Dagur - 08.03.1988, Síða 7

Dagur - 08.03.1988, Síða 7
8. ftöfte 3W8 8 Leikfélag Akureyrar frum- sýndi síðastliðið föstudags- kvöld leikrit Arthurs Miller „Horft af brúnni“. Leikritinu var almennt vel tekið af frum- sýningargestum, enda er um að ræða stórbrotna uppfærslu eins og segir í leikdómi Stefáns Sæmundssonar sem birtist í blaðinu í gær. Hvort leikritið hefur komið róti á tilfinningar áhorfandans skal ósagt látið en eitt er víst að í hléi höfðu áhorfendur um nóg^að tala. Á meðfylgjandi myndum má sjá mörg kunnugleg andlit úr hópi frumsýningargesta en lík- lega er réttast að láta myndirnar tala sínu máli og láta lesendum eftir að geta í eyðurnar varðandi afstöðu til leikritsins og áhrif þess. .„Tráust leikstjórn... stórkost- legur... afar traust... mikil til- þrif... endurspegla hæfileika þeirra... leikmyndin er lista- smíð,“ segir m.a. í leikdómi Stef- áns. Er ekki rétt að fara og sjá þetta verk? ET TÓNLEIKAR í AKUREYRARKIRKJU Fimmtudaginn 10. mars kl. 20.30, stendur Kirkjukór Akureyrarkirkju fyrir tónleikum ásamt einsöngvurum og kammersveit. Á efnisskránni verða: Stabat Mater eftir Pergolesi og Kantata eftir Georg Philipp Telemann. Einsöngvarar: Kristinn Sigmundsson bassi, Margrét Bóas- dóttir sópran og Þuríður Baldursdóttir alt. Konsertmeistari: Lilja Hjaltadóttir. Stjörnandi og organisti: Björn Steinar Sólbergsson. ★ Aðgöngumiðar við innganginn ★ KIRKJUKÓR AKUREYRARKIRKJU Hádegisverðarfundur um horfur í efnahagsmálum Ólafur ísleifsson, efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, ræðir horfur í efna- hagsmálum. Hann ræðir m.a. um stefnu ríkisstjórn- arinnar og síðustu aðgerðir í efnahags- málum, stöðu útflutningsatvinnuveg- anna, vænta verðbólgu og fleiri atriði sem hafa áhrif á gang efnahagsmála. Fundurinn verður á miðvikudag 9. mars nk. að Hótel KEA og hefst kl. 12. Þátttaka tilkynnist til Kaupþings Norðurlands hf. í síma (96)-24700. Hjukrunar- fræðingar Norðurlandsdeild eystri innan H.F.Í. Fundur og leikhúsferð til Húsavíkur mánudaginn 14. mars. Farið verður með rútu frá Umferðarmiðstöðinni (öndvegi) kl. 16.30 stundvíslega. Fundað verður á Hótel Húsavík og matur á eftir. Síðustu forvöð til að koma að tillögum sem senda á fyrir fulltrúafundinn í vor. Um kvöldið kl. 20.30 verður farið á leiksýningu Leikfélags Húsavikur á „Gísl“. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 9. mars. Nánari upplýsingar veita: Barbara: sími 24894, Rósa: sími 22995 og Þóra: sími 23234. 's_____________________________________________________________/ Tilboö Buxur — skyrtur — peysur 30-50% afsláttur 2. hæð V__________________________J

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.