Dagur - 20.01.1988, Blaðsíða 4

Dagur - 20.01.1988, Blaðsíða 4
c ■■ iSVsjfy}} " 886r ifiunsi .OS 4 - DAGUR - 20. janúar 1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 55 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉSPÉTURSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), STEFÁN SÆMUNDSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960), AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Óbærilegur tollur Mörgum þykir dýrt að eiga og reka bifreið á íslandi. Vissulega er það rétt að bifreiðagjöld eru nokkuð há hér á landi og það sama má segja um iðgjöld bifreiðatrygginga og elds- neytið sem til þarf. Þrátt fyrir það er þessi kostnaður smávægilegur miðað við þann toll sem umferðin tekur árlega í mannslífum og meiriháttar meiðslum. Á síðasta ári létust 24 íslendingar í umferð- arslysum hér á landi og er það sami fjöldi og árið áður. 1038 manns slösuðust og sumir mjög alvarlega. Það er aukning um hvorki meira né minna en 10% frá árinu 1986. í sjálfu sér þarf engum að koma á óvart þótt umferð- arslysum fjölgi. Bifreiðaeign landsmanna hef- ur aukist gífurlega á undanförnum árum og við trónum nú á eða við toppinn í heiminum hvað þetta varðar, miðað við höfðatölu. Á sama tíma hafa engar stórstígar framfarir átt sér stað í gerð umferðarmannvirkja, né held- ur hefur umferðarmenningin batnað sem nokkru nemur. Þannig eykst umferðarþung- inn ár frá ári og slysatíðnin hækkar að sama skapi. Þessa þróun verður að stöðva. Ýmislegt hefur verið gert til þess að reyna að bæta umferðarmenninguna. Tryggingafé- lögin hafa bundist samtökum um að koma þessum málum í betra horf og fjölmiðlar hafa ekki látið sitt eftir liggja. Samt er árangurinn ekki betri en raun ber vitni: Að meðaltali tveir látnir og 87 slasaðir í hverjum mánuði á síð- asta ári. Það vekur vissulega athygli að slysa- tíðni var mun meiri í júlí og ágúst í fyrra en aðra mánuði ársins, þrátt fyrir þá staðreynd að akstursskilyrði eru einna best yfir sumar- mánuðina. Þetta bendir eindregið til gáleysis og skorts á tillitssemi í umferðinni. Þann 1. mars n.k. ganga ný umferðarlög í gildi. Margt breytist frá lögum þeim sem nú gilda og eru flestar breytingarnar til batnað- ar. Þannig verður ökumönnum skylt að nota ökuljós allan sólarhringinn, án tillits til aðstæðna og aukin áhersla verður lögð á að menn haldi sig jafnan á hægri akrein þegar tvær eða fleiri akreinar eru í sömu aksturs- stefnu. Margir hefðu kosið að fleiri og róttæk- ari breytingar yrðu gerðar á umferðarlögun- um en um það náðist ekki samstaða. Vonandi verður gildistaka nýrra umferðarlaga þó til þess að íslenskir ökumenn taka að bæta ráð sitt og lækka þann toll sem öllum er óbærilegt að greiða. BB. viðtal dagsins jj „Tökum saltbílana ekki upp í nýja bíla“ - segir Þorleifur Þorkelsson, sölustjóri hjá Ingvari Helgasyni hf. Þorleifur Þorkelsson, sölu- stjóri hjá Ingvari Helgasyni hf., var staddur á Akureyri um síðustu helgi vegna bílasýning- ar á vegum Bifreiðaverkstæðis Sigurðar Valdimarssonar. Blaðamaður greip tækifærið til að spjalla við Þorleif um „næt- ursöltuðu“ Subarubílana sem lentu í flóðinu í Drammen. Auk þess fjallar Þorleifur nokkuð um sölumál bifreiða á nýbyrjuðu ári, en ýmsir hafa spáð samdrætti í bílasölu á árinu 1988. - Hvenær fréttuð þið fyrst af saltbílunum? „Við fréttum fyrst af þessu eins og aðrir, þ.e.a.s. að nokkrir bílar hafi lent í sjó hjá norska umboðs- aðilanum í Drammen. Við hugs- uðum ekki meira um þetta þvf við gerðum ekki ráð fyrir því að bílarnir yrðu settir á markað og frá okkar bæjardyrum kom aldrei til greina að setja þá á markað hér eða annars staðar. Þessir umræddu bílar voru upphaflega ætlaðir á Noregsmarkað áður en þeir skemmdust, en Ingvar Helgason hf. kaupir alla sína bíla beint frá Japan, ekki fyrir milli- göngu hinna Norðurlandanna." - Síðan koma fréttirnar af því að íslenskir menn hafi keypt yfir 300 af þessum bílum? „Já, það er rétt. En nokkuð af þeim bílum sem voru upphaflega keyptir voru síðan seldir aftur og pressaðir saman í brotajárn. En ég vil taka það fram að ég hef ekki skoðað þessa bíla sjálfur og veit því ekki um í hvaða ástandi þeir eru. Þó er maður að he>'ra ýmsar sögur af því hversu lengi bílarnir hafi verið í sjó og hvaða skemmdum þeir hafi orðið fyrir.“ - Nú hefur japanski fram- leiðandinn reynt að koma í veg fyrir að þessir bílar væru seldir til íslands? „Já, það er rétt, þeir hafa áhyggjur af þessum bílum frá örýggissjónarmiði. Þó bílarnir séu í lagi í dag þá er ekki þar með sagt að þeir endist vel. Þegar sjór eða saltblandað vatn kemst í ál þá tærast slitfletir og annað. Það sem er í lagi í dag þarf ekki að vera það eftir 3-4 mánuði." - Hvað finnst ykkur hjá Ingv- ari um að menn kaupi svona marga bíla framhjá umboðinu? „Það er ekkert við það að athuga í sjálfu sér. Við erum að vísu með umboðssamning við Subaru og okkur ber að líta eftir því að nýir Subaru-bílar fari ekki á markaðinn öðru vísi en gegnum okkur. Þó er eitt í þess- ari umræðu sem menn vilja gleyma en það er innflutningur á notuðum bílum. Ég man ekki nákvæmlega hvað þeir voru margir á síðasta ári en sú tala skiptir þúsundum. Þessir söltuðu bílar eru því ekki nema dropi í hafið af fjöldanum. Það er margt skrýtið í sam- bandi við þennan innflutning á notuðum bílum. Til landsins eru m.a. fluttir notaðir bílar sem eru sérstaklega ætlaðir fyrir Banda- ríkjamarkað. Við höfum ekki haft rétt eldsneyti á slíka bíla til þessa, þ.e. blýlaust bensín, og fáum ekki slíka vöru fyrr en síðar á árinu í fyrsta lagi. Hér er um að ræða fólksbifreiðir en þó fyrst og fremst jeppa. Þegar umboðin flytja inn bíla þá miða þau við að þeir séu búnir þeim vélum sem ætlaðar eru á Evrópumarkað. Umboðin hafa fleiri skyldunt að gegna, t.d. að útvega varahluti í bílana en menn verða að gera sér grein fyrir því að sjálfstæðir aðil- ar sem eru í því að flytja inn fá- eina bíla á hverju ári þurfa ekki að sinna neinni varahlutaþjónustu o.s.frv. gagnvart sínum viðskipta- vinum. Svo fá umboðin það á sig að þau geti ekki útvegað vara- hluti í bílana, en umboðin liggja eðilega ekki með varahluti í gerðir sem ekki eru seldar hér á landi." - Er hægt að setja fram ein- hverja almenna reglu um kaup söltuðu Subaru-bílanna? „Menn, sem kaupa bíla á þess- um aflsáttarbílamarkaði, kaupa þá bara til að eiga þá í 3-4 mán- uði og selja þá svo. Maður hefur orðið var við þetta gegnum árin. Varðandi sérstakar merkingar á saltbílunum þá er ekki gerlegt að krefjast þess að þeir verði merktir, slíkt er ekki á verksviði Bifreiðaeftirlits ríkisins. En við hjá umboðinu merkjum alla okk- ar bíla og bjóðum þriggja ára ábyrgð sem gildir ekki um saltbíl- ana.“ - Geta menn bá komið eftir 3- 4 mánuði með saltbíl af Subaru- gerð til Ingvars Helgasonar eða umboðsaðila fyrirtækisins og beðið um að hann verði tekinn upp í nýjan bíl? „Það hafa verið sendar út skrár með númerum saltbíla af Subaru- gerð og ég vil vekja sérstaka athygli fólks á því að Ingvar Helgason hf. tekur ekki salbíla í skiptum upp í nýja eða eldri Subaru-bíla. Þetta er alveg klárt mál, við tökum alls ekki við slík- um tjónabílum.“ - Hvernig standa sölumál fyrirtækisins og hvað er helst á döfinni á nýbyrjuðu ári? - Við seldum rúmlega 2500 bíla á síðasta ári, þar af voru um 1100 Nissan-bílar, 200 Trabantar en afgangurinn Subaru. Við munum halda okkar markaðs- hlutdeild og stefnum að því að auka hana þrátt fyrir að útlit sé fyrir eitthvað minni bílasölu á þessu ári en því síðasta. Við bindum talsverðar vonir við Niss- an-jeppana, og einnig fólksbíl- ana því þeir eru alltaf að verða betri og nýtískulegri. Subaru verður alltaf vinsælt vörumerki á íslandi vegna fj órhjóladrifs og annarra eiginleika sem valda því að bílarnir stoppa ekkert hjá okkur í umboðinu heldur renna strax út.“ - Hverju þakka starfsmenn fyrirtækisins Ingvar Helgason hf. að það er nú orðið umsvifamesta bílaumboð landsins? „Fyrst og fremst því að við erum með mjög góða vöru. Einn- ig því að við erum með mjög gott starfsfólk. Við erum með minnstu yfirbygginguna af stóru bílaumboðunum, fastir starfs- menn hjá fyrirtækinu eru 25. Þetta kostar að vísu töluverða vinnu en salan gengur vel, eins og menn sjá. EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.