Dagur - 18.01.1988, Blaðsíða 16

Dagur - 18.01.1988, Blaðsíða 16
Hafíð þið reynt okkar þjónustu? cpediðmjroÍH^ Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520. Akureyri: 20-30 bílar á haugana - verði þeirra ekki vitjað Það verður ekki mikil eftirsjá í sumum þessara bíla er þeir fara á haugana. Mynd: tlv Þórshöfn: Atyinnuleysi vegna afstöðu Útgerðaifélags N.-Þing. - segir Jóhann A. Jónsson Meira en 20 númerslausir bflar hafa verið fjarlægðir af götum Fóstrur á Akureyri: Nýtt starfsheiti tekið upp Nú sér loks fyrir endann á kjaradeiln fóstra og Akureyr- arbæjar sem staðið hefur frá áramótum. í dag kemur félags- mátaráð bæjarins saman og mun ráðið leggja til við kjara- nefnd STAK, breytingu á launaflokkakerfí fóstra, lykil- inn að lausn deilunnar. Kjara- nefnd kemur líklega saman á morgun og tekur endanlega ákvörðun. Breytingin sem um ræðir er samsvarandi því sem gert var fyr- ir fóstrur á höfuðborgarsvæðinu. í stað þess sem verið hefur til þessa að stöðuheiti fóstra séu þrjú, þá verður hið fjórða tekið upp, flokkur deildarfóstra. Allar almennar fóstrur sem nú starfa hjá bænum verða því gerðar að deildarfóstrum en yfirfóstrur og forstöðumenn hækka sem því nemur, um einn launaflokk. Ákvörðun bæjarráðs um fasta yfirvinnu fyrir forstöðumenn er orðin að samkomulagi. ET Á föstudagsmorguninn tók Bif- reiðastöð Norðurlands hf. formlega til starfa, en félagið rekur Umferðarmiðstöðina á Akureyri. Að sögn Gunnars M. Guðmundssonar hjá Sér- leyfisbílum Akureyrar sf. markar opnunin þáttaskil í sögu áætlunarferða á Norður- landi og til Austurlands því nú hafa allir sérleyfishafarnir samastað í einni umferðarmið- stöð, og gætu því samhæft krafta sína til bættrar þjónustu fyrir farþega. Gunnar sagði að samstarf það sem nú hefði litið dagsins ljós milli sérleyfishafa hefði í raun átt að hafa komið til sögunnar fyrir mörgum árum, en af ýmsum orsökum hefði ekki verið hægt að koma þessu á fyrr. Þeir aðilar sem sameina nú krafta sína í þessu nýja hlutafélagi eru Norðurleið hf., Sérleyfisbílar Akureyrar sf., Björn Sigurðsson, sérleyfishafi á Húsavík, Ævar Klemenzson, sérleyfishafi á Dal- vík og Akureyrarbær. Nýja fyrir- tækið er til húsa í Hafnarstræti 82, þar sem Öndvegi sf. var áður. „Það eru fleiri aðilar að hugsa og opnum svæðum á Akureyri af hálfu Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar og bíða nú eigenda sinna í afgirtu porti. Verði þeirra ekki vitjað fyrir 23. janúar mun þeim verða hent og er þá fullseint í rassinn grip- ið að ætia sér að nálgast þá. Að sögn Valdimars Brynjólfs- sonar heilbrigðisfulltrúa vOru á síðasta ári settir aðvörunarmiðar á 2-300 númerslausa bíla sem voru á götum eða opnum svæð- um og eigendum þeirra gefinn frestur til að ráða bót á þessu. Flestir sinntu þessum tilmælum en um 30 bíla þurfti að fjarlægja. Nokkrir hafa vitjað bíla sinna en Valdimar bjóst við að um 20 bílar færu á haugana, enda teldu eigendur það varla svara kostn- aði að leysa þá út, kannski ekki síst eftir þá meðferð sem þeir hljóta í portinu þar sem þeir eru geymdir. „Vandamálið hefur verið það að þótt svæðið sé girt og læst þá hafa menn laumast þarna inn að næturlagi og stolið úr bílunum öllu því nýtilegasta. Þetta er alls ekki nógu góð aðstaða, best væri að geyma bílana á svæði þar sem er vakt,“ sagði Valdimar. Umræddir bílar verða fluttir upp á öskuhauga bæjarins þar sem þeir verða urðaðir. Valdimar sagði að þetta væri ekki besta leiðin til að losna við þá en sú skásta sem stæði til boða. SS um að koma með okkur inn í þennan rekstur á sviði ferðamála. Ég tel ekki tímabært að greina frá því hverjir þetta eru eða með hvaða hætti samstarfið gæti orðið en það tengist bættri og meiri þjónustu fyrir ferðamenn, inn- lenda sem erlenda. Þessi mál munu skýrast nánar á næstu vikum,“ sagði Gunnar M. Guð- mundsson. EHB „Það er furðulegt að Þórólfur kannist ekki við það sam- komulag sem hann hefur sjálf- ur undirritað. Þá vii ég benda á þá staðreynd að Stakfellinu var breytt í óþökk margra íbúa hér og um þær breytingar var ekki einhugur. Einnig skal á það minnt að Hraðfrystistöðin ósk- aði eftir að kaupa hlut Kaup- félags Langnesinga í útgerð- inni en það var ekki samþykkt,“ sagði Jóhann A. Jónsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf. Tilefni þessara ummæla Jóhanns er frétt í Degi þ. 12. janúar, þar sem Þórólfur Gísla- son, stjórnarformaður Útgerðar- félags Norður-Þingeyinga, skýrir frá orsökum þess að ekki hafi borist meiri afli til frystihússins en raun ber vitni, og svarar þeirri spurningu hvernig standi á því að forsvarsmenn Hraðfrystistöðvar Þórshafnar telji að 500 tonn vanti upp á að afla hafi verið skilað til samræmis við fyrra samkomulag. Jóhann telur margt athugavert í málflutningi Þórólfs, t.d. það að margnefnt samkomulag sé vissu- lega til, en það sé undirritað af Jóhanni A. Jónssyni og Daníel Árnasyni f.h. Þórshafnarhrepps og Þórólfi Gíslasyni, Ágústi Guðröðarsyni og Sigtryggi Þor- lákssyni f.h. útgerðarinnar. Auk þess hafi Stefán Valgeirsson skrifað undir því hann hafi staðið að samningnum ásamt fleirum. Tilgangur samkomulagsins, sem hljóðaði upp á að útgerðin væri skuldbundin til að landa 1250 t á ári til fiskvinnslu, hafi verið að Við gerð fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar fyrir þetta ár verða lagðar fram tillögur um framtíðarskipan gatnamóta Undirhlíðar og Hörgárbrautar. Tvær tillögur verða á næstunni lagðar fyrir skipulagsnefnd bæjarins, þar sem annars vegar er gert ráð fyrir umferðarljós- um á gatnamótunum en hins vegar að í þeirra stað komi hringtorg. Við gerð fjárhagsáætlunar síð- asta árs lagði skipulagsnefnd fram tillögur um umferðarljós á gatnamótunum en henni var hafnað í bæjarráði. í framhaldi af umræðum þá kom upp hugmynd um hringtorg. Tillagan sem nú fer fyrir nefnd- ina er svipuð hinni fyrri, munur- inn er kannski helst sá að nýja til- lagan byggir á raunverulegri reynslu af nýju brúnni yfir Glerá, tryggja atvinnu í byggðarlaginu. „Hlutur fiskvinnslunnar hefur sífellt verið skorinn meira niður. Skip eins og Stakfellið á að leika sér að því að skila 3-4000 tonn- um aflans í ísfisk en síðan eru okk- ur aðeins skömmtuð 1250 tonn og ekki einu sinni staðið við það. Sannleikurinn er sá að afstaða meirihlutans í útgerðinni stuðlar nú að atvinnuleysi á Þórshöfn. Okkur hafa aðeins borist 15 tonn það sem af er árinu," sagði Jó- hann A. Jónsson að lokum. í stað áætlana áður. Að sögn Gunnars Jóhannessonar deildar- tæknifræðings á gatnadeild sýndi nýleg talning á umferð yfir brúna að áætlanir um hana voru nálægt lagi. Umferðarþunginn er um 2500-3000 bílar á sólarhring. Samanburður á umferð á umræddum gatnamótum fyrir og eftir tilkomu brúarinnar sýnir að umferðarþunginn þar hefur ekki breyst en „straumar“ hafa hins vegar breyst. Breyting á gatnamótunum er aðkallandi ef lokun Höfðahlíðar við Hörgárbraut, sem gert er ráð fyrir í skipulagi, kemur til fram- kvæmda. Nú er unnið að gerð kostnað- aráætlana fyrir tillögurnar tvær. Kostnaður við umferðarljós ræðst nokkuð af því hvaða tolla- breytingar verða á ljósabúnaði, en Gunnar sagðist frekar reikna með að sú leið væri dýrari. ET Bifreiðastöð Nurðurlands er tekin til starfa. Á myndinni eru f.v.: Gunnar M. Guðmundssun framkvæmdastjóri Sérleyfisbifreiða Akureyrar, Þurvarður Guðjónssun framkvæmdastjuri Nurðurleiöar ug Þurleifur Þór Jónssnn starfsmaður atvinnumálanefndar. Mynd: tlv Umferðarmiðstöðin á Akureyri: Bætt þjónusta sérleyfishafa EHB Gatnamót Undirhlíðar og Hörgárbrautar: Umferðaiijós eða hríngtorg?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.