Dagur - 25.02.1988, Page 8

Dagur - 25.02.1988, Page 8
8 - DAGUR - 25. febrúar 1988 í dagsins önn er ótrúlega afslappandi að koma við á Bóka- safni Suður-Þingeyinga á Húsavík. Inni er vistlegt og andrúmsloftið milli bókanna og pottablómanna er notalegt. Konurnar tvær sem vinna á safninu taka á móti gestum með Ijúfu viðmóti, tilbúnar að ræða um bækur eða landsins gang og nauðsynjar ef tóm gefst til. Þær spyrja gjarnan hvernig lesandanum hafi líkað bókin sem hann er að skila og þá gefst honum kostur á að gera sig gáfulegan í framan og segja sína meiningu. Elín Kristjánsdóttir bókasafns- fræðingur hefur starfað sem forstöðumaður safnsins í rúm fjögur ár. Dagur heimsótti bókasafnið í síðustu viku og spjallaði við starfsfólk og gesti, fyrst var Elín beðin að segja í stuttu máli frá sögu safnsins. „Safnið er náttúrlega orðið mjög gamalt að stofninum til en ekki gott að segja hvort til er mikið af upprunalegu bókunum. Segja má að saga safnsins nái alveg aftur til þess tíma þegar Benedikt Jónsson frá Auðnum stofnaði lestrarfélag með nokkr- um framsæknum mönnum hér í sýslu. Það var 1889 sem þeir stofnuðu lestrarfélagið, þeir keyptu tugi bóka á ári og smárn saman myndaðist dálítið álitlegt safn. Þetta voru mest erlendar bækur. Þetta safn var flutt hingað og sameinað Lestrarfélagi Húsa- víkur og varð þá sýslusafn og hef- ur verið hérna á Húsavík síðan. Lestrarfélagið var stofnað 1885 en ég veit ekki hversu mikill bóka- kosturinn hefur verið. Síðustu 14-15 árin hefur safnið verið til húsa í Safnahúsinu, hér fer vel um safnið, nóg pláss er fyrir það ennþá og verður vonandi um einhver ókomin ár. Við höf- um miðhæðina í húsinu, um 375 fm en hin söfnin eru á efstu og neðstu hæð.“ - Hvað með bókakost safnsins? „Það hafa verið skráð rúmlega þrjátíu þúsund bindi frá upphafi, hins vegar er talsvert af gjafabók- um enn óskráð." - Fer fólk vel með bækur? „Ég mundi segja að það færi frekar vel með bækur. Yngstu lesendurnir eru kannski einna harðhentastir, barnabækur ganga tiltölulega fljótt úr sér.“ - Hvað þjónar safnið stóru svæði? „Þetta er miðsafn sem þýðir að allir sýslubúar eiga að hafa aðgang að því, á hinn bóginn er það Húsavíkurkaupstaður sem rekur safnið að stærstum hluta. Sýslan greiðir ákveðna upphæð á hvern íbúa en það er tiltölulega lítill hluti miðað við hluta Húsa- víkurkaupstaðar. Hreppasöfn eru í flestum sveitum en þau eru mis- munandi öflug. Fólk úr sumum sveitum kemur talsvert, mest úr sveitunum sem eru næst eins og Tjörnesi, Reykjahverfi og Kinn. í heildina er þó nokkuð um að fólk úr sveitunum komi hérna.“ - Er mikil aðsókn að safninu? „Hún er viðunandi, ef við mið- um við fyrri ár er hún svipuð. Útlán 1987 voru ívið fleiri en árið á undan, aðsóknina sjálfa er ekki svo gott að mæla þar sem við höf- um ekki tölur yfir hana. Ef við Safnahúsið á Húsavík. Elín Kristjánsdóttir forstöðumaður: miðum við útlánatölur á öðrum söfnum á landinu og tökum með- altal þá getum við sagt að meðal- útlán á íbúa hér í bænum séu rúmlega 9,80 bækur sem er ríf- lega í meðallagi á landsvísu. 1987 lánuðum við út 24.230 bækur. Ég er ánægð með útlánin og finnst þau í sjálfu sér ekki lítil í 2.500 manna bæ miðað við staðsetning- una á safninu því mér finnst Safnahúsið vera svolítið út úr aðalumferðinni. Þó að notendur safnsins séu líka úr sveitunum eru oft erfiðar samgöngur og fólkið er ekki hér á hverjum degi. Því finnst mér ekki svo lítið að við skulum lána út 109 bækur á dag. Það er alveg greinilegt að það hefur enn dregið úr lestri á barnabókum, hann virðist minnka ár frá ári. Hér vantar nærri því allan gagnfræðaskól- ann, einn og einn nemandi kem- ur en þegar á heildina er litið finnst mér vanta þann hóp. Krakkarnir eru mjög mikið í íþróttum og hafa fleiri áhugamál, mikið er að gera í skólanum og þau horfa sum mikið á sjónvarp og vídeómyndir og hafa margt annað að gera en lesa bækur. Á síðasta ári seldum við mun færri árskort en árið áður sem hlýtur að þýða að mun færri lesa meira. Það virðist sem jafnmikið eða meira sé lesið af skáldsögum en áður og mér finnst fólk lesa meira af nýjum bókum eftir íslenska höfunda. Fólk fylgist mjög vel með útgáfunni fyrir jól- in og hefur mikinn áhuga fyrir nýjum bókum. Fólk kemur ekki aðeins til að ná sér í einhverja afþreyingu heldur til að fá sér ákveðnar bækur.“ - Lest þú mikið sjálf og hvern- ig bækur helst? „Ég les allt mögulegt, ekki neina ákveðna tegund bóka en ég reyni að lesa sem mest af því sem Elín Kristjánsdóttir, forstöðumað- ur. kemur út á hverju ári af íslensk- um höfundum. Ég les nýjar íslenskar skáldsögur og nýja erlenda höfunda líka og ákveðn- ar athyglisverðar bækur, ég les minna af ævisögum og er ekki nógu dugleg við að lesa ljóð.“ - Er ekki stundum svolítil freisting að vinna hérna og hafa allar þessar bækur undir höndum? „Það getur verið að það sé eins og með súkkulaðið fyrir þá sem vinna í sælgætisverksmiðjum að maður verði ónæmur eða fái nóg. Ég held að maður venjist þessu og hætti að láta það freista sín. Ég reyni að lesa þegar ég hef tíma en læt þetta ekki stjórna mér. Mér finnst mjög gaman að vera innan um bækurnar, eins og núna þegar maður situr innan um mörg hundruð nýja bókatitla. Það er líka gaman að geta gert fólki til hæfis þegar það fær bækur sem það er ánægt með.“ IM Kári Steii Helen Hannesdóttir. Helen Hannesdóttir, afgre „Bömín biðja um Helen Hannesdóttir er búin að vinna við afgreiðslu á bóka- safninu í fjórtán ár, byrjaði að vinna þar nokkrum mánuðum eftir að að safnið var flutt í Safnahúsið. „Mér fannst þetta afskaplega spennandi og skemmtilegt. Ég hafði ekki mikið vit á bókum, las bækur en vissi aldrei eftir hvaða höfunda þær voru en nú veit ég það. Mér hefur líkað mjög vel hérna, bæði samskiptin við fólkið og að vera innan um bækurnar. Vinnutíminn er góður, þrisvar í viku er bókasafnið opið frá kl. 15-19 en á þriðjudögum og mið- vikudögum er opið frá 15-18. Á sumrin er opið þrjá daga í viku, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.“ - Ertu farin að lesa meira síð- an þú fórst að vinna hérna? „Ég las mjög mikið fyrst eftir að ég kom hingað en svo hef ég lesið minna seinni árin, þó alltaf eitthvað, ég verð að kynna mér bækurnar.“ - Spyr fólk þig mikið um bækurnar? „Já, það gerir það og þótt maður lesi ekki heila bók þá lítur maður í hana til að geta eitthvað sagt.“ - Ertu oft beðin að velja bæk- ur handa fólki? „Já og það hefur gengið áæt- lega. Ég spyr hvað það vilji helst lesa og mér finnst fólkið ánægt

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.