Dagur - 25.02.1988, Side 4

Dagur - 25.02.1988, Side 4
4 - RAGWR ~ ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 55 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavfk vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (iþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Flugstöð Leife Eiríkssonar Enn eru ekki öll kurl komin til grafar varðandi kostnað við dýrustu byggingu íslandssögunnar, Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Tvær ítarlegar skýrslur hafa verið lagðar fram um framkvæmdirnar og þeim ber ekki saman í öllum atriðum. Steingrímur Hermannsson utanríkis- ráðherra hefur lýst því yfir að hann hyggist fá umsögn óháðs aðila um kostnaðinn við Leifsstöð til þess að taka af öll tvímæli. Sú ákvörðun er rétt, enda á almenningur kröfu á að vita allar staðreyndir málsins. Um það er ekki deilt hvort framkvæmdir við flugstöð- ina hafi farið fram úr áætlun, heldur hversu mikið og jafnframt hvort hinn mikli umframkostnaður sé eðli- legur. í raun er fátt jákvætt hægt að segja um Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Með henni höfum við reyndar komið okkur upp glæsilegu hliði inn í landið okkar, ef svo má að orði komast. En þar með eru kostirnir upp taldir. Gallarnir eru mun fleiri og alvarlegri. Hæst ber þar að flugstöðin varð þjóðinni miklu dýrkeyptari en nokkurn óraði fyrir í upphafi. Einnig má fullyrða að hægt hefði verið að komast hjá miklum hluta þess kostnaðar ef skynsamlega hefði verið að verki staðið. Byggingarsaga flugstöðvarinnar er vörðuð mistök- um frá upphafi og nánast allar áætlanir fóru úr böndum. Spurningin um hver beri ábyrgðina er áleit- in. Segja má að svarið við þeirri spurningu sé þríþætt. Ljóst er að leggja varð út í verulegan aukakostnað vegna endurhönnunar en ýmsir augljósir hönnunar- gallar komu fram á byggingartímanum. Eðli málsins samkvæmt bera hönnuðurnir ábyrgð á þeim mistök- um. Byggingarnefnd flugstöðvarinnar hefur sætt gangrýni fyrir að skorta heildaryfirsýn yfir fram- kvæmdirnar og vissulega á hún mikla sök á því hvern- ig fór. En hin pólitíska ábyrgð liggur tvímælalaust hjá þeim aðila sem hafði yfirumsjón framkvæmdanna með höndum, þ.e. fyrrverandi utnaríksiráðherra, Matthías Á. Mathiesen. Ljóst er að hann samþykkti ýmsar við- bótarframkvæmdir, sem kostuðu verulegt fjármagn, án þess að leita samþykkis fjárveitingarvaldsins, sem honum þó bar að gera. Þá hefur fyrrverandi utanríkis- ráðherra einnig verið gagnrýndur fyrir að gefa bygg- ingarnefnd flugstöðvarinnar of frjálsar hendur við framkvæmdirnar. Sú gagnrýni er einnig á rökum reist. Fyrir síðustu kosningar eignuðu sjálfstæðismenn sér allan heiðurinn af nýju flugstöðinni og hömruðu á því í auglýsingum að tilurð hennar væri fyrst og fremst þeim að þakka. Þáverandi utanríkisráðherra lagði líka mikla áherslu á að hún yrði formlega vígð fyrir kosn- ingar. Ekki er víst að sjálfstæðismenn hreyki sér jafn- mikið af flugstöðinni fyrir næstu kosningar. Trúlega vona þeir að þjóðin verði búin að gleyma flugstöðv- arævintýrinu þá. Það er brýnt að leitað verði svara við áleitnum spurningum varðandi kostnaðinn við flugstöðina. Þjóðin vill ekki fleiri svona ævintýri. Hún vill ekki að sagan endurtaki sig, því stjórnvöld eins og aðrir eiga að geta lært af mistökunum. Síðast en ekki síst krefst þjóðin þess að stjórnmálamenn jafnt sem aðrir axli þá ábyrgð sem þeir hafa verið kjörnir til að bera. BB. tt Öskudagshátíðahöldin voru með lengra móti hjá börnun- um á Sauðárkróki að þessu sinni. Því grímuballið sem síðustu ár hefur verið á öskudag var nú haldið dag- inn fyrir öskudaginn. Ballið var tvískipt, fyrir yngri krakka grunnskólans um miðjan daginn og fyrir þá eldri um kvöldið. Vart þarf að taka fram að margir skrautlegir búningar sáust þarna og er greinilegt að þó nokkur vinna liggur á bak við förðun og annað tilstand. Enda slík iðja ágætlega til þess fallin að losa sköpunar- gleði úr hömlu. Það var eins með krakk- ana á Króknum eins og krakka annars staðar, að þau voru á þeytingi um bæinn all- an öskudaginn og voru ólöt við að syngja í búðunum. - Já, öskudagurinn er greinilega skemmtilegur dagur. Myndirnar voru tekn- ar á grímuballinu hjá yngri krökkunum. -þá Ingólfur var prúömannlega búinn að hætti höfðingja. Hörkutól stíga ei dans. Heldur stunda skylmingar og aðrar viðlíka hetjudáðir. Stelpurnar voru hins vegar iðnar við dans og söng.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.