Dagur - 17.02.1988, Blaðsíða 16
Akureyri, miðvikudagur 17. febrúar 1988
Tvær nætur með
morgunverði á
kr. 1.920
Helgargisting á Hótel Húsavík
Hötel ________
Húsavik sími 41220.
Dregið í áskrifendagetraun Dags:
„Hlýtur að ganga í
1jölskyldunni“
- segir eiginkona vinningshafa janúarmánaðar
„Þetta var sannarlega ánægju-
legur vinningur. Eg reiknaði
varla með að vinna þótt ég
Stjórnsýslumiðstöð:
Býðst hús-
næði á mörg-
um stöðum
- fulltrúar væntanlegir
norður í vikunni
Nú í vikunni eru fulltrúar
Byggðastufnunar væntanlegir
norður til Akureyrar til við-
ræðna við þá aðila sem hafa
lýst sig reiðubúna að lcigja eða
selja stofnuninni húsnæði und-
ir væntanlega stjórnsýslumið-
stöð.
„Okkur býðst húsnæði á mörg-
um stöðum," sagði Bjarni Ein-
arsson aðstoðarforstjóri Byggða-
stofnunar í samtali við Dag, en
hann og Benedikt Bogason full-
trúi framkvæmdastjóra munu
skoða möguleikana og gefa
stjórninni skýrslu áður en
ákvörðun verður tekin.
Meðal þess húsnæðis sem í
boði er, er skrifstofuhúsnæði
Sjafnar við Glerárgötu. Sjafnar-
menn vilja hins vegar selja frekar
en leigja, en hugmyndin var að
húsnæði yrði tekið á leigu áður
en byggt verður yfir stjórnsýslu-
miðstöðina. Annar staður við
Glerárgötuna er inni í myndinni
svo og pláss í gamla Sjafnarhús-
inu við Kaupvangsstræti svo
eitthvað sé nefnt.
„Við eru bjartsýnir á þessa
stofnun og við þurfum því ansi
stórt húsnæði. Eg held að það
dugi ekki minna en 400 fermetr-
ar," sagði Bjarni. Byggðastofnun
vinnur að undirbúningi málsins í
samvinnu við hagsýslustofnun en
að sögn Bjarna hafa fjölmargar
stofnanir lýst yfir áhuga á þátt-
töku.
Umsóknarfrestur um starf
forstöðumanns stjórnsýslumið-
stöðvar rennur út í dag og er gert
ráð fyrir að starfsemin fari í gang
á þessu ári. ET
tæki þátt í þessu,“ sagði Andri
Páll Sveinsson, húsasmiður á
Akureyri, en hann var svo
heppinn að vinna Kanaríeyja-
ferð fyrir tvo í áskrifendaget-
raun Dags.
Dregið var í áskrifendaget-
rauninni í gær, og kom nafn
Andra Páls þá upp. Andri er
húsvörður í Glerárskóla, en auk
þess starfrækir hann rammagerö
á heimili sínu að Langholti 13.
„Petta hlýtur að ganga í fjöl-
skyldunni," sagði kona Andra,
Guðrún Sigurðardóttir, þegar
hún fékk fréttirnar, en bróður-
sonur hennar, Sævar Árnason,
var fyrsti vinningshafi áskrifenda-
getraunar Dags, en hann vann
vönduð hljómtæki frá Vöruhúsi
KEA í desember.
Andri og Guðrún eru að von-
um ánægð með vinninginn, og
munu þau dvelja í þrjár vikur á
Kanaríeyjum næsta sumar. Þau
hafa verið tryggir áskrifendur
Dags allt frá árinu 1960. EHB
Andri Páll brosti breitt þegar honum var tilkynnt um vinninginn, Kanarí-
eviaferð fyrir tvo. Þau hiónin hafa verið áskrifendur að Degi frá 1960.
Mynd: EHB
Eyjafjörður:
Lokaáfangi
Leiruvegar
lagður
á árinu
Tilboð í lokaáfanga fram-
kvæmdanna við Leiruveg voru
opnuð snemma í desember, og
fékk Halldór Baldursson á
Akureyri verkið. Um er að
ræða lagningu á þriggja kíló-
metra löngum vegi um Kaup-
angssveit, frá Leifsstaðavegi
suður að Þórustöðum.
Sigurður Oddsson, umdæmis-
tæknifræðingur Vegagerðar ríkis-
ins á Akureyrij sagði að Halldór
Baldursson hefði boðið í verkið
sem svaraði 82% af kostnaðar-
áætlun, og var samið við hann á
grundvelli þess tilboðs. Um er aö
ræða fyllingar upp á 36.000 rúm-
metra, 7.700 rúmmetra burðarlag
og skeringar upp á um 2.000 rúm-
metra, en með skeringum er átt
við rúmtak jarðvegs, sem fluttur
er burtu við að vegur er lagður
gegnum hóla og hæðir.
Halldór Baldursson á að skila
verkinu 15. ágúst nk., en fram-
kvæmdir hafa ekki hafist enn
vegna veðurs. EHB
Hlíð og Skjaldarvík:
Afgreiðslu fjárha
áætlunar fresta
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í gær var samþykkt að
fresta afgreiðslu á fjárhags-
áætlun dvalarheimilanna.
Áslaug Einarsdóttir, formaður
öldrunarráðs, sagði að við
blasti 35 milljóna króna halla-
rekstur dvalarheimilanna í
fyrra, og þyrfti að endurskoða
rekstur þeirra áður en fjár-
hagsáætlun yrði samþykkt.
Cecil Haraldsson, framkvæmda-
stjóri dvalarheimilanna Hlíðar og
Skjaldarvíkur, sagði að sam-
kvæmt frumvarpi til fjárhagsáætl-
unar bæjarins væri gert ráð fyrir
miklum hallarekstri dvalarheim-
ilanna, að óbreyttum aðstæðum.
Með því að fresta afgreiðslu á
rekstraráætlun dvalarheimilanna
væri verið að gera tvennt.
í fyrsta lagi fer nú fram
nákvæm úttekt á rekstri dvalar-
heimilanna. í öðru lagi er verið
að Ieita eftir viðurkenningu ríkis-
valdsins á því, að í rauninni fer
fram viðamikill rekstur sjúkra-
deilda við dvalarheimilin, en það
var ekki upphaflegt hlutverk
þeirra að reka slíkar deildir.
„Við þurfum á rekstrarúttekt
að halda, m.a. til að sýna fram á
hversu mikinn kostnað við berum
af sjúklingum, og hversu mikið
vinnuálagið er hérna. Frestunin
er gerð vegna þess, að við bíðum
nú eftir niðurstöðum úttektarinn-
ar á rekstrinum, og einnig til að
bíða eftir viðbrögðum ríkisvalds-
ins við umsóknum okkar. Ef rík-
ið ákveður að greiða okkur t.d.
fyrir 15 sjúklinga í viðbót við það
sem nú er gert þá gjörbreytir það
tekjuhlið rekstraráætlunarinnar.
Meðan staðan er þannig þá er
ekki ástæða til að samþykkja
rekstraráætlun með miklum
halla," sagði Cecil Haraldsson.
EHB
Grásleppuhrogn
lækkuð í verði
Atvinnumálanefnd Akureyrar:
Tillögur um fjármögnun og
stjómun Iðnþróunarfélagsins
Um áramótin rann út samning-
ur eignaraöila að Iðnþróunar-
félagi Eyjafjarðar um fjár-
mögnun þess. Á fundi atvinnu-
málanefndar Akureyrar 9.
febrúar síðastliöinn gerði Sig-
fús Jónsson bæjarstjóri og
stjórnarformaður IE grein fyr-
ir málefnum félagsins og lagði
fram tillögur um framtíðarfjár-
mögnun þess.
Eignaraðilum félagsins hefur
verið skrifað bréf þar sem þeir
eru beðnir um að taka ákvörðun
um áframhaldandi aðild og tillög-
ur um fjármögnun. Fyrrnefndur
samningur gerði ráð fyrir því að
framlag sveitarfélaga væri að
hálfu talið sem hlutafé en að
hálfu sem rekstrarfé. Framlag
annarra aðila var allt skoðað sem
hlutafé.
Atvinnumálanefnd leggur til
við bæjarstjórn að á aðalfundin-
um í vor verði lögð fram tillaga
um breytingar á samkomulaginu,
þannig að eftirleiðis verði allt
framlag skoðað sem hlutafé. Þá
leggur nefndin til að fjölgað verði
í stjórn félagsins úr fimm í sjö.
ET
- reynt að tryggja
Á fundi fulltrúa grásleppu-
vciðimanna með umboðs-
mönnum kaupenda grásleppu-
hrogna hér á landi í síðustu
viku var ákveðið að lækka
verð á grásleppuhrognum. Er
lágmarksviðmiðunarverð á
hrognunum nú 1100 þýsk mörk
í stað 1200 í fyrra.
Ástæður fyrir þessari lækkun
eru tilgreindar í frétt frá Lands-
sambandi smábátaeigenda þær;
að veiði hafi á síðasta ári verið
40% uinfram heimsmarkað, en
þó beri að geta þess að engar
birgðir hafi verið fyrir. Birgðir
hjá niðurlagningarverksmiðjum í
landinu, sem keyptu um 15 þús-
und tunnur á síðustu vertíð, eru
nú um 9-10 þúsund tunnur.
sölu hrogna í vor
Kaupendur og umboðsmenn
telja raunhæft að hægt verði að
selja um 12 þúsund tunnur á
komandi vertíð, en til að tryggja
enn frekar þá sölu verði verð frá
síðustu vertíð að lækka. Helstu
keppinautarnir, Kanadamenn,
hafa aukið veiðar sínar jafnt og
þétt sl. 3 ár, úr tæpum 9 þúsund
tunnum 1984 í 27-28 þúsund á síð-
asta ári. Ekkert bendir til að
veiðar þeirra fari minnkandi.
f framhaldi af þessu áliti kaup-
enda og umboðsmanna, vill
stjórn Landssambands smábáta-
eigenda beina þeim tilmælum til
grásleppuveiðimanna, að hefja
ekki veiðar fyrr en þeir hafi
tryggt sölu á þeim hrognum sem
þeir koma til með að afla. -þá