Dagur


Dagur - 25.02.1988, Qupperneq 1

Dagur - 25.02.1988, Qupperneq 1
71. árgangur Akureyri, fímmtudagur 25. febrúar 1988 39. tölublað venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI „Ekki gerlegt að bíða öllu lengur“ - með ráðstafanir til bjargar undirstöðuatvinnuvegunum, segir Guðmundur Bjarnason „Ríkisstjórnin hefur fjallaö um efnahagsmálin undanfarna daga, og efnahagsnefnd stjórn- arinnar, sem í eru þrír ráðherr- ar auk aðstoðarmanna, hefur einnig fjallað um málin í víðu samhengi og nauðsyn þess að ríkisvaldið líti á stöðu atvinnu- greinanna. Almennt séð er verið að atliuga hvaða leiðir eru tiltækar, en auðvitað verð- ur að tengja þessi mál kjara- samningagerð,“ sagði Guð- mundur Bjarnason, heilbrigð- isráðherra, þegar hann var spurður hvort í undirbúningi væru ráðstafanir vegna erfiðrar stöðu útflutningsatvinnuveg- anna. Guðmundur sagði, að með til- liti til kjarasamningamála þá væri Akureyrarbær: Öskubíll, snjótroðari eða körfubíll - 7 milljónir til ráð- stöfunar til tækjakaupa „Það eru sjö milljónir króna í tækjakaupasjóði, og segja má að valið standi fyrst og fremst milli snjótroðara og öskubíls, en auk þess verða einhver smærri tæki keypt. En það verður ekki keypt nema eitt stórt tæki,“ sagði Sigfús Jónsson, bæjarstjóri á Akur- eyri. Að sögn Sigfúsar er ljóst, að mikil nauðsyn er á þessum tækj- um og fleiri til bæjarins, en tak- markað fjármagn gerir það að verkum að ekki er hægt að kaupa nema annað hvort, öskubíl eða snjótroðara. „Ég set körfubíl í þriðja sæti,“ sagði bæjarstjóri. Stefán Stefánsson, bæjarverk- fræðingur, sagði að sorpbíll bæjarins væri kominn til ára sinna og viðhald hans væri dýrt. Nýr sorpbíll kostar um fimm milljónir króna. „Það er fyllilega kominn tími til að skipta um bíl vegna þess að sá gamli gengur úr sér og er orðinn dýr í viðhaldi,“ sagði Stefán. Ivar Sigmundsson, forstöðu- maður Skíðastaða, hefur lagt ríka áherslu á nauðsyn þess að kaupa nýjan og fullkominn snjó- troðara vegna skíðasvæðisins, en undanfarin ár hefur mikil upp- bygging átt sér stað í Hlíðarfjalli. Bæjarráð Akureyrar á eftir að fjalla um hvaða tæki verður keypt fyrir það takmarkaða fjármagn, sem til ráðstöfunar er samkvæmt fjárhagsáætlun til tækjakaupa. EHB mikilvægt að aðilar vinnumark- aðarins vissu til hvaða aðgerða ríkisvaldið kynni að grípa. Þetta væri mikilvægt með tilliti til þess að launþegar og vinnuveitendur gætu miðað skuldbindingar sínar í kjarasamningum við hugsanleg- ar aðgerðir ríkisstjórnarinnar. „Það er skoðun mín að þetta tvennt verði að fylgjast að, og þess vegna hefur ríkisstjórnin e.t.v. beðið nokkuð eftir samn- ingsgerðinni. Ég álít að það sé ekki gerlegt að bíða öllu lengur því við getum ekki horft upp á það að undirstöðuatvinnugrein- arnar stöðvist og að fyrirtækin, sem eru eru í þeim greinum loki eða leggi upp laupana hvert af öðru. Það er útilokað. En í mín- um huga skiptir miklu máli að gera ráðstafanir til að vernda kaupmáttinn, einkum þeirra sem lægst hafa launin. Okkur er ljóst, að sjávarútveg- ur og iðnaður eiga við geysilega erfiðleika að glíma, og menn benda réttilega á að til að lagfæra þá stöðu Sé e.t.v. nauðsynlegt að breyta gengi. En okkur er jafn- framt ljóst að gengisbreyting er ekki mikil lækning ein sér, hún kemur fljótt í bakið á manni aftur ef ekki er gripið til hliðarráðstaf- ana. Gengisfellingu fylgir verð- hækkun á öllum aðföngum og hækkun á lánum þeirra fyrir- tækja, sem skulda í erlendri mynt, en það á við um mörg fyrirtæki í útflutningsgreinum. Um þessi mál hefur ríkisstjórnin fjallað á fundum undanfarið," sagði Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, að lokum. EHB Togarinn Mánaberg frá Ólafsfirði hefur nú verið tekinn upp í slipp á Akureyri. Verið er að lagfæra skemmdir sem urðu á síðu skipsins er það rakst á ísjaka fyrir skömmu. Mynd: tlv Húsnæðisvandi Háskólans: Framkvæmdum flýtt við VMA? Skipuð hefur verið þriggja manna nefnd til að fjalla um málefni Iláskólans á Akureyri, í nánum tengslum við málefni Verkmenntaskólans. Nefndina skipa Guðrún Hilmisdóttir sem skipuð er af menntamála- ráðherra, Arndís Steinþórs- dóttir skipuð af fjármálaráð- herra og Sigfús Jónsson bæjar- stjóri. Hlutverk nefndarinnar er ann- ars vegar að gera áætlun um húsnæðisþörf Háskólans á Akur- - til að losa um „stíflu eyri og gera tillögur um það hvernig þeirri þörf verði fullnægt, meðal annars með h'iðsjón af mögulegum byggingarhraða Verk- menntaskólans og hins vegar að semja um not af því húsnæði sem Háskólinn á Akureyri nýtir nú í gamla iðnskólahúsinu og í íþrótta- höllinni á Akureyri. Nefndin hef- ur haldið einn fund og leitað gagna hjá forráðamönnum skól- anna og þær Guðrún og Arndís hafa fundað með ráðherrunum tveimur. í næstu viku verður svo annar nefndarfundur haldinn. „Það er verið að athuga hvort á einhvern hátt er hægt að flýta framkvæmdum við Verkmennta- skólann til þess að leysa hús- næðisvanda Háskólans, í stað þess að velja einhverja bráða- birgðaleið. Það er útlit fyrir að Háskólinn þurfi á húsnæðinu við Þórunnarstræti að halda, fyrr heldur en Verkmenntaskólinn getur losað það. Spurningin er hvernig hægt er að leysa þessa stíflu," sagði Sigfús Jónsson í samtali við Dag. ET Áframhaldandi starfræksla Hraðfrystihússins á Hofsósi tryggð: Byggðasjóður lánar fyrir- tækinu allt að 18 milljónir UnAiia imié - aÉnaax . ^^; « w „Maður veit í raun ekkert hvað næstu dagar bera í skauti sér,“ sagði Hólmgeir Einarsson verkstjóri í frysti- húsinu á Hofsósi í samtali við Dag í fyrradag. „Nú er hvert augnablik ógnþrungið. Lögð hafa verið inn erindi á hinum og þessum stöðum og búið að ganga frá öllum pappírum. Nú er bara beðið eftir svörum,“ sagði Ófeigur Gestsson sveitarstjóri sem staddur var á fundi á Hvammstanga. Að óbreyttu hefðu um 50 starfsmenn Hraðfrystihússins á Hofsósi misst atvinnu sína á morgun. Svo væntanlega mun ákvörðun stjórnar Byggðasjóðs á fundi sínum í gærmorgun létta spennunni af mörgum Hofsós- ingnum og fólki í nágrenninu sem byggir afkomu sína á vinnu í þorpinu. Sjóðurinn ákvað að veita frystihúsinu allt að 18 milljón króna lán. Lánið er veitt vegna þeirrar fjárhagslegu endurskipulagningar sem átt hefur sér stað á rekstri frysti- hússins. Ekki náðist í forráðamenn HFH í gær en vegna orða þeirra um að fyrirtækið þyrfti á skuld- breytingu 15-20 milljóna að halda, er greinilegt að með þessari lánveitingu er áfram- haldandi starfræksla hússins tryggð. Svo framarlega sem rekstrarskilyrði frystingarinnar verði ekki til langframa í því fari sem þau er nú í. „Við lítum svo á að þetta dugi. Þetta er ekki nein skamm- tímalausn að okkar hálfu,“ sagði Guðmundur Malmquist framkvæmdastjóri Byggðastofn- unar eftir fundinn í gær. -þá

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.