Dagur


Dagur - 08.03.1988, Qupperneq 3

Dagur - 08.03.1988, Qupperneq 3
8. mars 1988 - DAGUR v Blönduós: Nökkvi landar 82,3 tonnum - mesta aflaverðmæti úr veiðiferð Tryggingafélögin: Síðastlidið sunnudagskvöld kom rækjutogarinn Nökkvi til heimahafnar á Blönduósi með verðmætasta afla sem hann hefur komið með að landi til þessa. Eftir 19 daga veiðiferð var 82,3 tonnum af rækju land- að úr skipinu. Af aflanum voru 45,7 tonn fullunnin rækja, en það er besta rækjan sem er unnin um borð. Smærri rækjunni er landað til vinnslu í fiskiðjunni Særúnu. Aætlað aflaverðmæti er liðlega 11,3 milljónir króna og er það mesta aflaverðmæti sem Nökkvi hefur landað úr einni veiðiferð hingað til. Næsta veiðiferð á undan var einnig mjög góð, en þá var verð- mæti aflans rúmar 8 milljónir króna. Hásetahlutur eftir ferðina var 212 þúsund krónur. Vegna mjög hagstæðrar veðr- áttu var nú unnt að landa í heimahöfn og greidd hafnar- gjöld, að þessu sinni, voru 96.500 krónur sem runnu til heimahafn- ar skipsins. fh Hraðskákmót Sparísjóðs Svarfdæla 1988 Hraðskákmót Sparisjóðs Svarf- dæla á Dalvík 1988 verður haldið í Víkurröst á Dalvík laugardag- inn 12. mars n.k. og hefst kl. 14. Tefldar verða 13 umferðir eftir Monrad-kerfi. Umhugsunartími er 5 mínútur. Heildarupphæð veðlauna er kr. 40.000 og skiptist þannig: 1. verðlaun kr. 12.000.- 2. verðlaun kr. 10.000,- 3. verðlaun kr. 8.000.- 4. verðlaun kr. 6.000,- 5. verðlaun kr. 4.000,- Mótið er opið öllum sem hafa 1700 skákstig og þar yfir. Þátttökugjald er kr. 300 og eru veitingar innifaldar í því. Pátttökutilkynningar óskast sendar til Ingimars Jónssonar skrifstofu Dalvíkurbæjar (sími 61370). Húsavík: Maraþonsund hjá Völsungum um helgina Um næstu helgi efnir Sund- deild Völsungs til maraþon- sunds í Sundlaug Húsavíkur. Sundið hefst kl. 16:00 á laugar- dag og á að standa yfir í sól- arhring, stefnt er að því að synda 300 km. í fyrra var efnt til sams konar maraþonsunds og var það aðal- tekjulind sunddeildarinnar á árinu. Nú er verið að ganga í hús og safna áheitum hjá fyrirtækjum og einstaklingum vegna sundsins um helgina. Tekjum af maraþon- sundinu verður varið til rekstrar sunddeildarinnar, til að fá þjálf- ara til leiðsagnar bæði fyrir þjálf- ara deildarinnar og sundmenn og til að styrja börn og unglinga til þátttöku á sundmótum. IM Rúm greiðslukjör - á iðgjöldum bifreiðatrygginga Tryggingafélögin á Akureyri bjóða upp á ýmsa greiðsluskil- mála vegnr tryggingaiðgjalda af bifreiðum nú eins og undan- farin ár. Hjá tryggingafélögun- um fengust þær upplýsingar að líklega yrði meira um að fólk greiddi iðgjöld sín með víxlum eða skuldabréfum til að dreifa greiðslum á lengri tíma í kjöl- far hækkunar iðgjaldanna. Hjá Sjóvátryggingafélagi íslands fengust þær upplýsingar að fólk gæti skipt greiðslum niður á víxla. Algengt væri að greiðsl- um væri skipt á 4-6 víxla, allt eftir efnum og ástæðum hvers og eins. Hjá Samvinnutryggingum er um tvennt að ræða. víxil, sem mögulegt er að framlengja, eða skuldabréf sem dreifir greiðslum á lengra tímabil, og eru vextir þá greiddir eftir á. Einnig er sá möguleiki fyrir hendi að skiþta greiðslum með mánaðarlegum raðgreiðslum Vísa. Almennar tryggingar hf. bjóða upp á sveigjanlegt greiðslu- form í ýmsum myndum, og hægt er að semja um að skipta greiðsl- um með víxlum, raðgreiðslum Vísa eða Euro. Hjá þeim fengust þær upplýsingar að algengt væri að fólk greiddi hluta tryggingar- iðgjalds beint, t.d. 1/3, og skipti síðan eftirstöðvum á lengri tíma. Brunabótafélag íslands býður viðskiptamönnum sínum upp á víxla, skuldabréf eða raðgreiðsl- ur Vísa, eftir þörfum hvers og eins. Ekki er óalgengt að fólk greiði tryggingar sínar á 4-6 mán- uðum hjá B.I. EHB .VAMHELA' 29. JANÚAR 1988 VAR STÓR DAGUR í SÖGU SLYSAVARNA Á ÍSLANDI, ÞANN DA(j) VARÐ SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLAMDS 60 ÁRA. MARKMIÐ FÉLAGSINS ER VERNDÚíTMANNSLÍFA OG MEÐ SAMSTILLTU ÁTAKI GEGN SLYSUM OG AFLE|ÐINGUM ÞEIRRA MÁ NÁ VERULEGUM ÁRANGRI f PEIRRI BARÁTTU EN TIL ÞESS ÞARF FÉLAGIÐ ÞINN STUÐNÍNG. É-----1-------*------VINNINGAR:---7— ------------— \ ÍBÚÐARVINNINGUR AÐ VERÐMÆTI 2.000.000,00 KR. ) TVEIR TOYOTA LANDCRUIESER 4WD AÐ VERÐMÆTI KR: 1.129.000,00 HVER NÍTJÁN TOYOTA COROLLA BIFREIÐAR AÐ VERÐMÆTI KR. 456.080,00 HVER. ÐREGIÐ VERÐUR ÞANN 12. APRÍL 1988,_- C_i ~ -V-V" >U \ mMm - , • t ' • v J ngn, ' r ifeAi -* * *

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.