Dagur


Dagur - 08.03.1988, Qupperneq 15

Dagur - 08.03.1988, Qupperneq 15
íþróttir ös&n^ft,1,8*8 in-15 Skógargangan: Akureyringar sigursælir Skógargangan, þriðji hluti Islandsgöngunnar í skíðagöngu fór fram á Egilsstöðum á laug- ardag. Keppt var í þremur flokkum og voru gengnir 25 Aðalfundur Þórs: Öll stjórnin endurkjörin Stjórn íþróttafélagins Þórs á Akureyri var öll endurkjörin á aðalfundi félagsins á föstudag- inn í síðustu viku. Aðalsteinn Sigurgeirsson mun því sitja áfram sem formaður félagsins næsta starfsár. Aðrir í stjórninni eru Rúnar Gunnarsson varaformaður, Ragnar B. Ragnarsson gjaldkeri, Páll Baldursson ritari, Kristján Torfason spjaldskrárritari og Gunnþór Hákonarson með- stjórnandi. Varamenn eru þeir Árni Gunnarsson, Reynir Karls- son og Ævar Jónsson. Þá var Hallgrímur Skaptason kjörinn fulltrúi Pórs í stjórn ÍBA. km. Keppendur voru 16 en auk þess tóku 28 göngumenn þátt í trimmgöngu án tíma- töku. Gengið var í Egilsstaðaskógi en upphaf göngunnar og endir var á sjúkrahústúninu á Egilsstöð- um. Aðstæður voru hinar bestu, færið ágætt og veður með ein- dæmum gott. Akureyringar sigr- uðu í öllu flokkunum þremur en úrslit urðu þessi: Karlar 17-34 ára: 1. Haukur Eiríksson A 1:31,17 2. Ólafur H. Björnsson Ó 1:36,08 3. Sigurgeir Svavarsson Ó 1:36,10 Karlar 35-49 ára: 1. Sigurður Aðalsteinss. A 1:40,17 2. Ingþór Bjarnason f 1:52,09 3. Sigurður Bjarklind A ■ 1:52,16 Karlar eldri en 50 ára: 1. Rúnar Sigmundsson A 1:54,14 2. Sigurður Jónsson í 2:12,00 Bláfjallagangan, fjórði hluti íslandsgöngunnar fer fram í Blá- fjöllum laugardaginn 19. mars en fimmti og síðasti hluti göngunnar er Fossavatnsgangan og fer hún fram á ísafirði laugardaginn 30. apríl. Ársþing HSÞ: Ingólfur Freysson kjörínn formaður - Ágústa Pálsdóttir kjörin íþróttamaður ársins 1987 Ársþing Héraðssambands Suð- ur-Þingeyinga var haldið að Sólvangi á Tjörnesi sl. sunnu- dag. Ingólfur Freysson var ein- róma kjörinn formaður HSÞ við mikinn fögnuð fundar- manna en Kristján Yngvason fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Tals- verðar breytingar urðu á stjórn sambandsins. Að sögn Gunnars Jóhannes- sonar framkvæmdastjóra HSP var vel unnið á þinginu. Þingstörf voru með hefðbundnum hætti, mikil samstaða ríkti og voru þau mál sem upp komu leyst á góðan rnáta. Gott samkomulag náðist um skiptingu tekna af landsmót- inu og um skiptingu tekna af lottóinu og verður hún svipuð og á síðasta ári. Ingólfur Freysson formaður HSÞ. Lýst var kjöri íþróttamanns ársins, sundmanns ársins og frjálsíþróttamanns ársins. Ágústa Pálsdóttir, Bárðardal var bæði kjörin íþróttamaður ársins og frjálsíþróttamaður ársins en sundmaður ársins er Þórhalla Gunnarsdóttir, Húsavík. Gestir þingsins voru: Guðni Halldórsson sem í fyrra gegndi stöðu framkvæmdastjóra lands- mótsins, Hermann Sigtryggsson stjórnarmaður ÍSÍ, Pálmi Gísla- son formaður UMFÍ og Sigurður Þorsteinsson framkvæmdastjóri UMFÍ. IM Haukur Eiríksson kominn í mark sem sigurvegari í Skógargöngunni á iaug- ardag. Með honum á myndinni er Mats Westerlund landsiiðsþjálfari í göngu. Mynd: GB að leggja FH að velli? - Liðin leika í Höllinni í kvöld í kvöld kl. 19 fer frani stórleik- ur í handbolta í íþróttahöllinni á Akureyri. Þar mætast Þór og FH í kvennaflokki og er leikur liöanna liður í bikarkeppni HSÍ. FH hefur á að skipa eina besta liði I. deildarinnar en Þórsstelp- urnar hafa nýlega tryggt sér sæti í 1. deild að ári. Það gæti því orðið um fjöruga viðureign að ræða og spennandi verður að sjá hvort mikill styrkleikamunur er á lið- unum. Þórsstelpurnar ætla sér ekkert annað en sigur í leiknum og eru handknattleiksunnendur á Akur- eyri hvattir til þess að mæta í Höllina og hvetja þær til dáða. Knattspyrna: ÓL-landsliðiö í keppnisferð - leikur þrjá leiki í Holiandi íslcnska ólympíulandsliðiö í knattspyrnu lieldur til Hol- lands á föstudag, þar sem liðið mun dvelja í um vikutíma við æfingar og keppni. Liðið mun leika þrjá æfingaleiki ytra, gegn hollensku áhugamanna- liði á sunnudag, gegn 1. deild- ar liði Spörtu Rotterdam á þriðjudag eftir viku og loks gegn 1. deildar liði Haarlem á fimmtudaginn. Þessi ferð er liður í undirbún- ingi liðsins fyrir lokaátökin í undankeppni ólympíuleikanna. íslenska liðið á eftir að leika fjóra leiki í keppninni og fara þeir allir fram á mánaðartíma nú í vor. Liðið á eftir að leika gegn Hol- lendingum og A.-Þjóðverjum úti en Portúgölum og ítölum heima. í ferðina til Hollands voru valdir 18 leikmenn og þeir eru eftirtaldir: Markverðir: Birkir Kristinsson Fram Guðmundur Hreiðarsson Víkingi Aðrir leikmenn: Guðni Bergsson FC 1860 Múnchen Þorsteinn Þorsteinsson Fram Ágúst Már Jónsson KR Ingvar Guðmundsson Val Golfkennsla í Stefnishúsinu Það styttist í að golfvertíðin hefjist og því kominn tími fyrir þá sem ætla að leika golf í sum- ar að fara að hefja æfingar. David Barnwell golfkennari GA hefur fengið inni hjá Bif- reiðastöð Stefnis við Óseyri og þar gefst kylfingum kostur á að æfa sig, hvort sem er undir handleiðslu hans eða bara út af fyrir sig. Þar er opið alla daga vikunnar á milli kl. 16 og 22. Þá hefur Barnwell ákveðið að gefa þeim sem áhuga hafa á því að kynnast golfíþróttinni fría kennslu í einn tíma og í fram- haldi af því getur fólk haldið áfram að æfa hjá honum. Barn- well er með alían golfbúnað til sölu, þannig að ekki þarf fólk að setja fyrir sig að eiga ekki búnað. Á sunnudögum er Barnwell með unglingatíma frá kl. 15-18 og er hún fyrir alla kylfinga 20 ára og yngri, jafnt byrjendur og þá sem lengra eru komnir. Þeir sem hafa hug á að fara að æfa, geta haft samband við Barnwell í golfskálanum að Jaðri alla daga vikunnar á milli kl. 10 og 12 og seinni part dags í húsi Stefnis víð Óseyri. Pétur Arnþórsson Fram Viðar Þorkelsson Fram Ormarr Örlygsson Fram Halldór Áskelsson Þór Ólafur Þórðarson ÍA Heimir Guðmundsson IA Þorvaldur Örlygsson KA Rúnar Kristinsson KR Sveinbjörn Hákonarson Stjörn. Guðmundur Steinsson Fram Jón Grétar Jónsson Val Kristinn Jónsson Fram Fjórir leikmenn voru valdir til vara, þeir Páll Ólafsson KR, Þor- steinn Guðjónsson KR, Loftur Ólafsson KR, Kristján Jónsson Fram og Hlynur Birgisson Þór. Halldór Áskelsson Þórsari og Rúnar Kristinsson KR-ingur eru í ÓL-hópn- um sem heldur til HoIIands á föstudag. Þessi mynd er úr leik Þórs og KR í sumar. Mynd: RÞB Handbolti yngri flokka: Þór með fjóra flokka í úrslit Keppni í Norðurlandsriðli á íslandsiuóti yngri flokka í handbolta lauk á Húsavík um helgina. Það varð Ijóst hvaða lið komast í úrslitakeppnina í hverjum flokki sem hefst innan skamms. Þór mun eiga fjóra flokka í úrslitum að þessu sinni en KA einn. Þórsarar urðu hlutskarpast- ir í 5., 4. og 3. flokki karla og 3. flokki kvenna en KA stóð sig best í 4. flokki kvenna. Vegna plássleysis í blaðinu verður nánari umfjöllun um leik- ina á Húsavík, að bíða til morguns. Bikarkeppni kvenna: Tekst Þór

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.