kr. stk. út úr
búð. JÓH