Dagur - 02.03.1988, Blaðsíða 9
8-DAGUR-2. mars 1988
2. mars 1988 - DAGUR - 9
Til leigu
tvö skrifstofuherbergi
í Gránufélagsgötu 4, (J.M.J. húsinu).
Upplýsingar gefur Jón M. Jónsson sími 24453 og 27630.
Lausar stöður
Við embætti bæjarfógetans á Akureyri eru lausar til
umsóknar stöður skrifstofumanna, m.a. hálfsdags-
staða í vélritun.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis-
ins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf óskast sendar undirrituðum fyrir 29.
mars n.k.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 1. mars 1988.
Elías I. Elíasson.
.........
VAkureyri - Norðurland
ÁrshátíÖ
Árshátíð sjálfstæðismanna verður í Alþýðu-
húsinu á Akureyri, föstudaginn 4. mars kl.
19.00.
Hanastél.
Glæsilegur matseðill.
Hátíðarræðu flytur menntamálaráðherra, Birgir ísleif-
ur Gunnarsson.
Skemmtiatriði og dans.
Miðapantanir og afgreiðsla í Kaupangi kl. 16.00-
18.00.
Sjálfstæðisfólk fjölmennið og
takið með ykkur gesti.
Viðnám gegn verðbólgu
Perma-Press
buxurnar sívinsælu
loksins komnar
Ljósir litir. Stærðir 46-56.
Verð aðeins kr. 850,-
Gallabuxur
Stærðir 30-42. Verð kr. 886.-
Vinnuskyrtur
Stærðir 37-45. Verð kr. 480.-
Fóðraðir vinnugallar
Verð frá kr. 4.974.-
Ófóðra&ir vinnugallar
Stærðir 48-60.
Verð frá kr. 1.701.
Thermo-fatnaðurinn frá
Daiwa stendur fyrir sínu
Dæmi um verð:
Jakkar, verð frá kr. 1.470.-
Úlpur, verð kr. 1.660.- og 1.985.-
Rabbfundir L.F.K.
í kjördæminu
Landssamband framsóknarkvenna gengst
fyrir rabbfundum í kjördæminu í samvinnu
við konur á hverjum stað.
Norðurland eystra
Fundir verða sem hér segir:
Akureyri.
Fimmtud. 3. mars kl. 20.30
í Hafnarstræti 90.
Húsavík.
Laugard. 5. mars kl. 20.00
í Félagsheimilinu.
Allar velkomnar.
L.F.K.
34,5% dýrara
að kynda með
rafmagni en olíu
- rafmagn til húshitunar
hækkaði um 47% milli ára
Fjórðungssamband Norðlend-
inga hefur sent frá sér skýrslu
sem ber yfirskriftina „Athugun
á húshitunarkostnaði á
Norðurlandi 1987-1988“. í
skýrslunni er gerð grein fyrir
kostnaði við mismunandi
aðferðir við húshitun, saman-
burður er gerður á verðmun á
hitaveitugjaldskrám á Norður-
landi og áhrif stjórnvalds-
aðgerða á raforkuverð könnuð.
í skýrslunni kemur margt
athyglisvert fram, t.d. sú stað-
reynd að rafhitunarkostnaður
húsa á neytendasvæði RARIK
hefur hækkað um 47% milli
áranna 1987 og 1988. Niður-
greiðslur til rafhitunar hafa hald-
ist óbreyttar að krónutölu undan-
farin þrjú ár, og „hafa valdið því
að rafhitunarkostnaður notenda
hefur aukist mun meir en gjald-
skrárhækkanir RARIK segja til
um,“ segir í skýrslunni. í janúar
1987 var óniðurgreitt raforku-
verð RARIK til húshitunar 1,65
kr./kwst. en var orðið 2,17 kr./
kwst. í janúar 1988. Niður-
greiðslur ríkisins á þessari orku
ná til 40.000 kwst. á ári.
Hvað olíuverð varðar, þá hef-
ur það hækkað um 24,6% á tólf
mánaða tímabili til 1. janúar
1988. Ef reiknað er með að
32.000 kwst. þurfi til að kynda
hús af tiltekinni stærð (400 rúm-
metrar) á ári þá kostaði raforka
til kyndingar í einn mánuð kr.
4.802,- en ef sama hús er kynnt
með olíu kostar það 3.569,- kr.
miðað við verðlag janúarmánað-
ar.
í skýrslunni kemur í ljós, að
við samanburð á kostnaði við
húshitun með rafmagni og
olíu árin 1985 til 1988 hafa orðið
mikil umskipti milli ára með tilliti
til hagkvæmni orkugjafa. í janú-
ar 1985 kostaði um 2.579,- kr. að
kynda með rafmagni á orkusvæði
RARIK (staðalhús), en kr.
3.224.- að kynda með olíu. Á
þeim tíma var því um 20% ódýr-
ara að kynda með rafmagni en
olíu. Milli áranna 1986 og 1987
stórlækkaði olíuverð, og sam-
svaraði lækkunin 42 prósentum,
og var því hætt að greiða svo-
nefnda olíustyrki. Gjaldskrá
RARIK hækkaði mikið umfram
verðhækkanir á olíu á sama tíma,
þannig að 34,5% dýrara er að
kynda sambærileg hús með raf-
magni en olíu í janúar 1988.
EHB
Norrænt þing um barnavemd
Norræn samtök um barna-
vernd (Nordisk sammenslutn-
ing för barnvárd og
barnskydd) hafa starfaö frá
þriðja tug aldarinnar. Þriðja
hvert ár hefur verið haldið
norrænt þing um barnavernd
þar sem tekin hafa verið til
umræðu ýmis málefni barna-
verndar sem eru efst á baugi á
Norðurlöndum hverju sinni.
Þessi þing hafa verið haldin tii
skiptis á Norðurlöndunum.
Þingið verður haldið hér á
landi dagana 28. júní til 1. júlí
1988.
ísland hefur ekki verið form-
legur aðili að þessu samstarfi þó
svo ýmsir aðilar frá Barnavernd-
arráði íslands og barnaverndar-
nefndum hafi sótt þessi þing öðru
hverju. Á þinginu sem haldið var
Örn og Örlygur:
Bók um
Akureyri
Bókaforlagið Örn og Örlygur
hefur í undirbúningi útgáfu bók-
ar um Akureyri þar sem fjallað er
um sögu bæjarins, atvinnulíf,
menningu og byggð. Bók þessi er
hliðstæð og bækur, þegar útkomn-
ar, sem nefnast „Reykjavík,
sögustaður við Sund“. Auk texta
er lögð áhersla á fjölbreytt og
mikið myndefni frá ýmsum
tímum.
Til þess að fjölbreytni þess
verði sem mest er því beint til
fólks sem hefur undir höndum
ljósmyndir, málverk eða teikn-
ingar, einkum frá fyrri tímum,
sem átt gætu við efni bókarinnar
að hafa samband við Guðmund
Gunnarsson, Vanabyggð 17,
Akureyri, sími 22045 eða Örn og
Örlyg hf., Síðumúla 11, 108
Reykjavík, sími 91-84866.
í Svíþjóð 1982 var þess farið á leit
við fulltrúa Barnaverndarráðs
íslands að vinna að því að íslend-
ingar tækju þátt í þessu samstarfi
og haldin yrði ráðstefna hér á
landi. Á þinginu sem haldið var í
Finnlandi 1985 flutti fulltrúi
Barnaverndarráðs íslands f.h.
menntamálaráðherra boð um að
næsta þing yrði á íslandi 1988.
Haustið 1985 var hafinn undir-
búningur en Barnaverndarráð
íslands annaðist undirbúning í
umboði menntamálaráðuneytis-
ins. Undirbúningur hófst með því
að Barnaverndarráð boðaði til
fundar fulltrúa ýmissa félaga, fé-
lagasamtaka og opinberra stofn-
ana til að mynda undirbúnings-
hóp er tilnefndi fulltrúa í fram-
kvæmdanefnd sem Barnavernd-
arráð síðan skipaði. Meðal þeirra
sem tilnefndu fulltrúa í undirbún-
ingshóp má nefna: Menntamála-
ráðuneytið, félagsmálaráðuneyt-
ið, Félag fræðslustjóra, Fjórðungs-
samband Norðlendinga, Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga, Sam-
tök sunnlenskra sveitarfélaga,
Samtök sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu, Samband sveitar-
félaga á Suðurnesjum. Ennfrem-
ur tilnefndu ýmis félagasamtök
fulltrúa. En það voru: Þroska-
hjálp, Umhyggja, félag til stuðn-
ings sjúkum börnum, Sálfræð-
ingafélag íslands, Fóstrufélagið,
Stéttarfélag íslenskra félagsráð-
gjafa, Félag félagsmálastjóra,
Félag einstæðra foreldra, Félag
íslenskra barnalækna og Félag
heilsuverndarhjúkrunarfræðinga.
Einnig tilnefndu ýmsar stofnanir
fulltrúa: Barnaverndarnefnd
Reykjavíkur, Félagsmálaráð
Reykjavíkur, Unglingaheimili
ríkisins, Skilorðseftirlit ríkisins
og íþrótta- og æskulýðsráð
Reykjavíkurborgar. Mennta-
stofnanir sem tilnefndu fulltrúa
voru: Fóstruskóli íslands, Rann-
sóknastofnun uppeldismála og
Félagsvísindadeild Háskóla
íslands.
Smásyndir geta
bjargað hjónabandinu
Hann varpar ýmsu fyrir róða, sem hingað til hefur gjarnan verið talið
heilagur boðskapur. Hann heitir Arnold Lazarus, er 58 ára prófessor,
kvæntur og tveggja barna faðir. Sumir hafa hneykslast á kenningum þessa
þekkta, ameríska sállæknis. Ýmsum finnst þróunin í fjölskyldumálum
uggvænleg. í flestum vestrænum löndum hefur fjöldi hjónaskilnaða
margfaldast á fáum áratugum. Oft fylgja skilnaði sársaukafullar og
afdrifaríkar deilur, jafnvel fyrir dómstólum. Deilur um framfærslu barna,
lífeyri og eignir. Ást breytist í afskiptaleysi og hatur. Fjárhagserfiðleikar og
andleg áföll fylgja næstum undantekningalaust: Sorgarleikur í mörgum
þáttum. „Hvers vegna fór þetta svona?“ spyrja fórnarlömbin. Margir, sem að
því er virðist lifa enn í farsælu hjónabandi, verða órólegir. „Gæti svona átt
eftir að koma fyrir okkur?“ Arnold Lazarus prófessor er einn af leiðandi
sálfræðingum í Bandaríkjunum. í 30 ár hefur hann stundað hjónabandsráðgjöf,
og nú hefur hann sett fram helstu kenningar sínar í níu liðum:
- Heilræði, sem gætu bjargað hjónabandi þínu frá ógöngum;
-Heilræði, sem sumir hefðu hingað til talið hneykslanlegt að fara eftir.
1. Reyndu ekki að láta
maka þinn koma í stað
besta vinar þíns
Allir þurfa stundum á góðum vini
að halda, vini sem hægt er að trúa
fyrir leynustu óskum sínum og
þrám. En það gætu orðið örlagafull
mistök að rugla makanum saman
við þannig vin, því það er hann
ekki.
Dagbókardæmi:
Karlmaður nokkur varð hundleiður
á daglegu lífi sínu, hversdags-
leikanum og tilbreytingaleysinu
jafnt heima fyrir sem á skrifstof-
unni - dæmigerð kreppa hjá mið-
aldra manni. Hann dreymdi um að
prófa eitthvað alveg nýtt: Flytja út í
sveit, rækta kanínur, njóta ómeng-
aðrar náttúrunnar, lifa einföldu lífi,
hlaupa burt frá öllu saman.
Hann trúði konu sinni fyrir
þessu. Hún brást við skelfingu
lostin. Hún óttaðist um tilveru sína
og spurði sjálfa sig: „Skyldi einhver
önnur vera komin í spilið?“ Og
afleiðingin varð hjúskaparkreppa í
ofanálag.
Hvað segir Lazarus?
„Fjarstæðukenndar hugmyndir og
drauma fá allir einhvem tíma. Það
þýðir hreint ekki að nokkru sinni
komi til greina að framkvæma þær.
Svona hugmyndir ætti að ræða
vandlega við góðan vin, sem sér
hlutina frá öðrum sjónarhóli og get-
ur sagt álit sitt.
Það er óskynsamlegt að byrja á
að trúa makanum fyrir slíkum
draumum. Hann getur ekki dæmt
hlutlaust, því að hann er viðriðinn
málið.“
2. Hliðarspor getur
bjargað hjónabandi
Það er síður en svo að Lazarus mæli
með framhjáhaldi. En þær aðstæð-
ur geta risið, segir hann, að hliðar-
spor bæti hjónaband.
Dagbókardæmi:
Eftir að fyrsta barnið fæddist hafði
Barbara alltaf sársauka við samfar-
ir. Maðurinn hennar tók tillit til
þessa og lifði eins og munkur.
Það tókst í tíu ár, en þá kynntist
hann óvenju aðlaðandi og kynæs-
andi konu á ráðstefnu. Þessu fylgdi
smá-ástargrín, dans í diskói, nokkr-
ir drykkir á hótelbarnum, herberg-
in þeirra voru fyrir tilviljun á sömu
hæð - og þá gerðist það.
„Góðir vinir“ sögðu eiginkon-
unni frá þessu. Það varð áfall,
hneykslan og sært stolt. En síðan
viðurkenndi hún fyrir sjálfri sér:
Þú hefur ekki sinnt honum í mörg
ár. Það er þér sjálfri að kenna að
hann skuli leita fyrir sér annars
staðar. . .
Barbara ákvað að draga eigin-
mann sinn sjáif á tálar. Það tókst.
Og smá kraftaverk í leiðinni: Hún
fann engan sársauka við samfarirn-
ar, heldur unað! Áfallið hafði lækn-
að verkina, sem auðvitað áttu and-
legar en ekki líkamlegar orsakir.
Þetta eina næturævintýri mannsins
gleymdist fljótt, en hliðarsporið
hafði bjargað hjónabandinu.
Hvað segir Lazarus?
„Sjötta boðorðið hljóðar: „Þú skalt
ekki drýgja hór.“ Tilgangur þess er
að varðveita hjónabandið. En til
eru þær aðstæður, að þessi tilgang-
ur næst með því að brjóta boðorð-
ið.“
3. Skriftaðu ekki allar
syndir þínar
fyrir makanum
Sumir fullorðnir hegða sér eins og
lítil börn: Þeir hafa ekki fyrr gert
eitthvað af sér en þeir skrifta fyrir
einhverjum til að létta á samvisk-
unni. I hjónabandinu getur það
haft slæmar afleiðingar.
Dagbókardæmi:
Margot kynntist karlmanni á ferða-
lagi, sem hún daðraði dálítið við.
Eftir að hún kom heim hringdi
hann í hana og vildi hitta hana
aftur. Margot neitaði.
Kvöld nokkurt sagði hún manni
sínum hvað hafði gerst, sem eigin-
lega var ekki nokkur skapaður
hlutur. Hún hugsaði: Hann mun
skilja mig og meta við mig hrein-
skilnina.
En hann sýndi hreint engan
skilning. Hann brást illa við,
afbrýðisamur og tortrygginn, brá
henni um að meira hefði gerst en
hún sagði frá. Og snurða var hlaup-
in á hjónabandið.
Hvað segir Lazarus?
„Gerðu ekki of miklar kröfur til
skilnings maka þíns. Maðurinn
þinn er ekki skriftafaðir þinn og
konan þín ekki fyrirgefandi móðir.
Of mikill trúnaður gæti ansi oft gert
úlfalda úr mýflugum. Stundum er
þögnin gullvægust.“
4. Gerið ekki alla
hluti sameiginlega
í byrjun hjónabands hanga þau ást-
föngnu yfirleitt saman eins og
spyrtir fiskar. Þau ætla sér að njóta
allra áhugamála og ánægju sameig-
inlega. Það tilheyrir nefnilega fyrir-
myndarhjónabandi.
Dagbókardæmi:
Súsanna fylgdi Georg á fótbolta-
völlinn á hverjum laugardegi, þótt
hún hefði ekki minnsta áhuga á
knattspyrnu. Af því að hún þekkti
ekki reglurnar spurði hún stundum
kjánalega og jafnvel kom fyrir að
hún hvatti vitlaust lið!
Súsanna var mikill óperuunn-
andi, og Georg fór með henni á
hverja sýningu. En hann þoldi ekki
óperur og gerði gys í hvert skipti
sem t.d. „deyjandi“ hetja söng
langa aríu fyrir síðasta andvarpið.
Afleiðing: Súsanna sagði að Georg
væri menningarsnauður, en hann
skammaðist sín ef hún sagði eitt-
hvað um knattspyrnu. Þetta var
byrjunin á vandanum: Hann/hún
skilur mig ekki. . .
Hvað segir Lazarus?
„Fólk hefur ólík áhugamál, líka
þótt það sé ástfangið. Ahugamálin
eru hluti af persónuleikanum. Ef
fólk reynir að neyða sig til að hafa
sömu áhugamál og makinn, verður
hjónabandið eins og spennitreyja.
Hvor aðili hefur fullan rétt til að
halda og sinna sínum áhugamálum
innan eðlilegra tíma- og kostnaðar-
marka.“
5. Treystu maka þínum
ekki skilyrðislaust
Fólk er ekki vélar, sem bregðast við
eftir föstum reglum. Allt fólk er að
vissu marki óútreiknanlegt. Hætt er
við að sá sem gleymir því verði oft
fyrir vonbrigðum.
Dagbókardæmi:
Eftir 15 ára hjónaband hélt Kláus
að hann þekkti konuna sína til
hlítar. „Hún mundi aldrei halda
framhjá mér. Hún er allt of feimin
til þess að hún gæti verið með öðr-
um manni. Það er ég sannfærður
um,“ sagði hann vinum sínum.
Konan hans frétti af þessu. Stolt
hennar var sært. Trúði Kláus henni
þá ekki til nokkurs hlutar?
Hún ákvað að sanna honum að
Umhyggja og blíða eru mikilvæg-
ustu þættir hvers hjónabands.
hann hefði rangt fyrir sér - og hélt
framhjá honum með einum vina
hans.
Hvað segir Lazarus?
„í hverju hjónabandi eru óvissuþætt-
ir. Enginn gjörþekkir maka sinn -
sem betur fer.
Því að sá sem er allt of öruggur
um makann, gerir ekkert til að halda
honum. Og það er ekki tii að
treysta hjónabandið. Agnarögn af
afbrýðisemi veitir aðhald og getur
kryddað hjúskapinn.“
6. Þú átt ekki að líða
maka þínum að velta
stressinu úr vinnunni
út yfír heimilið
Flestir þurfa að leggja nokkuð að
sér allan daginn til að halda góðu
samneyti við vinnufélaga, viðskipta-
vini eða yfirmenn sína. Á kvöldin,
þegar heim er komið ausa þeir svo
öllu yfir fjölskylduna sem þeir urðu
að kyngja yfir daginn. Og finnst
mjög ósanngjarnt, ef því er ekki
alítaf vel tekið.
Dagbókardæmi:
Á daginn var Halldór alltaf sami
vingjarnlegi, óaðfinnaniega klæddi
deildarstjórinn. Maðurinn sem öll-
um líkaði við.
Heima hjá sér á kvöldin sleppti
hann lausri allri gremjunni, sem
hann hafði bælt niður í vinnunni.
Þá reiddist hann og skammaðist yfir
minnstu smámunum.
Þetta bitnaði mest á konunni
hans. Hún reyndi lengi vel að
umbera það. En dag nokkurn hafði
hún fengið sig fullsadda og sótti um
skilnað.
Hvað segir Lazarus?
„Jafnvel sterkasta fólk þolir ekki til
lengdar að hiusta á nöldur og
skammir út af hlutum, sem það á
enga sök á. Er ekki betra að slá
stöku sinnum í borðið á vinnustað
heldur en að fórna fjölskyldulíf-
inu?“
7. ímyndaðu þér ekki
að börn kunni að
bjarga hjónabandinu
Það er hreint ekki útilokað að börn
gefi hjónabandi nýtt líf, en það er
langt í frá öruggt. Börn geta líka
spillt hjónabandi.
Dagbókardæmi:
Hjá Vigni og Fríðu blómstraði ástin
fyrstu hjónabandsárin. En nú var
sambandið orðið ósköp dauft og
vanabundið.
Vinur þeirra ráðlagði: „Eignist
þið barn. Þá fáið þið nýtt viðfangs-
efni til að gefa tilverunni gildi.“
Barnið kom. En í stað þess að
gefa hjónabandinu nýtt gildi, skap-
aði það sundurlyndi. „Þú hugsar
ekki um neitt nema barnið,“ kvart-
aði Vignir. Honum fannst hann
vera vanræktur. Alla athygli Fríðu,
sem hann hafði áður notið, fékk
barnið núna. Bilið milli hjónanna
jókst enn.
Hvað segir Lazarus?
„Sumu fólki líður ekki vel í hjóna-
bandi, a.m.k. framan af, nema það
eigi alla athygli hvors annars. Öll
ytri áhrif trufla þá þennan einhug
og draga úr þeirri umhyggju, sem
makinn vill njóta. Við þessar
aðstæður getur barn orðið „ytri
áhrif“ og spillt fyrir í hjónabandi,
sem ekki er allt of traust fyrir.“
8. Starf eiginmannsins er
engu mikilvægara
en konunnar
Mörgum karlmönnum gengur illa
að kyngja því að eiginkonan gegni
sjálfstæðu starfi, og sé því efna-
hagslega og andlega óháð honum.
Dagbókardæmi:
Martin var bankastarfsmaður. í
hans augum átti fyrirmyndareigin-
kona að sjá um heimilið, fara á
sunnudögum í kirkju og í göngu-
ferð í lystigarðinum, fylgja honum í
samkvæmi, en vera þæg og góð
heima ef hann langaði til að spila
golf eða keilu.
Ingunn lék þetta hlutverk af
mikilli þolinmæði í eitt, tvö ár, en
þá hafði hún líka fengið sig full-
sadda. Henni fannst hæfileikar sínir
ekki fá að njóta sín. Þar sem hún
hafði lokið verslnnarnámi ákvað
hún að opna tískuverslun í bænum.
Aðra hvora helgi fór hún á nám-
skeið og sótti tískusýningar. Eftir
nokkurn tíma skilaði verslunin
nægum hagnaði til þess að gera
hana fjárhagslega óháða ntanni
sínunt.
Hann bauð henni 10.000 krónur í
vasapeninga á mánuði ef hún vildi
hætta rekstrinum og verða aftur
„bara húsmóðir“.
En Ingunn hló aðcins að tilboð-
inu. Tekjur hennar voru nú þegar
tífalt hærri en hans. Hjónin fjar-
lægðust æ meira og skilnaðurinn
varð óumflýjanlegur.
Hvað segir Lazarus?
„Enn eiga margir karlmenn erfitt
með að sætta sig við að nútímakon-
ur geri sig ekki ánægðar með S-in
þrjú eingöngu - það er að sjóða,
sauma og skúra - heidur kunni
einnig að vilja nýta hæfileika sína
við önnur störf. Sá sem vill ekki
unna konu sinni sjálfræðis í þessum
efnum ætti ekki að verða hissa þótt
hún fari sína leið.“
9. Reyndu ekki að gera
dýrling úr maka þínum
Meðan ástin brennur sem heitast í
byrjun, hættir mörgum til að hefja
makann til skýjanna og finnast
hann fullkominn að öllu leyti. En
enginn er án galla, og það getur
verið varasamt að loka augunum
fyrir þeim í upphafi.
Dagbókardæmi:
í augum Hrólfs var Verena ein af
þesum fullkomnu konum. En
kunningjar hans sniðgengu hana
eða litu hana óræðu augnaráði.
Vinur Hrólfs sagði honum það sem
allir hugsuðu: „Konan þín er eins
og paradísarfugl, of áberandi bæði í
klæðnaði og framkomu.11
Hrólfur vildi ekki viðurkenna að
sannleikskorn gæti verið í umsögn
vinarins. En þegar hann reyndi síð-
ar að fá hana til að breyta þessari
ímynd, brást hún hin versta við og
kvaðst ekki taka í mál að aðlaga sig
smekk þessara snobbara. Og það
fór að hrikta í hjónabandinu.
Hvað segir Lazarus?
„Ástin gerir menn blinda. Hún
breytir öskubusku t' fegurðardís og
skósveini í ævintýraprins. En í rás
hversdagsleikans kemst sannleikur-
inn upp. Báðir aðilar uppgötva
galla og veikleika makans og fara
þá kannski að reyna að breyta hon-
um að sínu skapi.
En það heppnast sjaldan. Því að
hver sem finnur stöðugt að aðrir
ætlast til að hann sé öðruvísi en
hann er, verður óöruggur með sig
og gerir því sífellt fleiri „mistök“.
Fólk verður að taka makanum eins
og hann er og forðast að gera úr
honum ímynd, sem hann getur
ekki risið upp til. Það er leiðin til
sameiginlegrar hamingju."
Magnús Krislinsson þvddi úr QUICK, 17. núv
1987).