Dagur - 14.03.1988, Page 2

Dagur - 14.03.1988, Page 2
2 - DAGUR - 14. mars 1988 Formaður Loðdýra- ræktarfélags Eyjafjarðar: „Verðum að fá fýrir framleiðslu- kostnaði" „Ég er ánægður með þessa stefnu, nú er það spurningin hvernig þessu verður fylgt eftir. Það er af því góða að stjórnvöld brugðust við mál- inu, nefndin hefur starfað í sex vikur en hugsanlega hefði þurft að skipa í hana fyrr,“ sagði Magnús Matthíasson, formaður Loðdýraræktarfé- lags Eyjafjarðar, þegar hann var spurður álits á fyrirhuguð- um aðgerðum stjórnvalda til hjálpar refabændum. Magnús sagði, að þar sem ekki hefðu borist fréttir af því hvernig tillögur stjórnskipuðu þriggja manna nefndarinnar um aðstoð við refabændur væru í smáatrið- um, væri erfitt að segja nákvæm- lega til um hvernig þær verkuðu. Þó væri Ijóst að þessar aðgerðir, sem m.a. beinast að því að rétta við fjárhag fóðurstöðvanna, yrðu mörgum til hjálpar. í tillögum nefndarinnar er mælt með því að refabændum veröi greitt framleiðsluverð fyrir skinnin þetta árið fram á næsta haust, en þá geti menn frekar skipt yfir í minkinn og keypt sér betri lífdýr en fást á þessum árstíma. Magnús sagði, að ef fullt framleiðslukostnaðarverð væri greitt þá bjargaði það þessu ári, svo framarlega sem rekstrar- grundvöllur fóðurstöðva yrði bættur samhliða. Þá ætti þokka- legur rekstrargrundvöllur að skapast næsta haust. „Ástandið er slæmt hjá mörg- um refabændum, þeir hafa rekið búin með tapi undanfarin þrjú ár. Sumir bændur eru komnir svo langt niður að þeim verður ekki bjargað þótt þeir fái framleiðslu- kostnað greiddan þetta árið. Ef fóðurstöðvarnar verða settar á betri grundvöll þannig að þær þurfi ekki að hækka verð nema til samræmis við verðlag innanlands þá kemur slíkt minkabændum til góða,“ sagði Magnús. EHB DAGUR Húsavík S 9641585 Norðlenskt dagblað Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra ávarpar gesti er Íausullarbúnaðurinn var tekinn í notkun. Mynd: -þá Steinullarverksmiðjan: Vinnur lausull úr af- skurði sem áður var hent Sl. þriðjudag var tekinn í notk- un í Steinullarvcrksmiöjunni búnaður sem vinnur lausull úr afskurði frá framleiðslu verk- smiðjunnar. Með tilkomu laus- ullarbúnaðarins verða 7-8% af framleiðslunni sem áður var hent komið í verð. Fram til þessa hefur þurft að urða þennan úrgang með ærnum til- kostnaði á öskuhaugum bæjar- ins. Gert er ráð fyrir að lausull- arbúnaðurinn borgi sig upp á skömmum tíma. í tilefni þessa tímamóta var iðnaðarráðherra, ráðuneytis- mönnum, þingmönnum kjör- dæmisins, bæjarfulltrúum og forráðamönnum fyrirtækja á Sauðárkróki boðið í verksmiðj- una. Áður en Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra ræsti búnaðinn gat hann þess að tilkoma Stein- ullarverksmiðjunnar hefði orðið til þess að verð á einangrunarefn- um hér á landi hafi lækkað. Taldi hann að með breyttri rekstrar- stöðu fyrirtækisins, að lokinni fjárhagslegri endurskipulagningu, hafi verksmiðjan sannað tilveru- rétt sinn. Áður en lausullarbúnaðurinn var vígður var gestum sýnd verk- smiðjan. Einar Einarsson fram- leiðslustjóri skýrði vinnslurásina í stjórnherbergi verksmiðjunnar og Þórður H. Hilmarsson fram- kvæmdastjóri ávarpaði gestina. í máli hans kom fram að nokkuð bjart virðist framundan í rekstr- inum og fyrir dyrum stæði og fjölga þeim vöruflokkum sem verksmiðjan framleiðir. Neyt- endum virðist líka framleiðslan vel og allt útlit er fyrir aukningu í sölu bæði innanlands og utan. T.d. verður í næsta mánuði farið að flytja steinull til Englands til viðskiptaaðila sem nýbúið er að gera samning við. Sala á lausullinni hefur þegar verið tryggð. Gerður hefur verið samningur við fyrirtækið Húsein- angrun og er reiknað með að notkun þeirra á innanlandsmark- aðnum verði um fjórðungur árs- framleiðslunnar. Og finnski samstarfsaðilinn Partek, sem einnig er hluthafi í Steinullar- verksmiðjunni, hefur gefið fyrir- heit um að kaupa þann hluta framleiðslunnar sem ekki fer til notkunar hér heima. Árlega falla til um 350-400 tonn af steinulla- rafskurði sem nú verður notaður til lausullarvinnslu. -þá Húsavík: Notkun Ijósa og belta gengur nokkuð vel Bflstjórum á Húsavík hefur gengið nokkuð vel að tileinka sér notkun ökuljósa og örygg- isbelta að sögn lögreglunnar á Húsavík. Frá því ný umferðarlög tóku gildi um mánaðamót hefur lög- reglan fylgst daglega með notkun ljósa og belta. Lögreglan blikkar ljósum lögreglubifreiðanna til þeirra sem gleyma ökuljósunum sínum eða ræðir við þá. Ekki er fyrirhugað að grípa til harðari aðgerða alveg á næstunni gagn- vart þeim gleymnu. „Við vonum að þetta komi með góðu,“ sagði Daníel Guðjónsson lögreglu- maður. IM Hitaveita Dalvíkur: Hækkun á heitu vatni Verðhækkun á heitu vatni frá Hitaveitu Dalvíkur sem veitu- stjórn samþykkti fyrr í vetur kom til framkvæmda um síð- ustu mánaðamót. Verðhækk- unin nemur 10%. Samkvæmt þessu er verð á rúmmetra af heitu vatni nú 23,08 kr. eftir hækkunina. Veitustjórn ákvað einnig að fastagjald taki sömu hækkun eða 10%. frá 1. mars. JÓH Bridds: Opið sveita- mót á Húsavík Helgina 8.-10. apríl n.k. verð- ur haldið opið sveitamót í bridds á Húsavík. Spilaðar verða 9 umferðir 16 spila leikja, eftir Monrad-kerfi. Auk þess sem keppt verður um silfurstig, eru vegleg verðlaun veitt fyrir efstu sætin. Sú sveit sem hreppir fyrsta sætið fær að launum fjóra farseðla, Reykjavík - Gautaborg - Reykjavík, á opið sveitamót í Tylösasandur. Verð- laun fyrir 2. sætið eru helgarferð, flug og gisting í tvær nætur fyrir fjóra, til einhvers af áfangastöð- um Flugleiða innanlands. Þetta boð nýtist fyrir næstu áramót og lýtur reglugerðum Flugleiða þar um. Fyrir 3. sætið verða veitt 20 þúsund króna peningaverðlaun. Keppnisgjald er 8 þúsund krónur á sveit. Mótið verður sett kl. 20.00 föstudaginn 8. apríl en því lýkur kl. 17.00 sunnudaginn 10. apríl. í tengslum við mótið verður boðið upp á sérstakar pakkaferðir til Húsavíkur. Ann- ars vegar er flugferð Reykjavík - Húsavík - Reykjavík með gist- ingu í tvíbýli í tvær nætur, morg- unverður innifalinn. Verð kr. 7.700 á mann. Fyrir þá sem koma annars staðar frá er boðið upp á gistingu í tvíbýli í tvær nætur, morgunverður innifalinn. Verð kr. 2.268 á mann. Þátttaka tilkynnist fyrir 29. mars til Ævars á Ferðaskrifstofu Húsavíkur í síma 96-42100 eða til Björgvins Leifssonar hs: 96- 42076, vs: 96-41344, og veita þessir aðilar nánari upplýsingar. Austur-Húnavatnssýsla: Sauðfé fækkar Sauðfé fækkaði mjög mikið í Austur-Húnavatnssýslu á síð- asta ári og nam fækkunin 5716 kindum, sem er 13,2% af því sauðfé sem var á fóðrum í sýsl- unni veturinn áður. Stór hluti af fækkuninni er vegna niður- skurðar fjár frá bæjum þar sem riðuveiki hefur herjað á hjarð- irnar. Vegna riðuveikinnar var allt sauðfé skorið niður á 14 bæjum í sýslunni og þar að auki gerðu fjórir bændur samning við fram- leiðnisjóð um fækkun sauðfjár, þ.e.a.s. seldu eða leigðu fullvirð- isrétt jarðanna. Áður var búið að skera niður fé af nokkrum bæjum ..vegna.xiðuveikinnar .sv.o. þet.ta e.r ekki fyrsta haustið sem sauðfé hefur verið fækkað af þeim orsökum í Húnavatnssýslu. I Vatnsdal hefur riðan verið viðloðandi í áratugi og var niður- skurðurinn mestur þar. Paðan var slátrað 2500 ám frá sex bæj- um vegna veikinnar. Vitað er um riðu á þremur bæjum til viðbótar, og stefnt er að niðurskurði á þeim hjörðum á komandi hausti. Að sögn Sigurðar H. Péturs- sonar, héraðsdýralæknis voru 4900 ær skornar niður á sl. hausti vegna riðuveikinnar. Hann sagði að veikin gæti víða leynst og kæmi þar einkanlega tvennt til. Bæði væri féð mismundi sterkt gagnyart, vejkjnni og eins væri , mikiö riðusýkillinn af fleiri en einum stofni, missterkum. Sigurður sagði að tilraunir hefðu verið gerðar í Englandi með því að sprauta heilbrigðar kindur með riðusýkli. Hefði sumt af fénu veikst eftir 13 til 18 mán- uði, en hluti þess hefði verið lif- andi og ekki orðið veikt sjö árum síðar, þegar niðurstöður tilraun- arinnar voru birtar. Hann sagði að dýralæknar teldu að taka muni 20 til 30 ár að útrýma riðuveikinni og það sé útilokað nema í mjög góðri sam- vinnu við bændur. Ekki er vitað til að riðuveiki hafi komið upp á áður ósýktum bæjum í Húnaþingi, það sem af er þessum vetri. fh gsrrrr., 2 - — Sauðfé í Austur-Húnavatnssýslu fækkaði um 13,2% á síðasta ári. ............................................................

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.