Dagur - 25.02.1988, Page 10

Dagur - 25.02.1988, Page 10
19 - QAGUa - ?§úfeþj-M^r 1988 Hljómsveit framtíöarinnar - Þórarinn Stefánsson skrifar um tónleika Kammerhijómsveitar Akureyrar tónlist Stjórnandinn, Sidncy Sutcliff, er maðurinn á bak við góða frammistööu hljómsveitarinnar, að mati Þórarins. Mynd- in var tekin á tónleikunum á sunnudaginn. Mynd: rpb Fyrstu tónleikar Kammerhljóm- sveitar Akureyrar á þessu starfs- ári voru haldnir í Akureyrar- kirkju síðast liðinn sunnudag. Mikill fjöldi áheyrenda sótti tón- leikána og sýndi þar með í verki, áhuga sinn á því að hér skuli starfa hljómsveit atvinnumanna til eflingar menningarlífi bæjar- ins. Hins vegar kom það berlega í ljós að okkur sárvantar húsnæði sem hentar hljómsveit sem þess- ari. Þótt svo að hljómburður kirkjunnar sé bæði mikill og góður, þá er rýmið sem er ætlað fyrir flytjendurna ansi lítið. Það er líka umhugsunarefni að hér á Akureyri er einn af bestu flyglum landsins en hvergi boðlegt hús- næði fyrir hann. Þessi húsnæðis- vandræði leiða því til þeirrar sorglegu staðreyndar að flutning- ur píanókonserta er illmöguleg- ur. Nýja bíó hefur nú staðið autt í nokkur ár og það hvíslaði því að mér lítill söngfugl að til stæði að breyta því í verslunarhúsnæði. Þar með færi fyrir lítið eitt ákjós- anlegasta húsið á Akureyri sem nota mætti undir tónlist. Hvernig væri nú að tónlistarfólk og tón- listaráhugafólk í samvinnu við Akureyrarbæ keypti Nýja bíó. Þar með væri komið framtíðar- hús fyrir tónlist á Akureyri og það á besta stað í bænum. Þá stæöi húsnæðisskortur ekki leng- ur í vegi fyrir eðlilegri þróun tónlistarlífs hér í bæ. Annars er nú rétt að snúa sér að tilefni þessara skrifa, og umfjöllun um tónlistarhús bíður betri tíma. Undirritaður er nú kannski ekki rétti maðurinn til að fjalla um flutninginn á gagnrýn- inn hátt því á síðustu stundu var hann fenginn til að taka stöðu í hljómsveitinni vegna forfalla. Fyrst á efnisskránni var Seren- aða fyrir strengjasveit op. 20 eftir Edward Elgar. Verkið samdi hann árið 1892 og í því má glöggt heyra dæmi um hinn sérstæða stíl sem Elgar tileinkaði sér síðari æviár sín, Bretar kalla þennan stíl „Elgarian“. Örlítill taugatitr- ingur var í hljóðfæraleikurunum í upphafi verksins en það lagaðist fljótt og tónninn var gefinn að því sem koma skyldi. Blásarakvintett Reykjavíkur kom í heimsókn og lék tvö verk. Fyrst Sumartónlist fyrir tréblás- arakvintett eftir Samuel Barber og svo Sinfóníu fyrir fjóra ein- leikara og hljómsveit KV 297b eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Blásarakvintettinn er skipaður þeim Joseph Ognibene, Bernard Wilkinson, Hafsteini Guðmunds- syni, Einari Jóhannssyni og Daða Kolbeinssyni, þeir Joseph, Haf- steinn og Daði léku líka með hljómsveitinni í öðrum verkum. í stuttu máli þá var flutningur þeirra á verkunum báðum frábær, þarna er á ferðinni kvint- ett á heimsmælikvarða og leikur þeirra smitaði óneitanlega út frá sér. Stjórnandinn, Sydney Sutcliff, hljálpaði svo til með því að veita ákveðið frelsi sem gerði samspil hljómsveitar og ein- leikara mjög náið og áhrifamikið. Eftir hlé voru flutt þrjú verk. Fyrst Serenaða eða Kvöldtónlist fyrir blásara op. 7 sem Richard Strauss samdi árið 1881 og hafði að fyrirmynd Blásaraserenöður Mozarts. Þetta er eitt af æskuverkum Strauss, en strax á unglingsárum hafði hann mótað sinn eigin stíl sem greinilega kemur fram í verkinu. Árið 1960 samdi Peter Maxwell Davies tónlist við fimm myndir eftir svissneska málarann Paul Klee: 1. Krossfarinn, 2. Austur- lenskur garður, 3. Tístvélin, 4. Steindur glerdýrlingur, 5. Til gríska fjallsins Parnassum. Kammersveitin lék þetta verk með miklum ágætum enda marg- ir flytjendanna að leika verkið í annað sinn, það var áður flutt af Áhugamannahljómsveitinni svo- kölluðu fyrir nokkrum árum. Tónleikarnir enduðu svo á líf- legum flutningi Kammersveitar- innar á Pulcinella-svítunni sem Stravinsky samdi að ósk vinar síns, ballettmeistarans Diaghilev. Tónlistin er samin við samnefnd- an ballett sem var frumfluttur í París árið 1920. Svítan, eins og við heyrðum hana á tónleikunum samanstendur af átta köflum úr ballettinum. Stjórnandinn Sydney Sutcliff er maðurinn á bak við þessa góðu frammistöðu hljómsveitarinnar. Hann nálgaðist stjórnendahlut- verkið á nokkuð annan hátt en menn eiga að venjast. Hann er sjálfur hljóðfæraleikari og tekur kannski þess vegna meira tillit til skoðana einstakra hljómsveitar- meðlima en gengur og gerist með aðra hljómsveitarstjóra. Sumir áttuðu sig ekki á þessu og vissu stundum ekki alveg hvernig þeir áttu að spila, kannski óvanir því að hugsa sjálfstætt. Útkoman varð samt stórskemmtilegur og einstaklega lifandi tónlistarflutn- ingur og ég trúi því að þeir sem tóku þátt í þessum tónleikum og fengu tækifæri til að vinna með Sutcliff séu reynslunni ríkari. Áheyrendur sýndu þakklæti sitt með dynjandi lófataki og héldu ánægðir heim á leið. Þ. Stef. r Freyvangsleikhúsið Freyvangsleikhúsið auglysir: Mýs og menn Höf. John Steinbeck. Leikstj.: Skúli Gautason. Frumsýning: Föstudaginn 26. febrúar kl. 20.30. 2. sýning: Sunnudaginn 28. febrúar kl. 20.30. Miðapantanir í síma 24936. Leikfálag Öngulsstaðahrepps. U.M.F. Árroðinn. - TIL SÖLU Skoda 130 GL, árg. ’86. Skoda 120 LS, árg. ’86. Skoda 120 L, árg. '86. Skoda 120 LS, árg. ’85. Skálafell, simi 22255. Laus staða Staða lektors í almennri bókmenntafræði við heimspeki- deild Háskóla íslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 24. mars nk. Menntamálaráðuneytið, 19. febrúar 1988. AKUREYRARB/ÍR Qfl| Strætisvagnar sSM Akureyrar Frá og með þriðjud. 1. mars verður hætt að aka leið 6, Glerárhverfi - Brekka, um Hlíðarbraut. Farþegum í Glerárhverfi er bent á leiðir 3 og 4, og farþegum á Brekkunni er bent á leiðir 1 og 2. Skólavagn kl. 7.50 í Glerárhverfi verður áfram á sama tíma og verið hefur. Nánari upplýsingar í síma 24929. Forstöðumaður. Tilsölu Yamaha vélsleði ET 340, árg. ’83 og Chevrolet Monza, sjálfskipt, árg. ’86. Véladeild KEA Óseyri 2, símar: 21400 og 22997. Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir janúarmánuð 1988 hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextirtil viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. mars. Fjármálaráðuneytið, 22. febrúar 1988. Leikfélag Skriðuhrepps sýnir Blessað bamalán eftir Kjartan Ragnarsson. Leikstjóri: Pétur Eggerts. Frumsýning föstud. 26. febrúar kl. 21.00. 2. sýning sunnudag 28. febrúar kl. 21.00. 3. sýning þriðjudag 1. mars kl. 21.00. Sýnt verður að Melum, Hörgárdal. U.M.F. Skr.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.