Dagur - 08.03.1988, Síða 2
f fi -2 HiHMJU R 888.T rewffi 1888
- á Stórmótinu 19.-20. mars nk.
Hið árlega stórmót Bridgefé-
lags Akureyrar verður haldið í
Félagsborg á Akureyri dagana
19. og 20. mars n.k. Mjög veg-
leg verðlaun verða veitt fyrir
efstu sætin og er því til mikils
að vinna. Verðlaun fyrir 1.
sætið nema 60 þúsund
krónum, fyrir 2. sætið 40 þús-
und krónum og fyrir 3. sætið
25 þúsund krónum. Verðlaun
fyrir 4. sætið er helgarferð fyrir
tvo til Keykjavíkur eða Akur-
eyrar með Flugleiðum og fyrir
5. sætið flugfar fyrir tvo, Akur-
eyri - Reykjavík - Akureyri
eða Reykjavík - Akureyri -
Reykjavík, með Flugleiðum.
Heildarvcrðmæti verðlauna er
um 160 þúsund krónur.
Umbúðaprentun
Umbuðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun •
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Umbúðaprentun
Dagsprent
Strandgötu 31 ■ S 24222
Stórmót B.A. er tvímennings-
mót með Barometer fyrirkomu-
lagi. Þátttaka verður takmörkuð
við 50 pör en að öðru leyti er öllu
spilafólki, hvar sem er á landinu,
heimilt að vera með. Þátttöku-
gjald er kr. 4000 fyrir parið og er
kaffi, á meðan spilamennska
stendur yfir báða dagana, innifal-
ið.
Sem fyrr segir verður mótið
haldið í Félagsborg á Akureyri
og hefst spilamennskan kl. 10.00
árdegis, laugardaginn 19. mars.
Þátttöku þarf að tilkynna til
Kristins Kristinssonar á Akur-
eyri, í síma 96-24011 á daginn en
96-26165 á kvöldin. í>á er tekið
við þátttökutilkynningum á skrif-
stofu Bridgesambands íslands í
Reykjavfk, en frestur til að til-
kynna þátttöku rennur út fimmtu-
daginn 10. mars n.k.
Það voru hressir og skemmtilegir krakkar sem komu í heimsókn til Dags í síðustu viku. Hér voru á ferð nemendur
í 7. og 8. bekk Síðuskóla og erindið var að kynnast því sem fram fer hjá Degi. I för með þeim var Ragnhildur Skjald-
ardóttir, kennari í Síðuskóla. Mynd: tlv
Kjarasamningur bæjarins við tæknifræðinga
„Hrædd um að þetta skapi fordæmi“
- segir Sigríður Stefánsdóttir um persónubundna kjarasamninga
„Mér finnst vera farið inn á
mjög hættulega braut í gerð
kjarasamninga með því að
gera persónubundna samninga
við tæknifræðinga,“ sagði Sig-
ríður Stefánsdóttir, bæjarfull-
trúi á Akureyri, en bæjarfull-
trúar Alþýðubandalagsins létu
10% aukning
bifreiða-
innflutnings
- það sem af er
þessu ári
í febrúar 1988 skráði Bifreiða-
eftirlit ríkisins 1625 nýja bíla
sem er 185 bílum fleira en í
febrúar 1987 en þá voru 1440
bílar nýskráðir. Þetta er aukn-
ing um 13%.
Af þessum 1625 bílum voru
1379 innfluttir nýir og 228 inn-
fluttir notaðir. í febrúar voru 795
bílar afskráðir og 59 bílar endur-
skráðir. Skráðir bílar hinn 1.
mars eru 136062.
Fyrstu 2 mánuði ársins voru
nýskráðir 3039 bílar á móti 2757
á sarna tíma árið 1987.
Innflutningur nýrra bíla er
þannig 10% meiri nú en í fyrra.
Fasteignamat íbúða og lóða hækkar meira á Akureyri en víðast livar annars
staðar.
bóka á síðsta fundi bæjar-
stjórnar að þeir standi ekki að
staðfestingu ráðningarsamn-
inga við tæknifræðinga.
I bókuninni, sem undirrituð er
af Sigríði Stefánsdóttur og Sig-
rúnu Sveinbjörnsdóttur, segir
m.a. að gerðir hafi verið persónu-
bundnir samningar við heilan
starfshóp manna, sem allir væru
þó fullgildir félagar í STAK, án
þess að stéttarfélag þeirra eða
kjarasamninganefnd bæjarins
eigi þar nokkra aðila að. Ekkert
sé bókað um mál þetta frá 15.
október 1987 þegar bæjarráð fól
form'anni kjarasamninganefnd-
ar og starfsmannastjóra að eiga
könnunarviðræður við fulltrúa
frá stéttarfélagi tæknifræðinga.
Ekkert umboð sé gefið til samn-
inga, enda hafi bæjarstjórn ekki
viðurkennt stéttarfélag sem
samningsaðila.
Samningarnir eru undirritaðir
29. des. 1987 og hafa laun verið
greidd samkvæmt þeim síðan
þótt þeir hafi ekki veríð sam-
þykktir af bæjarstjórn fyrr én nú
og reyndar fyrst verið lagðir fram
2 mánuðum eftir undirritun.
Bæjarfulltrúarnir átelja þessi
vinnubrögð í bókuninni.
„Mér finnst mjög vafasamt að
gera slíka samninga við hópa hjá
bænum því þá er þetta eins og var
áður en nokkur verkalýðsfélög
urðu til. Tæknifræðingar eru
ennþá í STAK og sætti þeir sig
ekki við að semja gegnum sitt
félag finnst mér að þeir verði að
gera einhverjar ráðstafanir sem
hópur. Ég er mjög hrædd um að
þetta skapi fordæmi- Þetta eru
ekki opinberir samningar heldur
persónubundnir samningar,“
sagði Sigríður. EFIB
Dalvík:
Opið bama- og
unglingamót í skák
Bridgefélag Akureyrar:
160 þúsund króna
verðlaun í boði
Framreikningur fasteignamats 1987:
íbúðatbúsnæði hækki um 44%
- en 34% á flestum öðrum stöðum
Framreikningur fasteignamats
1987 samkvæmt ákvöröun yfir-
fasteignamatsnefndar er svo-
hljóðandi: Allt íbúðarhúsnæði
í þéttbýli hækki um 34% að
frátöldum einbýlishúsum og
öðru sérbýli á höfuðborgar-
svæði, sem hækki um 24%.
Ibúðarhúsnæði á Akureyri
hækki um 44% og í Keflavík
um 28%. Þetta kemur fram í
fréttabréfi frá Fasteignamati
ríkisins.
í fréttabréfinu segir einnig að
allar aðrar fasteignir, þar með
taldar lóðir, hækki um 24%,
nema lóðir á Akureyri sem hækki
um 29% og í Keflavík og Njarð-
vík um 20%.
Skýringar á þessu er einnig að
finna í bréfinu. Ef litið er á fjöl-
býlishúsíbúðir í Reykjavík þá
hækkuðu 4ra herbergja íbúðir
mest á síðasta hluta ársins 1986
og fyrsta hluta ársins 1987, en eft-
ir það hækkuðu 3ja herbergja
íbúðir mest. Einbýlishús á höfuð-
borgarsvæðinu hafa ekki haldið í
við fjölbýlishúsin í þeirri hækk-
unarbylgju sem varð á síðasta
árí.
Sé verðþróun á landsbyggðinni
borin saman við verðþróun á
höfuðborgarsvæðinu í fyrra þá
virðast verðhækkanir á lands-
byggðinni í heild hafa haldið
fyllilega í við höfuðborgarsvæð-
ið. Greinilegt er þó að hækkanir
eru mjög breytilegar milli staða.
Á Akureyri eru hækkanir langt
umfram vísitölur, en í Keflavík
og Njarðvík ekki nærri því eins
miklar. SS
Taflfélag Dalvíkur efnir öðru
sinni á þessu ári til opins barna-
og unglingamóts í skák á Dalvík
þann 12. mars n.k. Mótið fer
fram í Dalvíkurskóla og hefst kl.
13.30. Keppt verður í eftirtöldum
flokkum:
Drengir fæddir
Drengir fæddir
Drengir fæddir
Stúlkur fæddar
Stúlkur fæddar
1972-1974.
1975-1977.
1978 eða síðar.
1972-1975
1976 eða síðar.
í drengjaflokkum verða tefldar
7 umferðir eftir Monradkerfi en í
stúlknaflokkum ræðst keppnis-
fyrirkomulag af fjölda þátttak-
enda. Umhugsunartími í flokki
drengja (1972-1974) er 20 mínút-
ur til að ljúka skákinni. Þrenn
verðlaun verða veitt í hverjum
flokki. Þátttökutilkynningar ósk-
ast sendar til Ingimars Jónssonar,
skrifstofu Dalvíkurbæjar (sími)
61370).
í þungum þönkum.