Dagur - 14.03.1988, Page 8

Dagur - 14.03.1988, Page 8
8 - DAGUR - 14. mars 1988 Körfubolti úrvalsdeild: f/ íþróttir 1 Bj<>rn Sveinsson í baráttu undir körfunni í leiknum gegn UBK á föstudags- kvöld. Bjöm átti sennilega sinn besta leik með Þór í vetur. Mynd: tlv Kalk er nauðsynlegttil þess að bein og tennurnái fullri lengd, þéttleika og styrk. Kalk í mjólknýtist vel vegna annarra efna í mjólkinni sem vinna með kalkinu. - er Þórsarar lögðu Blikana að velli 97:95 í framlengdum leik „Þetta var mikill baráttuleikur og hann einkcnndist af því en við eigum að geta gert mun betur,“ sagði Þröstur Guð- jónsson þjálfari Þórs í körfu- bolta eftir leikinn við Breiða- blik á föstudagskvöld. „Við stefndum að því í upphafi að komast í þessa stöðu en þetta er alls ekki búið ennþá. Þetta var mjög móralskur sigur fyrir okkur en ég hefði viljað sjá fleiri áhorfendur í Höllinni,“ sagði Þröstur ennfremur. Þær voru aldeilis dramatískar lokamínúturnar í leik liðanna á föstudagskvöld. Þegar 50 sek. voru eftir af venjulegum leik- tíma, var staðan 87:84 fyrir UBK og allt stefndi í sigur liðsins. En Bjarni Össurarson náði strax að minnka muninn í 86:87 og 14 sek. fyrir leiksiok jafnaði Eiríkur Sigurðsson fyrir Þór 87:87 úr vítakasti. Það þurfti því að fram- lengja leikinn um 5 mín. og þá hélt æsingurinn áfram. Þegar 2 mín. voru eftir af fram- lengingunni, var staðan enn jöfn, 93:93 en skömmu síðar skoraði Eiríkur Sigurðsson glæsilega þriggja stiga körfu og breytti stöðunni í 96:93. Blikarnir minnkuðu muninn í 95:96 og fengu auk þess vítaskot þegar 48 sek. voru eftir. Þeim mistókst að skora, Þórsarar náðu boltanum og þegar 9 sek. voru eftir, fékk Eiríkur Sigurðsson tvö vítaskot. Kalk, sem beinin taka upp á unglingsárunum, nýtist velseinna t.d. á meðgöngutíma og á efriárum. Hann skoraði úr fyrra skotinu en ekki því seinna og staðan þá 97:95. Tíminn sem eftir var, dugði Blikunum ekki og Þórsarar fögnuðu sigri bæði lengi og inni- lega. Leikur liðanna var sem fyrr sagði hnífjafn og spennandi en ekki að sama skapi vel leikinn. Jafnt var 6:6 en sfðan komust Blikarnir yfir 14:9. Þá skoruðu Þórsarar 12 stig í röð og brettu stöðunni í 21:14 um miðjan hálf- leikinn. Blikarnir jöfnuðu á ný 29:29 og síðan var jafnt 37:37 og 40:40. Undir lok hálfleiksins var staðan 44:40 Blikum í vil en Bjami Össurarson minnkaði mun- inn í eitt með þriggja stiga körfu frá eigin vallarhelmingi fyrir leikhlé. Sama jafnræðið var með liðun- um í síðari hálfleik og munurinn aldrei meiri en 6 stig. Undir lokin var síðan mikil spenna en Þórsar- ar höfðu betur í framlengingunni eins og áður segir. Þórsarar áttu sem fyrr f mikl- um villuvandræðum og hefði það getað reynst þeim dýrkeypt í leiknum. Konráð Óskarsson fékk 4 villur strax á fyrstu 15 mín. og var þá tekinn útaf. Hann kom síðan inná í síðari háifleik en fékk þá strax sína 5. villu. Síðan fóru þeir Jóhann Sigurðsson, Jón Már Héðinsson og Björn Sveins- son útaf með 5 villur og loks Guðmundur Björnsson í upphafi framlengingarinnar. Eiríkur Sigurðsson var bestur Þórsara í þessum leik og reyndist gífurlega vel í lokabaráttu leiks- ins. Einnig áttu þeir Jón Már, Björn og Bjarni góða kafla í leiknum. Hjá UBK var Kristján Rafnsson skástur. Stig Þórs: Guðmundur Björns- son 20, Eiríkur Sigurðsson 17, Björn Sveinsson 17, Bjarni Össurarson 12, Ágúst Guðmunds- son 9, Jón Már Héðinsson 8, Jóhann Sigurðsson 6, Konráð Óskarsson 6 og Einar Karlsson 2. Stig UBK: Kristján Rafnsson 21, Kristinn Albertsson 19, Guðbrandur Stefánsson 17, Sigurður Björnsson 12, Hannes Nesley 11, Ólafur Adolfsson 10 og Óskar Baldursson 5. Leikinn dæmdu þeir Gunnar og Sigurður Valgeirssynir og voru þeir frekar mistækir. „Hvar er boltinn eiginlega,“ gætu KA-mennirnir á myndinni verið að hugsa. Myndin Iiðsins gegn ÍS á föstudagskvöld. WOgrafléttmjólkinnihalda aðeins 46 hitaeiningar. Ogþað eru verðmætar hitaeiningar, því aðþeim fylgja lífsnauðsynleg næringarefni. Efþú vilt grennast, þá erbetra að draga úröðrum og þýðingarminni hitaeiningum. Æsispennandi loka- mínútur í Höllinni

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.