Dagur - 14.03.1988, Blaðsíða 5
14. mars 1988 - DAGUR - 5
Mikil spenna var á fundinum vegna deilna eyfirskra hestamanna og stjórnar
LH. í lok fundar voru eyfirsku fulltrúarnir kvaddir með virktum og hér sést
einn fundarmanna kveðja Jónas Vigfússon formann Funa. Mynd: jóh
ályktun og hún fyrst lesin fyrir
eyfirsku fulltrúana fjóra áöur en
hún var borin upp fyrir fundar-
menn. Það lýsir kannski best
andrúmsloftinu á fundinum og
þeim vilja sem menn virtust hafa
til að fá sættir í þessu deilumáli
að fundargestir risu úr sætum og
klöppuðu er Leifur Kr. Jóhannes-
son formaður LH las ályktun
fundarins.
Fara félögin í LH aö nýju?
Að loknum þessum fundi standa
menn frammi fyrir þeirri spurn-
ingu hvort þessi ályktun verði til
að eyfirsku hestamannafélögin
gangi í Landssamband hesta-
mannafélaga á ný. Hvert er álit
formanna félaganna fjögurra á
því?
„Mér finnst þetta þó nokkuð
mikil viðurkenning sem við fáum
á okkar málstað. í>ó stendur það
auðvitað eftir að upphaf þessa
máls er að mótið skuli haldið í
Skagafirði og sú ákvörðun stend-
ur enn. En það er búið að viður-
kenna að rangt hafi verið að
ganga fram hjá okkar mótsstað
og samþykkt fundarins í Varma-
hlíð 1980. En það er langur vegur
frá að með þessu séu eyfirsku
félögin komin inn í LH. Til þess
þarf aðalfund til að skera úr um
inngöngu á ný,“ sagði Jónas
Vigfússon formaður hestamanna-
félagsins Funa í Eyjafirði.
„Eg er nokkuð ánægður með
niðurstöðu fundarins. Eftir því
sem mál voru að þróast þá tel ég
að okkur hafi tekist að ná fram
ákveðnum þáttum sem við vorum
búnir að leita eftir. Þetta er ekki
neinn sigur en sennilega það
skásta í stöðunni eins og hún var
orðin. Þetta er það fyrsta sem við
getum hugsað okkur til þess að af
inngöngu megi verða,“ sagði Jón
Ólafur Sigfússon formaður
Léttis.
Jón Ólafur sagði að aðalfundur
félagsins á næsta ári þurfi að taka
fyrir hvort aftur verði sótt um
inngöngu í LH og of snemmt sé
enn að spá fyrir um slíkt. „Það er
með þessu búið að stíga fyrsta
skrefið en spurningin er hins veg-
ar sú hvort þetta skref er nógu
stórt. En í heild held ég að við
Eyfirðingar höfum komið mjög
sterkir út úr þessum fundi,“ bætti
Jón Ólafur við.
Samkvæmt lögum hestamanna-
félagsins Hrings á Dalvík þarf
ekki að bíða aðalfundar til að
ákveða hvort sótt verður um inn-
göngu í LH að nýju. Ákvörðun
um slíkt liggur því hjá félags-
mannafundi.
„Mér líst vel á þessa niður-
stöðu., Þetta er mjög jákvætt,
hvað sem framtíðin á eftir að
bera í skauti sér varðandi inn-
göngu í LH að nýju. Slíkt þarf að
ræða á félagsmannafundi sem
væntanlega verður haldinn á
næstunni," sagði Þorsteinn Hólm
Stefánsson formaður Hrings á
Dalvík.
„Ég er ánægður með að stjórn
LH skuli senda þetta frá sér en
það er engin innganga á dagskrá
hjá okkur á næstunni. Við mun-
um ekki halda sérstakan fund um
stöðuna í málunum heldur verð-
ur slíkt að bíða aðalfundar á
næsta ári,“ sagði Bergvin
Jóhannsson formaður Þráins.
Sameining sjáanleg?
„Það var mjög gagnlegt að fá
umræður um framtíðarskipulag
landsmóta. Þessi fundur var að
mínu viti mjög góður og umræð-
ur góðar. Það fer ekki milli mála
að við vorum búnir að reyna að
finna út ýmsar hugmyndir sem
mættu verða til þess að leysa
ágreiningsmálin. Fundurinn var
boðaður til að kanna stöðu LH
og stjórnar samtakanna og ég er
ánægður með að leið finnst sem
vonandi verður lausn á þessu
deilumáli. Vonandi verður þetta
til að samtökin sameinast á ný,“
sagði Leifur Kr. Jóhannesson
formaður LH eftir fundinn á
laugardaginn.
í sama streng tók Guðrún
Gunnarsdóttir meðstjórnandi í
stjórn LH eftir fundinn. „Málin
eru núna á þeim punkti að erfitt
er að segja til um framhaldið.
Þetta mál er ein stór lexía fyrir
okkur öll innan sambandsins því
mörg sjónarmið eru innan þess.
Þetta gæti komið í veg fyrir að
mistök eins og gerð voru í þessu
máli verði gerð aftur. En ég vona
að Eyfirðingar komi aftur og þeir
geti sætt sig við að vinna innan
samtakanna,“ sagði Guðrún.
Akureyrarkirkja:
Biblíulestrar
í dag mánudaginn 14. mars
hefjast biblíulestrarnámskeið í
Akureyrarkirkju sem öllum
stendur til boða að kostnaðar-
Iausu. Björgvin Jörgensson,
kennari, verður leiðbeinandi á
þessu námskeiði og mun hann
hefja hverja samveru með fyrir-
lestri og síðan svara fyrirspurnum
og leiða umræðu. Björgvin mun
taka fyrir boðorðin 10 og munu
þátttakendur fá fyrirlestrana fjöl-
ritaða í hendur. Hins vegar eru
þeir beðnir að taka með sér rit-
föng auk Biblíunnar.
Fyrirhugað er að hafa námskeið
á mánudagskvöldum milli
kl. 20.30 og 22.00 og vera í kap-
ellunni ef húsrúm leyfir.
Borgarbíó
Alltaf
/ •
nyjar
myndir
Aðalfundur
Félagar í styrktarfélagi vangefinna á Norður-
landi.
Munið aðalfundinn miðvikudaginn 16. mars kl. 20.30
í Iðjulundi Hrísalundi 1b.
Stjórnin.
Tilboð!
Gefjunar\römr verða á tilboðsverði fram til páska.
Þær fást í kaupfélögum víða uin land.
Tifboðsverð á sængum er 2.430 og
á svefnpokum 3.960.
Tilvalið til fermingargjafa.
Saumastofan Ylrún
sími 95-5726.
Akureyríngar:
Lukkutríómiðarnir
fást í Esso nestunum
Mercedes Benz fólksbíll að verðgildi
1,2 milljónir króna
kom á miða sem var seldur í Veganesti
miðvikudaginn 2. mars sl.
6 Benzar eru eftir.
NESTIN Björgunarsveitirnar
Schiesser'T’
suTxjvoaira
I
Verslunin þar sem úrvalið er