Dagur - 24.11.1987, Page 16
Akureyri, þriðjudagur 24. nóvember 1987
SIEMENS
Helluborð og ofnar
Hrærivelar
Brauðristar
Hárþurkur og burstar
Straujárn
Eggjasjóðarar
Handþeytarar
Grænmetiskvarnir
HF.
Reynishúsinu ■ Furuvöllum 1
600 Akureyri • Sími 27788
Opiö á laugardögum frá kl. 10-12.
Loðnuveiði:
Metveiði á föstudag
Geysilega góð loðnuveiði var á
miðunum á föstudag og til-
kynntu þá 33 skip samtals um
25.720 tonna afla. Að sögn
Astráðs Ingvarssonar hjá
loðnunefnd er þetta sennilega
mesta veiði á einum degi frá
upphafí.
Bræla var á loðnumiðunum
norður af Vestfjörðum nær alla
síðustu viku en á föstudag var
komið veiðiveður með þessum
ágæta árangri. Alls voru 34 skip á
veiðum, 33 þeirra tilkynntu um
afla á föstudag og var þar í flest-
um tilfellum um að ræða full-
fermi. Síðasta skipið tilkynnti svo
afla á laugardag.
Á Siglufirði var á föstudag
landað 5.790 tonnum, 1.520 í
Krossanesi, 570 á Ólafsfirði, 520
á Raufarhöfn og 1.220 á
Þórshöfn.
Um helgina viðraði ekki til
veiða en í gærmorgun fóru svo
skipin á veiðar að nýju. ET
Hafa litla trú á
gengisfellingu
Háværar raddir hafa undanfar-
ið krafíst gengisfellingar krón-
unnar gagnvart Bandaríkja-
dollar vegna slæmra áhrifa
núverandi gengisskráningar
fyrir útflutningsgreinar iðnað-
arins. Dagur Ieitaði álits
þriggja manna í verslunarstétt
um viðhorf til gengisfellingar.
Ellert Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Þórshamars hf.,
sagðist hafa orðið var við ótta við
gengisfellingu. „Maður getur
ekki annað en verið hræddur við
Húnavatnssýslur:
Mjög mikil hálka er á veg-
um í Húnavatnssýslum.
Þrátt fyrir töluvert skemmt-
anahald, þá var helgin róleg
hjá lögreglunni.
Hjá lögreglunni á Blönduósi
fengum við þær upplýsingar,
að þrátt fyrir töluvert „út-
stáelsi" á Húnvetningum um
helgina, þá hefðu engin öhöpp
orðið og helgin með rólegra
móti. Lögreglan vill vara veg-
farendur, bæði gangandi og
akandi við mjög mikilli hálku
á vegum og hvetur fólk til að
fara varlega. Eins og flestum
er kúnnugt þá er þjóðvegurinn
í gegnum sýslurnar svo til
aiveg lagður varanlegu slitlagi.
pbv
gengisfellingu þegar stórjaxlar í
útgerð og fiskvinnslu tala í sífellu
um það í fjölmiðlum að gengið sé
rangt skráð,“ sagði Ellert. Þegar
hann var spuröur um áhrif geng-
isfellingar á bifreiðainnflutning
svaraði Ellert á þá leið að líklega
myndi t.d. 10% gengisfelling
draga talsvert úr sölu nýrra bíla
fyrst í stað, einkum vegna þess að
aðflutningsgjöld hafa þegar
hækkað á árinu. „Ég álít pers-
ónulega að ríkisstjórnin haldi sér
við fastgengisstefnuna svo fram-
arlega sem dollarinn falli ekki
niður úr öllu valdi og þeir neyðist
til að fella gengið,“ sagði Ellert
að lokuin.
„Ég tel fullvíst að ekki verði
gengisfelling en það má túlka
gengismálin á margan hátt. Við
höfum t.d. dæmi um hratt gengis-
sig en það má ganga mikið á til að
gengið verði fellt því nú er óró-
leiki innan Verkamannsam-
bandsins og gengisfelling ofan á
það veldur sprengingu," sagði
Hólmgeir Valdemarsson, hjá
Heildverslun Valdemars Bald-
vinssonar.
„Gengisfelling bjargar engu,“
sagði Birkir Skarphéðinsson, for-
maður Kaupmannasamtaka
Akureyrar. „Vcrulegt gengissig
hefur orðið á Evrópugjaldmiðlum
undanfarið og það jafngildir
gengisfellingu undir öðru nafni.
Þetta hækkar óhjákvæmilega
vöruverð frá þessum löndum en
gengisfelling ein og sér hefur
slæm áhrif á allt viðskiptalífið."
EHB
mwm
Það verður talsvert verk að flytja þennan myndarlega köst úr stað. Mynd: kk
Hverá
brennu?
Milli Hlíðarbrautar og Glerár,
gegnt Vistheimilinu Sólborg,
er þessa dagana í smíðum bál-
köstur sem virðist ætla að
verða hinn myndarlegasti.
Ekki hefur verið veitt leyfí fyr-
ir áramótabrennu á þessum
stað, sem tilheyrir einu af trjá-
ræktarsvæðum bæjarins, og
myndi hún að sögn Arna Stein-
ars Jóhannssonar garðyrkju-
stjóra eyðileggja einhverjar
þúsundir trjáplantna.
Svæðið milli Glerár og Hlíð-
arbrautar var á ári trésins 1980
skipulagt sem trjáræktarsvæði og
undanfarin ár hefur á hverju ári
verið plantað þar 2-5000
plöntum. Hiti, olía og síðast en
ekki síst traðk sem fylgir ára-
mótabrennu mun því valda mikl-
um spjöllum. Ekki hefur tekist
að hafa uppi á forsvarsmönnum
brennusmíðinnar og því eru við-
komandi beðnir að hafa samband
við Árna eða lögregluna.
„Við erum tilbúnir að aðstoða
við flutning efnisins á nýjan
stað,“ sagði Árni. Guðmundur
Guðlaugsson bæjarverkfræðing-
ur hefur fyrir sitt leyti leyft að
brennan verði flutt í malarnám
bæjarins norðan Rangárvaila.
ET
Ólafsfjörður:
Viöurkennir sölu á um
100 áfengisflöskum
Sprúttsölumálið á Ólafsfírði
sem Dagur skýrði frá á fimmtu-
dag er nú að mestu leyti
upplýst. Ungur heimamaður
hefur játað að hafa á tæpu ári
tekið við og selt talsvert magn
af áfengi frá skipverja um borð
í Hofsjökli.
Að sögn Barða Þórhallssonar
bæjarfógeta á Ólafsfirði hefur
maðurinn játað að hafa farið um
borð og keypt áfengi í nánast
hverri viðkomu skipsins á Ólafs-
firði. Hann kveðst hafa keypt fyr-
ir ýmsa aðila, vinnufélaga og
fleiri og þá farið með þeirra pen-
inga um borð til kaupanna. Mað-
urinn hefur ekki fengist til að
gefa upp nöfn þessara viðskipta-
vina sinna enda teljast þeir að
sögn Barða ekki vera samsekir
honum í málinu.
Lögreglan hefur um nokkurt
skeið fylgst með manni þessum.
Einhverja hugmynd hafði hann
urn þetta því í yfirheyrslum kom
fram að hætt var við viðskipti í
síðustu viðkomu skipsins. Þá
komst upp um smygl skipverja á
ísafirði.
Maðurinn hefur viðurkennt að
hafa selt rúmlega 100 vodkaflösk-
ur en að sögn Barða leikur grun-
ur á að um mu meira magn sé að
Stéttarsamband bænda:
Varar við álagningu söluskatts á búvörur
Stéttarsamband bænda hefur
sent frá sér fréttatilkynningu
þar sem varað er við að
umræðan um söluskatt á mat-
væli einskorðist við matar-
reikning neytenda. Samkvæmt
tillögum fjármálaráðherra er
fyrirhugað að taka upp að nýju
álagningu söluskatts á land-
búnaðarafurðir en söluskattur
var afnuminn af mjólkurvörum
skömmu eftir 1970 og af kjöt-
vörum árið 1978.
í tilkynningu Stéttarsambands-
ins segir að samkvæmt þeim
útreikningum sem hagfræðingur
Stéttarsambandsins hafi gert
verði hugsanlegur samdráttur í
sölu landbúnaðarafurða 1988:
14% á smjöri, 12,6% á kinda-
kjöti, 15,5% á nautakjöti, svo
dæmi séu tekin.
Hugsanlegur samdráttur í
búskap samkvæmt útreikningum
Stéttarsambandsins verður 65
kúabú og 244 sauðfjárbú eða alls
422 ársverk en til samanburðar er
heildarfjöldi ársverka í landbún-
aði á landinu öllu um 8500
talsins.
Hugsanlegur kostnaður við
útflutning umframbirgðanna
vegna söluminnkunar er talinn
verða tæpur hálfur milljarður
króna á ári.
Þau atriði sem Stéttarsamband
bænda leggur áherslu á í sam-
bandi við álagningu söluskatts á
búvörur er að samkeppnisað-
staða búvöru gagnvart innflutn-
ingi stórversni auk þess sem stór-
aukin hætta sé á framhjásölu og
svartamarkaðsbraski með heima-
slátraðar og heimaunnar vörur.
Þá telur Stéttarsambandið að
áhrif söluskattsins yrðu líka veru-
leg á sölu kjúklinga, eggja,
hrossakjöts og garðávaxta. Stétt-
arsambandið hefur ekki reiknað
þau áhrif vegna skorts á upplýs-
ingum um samhendi slíkra breyt-
inga hérlendis.
í niðurstöðum skýrslu hag-
fræðings Stéttarsambandsins seg-
ir að ljóst sé að fleiri þættir en
verðið eitt hafi áhrif á eftirspurn
eftir matvælum þeim sem hér
hafa verið nefnd. Hinsvegar sé
ljóst að áhrif verðsins séu yfir-
gnæfandi og ekki verði fram hjá
þeim gengið. Því telur Stéttar-
sambandið rétt að álagning sölu-
skatts á matvæii verði rædd frá
öllum hliðum þegar málið verður
endanlega afgreitt. JÓH
ræða. Hann sagði að unnið yrði
að málinu frekar næstu daga en
þegar reynt hefði verið til þrautar
þá yrði það sem ríkissaksóknara
til meðferðar. ET
Eyjafjörður:
Minna leitað
eftir erlendu
vinnuafli
Svo virðist sem ásóknin í erlent
vinnuafl á Eyjafjarðarsvæðinu
fari hraðminnkandi. Að sögn
Björns Snæbjörnssonar,
varaformanns Einingar á
Akureyri, hefur umsóknum til
Útlendingaeftirlitsins í
Reykjavík vegna erlends
vinnuafls snarfækkað.
í haust höfðu ýmsir atvinnu-
rekendur, einkum í fiskiðinaði,
orð á því að þörf væri á að leita út
fyrir landsteinana eftir vinnuafli
því mikið vantaði upp á að frysti-
húsin væru fullmönnuð. Á tveim-
ur stöðum á Eyjafjarðarsvæðinu;
Grenivík og Grímsey, voru ráðn-
ir nokkrir útlendingar.
Björn Snæbjörnsson sagði að
skýringin á minnkandi eftirspurn
eftir erlendu vinnuafli lægi aðal-
lega í tvennu; minnkandi þenslu
og lélegum aflabrögðum vegna
erfiðra gæfta. Því væri ekki nema
eðlilegt að eftirspurnin drægist
eitthvað saman. EHB