Dagur - 14.03.1988, Síða 16
Noack rafgeymar í bílinn,
bátinn og vinnuvélina.
Noack er viðhaldsfrír.
P0R5HAMAR HF.
Varahlutaverslun
Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700
Fjöldi farsíma
þrítugfaldaðist
- frá því í júlí 86
Síðan sjálfvirka farsímakerfið
var opinberlega tekið í notkun
3. júlí 1986 hefur notendum
fjölgað úr 170 í 5.300. Saman-
borið við nágrannalönd okkar
er þessi þróun einstæð. I far-
símaþjónustunni eru nú 40
móðurstöðvar um allt land,
með samtals um 230 rásir.
í því skyni að koma til móts við
farsímanotendur hefur Póst- og
símamálastofnunin hafið útgáfu
blaðs sem nefnist Farsímafréttir.
Hlutverk blaðsins er að koma
upplýsingum og ráðleggingum til
notenda sjálfvirka farsímakerfis-
ins. Fyrsta tölublað Farsíma-
frétta er nýkomið út, en stefnt er
að því að blaðið komi út eftir því
sem þörf krefur.
Eining setur
löndunarbann
- á afla togara frá
Vestmannaeyjum
„Við höfum verið að koma
þessari samþykkt okkar á
framfæri til félagsmanna okkar
í öllum deildum þar sem hugs-
anlegt er að bátar eða skip
komi með afla sinn að landi,“
sagði Sævar Frímannsson í
samtali við Dag, en Eining hef-
ur sent frá sér yfirlýsingu um
löndunarbann á afla togara og
báta frá Vestmannaeyjum.
Vegna þessa sendi Eining frá
sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
„Verkalýðsfélaginu Einingu hef-
ur borist ósk um það frá Verka-
kvennafélaginu Snót í Vestmanna-
eyjum sem nú á í verkfallí, að á
meðan verkfallið standi, vinni
Einingarfélagar ekki við löndun
afla frá skipum eða bátum sem
kynnu að leita hingað til að losna
við afla sinn. Er óskað eftir þessu
til að knýja á um gerð nýs kjara-
samnings fyrir verkakonur í Eyj-
um.
Stjórn félagsins hefur einróma
samþykkt að verða við þessari
eðlilegu beiðni Verkakvennafé-
lagsins Snótar. Munu félagar í
Verkalýðsfélaginu Einingu því
ekki vinna við löndun afla úr
fiskiskipum frá Eyjum á meðan
verkfall Snótar stendur og ekki
leyfa að slík löndun fari fram á
félagssvæðinu." VG
Lögreglan á Akureyri:
Átakalítil helgi
Lögreglan á Akureyri hafði að
vanda í ýmsu að snúast um
helgina þótt ekki hafi verið
mikið um skakkaföll í umferð-
inni. í gær þurfti lögreglan að
stjórna umferð í Hlíðarfjalli,
enda veður fagurt og fjöldi
fólks sem vildi komast á skíði.
Nokkur minniháttar óhöpp
urðu í umferðinni, m.a. var ekið
á kyrrstæðan bíl á föstudag og
stakk sá er tjóninu olli af. Oku-
menn á fjórhjólum voru staðnir
að ólöglegum innanbæjarakstri,
nokkrir voru teknir fyrir of hrað-
an akstur svo og meintan ölvunar-
akstur, en ölvun var nokkur á
Akureyri aðfaranótt sunnudags.
SS
Er allt komið í hnút? Mynd: tlv
Yfirvinnustopp og hægagangur í löndun hjá ÚA:
„Það má ekki ofreyna
kranagreyið"
- segja löndunarmenn sem eru óánægðir með bónusgreiðsiur
Á miðvikudaginn verða liðnar
tvær vikur síðan starfsmenn
við löndun hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa hættu að vinna
yfirvinnu. Undanfarna daga
hafa þeir farið sér hægt við
vinnu og hvort tveggja veldur
þetta töfum á afgreiðslu togara
félagsins, nú þegar mjög vel
fískast.
teknir fleiri en sex og oft færri.
„Það má ekki ofreyna kranagrey-
ið,“ sögðu mennirnir.
Hrímbakur átti að fara á veið-
ar síðastliðinn þriðjudag en tafð-
ist um sólarhring. Lokið var við
að landa úr Sólbak á fimmtudag
en þar sem ekki var búið að ísa
skipið kemst það ekki á veiðar
fyrr en í fyrsta lagi í dag. Á föstu-
daginn var svo „dundað“ við að
landa úr Sléttbak.
Vilhelm Porsteinsson fram-
kvæmdastjóri ÚA sagði að mál
þetta væri hluti af þeim kjara-
samningum sem nú væru í gangi
en vildi að öðru leyti engar upp-
lýsingar gefa um málið. ET
Halldór með
aðgerðir í
sjávarútvegi
- endurgreiðsla sölu-
skatts og gjald á ísfisk
Halldór Ásgrímsson lagði fram
frumvarp til laga um aðgerðir í
sjávarútvegi á Alþingi á
þriðjudaginn. Frumvarpið
fjallar um endurgreiðslu á
söluskatti í sjávarútvegi og
sérstakt gjald af ísfiski sem
fluttur er óunninn á erlendan
markað.
í lögunum segir að fjárveitingu
ársins 1987 vegna endurgreiðslu
söluskatts í sjávarútvegi skuli
þannig varið að í fyrsta lagi skulu
455 m.kr. renna til fiskvinnslufyr-
irtækja, í hlutfalli við áætlaða
uppsöfnun söluskatts í hverri
vinnslugrein og í hlutfalli við fob-
verðmæti útfluttra sjávarafurða
hvers fyrirtækis eftir reglum sem
sjávarútvegsráðherra setur.
í öðru lagi að helmingur þeirra
220 m.kr., sem skyldu renna til
Fiskveiðasjóðs íslands árið 1987
skal lagður inn á sérstakan bund-
inn reikning í vörslu sjóðsins.
Ráðherra getur að fengnum til-
lögum sjóðstjórnar sett reglur um
ráðstöfun fjár af þessum reikn-
ingi til niðurgreiðslu vaxta vegna
stofnfjárlána fiskiskipa. Og í
þriðja lagi skulu á árinu 1987
renna 25 m.kr. til Útflutnings-
ráðs íslands.
í lögunum er gert ráð fyrir
sérstöku gjaldi á ísfisk sem flutt-
ur er óunninn á erlendan markað
og rennur það í Verðjöfnunar-
sjóð fiskiðnaðarins. Ef skip flytja
eigin afla á erlendan markað er
sá afli undanþeginn þessu gjaldi.
AP
Ástæðan fyrir þessu er
óánægja með lækkaðar bónus-
greiðslur undanfarin ár. Pá eru
mennirnir óánægðir með að bón-
usgreiðslur skuli aðeins vera fyrir
löndunina sjálfa en ekki aðra
vinnu þeirra.
Ákvörðun „löndunargengis-
ins“ var tilkynnt forráðamönnum
ÚA miðvikudaginn 2. mars, um
tveimur tímum áður en yfirvinna
átti að hefjast. Á föstudaginn
settu forráðamenn ÚA fram til-
boð um 5% hækkun á bónus-
greiðslum en því var hafnað.
Ekki er gert ráð fyrir að neitt ger-
ist í málinu fyrr en línur skýrast í
kjarasamningum almennt. Á
meðan verður ekki unnin eftir-
vinna í löndun.
Fimmtudaginn 3. mars kom
frystitogarinn Sléttbakur til hafn-
ar með um 190 tonn af frystum
afurðum og neituðu mennirnir þá
að landa úr skipinu. Ástæðuna
segja þeir vera að aðeins hafi ver-
ið samið um tvær landanir úr
Sléttbak en þetta hafi verið sú
þriðja. Skipið fór því aftur á
veiðar eftir að skipverjar höfðu
sjálfir séð urn að taka olíu, kost
og umbúðir.
Á meðan deilan stendur fara
mennirnir sér mjög hægt við að
landa úr skipum og gera þau klár
á veiðar. í stað þess að hífa átta
kassa í einu úr lest, eru aldrei
Verkmenntaskólinn á Akureyri:
Hlýtur fullkomin kæli- og
fiystitæki að gjöf
Síðastliðinn fímmtudag voru
Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri afhent mjög fullkomin
frysti- og kælitæki sem nota á
til kennslu á vélstjórnarbraut
skólans. Að sögn Bernharðs
Haraldssonar skólameistara
eru tækin sennilega þau full-
komnustu sinnar tegundar á
landinu.
Það voru hjónin Sigurlaug
Sveinsdóttir og Bragi Þ. Sigurðs-
son sem gáfu fé til kaupa á tækj-
unum til minningar um son sinn
Sigurð Ölvir Bragason sem fórst
með MS Suðurlandi. Bernharð
Haraldsson tók við og þakkaði
þessa höfðinglegu gjöf.
Tækin voru hönnuð og smíðuð
af starfsmönnum Vélsmiðjunnar
Odda og gáfu þeir alla vinnu
sína. í ávarpi sem Torfi Guð-
mundsson framkvæmdastjóri
Odda flutti, kom fram að í verkið
hefðu farið um 280 klukkustundir
og samkvæmt reikningi myndi
slíkt tæki ekki kosta undir 800
þúsundum.
Eins og áður segir er um að
ræða kæli- og frystitæki til
kennslu. Kennarinn getur með
því að ýta á einn takka valið um
15 mismunandi einkenni um bil-
anir á búnaðinum. Þessar bilanir
á nemandinn síðan að greina og
bregðast við á réttan hátt. Tæki
sams konar þessum er að finna í
frystihúsum og frystiskipum
landsins og bilanir í þeim geta
verið dýrkeyptar. Það er því
mikilvægt að tilvonandi vélstjór-
ar læri að bregðast við hvers kon-
ar vandamálum. ET
Hjónin Sigurlaug Sveinsdóttir og Bragi Þ. Sigurðsson ósamt Bernharð
Haraldssyni skólameistara við afhendingu tækjanna. Mynd: TLV