Dagur - 25.02.1988, Page 16

Dagur - 25.02.1988, Page 16
Verður Lífeyrissjóður Ólafsfjarðar stofnaður? - óánægja í Ólafsfirði með tregðu lífeyrissjóða til að ávaxta fé í heimabyggð Þorsteinn Þorvaldsson, spari- sjóðsstjóri og bæjarfulltrúi í Olafsfirði, vakti máls í bæjar- stjórn Ólafsfjarðar á miklu tjármagnsstreymi úr bænum til höfuðborgarsvæðisins. Ræddi hann um kosti þess, að Ólafs- firðingar stofnuðu sinn eigin lífeyrissjóð, eins og dæmi væru til í sjávarplássum annars stað- ar á landinu. f máli Þorsteins kom fram, að Ólafsfirðingar greiddu yfir sextíu milljónir króna í iðgjöld til lífeyr- issjóða árlega. Þetta fé streymdi mestallt frá Ólafsfirði og því væri vert að athuga hvort ekki væri hentugt að stofna lífeyrissjóð á staðnum, sem myndi binda fjár- magn þetta í Ólafsfirði. Sigurður Björnsson, bæjarfull- trúi, lagði fram tillögu um að skipuð yrði nefnd til að kanna all- Frumvarp um breytingar á hafnalögum: Gjaldskrár hafna gefnar frjálsar Fyrir Alþingi liggur nú frum- varp samgönguráðherra um breytingar á hafnalögum. Samkvæmt núgildandi lögum eru breytingar á gjaldskrám hafna háðar samþykki ráðu- neytis en í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þessar ákvarðanir verði í höndum eigenda hafn- anna, sveitarfélaganna. Sam- kvæmt frumvarpinu eiga ný lög að taka gildi 1. ágúst en þau eru liður í breyttri verka- skiptingu ríkis og sveitarfé- Iaga. Skinnaiðnaður SÍS: Fólk vantar til starfa „Hér eru nokkur störf laus í blautsal skinnaiðnaðar, og við getum bætt við fólki nú þegar,“ sagði Reynir Sveins- son, starfsmannastjóri Skinna- iðnaðar SIS á Akureyri. Undanfarið hefur verið auglýst eftir fólki til starfa í skinnaiðnaði, og eru ennþá nokkur störf laus. Reynir sagði, að um góða tekjumöguleika væri að ræða í þessum störfum, bæði hefðbund- inn bónus og gæðabónus. EHB Hafnasamband sveitarfélaga hefur undanfarin ár lagt fram til- lögur um samræmda gjaldskrá fyrir hafnir á landinu en endanleg gildistaka hennar verið háð sam- þykki samgönguráðuneytis. Ef hið nýja frumvarp verður að lög- um er eigendum hafnanna gefnar frjálsar hendur í þessum efnum. Frumvarpið hefur verið til fyrri umræðu í efri deild Alþingis en þaðan var því vísað til samgöngu- nefndar og annarrar umræðu. „Ég er ekki alveg búinn að sjá að fara eigi með þessi mál eins og smásöluverslun. Samkeppni milli hafna getur ekki falist í öðru en undirboðum og þar gætu stærri hafnirnar leikið þær minni grátt," sagði Guðmundur Sigurbjörns- son hafnarstjóri á Akureyri, en hann á sæti í stjórn hafnasam- bands sveitarfélaga. Guðmundur sagðist telja heppilegt að hafnirn- ar hefðu eftir sem áður samráð um gerð gjaldskrár og ákvarðanir yrðu teknar á ársfundi hafna- sambandsins. Á síðasta ársfundi hafnasam- bandsins var lagt til að aflagjöld yrðu hækkuð úr 0,85% af verð- mæti landaðs afla í 1,5%. Aðspurður um hvaða breytingar ný lög myndu hafa sagðist hann telja líklegt að þær hafnir sem hafa stærstan hluta tekna sinna af aflagjöldum, myndu þá frekai hækka þau. ET Stokkfiskur Reykjadal: Fiskiðjusamlag Húsavíkur leigir húsið af Byggðastofnun Fiskiðjusamlag Húsavíkur hef- ur tekið Fiskverkunarhús Stokkfisks í Reykjadal á leigu af Byggðastofnun, sem keypti húsið á uppboði 15. febrúar sl. Fimmtán manns úr Reykjadal vinna við að þurrka þorskhausa fyrir Nígeríumarkað í húsinu. Að sögn Hallgríms Valdimarssonar verkstjóra hjá fiskiðjusamlaginu er þokkalegt útlit með þessa vinnslu og ágætur markaður fyrir afurðirnar. Óákveðið er hversu lengi fiskverkunarhúsið verður leigt fiskiðjusamlaginu. IM ar hliðar þessa máls, og hvort grundvöllur væri fyrir stofnun líf- eyrissjóðs Ólafsfirðinga. Tillagan var samþykkt samhljóða. í nefndinni sitja, auk Þorsteins, þeir Gísli Friðfinnsson, Guð- björn Arngrímsson og Ágúst Sig- urlaugsson. „Það, sem okkur svíður sárast, er hversu erfitt er að fá lífeyris- sjóðina til að festa fé sitt hér heima í byggðarlaginu. Þá er það einnig umhugsunarefni hversu lítið situr eftir í heimabyggð mið- að við skerf okkar til þjóðarfram- leiðslu. Hvað lífeyrissjóðinn varðar þá er það mál aðeins í athugun, en spurningin er sú hvort ekki borg- ar sig fyrir lítið byggðarlag eins og Ólafsfjörð að vera utan hús- næðislánakerfisins,“ sagði Ólaf- ur, og átti þá við að ef stofnaður yrði sérstakur lífeyrissjóður þá gæti hann allt eins lánað til íbúðabygginga. Þó kæmi spurn- ingin um vexti inn í myndina, því vextir af opinberum húsnæðislán- um væru niðurgreiddir. Ólafs- firðingar fóru þess á leit við Lífeyrissjóð sjómanna að þeir ávöxtuðu greiðslur Ólafsfirðinga í Ólafsfirði en það var ekki samþykkt. EHB Lögregluþjónar sitja sveittir við að læra nýju umferðarlögin. Lögregluþjónar á námskeiði - í nýju umferðarlögunum Lögregluþjónar á Akureyri sækja námskeið í nýju umferðarlögunum, sem taka gildi 1. mars n.k., þessa dag- ana. Að mörgu er að hyggja varðandi framkvæmd hinna ýmsu ákvæða umferðarlaga, sem eru breytt frá fyrri lögum, og er því mikilvægt fyrir lögregluþjóna að þekkja vel til breytinganna. Þeir Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, og Ólafur Ólafsson, fulltrúi hjá embætti bæjarfógeta, kynna lögreglumönnum nýju lögin. Árni Magnússon, varðstjóri, sagði að eitt af því sem lögregl- Hér er líkan af útilistaverkinu sem Jón Gunnar Árnason myndhöggvari er að vinna fyrir Akureyrarbæ. Verkið verður 9 metra hátt og líkist skútu. Það verður staðsett við suðurenda göngugötunnar. Mynd: tlv an þyrfti að taka á eftir 1. mars væri notkun öryggisbelta og Ijósa bifreiða, en eins og kunn- ugt er þá verður heimilt að beita sektum gagnvart þeim öku- mönnum, sem gerast brotlegir við þessi ákvæði. í Ijósi þessarar sektarheimild- ar verður lögreglan og lögreglu- stjóri að ákveða, hvernig brugð- ist verði við ef ökumenn brjóta þessi ákvæði, þ.e.a.s. hvort áminning verði látin nægja fyrstu dagana eftir 1. mars eða hvort strax verður farið að sekta þá ökumenn sem ekki spenna beltin eða aka með slökkt öku- ljós þó að deginum sé. EHB Bygging íbúða fyrir aldraða: Híbýli hf. bauð lægst í fyrradag voru opnuð tilboð í byggingu 30 íbúða fyrir aldr- aða við Víðilund á Akureyri. Híbýli hf. reyndist vera með lægsta tilboðið, 92% af kostn- aðaráætlun. Húsinu á að skila fullbúnu með lóð og bílastæð- um sumarið 1989. Kostnaðaráætlun fyrir húsið hljóðaði upp á um 119,4 milljón- ir. Hæsta tilboðið kom frá Fjölni sf., 117.982 þúsund, eða 98,8% af kostnaðaráætlun. Aðalgeir Finnsson hf. bauð 114.392 þúsund, 95,8%. SJS verktakar buðu 112.467 þúsund eða 94,2% af kostnaðaráætlun og loks bauð Híbýli 110.892 þúsund sem eru 92,9% af áætlun. Næstu daga verður farið yfir tilboðin og síðan gengið til samn- inga við einhvern af aðilunum fjórum. Verkið ætti síðan að geta hafist í byrjun apríl en því á að ljúka 15. júní 1989. Fyrst um sinn verður búið í 29 af íbúðunum 30, en ein verður nýtt sem þjónustukjarni þangað til eiginlegur þjónustukjarni verður tilbúinn, líklega á árinu 1991. Um er að ræða bæði ein- staklingsíbúðir og tveggja manna íbúðir og er stærð þeirra 55-85 fermetrar auk 32 fermetra sam- eignar. ET

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.