Dagur - 20.01.1988, Blaðsíða 16
Tvær nætur með
morgunverði á
kr. 1.920
Helgaiyisting á Hótel Húsavik
Hótel ________
Husavik sími 41220.
Oft miklar birgðar á herðum bréfbera:
Dagskammtur hvers
bréfbera fer í 60 kíló
Starf bréfbera hefur á seinni
tímum orðið eitt af erfiðari
störfum innan póstþjónustunn-
ar enda hafa birgðar bréfber-
anna aukist með vaxandi notk-
un póstþjónustunnar. Á Akur-
eyri sinna 13 manns póstburði
og þegar álag er mikið getur
magn hvers og eins á dag farið
upp í 60 kíló sem borið er út í
einni ferð.
Gísli Eyland, stöðvarstjóri
Pósts og síma á Akureyri sagði
að þegar bréfberar þyrftu að bera
út svo mikið magn væri reynt að
aðstoða þá með akstri en nokkrir
notuðu þó sína eigin bíla við
vinnuna. Gísli sagði að póstburð-
urinn væri mun erfiðari yfir
vetrartímann og því fengju bréf-
berarnir greitt 10% álag yfir
vetrarmánuðina.
Gísli sagði að þrátt fyrir að
starf bréfberanna sé erfitt hafi
sumir enst í starfinu árum
saman. „Þegar við ráðum nýja
bréfbera þá gerum við fólki grein
fyrir að þetta sé erfitt starf þó að
það eigi frekar við um vetrartím-
ann.
Janúarmánuður er annatími í
póstburði enda sá mánuðurþegar
bankar þurfa að senda frá sér
hvað mest af bréfum. Gísli segir
að slíkur póstur auk ýmissa happ-
drætta og dreifibréfa hafi í seinni
tíð aukist mjög og þessi aukning
kemur best í ljós hjá bréfberun-
um. JÓH
Dalvík:
Viðar hf. afhendir
sio nyjar ibuðir
Nýlega voru á Dalvík aflientar
7 íbúðir af 10 í nýju fjölbýlis-
húsi sem byggingarfyrirtækið
Viöar hf. hefur nýlega lokið
við. íbúðirnar voru afhentar
tilbúnar undir tréverk en hinar
þrjár sem eftir eru eiga að
afhendast fullbúnar 1. apríl.
Bygging hússins sem er þrjár
hæðir hófst í júlí á síðasta ári og
að sögn Hilmars Daníelssonar
annars eiganda fyrirtækisins hafa
framkvæmdir gengið vel. í hús-
inu eru tveggja og þriggja her-
bergja íbúðir.
íbúðum en Hilmar sagðist þegar
vera búinn að fá óformlegar
umsóknir. ET
Guðrún Gísladóttir póstur með þunga byrði.
Mynd: TLV
„Fóstrudeilan“ leyst en:
30 fóstmr vantar til
starfa hjá Akureyrarbæ
Húsnæðisskortur hefur verið
talsverður á Dalvík og nefndi
Hilmar sem dæmi þar um, að
þegar flutt var inn í þessar nýju
íbúðir hafi engar íbúðir losnað í
staðinn. Kaupendur þeirra sem
allir eru ungt fólk, hefur til þessa
búið hjá fjölskyldum sínum eða
leigt herbergi. Hilmar sagði að
enn vantaði húsnæði á Dalvík og
í apríl hefst bygging annars fjöl-
býlishúss sem einnig verður með
10 íbúðum. Ekki hafa verið gerð-
ir samningar um sölu á þeim
Þó að lausn „fóstrudeilunnar“
á Akureyri liggi fyrir, og tekist
hafi að koma í veg fyrir lokun
dagvista, þá er staða fóstru-
mála hjá Akureyrarbæ ekki
góð. Að sögn Sigríðar M.
Jóhannsdóttur dagvistarfull-
trúa þá vantar nú um 30 fóstrur
til starfa hjá bænum, miðað
við að þær sex sem sagt hafa
upp dragi uppsagnir sínar til
baka.
í dag birtast í blöðum auglýs-
Nýja fjölbýlishúsið á Dalvík.
ingar frá dagvistarfulltrúa þar
sem auglýst er eftir fóstrum og
forstöðumönnum við Dagvistir
Akureyrar. Á Akureyri eru nú
um 17 fóstrumenntaðar konur
sem ýmist eru komnar í önnur
störf eða eru heimavinnandi. Sjö
þeirra eru við kennslu, ein á Sól-
borg og tvær í Þjálfunarskóla
ríkisins. Sigríður sagðist bæði
vera að reyna að ná til þessara
kvenna og fóstra á Reykjavíkur-
svæðinu.
Sigríður sagði að ef hver deild
ætti að hafa yfir að ráða deildar-
fóstru og almennri fóstru þá vant-
aði nú í bæinn 30 fóstrur. Hún
sagðist vona að þær sem sagt
hefðu upp myndu draga uppsagn-
ir sínar til baka.
Sigríður sagðist engu þora að
spá um undirtektir fóstra í
Reykjavík en sagðist stefna að
„veiðiferð" í Fóstruskóla íslands
eins og Siglfirðingar fóru á sínum
tíma.
Ef fást eiga fóstrur annars stað-
ar að af landinu þá hangir fleira á
spýtunni en þeirra eigið starf því
ef þær eru með fjölskyldu þá þarf
að útvega mönnunum vinnu líka.
Á síðasta ári var greiddur flutn-
ingskostnaður fyrir fóstrur til
Akureyrar og sagðist Sigríður
vonast til að slíkt yrði gert núna
líka. ET
Sláturhús KEA:
Söluaukning
- í nautakjöti
Mikil söluaukning varð hjá
sláturhúsi KEA á Akureyri í
nautakjöti á árinu 1987 miðað
við árið á undan. Á árinu 1986
seldust um 220 tonn af nauta-
kjöti en á síðasta ári jókst sal-
an um 140 tonn þ.e. í 360 tonn.
Að sögn Óla Valdimarssonar,
sláturhússtjóra var á nýliðnu ári
slátrað um það bil 2160 stórgrip-
um í sláturhúsinu en á árinu 1986
var slátrað nokkuð færri gripum
eða 1960.
Óli sagði að ljóst væri að sala í
nautakjöti hafi aukist um 140 tonn
milli ára en sala yfir árið hafi ver-
ið nokkuð jöfn. Sala á mánuði sé
á bilinu frá 20 til 40 tonn en
minnst sé salan í janúarmánuði.
Óli sagði að þrátt fyrir aukna
slátrun nautgripa á síðasta ári sé
birgðastaðan nú við áramót mun
betri en hafi verið um síðustu
áramót. JÓH
Ellimóðir
siökkviliðsmenn:
„Ástandið er
alvarlegt“
- segir Sigfús Jónsson
„Þetta er alveg rétt. Ástandið
hjá slökkviliðinu er að verða
alvarlegt en það hefði mátt
koma í veg fyrir það með því
að bregðast rétt við fyrir 4-6
árum. Þá var ljóst hvert stefndi
en það hefur ekki tekist að
stýra slökkviliðsmönnum í
önnur störf hjá bænum. Það
vantar meiri miðstýringu í
starfsmannaráðningar,“ sagði
Sigfús Jónsson bæjarstjóri.
Bæjaryfirvöld hafa verið sökuð
um að nota slökkvilið Akureyrar
sem athvarf fyrir starfsmenn sem
komnir eru á. miðjan aldur, en
meirihluti slökkviliðsmanna er
um og yfir fimmtugt. Framtíðar-
sýn Gunnlaugs Búa Sveinssonar í
föstudagsblaði Dags var líka
nöturleg: Slökkviliðsmenn í
hjólastólum eða með hækjur.
Sigfús Jónsson tekur undir þá
skoðun Gunnlaugs Búa að eðli-
leg endurnýjun hafi ekki átt sér
stað. Mannaráðningar hjá bæn-
um liafi hins vegar verið undir
nefndum og ráðum komnar og
bæjarstjórn ekki getað sniðgeng-
ið vilja þeirra þótt hún hafi viljað
greiða götu þeirra bæjarstarfs-
manna sem sótt hafa um til-
færslu.
„Mín skoðun er sú að bæjar-
starfsmenn ættu að vera á nokk-
urs konar biðlista, en ekki þurfa
að sækja um á móti öðrum þegar
stöður losna hjá bænum. Þegar
heppilegar stöður losna eiga þeir
síðan að geta fengið þær, án aug-
lýsingar, eins og í hverju öðru
fyrirtæki," sagði Sigfús.
Hann sagði að nauðsynlegt
væri að laga það kerfi sem gildir
varðandi starfsmannaráðningar.
Fyrr væri lítið hægt að gera og
slökkviliðsmenn héldu áfram að
eldast. Hann var þó bjartsýnn á
að með stjórnkerfisbreytingun-
um yrði auðveldara að færa
starfsmenn til innan bæjarkerfis-
ins og standa á nútímalegri hátt
að ráðningu starfsmanna. SS
Viðurkenndu
sök sína
í 10 málum
I síðustu viku var brotist inn í
Sælkerahúsið á Sauðárkróki
og stolið þaðan 20 flöskum af
áfengi. Við rannsókn þess máls
upplýstust níu önnur mál sem
tveir menn eru valdir að. Er
annar rúmlega tvítugur og hinn
undir tvítugt.
Er hér um að ræða 2 bílþjófn-
aði og skemmdir á bílunum, stuld
á dráttarvél og ölvunarakstur í
kjölfar þeirra afbrota. Einnig
innbrot og þjófnaði s.s á verkfær-
urn og dekkjum. Verknaðirnir
voru framdir á Sauðárkróki og í
héraðinu, en einnig lá slóð þeirra
félaga alla leið suður í Keflavík
þar sem þeir brutust inn í
nýbyggingu og stálu verkfærum.
Mestur hluti þýfisins er komið í
leitirnar og er það í fórum lög-
reglu. -þá