Dagur - 25.02.1988, Síða 9

Dagur - 25.02.1988, Síða 9
25. febrúar 1988 - DAGUR - 9 i'ífúvc' "! Heimsókn í Bókasajh Sudur-Þingeyinga Kári Steingrímsson: „Skiptir ekki máli hvað bók er gömul“ Kári Steingrímsson bóndi í Pálmholti í Reykjadal var á bókasafninu ásamt konu sinni og var spurður hvort hann kæmi þarna oft. „Nei, það held ég ekki. Við komum hérna þegar við eigum leið í bæinn, hálfsmánaðarlega eða eitthvað svoleiðis. Ætli að ég lesi ekki að meðaltali tvær bækur á viku.“ - Hvernig bækur lestu? „Ég er næstum því alæta en þetta er misjafnt, stundum les ég. léttmeti og stundum annað. Lesa ekki allir svoleiðis?“ - Ég gæti trúað því. Hvernig finnst þér safnið hérna? „Mér finnst of mikið af göml- um bókum, svona sem aldrei hreyfast að segja má og mér finnst ég vera búinn að lesa mig í gegnum flest sem mig langar að lesa hérna.“ - Finnst þér þá að nýju bæk- urnar vanti? „Já, þær koma voðalega seint og svo fá eintök að þær eru alltaf í láni en þetta held ég að sé í öll- um bókasöfnum. Annars skiptir ekki máli hvað bók er gömul. bækurnar eru ekkert betri þó að þær séu nýjar.“ - Er ekki bókasafn á Laugum? „Jú, það er bara opið tvisvar í viku. Það er ágætt safn en að vísu lítið. Við förum á safnið á Laug- um en oftar hingað, sameinum ferðina til Húsavíkur til að gera það sem þarf að gera. Við förum á bókasafnið á veturna en ekki á sumrin því þá er enginn tími til þess.“ IM igrímsson. iðslumaður á bókasafninu: i ævint\rabæknr“ með bækurnar sem ég vel fyrir það.“ - Þegar barn kemur, biður um bók fyrir mömmu og þú þekkir konuna ekki vel, er þá auðvelt að velja lestrarefni og sjá hvernig bækur viðkomandi vill lesa? „Ekki ef fólkið hefur ekki komið hingað og maður er beð- inn í fyrsta skipti en þá reyni ég að velja bók sem er ekki mikill reyfari og ekki bara ástarsaga, heldur þarna mitt á milli. Reyni að velja bók sem ég hef lesið og fundist mjög góð og fólk hefur ekki kvartað yfir því sem ég hef sent því.“ - Hvað með föstu viðskipta- vinina, veistu alveg hvert hugur þeirra stefnir? „Mig grunar það svona nokkuð. Sumir vilja ekki lesa neitt nema eitthvert léttmeti aðrir fara vítt og breitt og maður getur svolítið séð það út hvernig bækur fólk velur sér.“ - Hvað með börnin, hvernig bækur velja þau? „Þau spyrja dálítið eftir ævin- týrabókum. Þau sækja auðvitað dálítið í teiknimyndasögurnar en ef þau biðja mann að ráðleggja sér eitthvað þá eru þau að biðja um ævintýrabækur." - Hverjir eru skemmtilegustu viðskiptavinirnir? „Ég get ekki gert upp á milli þeirra, bæði börn og fullorðnir eru jafn ágæt.“ IM Jóhannes Sigmundsson. 55 Jóhannes Sigmundsson: Yfirieitt les ég skáldsögura Jóhannes Sigmundsson var að skoða í bókahillurnar á safninu þegar hann var spurður hvort hann kæmi oft á bókasafnið. „Nei, ég kem ekki oft hingað, kannski einu sinni í mánuði ef mig vantar eitthvað sérstakt. Ef ég les í blöðum um bækur sem mig langar til að lesa kem ég oft til að athuga hvort ég finn þær hérna. Yfirleitt les ég skáldsögur en einnig annað efni.“ - Hvernig finnst þér safnið? „Ég veit ekki um neitt sem ekki er til hérna. Mig hefur aldrei vantað bók sem ég hef ekki feng- ið hér, þetta hlýtur að vera gott safn.“ - Lestu mikið? „Það er köflótt, stundum les ég mikið og stundum ekki neitt í langan tíma. Meðan ég var í skóla las ég á sumrin og um jólin en yfirleitt ekki meðan skólinn var.“ - Að hvaða bók ertu að leita í dag? „Ég var að leita að Hobbit en hún var ekki inni, ég var búinn að lofa að fá hana lánaða fyrir bróð- ur minn.“ IM Aslaug K. Georgsdóttir: „Þjónustan alveg ljómandi“ Magnús Gíslason: „Þetta er fínt safh“ Magnús Gíslason sat á bóka- safninu, lét fara vel um sig með teiknimyndasögu meðan hann beið eftir fari heim í vonda veðr- inu. Hann var spurður hvort hann kæmi oft á bókasafnið. „Ekki oft, en ég kem hérna stundum. Það er þægilegt að vera hérna. Ég kem til að skoða íþróttablaðið og svo fæ ég bækur lánaðar heim svona einu sinni í mánuði.“ - Hvaða bækur hefur þú mest- an áhuga á að lesa? „Fótboltabækur og svo íþrótta- blaðið.“ - Finnst þér þú þurfa að lesa mikið fyrir skólann? „Já, en ég fer aldrei á skóla- safnið.“ - Hvað gerirðu í þínum tóm- stundum? „Ýmislegt, ég er í íþróttum og fer á opið hús, stundum læri ég en ég horfi ekki mikið á vídeó.“ - Finnst þér vanta einhverjar bækur hérna sem þig langar til að lesa? „Já, bókina um Pele, ég er oft búinn að spyrja um hana en hún er ekki til hérna. En þetta er fínt safn.“ IM Magnús Gíslason. Áslaug K. Georgsdóttir sem var að velja sér bækur á safn- inu sagði að sér fyndist bóka- safnið Ijómandi gott og þangað væri gaman að koma til að fá bækur að láni. „Ég kem stundum vikulega hingað og les mikið. Ég les skáld- sögur, ævisögur, unglingabækur og flest sem að ég næ í.“ - Hvað lestu að jafnaði marg- ar bækur á viku? „Það er voða misjafnt, stund- um enga og stundum tvær til þrjár, það fer eftir því hvernig þær eru.“ - Finnst þér úrvalið af bókum og þjónustan hérna góð? „Já, mér finnst það og þjónust- an alveg ljómandi, hér eru indæl- ar konur.“ IM Áslaug K. Georgsdóttir.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.