Dagur - 18.01.1988, Blaðsíða 6
6 - DAGUfi - 18. janúarÍ988
»Karlakór
Akureyrar
tilkynnir hér með kórfélögum, að æfingar að
loknu jólaleyfi hefjast mánudag 18. jan. nk.
kl. 20.30.
Getum bætt við söngmönnum í allar raddir. Ath. fyrirhuguð
er róttæk breyting á lagavali (ný eða nýleg dægurlög m.a.)
Leigjum einnig út sal til skemmtana- og funda-
halda, hámarksfjöldi 90-100 manns.
Uppl. gefa: Vignir Jónasson formaður h.s. 22992
v.s. 21400
og Atli Guðlaugsson stjórnandi h.s. 22582
v.s. 21460
Karlakór Akureyrar, sími 25002.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Glerárgata 34 1. hæð, Akur-
eyri, þingl. eigandi Haraldur S. Gunnarsson, ferfram i dómsal
embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22.
janúar ’88 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Frostagata 3b, B-hl., Akureyri,
þingl. eigandi Sigurður Ákason, fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. janúar '88 kl.
15.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Jón Egilsson hdl., Guðjón Stein-
grímsson hrl. og Iðnlánasjóður.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Strandgata 19 e.h., Akureyri,
talinn eigandi Ólafur Hilmarsson, fer fram í dómsal embættis-
ins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. janúar '88
kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Benedikt Ólafs-
son hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands.
Bæjarfogetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hraukbær, Glæsibæjarhreppi, þingl. eigandi
Hlíð sf., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3.
hæð, Akureyri föstud. 22. janúar '88 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Friðjón Örn Friðjónsson hdl. og Bún-
aðarbanki íslands.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsyslu.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hólabraut 19 n.h., Akureyri, þingl. eigandi Frí-
mann Jóhannsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnar-
stræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. janúar '88 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hafnarstræti 88 1. hæð, s-hl., Akureyri, þingl.
eigandi Stefán Sigurðsson, fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. janúar '88 kl.
15.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs og Bæjar-
sjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Mannfjöldí á landinu:
Höfuðborgarsvæðið hefur
gífurlegt aðdráttarafl
- Fólksfjölgun þar langt umfram meðaltal
Samkvæmt bráðabirgðatölum
frá Hagstofu Islands var mann-
fjöldi á landinu 1. desember
1987 247.024. Karlar voru
124.053 en konur aðeins færri
eða 122.971. Á einu ári nemur
fjölgunin 3.326 eða 1,36% og
er það talsvert meiri fjölgun er
verið hefur undanfarin ár. Síð-
an 1967 hefur hún aðeins verið
meiri árin 1972, 1974 og 1982.
Árið 1985 fjölgaði um 0,68%
og árin 1982-’85 um 1,07% á
ári.
Á síðasta ári varð aðflutningur
umfram brottflutning meiri en
nokkru sinni fyrr en um 800 fleiri
fluttu til landsins en frá því. Tala
fæddra er um 2.500 hærri en tala
látinna og eru horfur á að barns-
fæðingar hafi verið fleiri á síðasta
ári en 1985 og 1986, en þá hafði
þeim fækkað mikið frá fyrri
árum. Ef fæðingartíðni á hverj-
um aldri kvenna yrði til frambúð-
ar hin sama og hún var árið 1987,
yrðu ófæddar kynslóðir um 1%
fámennari en kynslóð foreldr-
anna.
Á þessum áratug hefur það
einkennt fólksfjölgunina að hún
hefur mestöll orðið á höfuðborg-
arsvæðinu. Á hverju ári 1984-’86
fjölgaði fólki meira þar en sem
nam heildarfjölgun landsmanna,
svo að bein fækkun varð í öðrum
landshlutum samanlögðum. Árið
1987 hefur fólki fjölgað um 3.161
á höfuðborgarsvæðinu, en um
165 á öðrum landsvæðum. En á
Suðurnesjum fjölgaði um 270 og
hefur því fólki utan þessara
tveggja landsvæða fækkað um
105.
Mannfjöldi óx um 2,3% á
höfuðborgarsvæðinu árið 1987,
um 1,9% á Suðurnesjum og um
0,7% á Norðurlandi eystra. Á
Vesturlandi fækkaði um 0,2%, á
Austurlandi um 0,3%, á Vest-
fjörðum um 0,4%, á Suðurlandi
um 0,5% og á Norðurlandi vestra
um 0,6%.
í Reykjavík fjölgaði fólki um
1.903 eða 2,1% og hefur hlut-
fallsleg fjölgun ekki orðið meiri í
Reykjavík síðan 1962 og bein
fjölgun ekki meiri síðan 1957.
Áðrir staðir sem geta státað af
fólksfjölgun eru t.a.m. Garðabær
(5,15), Mosfellshreppur (3,2%),
Hafnarfjörður (2,8%), Kópavog-
ur (2,4%), Njarðvík (4,6%),
Grindavík (2,2%), Eyrarsveit
(Grundarfjörður) (4,8%),
Tálknafjörður (4,0%), Blönduós
(3,1%), Dalvík (4,0%), Ólafs-
fjörður (2,9%), Seyðisfjörður
(2,2%) og Hveragerði (3,1%).
Lítum okkur nær og skoðum
þróunina á Norðurlandi. Á
Norðurlandi vestra voru 10.610
manns búsettir í fyrra og skiptast
þannig á milli staða, tölur frá
1986 eru í sviga: Sauðárkrókur
2.447 (2.424), Siglufjörður 1.887
(1.913), Vestur-Húnavatnssýsla
1.505 (1.567), Austur-Húna-
vatnssýsla 2.618 (2.607) og Skaga-
fjarðarsýsla 2.153 (2.179).
Á Norðurlandi eystra voru
íbúar alls 25.992 á síðasta ári og
skiptast svo: Ólafsfjörður 1.180
(1.148), Dalvík 1.394 (1.342),
Eyjafjarðarsýsla 2.643 (2.618),
Akureyri 13.819 (13.761), Suður-
Þingeyjarsýsla 2.808 (2.814),
Húsavík 2.497 (2.467) og Norð-
ur-Þingeyjarsýsla 1.581 (1.636).
Mörgum kann að þykja þróun-
in uggvænleg. Þegar suðvestur-
hornið er skorið af hefur fækkað
um 105 manns á landinu og það
er raunar aðeins á Norðurlandi
eystra sem einhver fjölgun hefur
orðið, fyrir utan suðvesturhorn-
ið, en á Norðurlandi eystra fjölg-
aði íbúum um 172 á síðasta ári.
Ef við lítum að lokum á síðast-
liðin 10 ár sjáum við það svart á
hvítu að landsbyggðin hefur stað-
ið í stað varðandi mannfjölda en
höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið
fiskur um hrygg. Fyrri talan er frá
1977 og seinni frá 1987: Höfuð-
borgarsvæðið 118.912 - 137.743,
Suðurnes 12.596 - 14.584, Vest-
urland 14.106-14.894, Vestfirðir
10.180 - 10.175, Norðurland
vestra 10.319 - 10.610, Norður-
land eystra 24.794 - 25.992,
Austurland 12.377 - 13.099 og
Suðurland 19.186 - 19. 965. SS
+3%
-1%'-----1--------------1--------------L_------------1--------------1--------------1
Hlutdeild landssvæðanna í mannfjölda 1987, 20% á milli strika
Mynd 1. Fjölgun og fækkun fólks eftir landssvæðum 1987.
Breidd súlnanna sýnir hlutdeild hvers landssvæðis í inannijöldanum 1. desember 1987, t.d. sést að í
Reykjavflc búa tæplega40% landsmanna og að utanHöfuðborgarsvæðis og Suðumesja búa um 40%, -Hæð
súlnanna sýnir hlutfallslega fólksfjölgun frá 1. desember 1986 til 1. dcsember 1987. - Flatarmál hverrar
súlu svarar til tölu einstaklinga sem fjölgaði um eða fækkaði á árinu.
Mynd 2. Hlutdeild landssvæðanna í fólksfjölgun.
1977/82 1982/87
Til Sölu
Sláturhús og frystihús á Svalbarðseyri við Eyjafjörð
Nánari upplýsingar veitir bankastjóm Samvinnubankans
Bankastræti 7, Reykjavík
SAMVINNUBANKIÍSLANDS HF.