Dagur - 14.03.1988, Qupperneq 9
14. mars 1988 - DAGUR - 9
er úr leik
Mynd: GB
Úrslitakeppnin í blaki:
Enn vantaði KA herslumuninn
- tapaði fyrir ÍS á föstudagskvöld í mjög jöfnum leik
KA-menn náðu ekki að leggja
Stúdenta að velli á föstudags-
kvöld, er liðin áttust við í
úrslitakeppninni í blaki.
Leikurinn sem fram fór í
íþróttahúsi Glerárskóla, var
hnífjafn og spennandi og sigur-
inn gat Ient hvorum megin sem
var. En það vantaði enn einu
sinni herslumuninn hjá KA-
mönnum og Stúdentar sigruðu
3:2. KA hefur því enn ekki
tekist að vinna leik í úrslita-
keppninni, nú þegar liðið á
aðeins einn leik eftir, gegn HK
á sunnudaginn.
Stúdentar byrjuðu mun betur í
leiknum á föstudaginn og náðu
strax 5:0 forystu í fyrstu hrin-
unni. KA-menn náðu að minnka
muninn í 5:6 og 7:8 en þá dró enn
í sundur með liðunum og Stúdent-
ar breyttu stöðunni í 14:8 og
unnu síðan 15:9. í annarri hrinu
voru það KA-menn sem tóku
leikinn í sínar hendur í upphafi
og skoruðu 6 fyrstu stigin. Þá
tóku Stúdentar við sér og jöfn-
uðu leikinn 6:6 og 7:7. En KA-
menn léku betur í seinni hlutan-
um og unnu öruggan sigur. Þeir
breyttu stöðunni í 12:7 og unnu
15:9.
KA-menn náðu forystu í upp-
hafi þriðju hrinunnar en Stúdent-
ar jöfnuðu 4:4 og 6:6. Þá tóku
KA-menn góðan kipp og breyttu
stöðunni í 11:6 og 13:8 og unnu
loks 15:9. í fjórðu hrinunni höfðu
Stúdentar betur og unnu 15:8.
Þeir komust yfir í byrjun 6:2 en
KA-menn minnkuðu muninn í
6:7. Pá settu Stúdentar í annan
gír, breyttu stöðunni í 13:6 og
unnu sem fyrr sagði 15:8.
Það þurfti því oddahrinu til
þess að fá fram úrslit og þá höfðu
Stúdentar betur. KA-menn náðu
yfirhöndinni í byrjun og héldu
henni lengst af. Þeir höfðu yfir
Visa-bikarmót unglinga:
Vilhelm óstöðvandi
Vilhelm Már Þorsteinsson
skíðamaður frá Akureyri hélt
uppteknum hætti um helgina
og sigraði tvívegis í Visa-bikar-
móti SKÍ, Pepsmótinu í flokki
unglinga 15-16 ára, sem fram
fór í Hlíðarfjalli. Vilhelm hef-
ur verið mjög sigursæll í vetur
og stendur nú langbest að vígi
í bikarkeppninni í þessum
flokki.
Piltarnir kepptu tvívegis í stór-
svigi en stúlkurnar í svigi á laug-
ardag og stórsvigi í gær. Á bikar-
móti í Ólafsfirði um daginn,
kepptu piltarnir tvívegis í svigi og
þeir kepptu því tvívegis í stór-
svigi um helgina. Vilhelm sigraði
í báðum keppnunum í Ólafsfirði
og endurtók leikinn um helgina.
Anna íris Sigurðardóttir frá
Húsavík hefur einnig staðið sig
mjög vel í vetur og hún sigraði
mjög örugglega í sviginu á laug-
ardag og hafnaði í 3. sæti í stór-
sviginu í gær. Rúmlega 20
keppendur mættu til leiks í hvor-
um flokki og fór keppnin fram
við ágætar aðstæður en mjög kalt
var í veðri báða dagana. Úrslit
urðu þessi:
Stórsvig pilta:
1. Vilhelm Þorsteinsson A 1:49,58
2. Haukur Arnórsson Árm. 1:50,73
3. Arnar Bragason H 1:52,07
Svig stúlkna:
1. Anna íris Sigurðard. H 1:30,95
2. Hanna Mjöll Ólafsd. í 1:33,77
3. Ása Þrastardóttir A 1:35,96
Stórsvig pilta:
1. Vilhelm Þorsteinsson A 2:04,35
2. Haukur Arnórsson Árm. 2:04,74
3. Jóhannes Baldursson A 2:04,89
Stórsvig stúlkna:
1. Margrét Rúnarsdóttir í 1:56,32
2. Sara Halldórsdóttir í 1:57,04
3. Anna íris Sigurðard. H 1:58,04
þetta tvö til þrjú stig en þegar
staðan var 11:9 fyrir KA, var
dæmdur tími á uppgjafara KA og
liðið missti boltann. Það voru
síðan Stúdentar sem skoruðu 6
síðustu stigin og unnu 15:11 og í
leiknum því 3:2.
Vilhelm Þorsteinsson á fullri ferð í
stórsviginu á laugardag. Mynd: kk
Ýmis B vítamín í mjólkstuðla m.a. að eðlilegri
starfsemi taugakerfisins, góðri orkunýtingu, fallegri
húð og hári, heilbrigðum augum og góðri sjón. Auk
þess eru f mjólkinniB vítamín sem eru nauðsynleg
fyrirþá sem eru í örum vexti tilþess að geta
myndað nýtt erfðaefni fyrir nýjar frumur.
Við eðlilegar aðstæður
dregur mjólk úr
tannskemmdum. Hiðháa
hlutfall kalks, fosfórsog
erverndandifyrir
tennurnar.
Námsgeta og athyglisgáfa
skerðast verulega efunglingar
fá ekkinægilega holla fæðu.
Gaman
ígær?
En hvað með úthaldið? Hvernig verður þú í
dag? Stúlkur á vaxtarskeiði þurfa að beina
athyglinni að sjálfri sér af og til. Álagið er oftast
mikið bæði á sál og líkama og þá er eins gott
að gera það sem hægt er til þess að standa
undir því. Holl fæða og nægur svefn er algjört
skilyrði ef þú vilt njóta þessa viðburðarríka
tímabils æfi þinnar án þess að ganga á forða
framtíðarinnar.
Mjólk er ein fjölbreyttasta fæða sem völ er á frá
næringarlegu sjónarmiði. í henni eru efni sem
við getum ekki verið án. 3 mjólkurglös á dag er
góð regla.