Dagur


Dagur - 08.03.1988, Qupperneq 9

Dagur - 08.03.1988, Qupperneq 9
8. mars 1988 - DAGUR - 9 t>að lá heldur ekki ljóst fyrir hvernig tryggja hefði átt slíka sátt, því samkvæmt ykkar skiln- ingi er stjórn óbundin af sam- þykktum fyrri stjórna. Þið hefð- uð því þurft að sitja fram yfir landsmót 1990 til að tryggja að sú sætt yrði ekki rofin, en við skul- um nú vona hestamennskunnar vegna að sú verði ekki raunin. Sáttargjörð á fundi í Varmahlíð Þá er það þetta samningsboð sem þú minnist á, sem felst í því að skipa milliþinganefnd sem skili áliti til næsta ársþings. L.J. virð- ist vera búinn að gleyma því að á síðasta ári var starfandi nefnd um þetta sama mál. Hún skilaði áliti löngu fyrir ársþing og þar voru m.a. lagðar fram þessar sömu hugmyndir, gerðar af Jónasi Vig- fússyni frá Hestamannafélaginu Funa í Eyjafirði. Hvaða af- greiðslu fengu þær? Það var ekki einu sinni rætt um þær. Að hugsa sér að fara að setja á stofn nefnd sem hafi það eitt hlutverk að tala um mál sem afgreitt var frá lands- þingi fyrir fáeinum vikum og að við frestum ákvörðun okkar um heilt ár er hreint og beint fráleitt. En hver er raunverulegur sáttar- hugur L.H.? Hefur ekki komið fram á stjórnarfundi að fara norður til að ræða við Eyfirðinga áður en í óefni væri komið? Hver voru viðbrögðin? Engin. Stjórn L.H. ber skylda til á hverjum tíma að virða rétt sinna félags- manna og reyna allt sem í hennar valdi stendur til að leysa deilumál þau sem upp kunna að koma. inanna svo allir geti sameinast á ný undir merki réttlætis og drengskapar, hestamennskunni til heilla,“ segir m.a. í grein Jóns Það gerði stjórn L.H. 1980. Þá var uppi deila og hún leysti það mál farsællega með sáttargjörð á títtnefndum Varmahlíðarfundi. í ársskýrslu L.H. 1980 gerir stjórn samtakanna ýtarlega grein fyrir gangi þess máls og því samkomu- lagi sem náðist eftir að haldinn hafði verið fundur á Akureyri daginn áður. Afgreiðsla þessa máls frá hendi núverandi meirih- luta stjórnar L.H. er hnefahögg framan í þá menn sem þá voru við stjórn sambandsins. Hefur fyrrv. form. samtakanna, Albert Jóhannsson, marglýst því yfir að sú sáttargjörð var gerð af heilum hug og ekki ætlast til að henni yrði kastað fyrir borð í þágu stundarhagsmuna einstakra félaga. Álit milliþinga- nefndar L.H. Og ekki er ein báran stök. I Degi 25. febr. kemur L.J. enn fram með fullyrðingu þess efnis að ég hafi farið með rangt mál í DV 19. febr. sl. Leyfi ég mér að vitna í álit milliþinganefndar L.H. um fyrirkomulag fjórðungs- og landsmóta sem lagt var fram á sl. ársþingi. „Einn nefndarmanna Jónas Vigfússon lagði fram hugmyndir í nefndinni um breytt fyrirkomu- lag fjórðungs- og landsmóta. Önnur tillagan hljóðar upp á, að leggja fjórðungsmótin niður og taka þess í stað upp héraðssýn- ingar kynbótahrossa og að lands- mótum verði skipt í landsmót kynbótahrossa annars vegar og hins vegar landsmót gæðinga og verði mótin haldin til skiptis ann- að hvert ár. Hin tillagan fjallar um að ef héraðssýningar þættu ekki aðgengilegur kostur, mætti hugsa sér að sleppa aðalhéraðs- sýningum, en hafa þær með svip- uðu sniði ognúer og halda fjórð- ungsmótum áfram á Vestur- og Austurlandi. TiIIagan felur það í sér, að landsmót yrðu annað hvert ár á Suður- og Norður- landi, en fjórðungsmót til skiptis á Vestur- og Austurlandi milli landsmóta. Hér er um allróttæk- lón Jónsson verkamaður taki púls slagæðar þjóðfélagsins. dæma á eftir lesendabréfum frá fólki af landsbyggðinni vegna þessa máls, er svo að sjá sem „meinsemdin" breiði úr sér út um landið. Svo er að sjá sem gegndarlaus áróður Grænfriðunga um friðun sjávarspendýra, hafi ruglað landsmenn svo í ríminu, að þeir hafi hreinlega týnt áttum. Sú skoðun virðist vera orðin ansi útbreidd, að það sé allt í lagi að skjóta beljur, hesta, kindur, fugla og jafnvel í einstaka tilfell- um fólk, en algjörlega sé forboð- ið að stugga við selum, hvöjum og nú seinast ísbjörnum. Af þessu er ekki hægt að álykta annað en að fólk hafi slitnað úr tengslum við veruleikann og upp- runa sinn um leiö. Er ekki ansi rnikil mótsögn í því að við íslend- ingar sem frá alda öðli höfum lif- að af því sem landið og hafið í kringunt það gefur, skulum nú vera farnir að vinna með aðal- samkeppnisaðila okkar. Því sjáv- arspendýrin éta slík ógn af fiski, að ef þessir dýrastofnar verða friðaðir og lífkeðja náttúrunnar þannig rofin, þýðir það ekkert annað en stórkostlega skerðingu á fiskistofnum okkar. Tvö menningarsamfélög Það virðist nefnilega vera þannig að stór hluti fólks sé algjörlega búinn að gleyma því á hverju við lifum. Kannski að sumu leyti ekki nema von þegar þróunin undanfarin ár hefur verið þannig að allt sogast suður. Þar sem þjónustuatvinnuvegirnir ríkja í svo yfirgnæfandi mæli á atvinnu- markaðinum að framleiðslu- greinarnar hverfa algjörlega í skuggann. Svo mjög að fólk fær það á tilfinninguna að það lifi hvert á öðru. „Sumir halda jafn- vel að maturinn verði til í kjör- ar breytingar að ræða á núver- andi skipulagi mótahalds og telur nefndin ekki rétt að gera tillögur um slíkar breytingar án undan- genginnar umræðu í hesta- mannafélögunum og á Lands- þingi hestamanna. Tillögur Jón- asar fylgja hér með. “ Tillögurnar fengu ekki afgreiðslu Hvað segir þetta okkur. Það segir mér það að nefndarmenn treystu sér ekki til að standa að þessum tillögum Jónasar heldur eru þær látnar fylgja með og síðan afgreiddar með þögninni. Hvort menn kalla það klofning eða ekki geta menn deilt um. Þessar tillög- ur komu fram en fengu enga afgreiðslu og nú viljið þið túlka þær sem eitthvert samningsboð af ykkar hálfu! Málið snýst einfald- lega ekki um fjölda landsmóta. Það að halda því fram að þetta sé raunhæfur samningsgrundvöllur er einungis til að slá ryki í augu þeirra sem lítið þekkja til mál- anna, enda hefur það margoft komið fram að bæði L.J. og K.Á. eru fylgjandi tveimur og jafnvel einum landsmótsstað, þannig að hver rnaður getur séð heilindin í þessu. Það er ekki rétt sem L.J. held- ur fram að það hlakki í nefndum Jóni yfir þessum málalokum. Mér er miklu fremur harmur í huga. Harnrur vegna þeirrar ógæfu sem dunið hefur yfir sam- tök hestamanna í vali á forystu- mönnum. En farsóttir ganga yfir og vonandi birtir fljótt til hjá samtökum hestamanna svo allir geti sameinast á ný undir merki réttlætis og drengskapar, hesta- mennskunni til heilla. Jón Ólafur Sigfússon. (Pað skal tekið fram að þessi grein er persónulegt framlag mitt til þess- ara mála, einungis til að svara þeim ásökunum sem L.J. hefur sett fram á hendur mér. Finnst mér tíma mín- um betur varið til annars en stunda blaðaskriftir um mál sem ckki verð- ur útkljáð á síðum blaða oghefekki í hyggju að ræða þetta mál frckar opinberlega.) búðunum.“ Svo djúpt hefur mað- ur heyrt fólk taka í árinni þegar þetta „rótarslit" fólksins á Stór- Reykjavíkursvæðinu hefur borið á góma. Svo er alltaf verið að tala um að við séum svo rík. Við eigum þennan mikla og fræga menning- ararf, og þekkjum svo vel upp- runa okkar og tilveru alla. Við getum svo sannarlega verið stolt af öfum okkar og ömmum sem með þrautseigju og seiglu náðu að sigrast á öllum erfiðleikum. Á þeim tímum þegar enginn komst hjá misblíðri sambúð við móður náttúru, hvort heldur var til lands eða sjávar. En er það kannski að verða svo nú, að hér í landinu búi tvö menningarsamfélög? Annað sem finnur sjálfa lífæðina slá og hefur tilfinningu fyrir grundvelli sam- félagsins, framleiðsluatvinnu- vegunum. Og hitt sem heldur að maturinn verði til í kjörbúðun- um. Með þetta í huga finnst manni allt tal um menningararf íslensku þjóðarinnar, eina íslenska þjóð í menningarlegu tilliti og annað slíkt, hljóma sem hjóm eitt. Þórhallur Ásmundsson.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.