Dagur - 17.02.1988, Qupperneq 9
17. febrúar 1988 - DAGUR - 9
>*>.»> ’<0
nokkru síðar var sú eign seld og
félagið flutti að Laufásvegi 25.
Húsnæðið var mikil lyftistöng
fyrir starfsemina og efldist félags-
starfið til muna. Friðrik Karlsson
fyrrverandi formaður sagði að
ekki hefðu allir verið sammála í
byrjun að leggja í svona miklar
fjárhagslegar skuldbindingar sent
húsnæðiskaup væru: „En það er
einmitt styrkur Húnvetninga að
vera ekki alltaf sammála. Hressi-
legt rifrildi ýtir á metnað og meiri
framkvæmdir. Það hefur komið
Húnvetningafélaginu vel og því
stendur félagið eins vel og raun
ber vitni.“
Árið 1983 seldi félagið eign
sína við Laufásveg og keypti í
staðinn húsnæði við Skeifuna 17.
Par Itefur verið innréttaður mjög
smekklegur salur og fer nú mest
allt starf á vegum Húnvetninga-
félagsins fram þar. Þegar hins
vegar stærri samkomur, eins og
t.d. árshátíðir, fara fram, þá þarf
að leigja stærri sali úti í bæ.
Öflugt starf fer nú fram á veg-
um Húnvetningafélagsins.
Briddsdeildin kemur saman einu
sinni í viku og er þá venjulega
spilað á 18 borðum. Félagsvist er
spiluð á laugardögum og er þá
líka margt um manninn. Skák-
deildin starfar af krafti og nýlega
lauk innanfélagsmóti Húnvetn-
ingafélagsins. Þar varð hlutskarp-
astur Páll Hannesson og hlaut
hann veglegan bikar að launum
sem verslunin Ólympía gaf til
keppninnar, en eigendur Ólympíu
eru Hjörtur Jónsson frá Saurbæ í
Vatnsdal og sonur hans Sigurður.
í ráði er að tefla við önnur átt-
hagaféiög, eins og gert var síðast-
liðinn vetur.
Ritnefnd starfar á vegum
félagsins og stendur fyrir öflugri
útgáfustarfsemi. Þar má t.d.
nefna að á hverju ári kemur út
ársrit og þar að auki stendur
nefndin fyrir annarri útgáfu-
starfsemi. Baldur Pálmason hef-
ur verið fenginn til að rita sögu
félagsins í afmælisrit þess, en í
ritnefnd eiga sæti Páll Daníels-
son, Grímur Jósafatsson og Ásta
Þórðardóttir.
Húnvetningafélagið stendur
fyrir ýmsurn uppákomum, þar
má t.d. nefna vetrarfagnað, árs-
hátíð og sumarfagnað og venju-
lega eru þessar skemmtanir rnjög
Friðrik Karlsson fyrrverandi formaður ræðir við Gunnar Guðmundsson frá Auðunnarstöðum í Víðidal og konu
hans Hallfríði Guðmundsdóttur. Einnig sést í Guðmund Magnússon.
hátíðisdm
Jón ísberg sýslumaður.
Pálrni Jónsson frá Akri og kona hans Helga Sigfúsdóttir.
Jóhann Kaldur torm. siðgæðisnefndar, Björn Jónsson frá Fossi í Hrútafirði
og Einar Þorláksson frá Rlönduósi.
Aðalsteinn Helgason, Páll Daníelsson og Pétur Ólason.
Páll Axelsson, Ólafur Kárdal, Sigríður Halldórsdóttir og Helga Stefánsdótt-
ir Kárdal.
vel sóttar. Á vorin er eldri félags-
mönnum ávallt boðið til kaffi-
drykkju í Domus Medica og
mæta þar venjulega urn 300
manns,
Endurreisn Borgarvirkis
og skógrækt
En starfsemi félagsins er ekki
bara bundin við Stór-Reykjavík-
ursvæðið. Félagið stóð fyrir
endurbyggingu Borgarvirkisins í
Víðidal. Er það eina mannvirki
sinnar tegundar á Islandi.
Byggðasafnið á Reykjum var
stofnað að undirlagi Húnvetn-
ingafélagsins og er enn starfandi
byggðasafnsnefnd á vegum
félagsins og er Guðrún Svein-
björnsdóttir formaður þeirrar
nefndar.
Árið 1951 gaf Kristján Vigfús-
son bóndi í Vatnsdalshólum
Húnvetningafélaginu landspildu
sunnanundir Þórdísarhól að Þór-
dísarlæk, til skógræktar. Féiagið
tók til óspilltra málanna og það
starf hefur skilað þeim árangri að
þarna eru nú 8-10 metra aspir og
5 metra hátt birki. Þessi staður er
vinsæll áningastaður ferðamanna
og má nærri liggja að fleiri hundr-
uð manns sæki þennan stað á
hverju sumri.
Eins og gefur að skilja hefur
verið misjafn kraftur í starfsemi
félagsins í gegnum árin. Eftir að
núverandi formaður Aðalsteinn
Helgason tók við hefur hlaupið
nýr eldmóður í starfsemi félags-
ins og eru um 500 manns skráðir
félagar. í stjórn með Aðalsteini
sitja Gunnar S. Sigurðsson
varaformaður, Jóna Guðmunds-
dóttir ritari, Reynir Jóhannesson
gjaldkeri, Halldór Jóhannesson,
Pálfríður Benjamínsdóttir og
Árni Jóhannesson. Ýmislegt er á
prjónunum hjá stjórninni og má
m.a. nefna að uppi eru hugmynd-
ir unt að kaupa herbergi til hliðar
við félagssalinn og þar með
stækka aðstöðu félagsins. Mundi
þetta auka notagildi salarins til
muna. Þetta tekst þó einungis
með dyggri hjálp félagsntanna og
er Aðalsteinn formaður vongóð-
ur um að sem flestir félagsntenn
veiti þessu máli stuðning. AP