Dagur - 02.03.1988, Blaðsíða 5
2. mars-198ff - ÐAGUR - 5
„Ein aflciðingin er að margar konur, sem ekki eru samkvæmt uppskriftinni, fá andstyggð á sjálfri sér og líkama
sínum.“
Þórarinn Hjartarson:
Kvenímyndin
Keppni í fegurð hefur nú náð aft-
ur sömu athygli, a.m.k. fjöl-
miðla, og ég man eftir frá því um
1960. Kvenímyndin, sú mynd af
„föngulegri og eigulegri" konu
sem nú er hengd framan við
þjóðina, er orðin mjög lík því
sem hún var fyrir daga rauð-
sokka.
f>að er háð keppni um titilinn
Ungfrú Norðurland. Dagur er
með forsíðumyndir og heilopnu
um viðburðinn bæði fyrirfram og
eftir á. Önnur blöð og sjálft Rík-
issjónvarpið gera málinu ítar-
leg skil. Það er þýðingarmikil
upplýsingaþjónusta að upplýsa
okkur grandgæfilega um kven-
ímyndina og innprenta hana í vit-
und kvenna og karla. Fegurðar-
samkeppni stuðlar öllu öðru bet-
ur að þessari gömlu ímynd og til-
svarandi viðhorfi til kvenna.
Gildi kvenna felst samkvæmt því
í augnayndisgildi og hæfni þeirra
til að svala löngunum karla.
Fyrirmyndarkonan er sú sem seg-
ir við karlinn: „Ég vil vera eins og
þú vilt hafa mig. Ég er til fyrir
þig.“ Slík kona, tískuklædd eða
fáklædd er þá skoðuð sem sölu-
og neysluvara. Sama viðhorf ræð-
ur miklu af nektarmynda- og
klámmarkaðinum. Sú sem tekur
þátt í svona sýningu verður að
þola að vera skoðuð fyrst og
fremst sem skrokkur á eftir. Það
var Ijótt að sjá veslings stelpurnar
í Sjallanum, tiplandi vandræða-
lega á sundbol frammi fyrir
alþjóð, enda ennþá óvanar að
líta á sig sem sýningargripi fyrir
almenning.
Hverjir standa að baki sýning-
unni? Jú það eru einkum nokkrar
tískufata- og skartgripaverslanir í
Reykjavík (stelpurnar bera föt
og skart þaðan), auk Ólafs
Laufdal (sem líka er dómari).
Þessir aðilar búa til hina stöðluðu
kvenímynd. „Rétt“ ímynd beinir
kaupgetu kvenna inn á „réttar"
brautir. Æðsta markmið er rétt
útlit, réttar línur og réttur klæðn-
aður, eftir staðli. Og það er vand-
lifað fyrir konur eigi þær að geta
fylgt uppskriftinni. Þá verður að
leggja allt í sölurnar. Óhemju-
fúlgur í klæðnað. Og uppskriftin
heimtar allt frá afrópermanenti
oní stólpípu. Trúarbrögð þessi
eru dýrkun straumlínulaga
manneskju, vellukkaðrar í krafti
útlits og klæðnaðar. Ein afleið-
ingin er að margar konur, sem
ekki eru samkvæmt uppskrift-
inni, fá andstyggð á sjálfri sér og
líkama sínum.
Það er svo að gripasýningar
hafa gildi fyrir gripaeigendur,
bændur (og kjötmarkaðinn), en
alls ekki fyrir gripina. Tilsvar-
andi sýning á konum gæti haft
gildi fyrir kvennahalda, þ.e.
kvennabúrseigendur, en allra síst
fyrir konur.
En það voru sýndir strákar í
Zebra, segir einhver. Er það ekki
í jafnréttisátt? Ja, það finnst mér
ömurlegt jafnrétti. Ég hef síst á
móti því að einhver kona komi
og segi mér að ég sé sætur
strákur, hvað þá að ég sé glæsi-
legur. En að Olafur Laufdal eða
einhverjir tískufrömuðir komi og
meti mitt útlit miðað við útiit ein-
hverra annarra eftir staðli - það
er kúgun kaupsýsluvaldsins og
argasta mannfyrirlitning.
Það eru hættuleg og mann-
fjandsamleg öfl sem þarna eru að
seilast til meiri valda í sál þjóðar-
innar. Það var því fullkomnun
ósómans að Pálmi sálusorgari
skyldi leggja blessun sína á fyrir-
tækið með sjónvarpsviðtali við
sigurvegarann í fegurð. Þar er
hann að lúffa fyrir æði vafasöm-
um trúarbrögðum.
Þórarinn Hjartarson.
íþróttafélagið Þór
Árshátíð
félagsins verður haldin að Hótel KEA
laugardaginn 5. mars kl. 19.00.
Miðasala og borðapantanir í Þórsherbergi
Glerárskóla fimmtudaginn 3. mars kl. 18.00 til
19.00.
Miðaverð kr. 1.500.-
Stjórnin.
KONUR
í Einingu, Iðju og Félagi verslunar- og
skrifstofufólks Akureyri.
Vegna Norræna kvennaþingsins í Ósló dagana 30.
júlí til 7. ágúst 1988 hafa félögin ákveðið að styrkja
þær konur sem áhuga hafa á þátttöku.
Þátttaka tilkynnist fyrir 30. mars 1988.
Nánari upplýsingar á skrifstofum félaganna.
Stjórnir félaganna.
Ritstjóm • Afgreiðsla • Auglýsingar
Strandgötu 31 - Sími 24222.
Einingarfélagar
Eyjafirði
Almennir félagsfundir um nýgerðan kjara-
samning og atkvæðagreiðsla um hann
verða haldnir sem hér segir:
Ólafsfirði í dag kl. 17.30.
Dalvík í dag kl. 20.30.
Grenivík fimmtudag kl. 13.00.
Akureyri fimmtudag kl. 20.30.
Nánar auglýst á vinnustöðum.
Félagar ath! Samningurinn er til afhendingar á
skrifstofum félagsins.
Stjórnin.
Laugardagskvöld
Stjörnur Ingimars Eydal
í 25 ár
í allra sídasta sinn
Glæsilegur þríréttaður matseðill
Hljómsveit Ingimars Eydal
leikur í Sólarsal
Hljómsveit Finns Eydal
leikur í Mánasal
Michael Clarke og Óskar leika fyrir matargesti
Eiríkur Hauksson ogJón Olafsson
í Kjallaranum í kvöld
og annað kvöld