Dagur - 24.11.1987, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 24. nóvember 1987
Skefilsstaðahreppur:
Þrjú böm skírð
í Hvammskirkju
- Bændur í hafnarbótum
Þorbjargarstöðum
20.11.
Skefilsstaðahreppi
Á dögunum voru skírö í
Hvammskirkju 3 börn og hefur
"slík! ekki gerst í þessum
fámenna hrepp í 21 ár. En hér
er eins og víða til sveita unga
fólkið í minnihluta, mikið orð-
ið um fólk á miðjum aldri og
endurnýjunar þörf.
Að skírnarathöfn lokinni var
haldin sameiginleg skírnarveisla í
nýja féiagsheimilinu á Hvalnes-
melum sem tekið var í notkun í
vor. Par er nú barnaskólinn til
Grenivík:
Vantar
sundlaug og
íþróttahús
„Við höfum áhuga á að hefja
sundlaugarbyggingu næsta
vor, einnig þyrfti að lengja við-
legukantinn við höfnina. Þegar
sundlaugin kemur í gagnið
verður farið að huga að bygg-
ingu íþróttahúss fyrir Greni-
víkurskóla,“ sagði Guðný
Sverrisdóttir, sveitarstjóri
Grýtubakkahrepps.
Að sögn Guðnýjar eru hug-
myndir um íþróttahús fyrir skól-
ann ekki nýtilkomnar en íþrótta-
kennsla hefur til þessa farið fram
í samkomusal á neðri hæð skóla-
hússins. Salurinn er nokkuð góð-
ur en þar er þó svo lágt til lofts að
erfitt er að stunda boltaíþróttir.
„Sundlaugin okkar er frá árinu
1944, í svonefndu Gljúfrárgili.
Hún er að segja má ónýt og ef
hún eyðileggst missuin við alla
sundaðstöðu. Þessi sundlaug er
þó töluvert notuð á sumrin en við
gerum okkur von um nýja laug
sem fyrst,“ sagði Guðný Sverris-
dóttir. EHB
húsa eftir að hafa verið hér á Þor-
bjargarstöðum í mörg ár. Skólinn
er einn af fáum sjö mánaða skól-
um sem enn eru við lýði. Kennsla
hófst í byrjun október og stunda
7 börn nám í vetur.
Annars hefur verið fremur
fámennt í hreppnum í haust þar
sem margir voru að vinna á slát-
urhúsinu. Tíðin kom því mörgum
vel og hafa bændur undanfarið
hamast við að koma skarnanum á
túnin.
Bændur hafa ekkert róið upp á
síðkastið. Nýi grjótgarðurinn í
Selvíkinni sem gerður var í vor
fékk sína eldskírn í norðan-
áhlaupinu í haust. Er ekki hægt
að segja annað en hann hafi stað-
ið sig vel, því þetta var með
versta brimi sem gerir. Sjórinn
gekk yfir brimvörnina og færði til
grjót svo að aðeins skolaði úr
kjarnanum. Tjónið var metið á
300 þúsund, en við redduðum
þessu sjálfir og vorum að því 2
daga með vagna og gröfu. Skjólið
í Selvíkinni er enn ekki svo gott
að bátar séu þar öruggir að vetr-
inum, en við stefnum að því að
lengja garðinn um 50-60 metra og
sveigja hann til norðvesturs. Þá
verður hér komin lífhöfn. ÞI/-þá
Jólaskreytingar eru mikilvægur þáttur jólaundirbúnings. Hjá KEA hafa þau
Haraldur Magnússon og Rannveig Vernharðsdóttir veg og vanda af þeim
skreytingum sem gleðja augu viðskiptavina KEA í jólamánuðinum. Harald-
ur hefur starfað við slíkar skreytingar á vegum KEA á þriðja áratug fyrir
hver jól. Mynd: TLV
Safnaðarheimilið:
Verkið sein-
legra en
reiknað
var með
„Þetta átti að vera búið fyrir
löngu, en verkið var sein-
legra en reiknað var með og
lítill mannskapur hefur fengist
til vinnu,“ sagði Jónas Sigur-
björnsson hjá Norðurverki hf.,
en fyrirtækið sér um byggingu
safnaðarheimilis Akureyrar-
kirkju.
Að sögn Jónasar var upphaf-
lega ætlunin að helluleggja og
ganga frá lóð en menn gerðu sér
þó fljótlega grein fyrir að slíkt
væri ekki framkvæmanlegt með
góðu móti í frosti. Slík verk yrðu
því að bíða vorsins.
Næsta verk á dagskrá er að
setja glugga í húsið en þeir eru úr
áli og verið er að smíða þá hjá
Gluggasmiðjunni hf. í Reykja-
vík. Nú er verið að einangra hús-
ið að utan og síðan verður jarð-
vegi mokað upp að því en safnað-
arheimilið er mestallt neðanjarð-
ar.
„Vegna þess að húsið er allt
neðanjarðar verður að vanda vel
til hlutanna og þetta er seinlegra
en við aðrar byggingar. Við verð-
um við þetta eitthvað áfram,“
sagði Jónas Sigurbjörnsson.
EHB
Tónlistarskólinn á Akureyri:
Reglugerö fýrir skólann bíður
afgreiðslu bæjarstjórnarinnar
Tónlistarskólanefnd hefur
gengið frá tillögu að reglugerð
fyrir Tónlistarskólann á Akur-
eyri en á síðasta bæjarstjórn-
arfundi var málinu vísað til
seinni umræðu. Reglugerðina
unnu þeir Jón Hlöðver Áskels-
son, Freyr Ófeigsson og Bene-
dikt Sigurðarson, í samráði við
skólafulltrúa og bæjarlög-
mann.
Aðspurður sagði Jón Hlöðver
að ef reglugerðin yrði samþykkt
myndi hún hafa mikla þýðingu í
för með sér fyrir skólann.
„Reyndar er verið að staðfesta
ýmislegt sem er fyrir hendi en
jafnframt er verið að draga
ákveðna línu um hlutverk
skólans. En við vitum ekki hvers
konar löggjöf verður ráðandi fyr-
ir skólana næsta ár og í reglu-
gerðinni er vitnað í þau lög sem
gilda í dag,“ sagði Jóii Hlöðver.
Sem kunnugt er standa fyrir
dyrum breytingar á lögum um
rekstur tónlistarskóla en tillaga
verkaskiptanefnar gerir ráð fyrir
að sveitarfélögin standi ein undir
skuldbindingum hins opinbera
við almenna tónlistarskóla. Ekki
er búist við að sú tillaga fari
átakalaust í gegnum þingið.
Mörgum þykir vænt um þessa verslun
- segir Júlíus Guðmundsson verslunarstjóri í Hafnarstræti 20
Miklar breytingar hafa orðið á
innréttingum og búnaði versl-
unar KEA að Hafnarstræti 20
á Akureyri. Yerslunin er í því
sögufræga húsi „Höepfner“ en
þar hefur verið rekin verslun
um áratugaskeið. KEA á allt
húsið en verslunin er á fyrstu
hæð. Á annarri hæð hússins
eru íbúðir. Von bráðar verður
sú breyting á opnunartíma
verslunarinnar að hún verður
höfð opin í hádeginu.
Júlíus Guðmundsson tók við
verslunarstjórastöðu í Hafnar-
stræti 20 um síðustu áramót. Að
sögn Júlíusar voru þau Baldvin
Ólafsson og Helga Hallgríms-
dóttir, sem unnu um áratuga-
skeið í versluninni en hættu um
sl. áramót, mjög vinsæl af við-
skiptavinum sínum og þótti
mörgum að vonum sjónarsviptir
af þeim. Baldvin og Helga létu af
störfum vegna aldurs. Þó væru
fastir og gamalgrónir viðskipta-
vinir farnir að sætta sig við breyt-
inguna en mörgum í hverfinu
þætti vænt um þessa verslun.
Breytingarnar á versluninni
eru miklar frá því sem áður var.
Skipt hefur verið um nærri allar
hillur, settar upp nýjar frysti- og
kæligeymslur og flestar aðrar inn-
réttingar endurnýjaðar miðað við
nútímaþarfir. Ekki er annað að
sjá en viðskiptavinir kunni vel við
þessar breytingar.
í versluninni er opið kjötborð
en slíkt er aðeins í tveimur
öðrum verslunum KEA; við
Sunnuhlíð og Hrísalund.
Júlíus sagðist vera ánægður
með viðskiptin en þau mættu þó
aukast meira og hann vildi sjá
fleiri íbúa Innbæjarins í verslun-
inni. Þar væri gott vöruúrval og
allt árið væru í gangi tilboðsverð
á ýmsum vörutegundum. Þessa
dagana er t.d. jólatilboð á bök-
unarvörum sem stendur til jóla
og auk þess er tilboðsverð á
niðursuðuvörum frá K. Jónssyni
& Co. vegna afmælis þess fyrir-
tækis. EHB
Júlíus Guðmundsson, verslunarstjóri.
Tillögur tónlistarskólanefndar
taka mið af þessum óvissuþáttum
eins og fram kemur í lok 11.
greinar, en hún hljóðar svo:
„Kostnaður af rekstri skólans
greiðist úr bæjarsjóði. Skrifstofa
Akureyrarbæjar annast greiðslu
launa og rekstrarreikninga svo og
bókhald Tónlistarskólans á
Akureyri. Rekstur skólans skal
kosta með fjárveitingum á fjár-
hagsáætlun Akureyrarbæjar,
skólagjöldum nemenda og úr
ríkissjóði eftir því sem fé er veitt
til á fjárlögum.“
Bæjarstjórn Akureyrar mun
væntanlega afgreiða reglugerðina
á næsta fundi en á síðasta fundi
urðu nokkrar umræður um hana
og bæjarfulltrúar hnutu um
nokkur atriði, t.d. í áðurnefndri
11. grein. SS
Ólafsfjörður:
Símaklefi við
hafnarsvæðið?
Á fundi Hafnarnefndar Ólafs-
fjarðar í lok október var m.a.
rætt um uppsetningu á pen-
ingasíma við Ólafsfjarðarhöfn.
Rætt var um málið og ákveðið
að fela hafnarstjóra að kanna
málið frekar.
Björn Valur Gíslason sem sæti
á í hafnarnefnd vakti fyrst athygli
á nauðsyn þess að fá peningasíma
við höfnina. Hér væri á ferðinni
kærkomið tæki fyrir ýmsa
aðkomumenn og einnig veitti það
aukið öryggi. Sem áður segir fól
nefndin hafnarstjóra að kanna
þetta mál. JÓH