Dagur - 14.03.1988, Side 3
14. mars 1988 - DAGUR - 3
„Heimamenn hafi fmm-
kvæði í búrekstrari(önnun“
-segir Jón Helgason landbúnaðarráðherra
„Það er mikilvægt að heima-
menn hafí frumkvæði í þessari
könnun,“ segir Jón Helgason
landbúnaðarráðherra um
könnun á búrekstraraðstöðu.
Þar vísar hann til sainnings
milli stjórnvalda og forsvars-
manna bænda sem undirritað-
ur var samhliða búvörusamn-
ingi 20. mars 1987. Þetta kom
fram í svari ráðherra við fyrir-
spurn Hjörleifs Guttormsson-
ar á Alþingi um framkvæmd
þessa samkomulags.
Bókunin sem gerð var var svo-
hljóðandi: „Aðilar munu beita
sér fyrir því, að sá umþóttunar-
tími sem landbúnaðurinn fær með
samningi þessum til búháttabreyt-
inga og hagræðingar í framleiðslu
og vinnslu mjólkur og kinda-
kjöts, nýtist sem best og að í því
skyni verði m.a. lokið sem fyrst
úttekt á búrekstraraðstöðu á öll-
um jörðum á landinu og áætlun
um endurskipulagningu vinnslu-
og dreifingarstöðva. Samnings-
aðilar munu beita sér fyrir sam-
ræmingu á störfum þeirra aðila
sem haft geta áhrif á framgang
þessara mála.“
í svari ráðherra kom fram að á
vegum Ræktunarfélags Norður-
lands var unnin búrekstrarkönn-
un á árinu 1986. Úrvinnslu vegna
þessa verkefnis var lokið snemma
á árinu 1987. Mikið af þeim upp-
lýsingum er þegar komið út á
vegum Framleiðsluráðs og Bún-
aðarfélags íslands. Á þessu svæði
voru 1407 bújarðir sem könnunin
náði til. Heildarkostnaður á veg-
um Ræktunarfélagsins vegna
þessa verks var 670 þúsund og
veitti Framleiðnisjóður landbún-
aðarins styrk til verksins, apk
fleiri aðila.
Búnaðarsamband Vestfjarða
hefur látið vinna hliðstæða
könnun, einnig með nokkrum til-
styrk Framleiðnisjóðs. Það verk
var unnið haustið 1986 og vorið
1987. Bújarðir á því svæði sem
könnunin náði til töldust vera
229.
Búnaðarsamband Austurlands
kaus aðra leið, en það fól
Byggðastofnun að gera úttekt á
búskaparaðstöðu og yfirlit yfir
atvinnu- og búsetumöguleika í
þremur ystu hreppum á Héraði.
Verk þetta vann Kristján Magn-
ússon á Vopnafirði, og gaf
Byggðastofnun út skýrslu um
niðurstöður hans í september sl.
í lok ræðu sinnar sagði ráð-
herra að: „Á það skal bent að
sumir þættir þessara kannana
hafa verið unnir á mjög ódýran
hátt þannig að óvíst er hvort aðr-
ir aðilar munu framkvæma hlið-
stætt verk með jafn hagkvæmum
hætti. Traust staðþekking
starfsmanna áðurnefndra búnað-
arsambanda hefur átt mestan
þátt í þessu. Það er af fleiri
ástæðum mikilvægt að heima-
menn hafi forystu í könnun sem
þessari. Af hálfu landbúnaðar-
ráðuneytisins hefur því verið
lögð áhersla á að svo væri. Hefur
ráðuneytið hvatt önnur búnaðar-
sambönd til þess að ljúka bú-
rekstrarkönnun á sínum starfs-
svæðum með þeim hætti, sem
gert hefur verið á Norðurlandi og
Vestfjörðum.“ AP
Frá Öngulsstaðahreppi í Eyjafirði. Ræktunarfélag Norðurlands vann bú-
rekstrarkönnun á árinu 1986.
II
Frábært úrval.
\
Þýsku stretchbuxurnar frá
mobi/
e/asto
NÝTT
Jakkaföt frá Roy Robson
einhneppt og tvíhneppt.
Skyrtur í miklu úrvali.
Peysur og bolir frá
nú fáanlegar í 5 litum.
S\°0 eíjkaf‘i-
sÖ9u r'
SÍMI
(96)21400
Rúllukragabolirnir
vinsælu verö kr. 750.-
Gallabuxur og
kakibuxur frá
49 R
49 R
utgerðarmenn: sjomenn:
ALLT TIL FISKVEIÐA HJÁ
ÞJÓNUSTUMIDSTÖÐ
SJÁVARÚTVEGSINS.
Asiaco hf. hefur þjónaö sjávarútveginum í
meira en aldarfjórðung. Við bjóðum úrval
veiðarfæra, búnaðar og rekstrarvara til fisk-
veiða og fiskiðnaðar. Einnig seljum við fyrir
ykkur aflann.
Reynið viðskiptin. Hröð afgreiðsla af lager
eða beint frá framleiðendum.
asiaco
Vesturgötu 2 Pósthólf 826
121 Reykjavík Sími (91) 26733