Dagur - 18.01.1988, Blaðsíða 8

Dagur - 18.01.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 18. janúar 1988 íþróttir „Hvert ert þú að fara Jói minn,“ gæti ívar Webster hugsað á þessari mynd þar sem hann reynir að stöðva Jóhann Sigurðsson Þórsara í leiknum við Hauka á föstudagskvöld. Mynd: tlv Úrvalsdeildin í körfubolta: Haukarnir höfðu mikla yfirburði gegn Þór - sigruðu með 31 stigs mun, 104:73 Þórsarar áttu enga möguleika gegn Haukum er liðin áttust við í úrvals- deildinni í körfuknattleik á föstu- dagskvöld í Höllinni á Akureyri. Haukar náðu öruggri forystu strax í upphafi leiksins og sigruðu örugg- lega 104:73. Þórsurum gekk iila að skora fyrstu stigin og það var ekki fyrr eftir 2 mín. að þeir komust á blað en þá höfðu Haukarnir skorað 9 stig. Haukarnir juku muninn síðan jafnt og þétt, um miðjan hálfleikinn var staðan 34:16 og skömmu síðar 53:20 en í hálfleik leiddu Haukarnir 69:38. Haukarnir léku ekki eins vel í síðari hálfleik og féllu niður á sama plan og Þórsararnir. Þeir höfðu þó yfirhönd- ina allan tímann og sigur þeirra var aldrei í hættu. Um miðjan síðari hálf- leik var staðan 92:65 en þá kom mjög slæmur kafli hjá báðum liðum og Haukarnir skoruðu aðeins 7 stig á 7 mín. kafla en Þórsarar aðeins 4 stig. Þegar flautað var til leiksloka var munurinn 31 stig, 104:73 Haukum í vil. Henning Henningsson var lang bestur í Haukaliðinu, barðist af mikl- um krafti allan leikinn. Einnig lék Tryggvi Jónsson vel og þá sérstaklega í upphafi leiksins. Þá átti Ingimar Jónsson ágæta spretti. Þórsliðið átti ekki góðan dag að þessu sinni og útlitið hjá liðinu er alls ekki glæsilegt. Eiríkur Sigurðsson barðist vel að vanda en varð að yfir- gefa völlinn með 5 villur snemma í síð- ari hálfleik. Þá var Jóhann Sigurðsson með frískasta móti. Stig Hauka: Henning Henningsson 25, Pálmar Sigurðsson 19, Tryggvi Jónsson 18, ívar Webster 9. Ingimar Jónsson 9, ívar Ásgrímsson 8, Sveinn Steinsson 6, Hörður Pétursson 4, Skarphéðinn Eiríksson 4 og Ólafur Rafnsson 2. Stig Þórs: Jóhann Sigurðsson 13, Eiríkur Sigurðsson 12, Einar Karlsson 10, Björn Sveinsson 10, Guðmundur Björnsson 9, Bjarni Össurarson 8, Birgir Karlsson 5, Konráð Óskarsson 4 og Ágúst Guðmundsson 2. Leikinn dæmdu þeir Jóhann Dagur og Árni Freyr Sigurlaugsson og gerðu það þokkalega. Knattspyrna: Theódór til Völsungs Theódór Jóhannsson unglinga- landsliðsmaður í knattspyrnu úr Þrótti Reykjavík hefur ákveðið að leika með Völsungi í 1. deildinni í knattspyrnu næsta sumar. Theódór er geysilega sterkur varn- armaður og var fyrirliði Þróttar sl. keppnistímabil. Hann kemur til með að styrkja lið Völsungs mikið og mun taka við stöðu Birgis Skúlasonar sem leikur með Þór í sumar. I------------------------------- ' Heimsbikarkeppnin í handkn; Enn voru þac sem höfðu - sigruðu íslendinga 23:20 í leiknum un íslendingar höfnuðu í fjórða sæti á heimsbikarmótinu í handknattleik sem lauk í Sví- þjóð í gær. íslendingar léku gegn Svíum um 3. sætið á mót- inu og eins og svo oft áður, voru það Svíar sem fögnuðu sigri og tryggðu sér bronsverð- launin. Leikurinn var mjög sveiflukenndur framan af en Svíar höfðu lengst af frum- kvæðið og verður sigur þeirra að teljast nokkuð sanngjarn. Það voru danskir dómarar sem dæmdu leikinn og voru þeir Svíum, sem léku mjög fast í vörninni, mjög hliðhollir. Svíar skoruðu tvö fyrstu mörk- in en Alfreð minnkaði muninn í 2:1. Svíar juku muninn í 4:1 og 5:2 en þá kom mjög góður kafli hjá íslenska liðinu sem náði yfir- höndinni. íslendingar skoruðu fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni úr 2:5 í 6:5 og síðan 7:6. En Adam var ekki lengi í paradís og á næstu mínútum skoruðu Svíarnir fimm mörk í röð og breyttu stöðunni sér í hag á ný, 11:7. í hálfleik var staðan 12:9 Svíum í vil. í síðari hálfleik leiddu Svíar framan af með þetta tveimur til þremur mörkum og um miðjan hálfleikinn var staðan 16:13. Sví- ar skoruðu þá tvö mörk í röð og breyttu stöðunni í 18:13. íslend- ingar náðu að minnka muninn í tvö mörk, 17:19 en nær komust þeir ekki. Þessi munur hélst fram á lokasekúndurnar að Björn Jilsen fyrirliði Svía jók muninn í þrjú mörk, með marki úr víta- kasti og úrslitin 23:20. Svíar hafa oft reynst okkur erf- iðir og í gær var engin breyting þar á. Bræðurnir Björn og Per Jilsen voru atkvæðamestir í sænska liðinu en þeir Staffan Ols- son og línumaðurinn Per Carlen reyndust íslensku leikmönnunum einnig erfiðir. Þá lék Mats Olsson vel í sænska markinu. íslenska liðið var nokkuð frá sínu besta og það er eins og að þeir sænsku nái alltaf að slá okk- ar menn út af laginu. Alfreð Gíslason var góður framan af en kom lítið við sögu í síðari hálf- leik. Sigurður Gunnarsson og Heimsbikarkeppnin: V.-Þjóðverjar sigurvegarar —sigruðu nágranna sína í austri í úrslitaleik Það voru V.-Þjóðverjar sem sigruðu, flestum á óvart, á heimsbikarmótinu í hand- knattlcik sem lauk í Svíþjóð í gær. Þeir sigruðu nágranna sína A.-Þjóðverja í skemmti- legum úrslitaleik með 18 mörkum gegn 17. A.-Þjóðverjar voru taldir mun sigurstranglegri fyrirfram og framan af leiknum benti fátt til annars en sigurs þeirra. Þeir höfðu yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn og leiddu í hálfleik 10:7. V.-Þjóðverjar mættu tvíefldir til síðari hálfleiks og þegar rúmar 10 mín. voru liðnar af hálfleikn- um, fóru þeir í gang svo um mun- aði. Á næstu mín. söxuðu þeir á forskot A.-Þjóðverja og náðu loks að jafna leikinn 15:15 og komast yfir 17:15. A.-Þjóðverjar náðu ekki að jafna leikinn og urðu að játa sig sigraða. Úrslitin 18:17 og sigurgleði V.-Þjóðverja mikil. Það var félagi Alfreðs Gíslasonar hjá Essen, Stefan Hacker sem var maðurinn á bak við sigur liðs síns en hann varði eins og berserkur í markinu. Jafnt og skemmtilegt mót Keppni á mótinu að þessu sinni var ótrúlega jöfn og spennandi og öll liðin unnu einn leik eða fleiri, nema frændur okkar Danir sem töpuðu öllum sínum leikjum. í A-riðli urðu V.-Þjóðverjar og Svíar jafnir að stigum en Þjóð- verjarnir léku til úrslita, þar sem þeir höfðu einu marki fleira í plús en Svíarnir. Enn meira jafnræði varð í B-riðli en þar urðu þrjú lið jöfn með 4 stig, A.-Þjóðverjar, íslendingar og Júgóslavar. A.- Þjóðverjar höfðu einu marki fleira en íslendingar í plús og léku því til úrslita og íslendingar léku um 3. sætið, þar sem þeir höfðu betra markahlutfall en Júgóslavar. I úrslitakeppninni komu liðin í A-riðli mun betur út. V.-Þjóð- verjar, Svíar og Spánverjar unnu sína leiki en aðeins Júgóslavar úr B-riðli, náðu að vinna sinn leik. Það er ljóst að handknattleiks- keppnin á ólympíuleikunum á eftir að verða gífurlega jöfn og spennandi en liðin sem tóku þátt í þessu móti í Svíþjóð, munu mæta til leiks þar, að undanskild- um V.-Þjóðverjum og Dönum. Stefan Hacker lék frábærlega í úrslitaleiknum gegn A.-Þjóðverjum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.