Dagur - 25.02.1988, Síða 3
25. febrúar 1988 — DAGUR - 3
Engar bilanir í
flóðabílunum
- sem rekja má til flóðanna - segir Margeir Margeirsson
Margeir Margeirsson í Kefla-
vík, einn innflytjandi Subaru-
flóðabílanna frá Noregi, hafði
samband við blaðið vegna
ummæla starfsmanna Ingvars
Helgasonar hf. o.fl. um þessa
bfla. I umræddri frétt segir að
flóðabílanir séu farnir að bila.
Margeir vill koma því á fram-
færi að flóðabílarnir séu í árs-
„Ekki svara vert“
- segir Júlíus Vífill Ingvarsson
„Eg tel svona málflutning alls
ekki svara verðan,“ sagði
Júlíus Vífill Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Ingvari
Helgasyni hf. í Reykjavík.
Júlíus Vífill sagði, að hann
vildi helst ekki láta hafa neitt eft-
ir sér í sambandi við flóðabílana
og þá, sem fluttu bílana inn. Pó
sagði hann, að innflytjendur
flóðabílanna reyndu að auglýsa þá
upp með umfjöllun í fjölmiðlum.
„Við skulum bíða í hálft til eitt
ár, þá verða málin farin að
skýras..“
Dalvík:
Steypustöðin seld
Fyrir skömmu urðu eigenda-
skipti að Steypustöð Dalvíkur
hf. Aðaleigandi stöðvarinnar
var Sigurður Jónsson en hann
ásamt fleirum hefur nú selt
stöðina fjórum aðilum.
Nýir eigendur stöðvarinnar eru
bræðurnir Stefán og Óskar Árna-
synir, Hörður Blöndal verk-
fræðingur og Hjörtur Þórarins-
son. Stefán og Óskar eiga einnig
Ýtuna sf. á Akureyri en Hörður
er verkfræðingur við Hitaveitu
Reykjavíkur á Nesjavöllum. Peir
fjórmenningar hafa tekið við
rekstri stöðvarinnar. JÓH
Innhveif íhugun
TM tæknin
Kynningarfundur að Möðruvöllum
(M.A.) í stofu 2 í kvöld fímmtudaginn
25. febrúar kl. 20.30.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.
MAHARyoHgiMAHESH íslenska íhugunarfélagið.
Upplýsingar í síma 96-22491.
------------------------- ^
Vorum að fá
grófrifflaðar
flauelsbuxur
3 litir. Stærðir 28-36.
Verð aðeins kr. 1.242.-
U1EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
Kynntu þér
helgarpakka
Flugleiða innan-
lands hjá næstu
söluskrifstofu
félagsins, um-
boðsmanni eða
ferðaskrifstofu. FLUGLEIÐIR
ábyrgð, eins og reyndar kemur
fram í fréttinni, og að engar
kvartanir hafi borist frá kaupend-
um Subaru-bifreiðanna vegna
galla af völdum skemmda í flóð-
unum. „Þessi „relay“, sem rætt er
um í fréttinni, eru í gólfi bifreið-
anna, og allir vita að motturnar í
bílunum blotnuðu.
Gagnvart því, að fólk sé farið
að panta í þessa bíla og hafi orðið
vart við bilanir í túrbínubílunum
þá var það fyrst fyrir viku eða tíu
dögum að við byrjuðum að
afgreiða túrbínubílana. Það er
öllum ljóst, að teppin í bílunum
blotnuðu, það eru ákveðin raf-
magnselement undir mottunum
og við sendum þetta á engan hátt
frá okkur öðruvísi en í lagi,“
sagði Margeir.
Aðspurður um Subarumboðið
sagði Margeir, að þeir væru
gersamlega búnir að tapa þessu
stríði. „Þeir eru enn að reyna að
ná sér niðri á okkur en þeim tekst
það ekki . . . Það eru tveir bílar
komnir til Akureyrar og menn
geta séð að það sem sagt er um
þessa bíla af þeim aðilum, sem
ekki náðu að kaupa þá, er bull og
þvættingur.“
Margeir sagði að lokum, að
þeir sem fluttu bílana inn hefðu
aldrei hringt í umboðið á Akur-
eyri vegna varahlutakaupa.
Höldur sf. sæi um þjónustu fyrir
þessa bíla, og auk þess væru
Mazda og Daihatsu-bílar væntan-
legir á næstunni, keyptir í
Noregi. EHB
Föstudagskvöld
Húsið opnað kl. 22.00-03.00.
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi.
Laugardagskvöld
Stjörnur Ingimars Eydal
í 25 ár
★ Síðustu sýningar ★
Hljómsveit Finns Eydal
leikur fyrir dansi í Mánasal.
Hljómsveit Ingimars Eydal
leikur fyrir dansi í Sólarsai.
Glæsilegur þríréttaður matseðill.
Húsið opnað kl. 19.00.
Verð með mat kr. 3.200,-
Verð á skemmtun kr. 1.200.-
Miða- og borðapantanir
í síma 22970 og 22770.
Nýtt!
JÓGÚRT JÓGÚRT JÓGURT
TREFJA TREFJA TREFJA TREFJA TREFJA
Nýtt'
T retjaiógúrt
Mjólkursamlag KEA
j
Akureyri Simi 96-21400