Dagur - 17.02.1988, Page 2
2 - DAG.UR - (17» febrúar >1988
Vinnumarkaðurinn:
Ovenju lítið atvinnu-
leysi skráð í janúar
Atvinnuleysi í janúar var mun
minna en í sama mánuði
undanfarin ár, en atvinnuleys-
isdögum fjölgaði þó um 60%
frá því í desember ’87, enda
var þá hverfandi lítið atvinnu-
leysi. (Jm 22.400 atvinnuleysis-
dagar voru skráðir á landinu
öllu sem jafngildir því að 1.000
manns hafi verið á atvinnu-
leysisskrá í mánuðinum, eða
0,9% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði.
Á undanförnum árum hefur
töluvert atvinnuleysi verið í
janúar, t.d. 2% í janúar '87 oj»
3,4% í sama mánuði '84. í
Norrænt kvennaþing:
Haldið í Noregi
næsta sumar
Dagana 30. júlí til 7. ágúst í
sumar verður haldið norrænt
kvennþing í Osló. Reiknað er
með að þúsundir kvenna frá
öllum Norðurlöndunum komi
þar saman til að skiptast á
skoðunum, hugmyndum og
reynslu og setja sameiginlega
fram kröfu um betra líf í fram-
tíðinni. Ráðherranefnd
Norðurlandaráðs ákvað í sam-
vinnu við forsætisnefnd ráðsins
að þingið skyldi haldið. Var
ákveðið að fela kvennasam-
tökum á Noröurlönduin undir-
búning þingsins.
Markmið undirhúningsnefnd-
arinnar á Islandi var í upphafi
það, að héöan færu 200 konur á
þingiö. Ljóst er að sú tala hefur
náðst og gott hetur þrátt fyrir að
enn hefur frestur til að tilkynna
þátttöku ekki runnið út.
Dagskrá þingsins ræðst af
framlagi þátttakenda, sem hafa
frelsi til að standa fyrir vinnuháts-
um, kynningum, málstofum,
fyrirlestrum, söng, leiksýningum
o.s.frv. Þær sem vilja vera með
framlag á þinginu þurfa að til-
kynna þaö fyrir 25. fehrúar.
Fyrir þær sem áhuga hafa á að
fara meö, hjóða Flugleiðir leigu-
flug til Osló 29. júlí og til haka
aftur 7. ágúst á krónur 11.500 fyr-
ir utan flugvallarskatt. Hótel-
herhergi hafa veriö tekin frá, auk
þess sem leitað hefur verið eftir
einkaheimilum fyrir konurnar.
Til að styrkja konur sem ekki fá
styrk annars staðar frá hefur ver-
ið stofnaður ferðasjóöur með
aðstoð telagsmálaráðherra.
í fréttabréfi sem framkvæmda-
nefnd þingsins á Islandi gefur út,
er á baksíðu nokkrir „molar" í
tengslum við undirbúning fyrir
þingið. Þar segir m.a.:
„Þrjár kynslóðir. Ung kona
hefur skráð sig, móður sína og
dóttur á þátttökulistann. Á
Norræna kvennaþinginu verður
ekkert kynslóðabil. Við erum yfir
slíkt hafnar.
Starfsmaður hjá Reykjavíkur-
borg er liætt að reykja og leggur
nú 4 þúsund krónur fyrir mánað-
arlega. Hún verður búin að safna
40 þúsund krónum 30.júlf n.k.“
VG
Akureyri:
Heilsugæsluganga
í Kjarnaskógi
Heilsugæslan á Akureyri
stendur fyrir sannkallaðri
heilsubótargöngu í Kjarna-
Skipagata:
Ekið á kyrr-
stæðan bíl
A tíniabilinu milli klukkan 9
og 12 fyrir hádegi í gær, var
ekið á kyrrstæðan bíl á bíla-
stæði noröan við hús Sam-
vinnutrygginga, við Skipagötu
á Akureyri. Sökudólgurinn
livarf á braut og hefur ekki til-
kynnt mistök sín.
Bíllinn er grár, af gerðinni
Daihatsu Gharade. með skrán-
ingarnúmerið A-1386. Hann
skemmdist nokkuð á hægri fram-
Intrð og viröist sem þar hafi stuð-
ari annars bíls rekist utan í. Bíll-
inn stóð vestast í röð fjögurra
bíla á stæöi norðan við húsvegg-
mn.
Þeir sem geta gefið einhverjar
upplýsingar um þessa ákeyrslu,
eru beðtiir að láta rannsóknarlög-
regluna á Akureyri vita. ET
skógi næstkomandi sunnudag.
Gangan ber yfirskriftina
„Heilsugæsluganga“ og er
markmiðið með henni að
hvetja fólk til hollrar útivcru,
fótgangandi eða á gönguskíð-
um.
Gangan fer fram milli kl. 11 og
14 á sunnudaginn. Að sögn
Magnúsar Ólafssonar heilsu-
gæslulæknis verður þátttakend-
um boðið upp á heilsubótar-
drykki frá Mjólkursamlagi KEA,
fyrir göngu eða meðan á henni
stendur.
„Hugmyndin er aö veita verð-
laun og verða þau dregin úr núm-
erum sem þátttakendur fá. Þetta
er ekki keppnisganga, hér er að-
eins verið að hvetja fólk til hollr-
ar hreyfingar og útiveru," sagði
Magnús.
Heilsugæslugangan er háð
veðri að nokkru leyti því henni
verður frestað ef norðangarri og
stórhríð bresta á, en í sæmileg-
asta veðri á gangan að geta farið
fram og er rétt að hvetja alla sem
vettlingi geta valdið að bregða
sér í Kjarnaskóg á sunnudaginn
og njóta útiverunnar. SS
nýliðnum janúarmánuði lá fisk-
vinnsla víða niöri en það kemur
ekki að fullu fram í skráðu
atvinnuleysi því mörg fiskvinnslu-
fyrirtæki hafa ekki sagt upp fast-
ráðningarsamningum og starfs-
fólkið því enn á launaskrá.
Á Norðurlandi eystra voru 238
manns á atvinnuleysisskrá í
janúar '88 á móti 408 í janúar '87.
í desember '87 voru liins vegar
143 á skrá og má greina þessa
aukningu milli desember og
janúar á öllum stöðum í fjórö-
ungnum nema einum: Olafs-
fjörður 58 (11), Daivík 43 (22),
Akureyri 57 (49), Húsavík og S.-
Þing. 54 (47), Arskógshreppur 4
(4), Kópasker 6 (3), Raufarhöfn
7 (2) og Þórshöfn 9 (5). Svigatöl-
ur tákna fjölda atvinnulausra í
desember.
Lítum þá á Noröurland vestra.
Þar voru aðeins 96 á skrá í janúar
á móti 288 í janúar '87. í desem-
ber voru 82 á skrá þannig að
atvinnuleysi hefur aukist dálítið
eins og sjá má víðast hvar, nema
hvað dæmið hefur snúist við á
Sauðárkróki: Sauðárkrókur 34
(42), Siglufjörður 4 (3), Drangs-
nes 4 (0), Hólmavík 7 (2),
Hvammstangi 19 (11), Blönduós
13 (10), Skagaströnd 13 (12) og
Hofsós 3 (0). SS
Sólskuggar.
Mynd: TLV
Undirbúningur starfs-
fræðslu fyrir bændur
Á aðalfundi Stéttarsambands
bænda sl. haust var stjórn þess
falið að finna leiðir til að fjár-
magna kostnað við endur-
inenntun bænda til að auð-
velda þeim búháttabreytingu. í
bókun aðalfundar segir að efnt
verði til námskeiða og fé veitt
til að auðvelda bændum að
sækja þau m.a. með því að efla
afleysingaþjónustu. Fjármagn
verði ekki veitt úr sjóðum
landbúnaðarins til þeirra sem
leggja fyrir sig nýjar búgreinar
nema þeir afli sér menntunar í
viðkomandi grein. Ennfremur
Valgerdur.
Guðmundur.
Norðurland eystra:
Guðmundur og Valgerður með
almenna stjórnmálafundi
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra og Valgerður
Sverrisdóttir, alþingismaður,
eru þessa dagana á ferð um
Norðurlandskjördæmi eystra
og munu halda þar nokkra
almenna stjórnmálafundi.
Sá fyrsti verður í félagsheimil-
inu á Þórshöfn í kvöld, miðviku-
dagskvöld. Annað kvöld verður
fundur í félagsheimilinu á Rauf-
arhöfn og á föstudagskvöld verð-
ur haldinn fundur í fundarsal
K.N.Þ. á Kópaskeri. Fundirnir
hefjast allir kl. 21.00.
Rætt verður vítt og breitt um
stöðu landsmála auk þess sem
sérstaklega verður fjallað um
heilbrigðismál. Fundirnir eru öll-
um opnir.
segir að Búfræðslunefnd verði
falið að skipuleggja og standa
fyrir slíkri fræðslu og Stéttar-
sambandið skuli eiga fulltrúa í
nefndinni.
Búfræðslunefnd hefur frá í
nóvembermánuði sl. í samvinnu
við bændaskólanna á Hólum og
Hvanneyri og Stéttarsamband
bænda, unnið að undirbúningi
þess að koma á námskeiðum til
endurmenntunar starfandi bænda
og til kennslu fyrir þá sem áforma
búrekstur í nýgreinum.
í drögum sem unnin hafa verið
í þessu skyni er stefnt að því að
efna til námskeiða fyrir byrjend-
ur í loðdýrarækt svo og fyrir byrj-
endur í loðkanínurækt. Einnig er
stefnt að námskeiðum í ferða-
þjónustu, nýtingu veiðivatna,
búháttabreytingum, hagfræði,
tölvunotkun, kartöflurækt, heim-
ilisgarðrækt, skjólbeltagerð,
skógrækt. jarðrækt, fóðrun
mjólkurkúa, málmsuðu, skipu-
lagi félagskerfis bænda o.fl.
Þegar undirbúningi verður lok-
ið munu námskeiðin verða
kynnt. Hluta námskeiðanna er
áformað að skipta á milli bænda-
skólanna en nokkur verða haldin
á þeim báðum. Stefnt er að því
að flest námskeiðin verði haldin
einu sinni á ári eða oftar ef þörf
krefur.
Búfræðslunefnd og aðrir sem
um málið hafa fjallað eru sam-
mála um að nauðsynlegt sé að
veita þeim fjarhagslega fyrir-
greiðslu sem námskeið vilja
sækja og þurfa að hverfa á meðan
frá búrekstri. Nefndin hefur ósk-
að eftir því að stjórn Framleiðni-
sjóðs veiti fjárhagslega fyrir-
greiðslu vegna áformaðs nám-
skeiðshalds. JÓH