Dagur - 15.04.1988, Blaðsíða 16
16 - DAGUR - 15. apríl 1988
^-----------------------\
Skrifstofubúnaöur
■Bókabúðin EddaH
— Hafnarstræti 100 Akureyri Sími 24334 ■■
AKUREYRARBÆR
Utboð
Tilboð óskast í uppsteypu 5. áfanga VMA.
Áfanginn er um 1.440 fm að grunnfleti.
Útboðsgögn verða afhent á verkfræðistofu
Norðurlands, Skipagötu 18, frá 18. apríl 1988 kl.
14.00, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu fulltrúa skóla-
nefndar VMA í Kaupangi við Mýrarveg 2. hæð,
28. apríl 1988 kl. 13.00.
Skólanefnd V.M.A.
Lögtaksúrskurður
Úrskurðað hefur verið að lögtök megi fara fram fyrir
gjaldföllnum en ógFeiddum útsvörum, aðstöðugjöld-
um, fasteignagjöldum, mælavatnsskatti og gatna-
gerðargjöldum, álögðum 1987, til bæjarsjóðs Ólafs-
fjarðar, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, hafi þau
ekki verið greidd innan 8 daga frá birtingu þessarar
auglýsingar.
Ólafsfirði 15. apríl 1988.
Bæjarstjórinn í Ólafsfirði.
Nauðungaruppboð
Laugardaginn 23. apríl 1988 verður haldið nauðungarupp-
boð á lausafé, sem hefst við Lögreglustöðina v/Þórunnar-
stræti á Akureyri, kl. 14.00.
Selt verður eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og ýmissa
lögmanna, lausafé sem hér greinir:
Bifreiðarnar: A-249, A-273, A-480, A-548, A-825, A-902,
A-904, A-1093, A-1183, A-1223, A-1649, A-1949, A-1984,
A-2057, A-2100, A-2160, A-2380, A-2696, A-2732, A-2858,
A-2983, A-3086, A-3286, A-3302, A-3440, A-3512, A-3753,
A-4003, A-4067, A-4104, A-4390, A-4392, A-4574, A-4686,
A-4785, A-4956, A-4969, A-4971, A-5042, A-5116, A-5203,
A-5223, A-5334, A-5395, A-5397, A-5416, A-5465, A-5470,
A-5499, A-5732, A-5975, A-6006, A-6072, A-6087, A-6095,
A-6110, A-6188, A-6238, A-6462, A-6505, A-6582, A-6647,
A-6692, A-6864, A-6889, A-6893, A-7238, A-7241, A-7330,
A-7381, A-7387, A-7521, A-7582, A-7756, A-7993, A-8184,
A-8221, A-8413, A-8590, A-8635, A-8955, A-9119, A-9242,
A-9277, A-9332, A-9339, A-9368, A-9582, A-9614, A-9615,
A-9668, A-9742, A-10066, A-10118, A-10267, A-10270,
A-10453, A-10511, A-10513, A-10560, A-10596, A-10619,
A-10647, A-10753, A-10755, A-10769, A-10859, A-10862,
A-10877, A-10919, A-10959, A-10982, A-11003, A-11112,
A-11202, A-11203, A-11257, A-11282, A-11374, A-11672,
A-11751, A-11960, A-11968, A-12137, A-12251, A-12637,
A-12724, E-3053, G-5585, R-19010, R-20409, R-38963,
R-39001, R-57296, S-1047, Y-14047, Þ-3157, Þ-3833.
Ýmislegt lausafé m.a.: Sjónvörp, myndbandstæki, hljóm-
flutningstæki, myndlykill af Philipsgerð, 24 rása segulband og
mixer, Kathrein sjónvarpsmagnari með tíðnibreyti, hljómborð
af gerðinni Roland, Minolta Ijósritunarvél, stofuklukka, þvotta-
vélar, ísskápar, frystikista. Steikarofn, kaffivél og kæli- og
frystiskápur fyrir veitingahús. Sófasett, sófaborð, borðstofu-
borð, stólar, skenkur og hillusamstæða. Trésmíðavélar af
gerðinni Scheppach og Sicma. MF-skurðgrafa, fjórhjól af
gerðunum Polaris og Kawasaki, dráttarvélar Ford og Inter-
national, heyhleðsluvagn Kemper, hjólhýsi 4-40GT, tveir
byggingakranar af gerðinni BP 2020, árg. 1974 og 1978,
skjóttur hestur sex vetra. Einnig verður seldur ótollafgreiddur
og upptækur varningur, þar á meðal videotökuvél af gerðinni
Sony 8 mm. Loks verða seldir óskilamunir, einkum reiðhjól.
Ávísanir eru ekki teknar gildar sem greiðsla, nema með sam-
þykki uppboðshaldara. Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis hjá uppboðshaldara.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík,
sýslumaður Eyjafjarðarsýslu.
13. apríl 1988.
Arnar Sigfússon, fulltrúi.
Fyrirkomulag á verð-
tryggingu fjárskuldbindinga
- viðskiptaráðherra skipar nefnd í málið
Viðskiptaráðherra hefur skip-
að nefnd til þess að fjalla um
fyrirkomulag á verðtryggingu
fjárskuldbindinga í Ijósi reynslu
síðustu ára og aukins frjáls-
ræðis í vaxtamálum. Nefndinni
er ætlað að kanna lagagrund-
völl og framkvæmd verðtrygg-
ingar á fjárskuldbindingum og
koma með ábendingar um
hvað megi betur fara á því
sviði, segir í fréttatilkynningu
frá viðskiptaráðuneytinu.
„Verðtrygging fjárskuldbind-
inga er algengari hér á landi en í
flestum öðrum löndum. Þetta má
rekja til þess að verðbólga hefur
iðulega verið hér mun meiri en
víðast hvar annars staðar. Verð-
trygging var heimiluð með lögum
nr. 13/1979, svonefndum Ólafs-
lögum. Lánskjaravísitala, sem er
sett saman úr framfærsluvísitölu
að tveimur þriðju hlutum og
byggingarvísitölu að einum
þriðja, hefur verið helsta viðmið-
un í verðtryggingarskilmálum.
Aðrar viðmiðanir eru notaðar og
má í því sambandi nefna ýmsar
gengisvísitölur. Alllöng reynsla
hefur nú fengist af fyrirkomulagi
verðtryggingar, sem nær yfir
bæði samdráttar- og uppgangs-
skeið í þjóðarbúskapnum. Jafn-
framt hefur ákvörðun vaxta í
bankakerfinu verið flutt frá
Seðlabankanum til banka og
sparisjóða með lögum, sem tóku
gildi 1. nóvember 1986, en Ijóst
er að verðbætur samkvæmt verð-
tryggingarskilmálum eru oft og
tíðum stærsti hluti ávöxtunar í
Iánsviðskiptum.
Meðal atriða, sem nefndinni er
ætlað að kanna, eru: Þróun ein-
stakra verðvísitalna og samsetn-
ing lánskjaravísitölu, áhrif verð-
tryggingar á sparnað, verðtrygg-
ing fjárskuldbindinga til skamms
tíma, þáttur óbeinna skatta í
lánskjaravísitölu, heimildir til að
semja um verðtryggingrviðmið-
un í lánsviðskiptum og réttar-
staða gildandi lánssamninga,
verði gerðar breytingar á láns-
kjaravísitölu o.fl.
Nefndinni er ætlað að ljúka
störfum eins fljótt og kostur er og
eigi síðar en 15. júní nk.
í nefndinni eru: Björn
Björnsson, bankastjóri, formaður
Birgir Árnason, hagfræðingur í
viðskiptaráðuneytinu, Gestur
Jónsson, hæstaréttarlögmaður,
Magnús Jónsson, veðurfræðing-
ur, Ólafur ísleifsson, efnahags-
ráðunautur forsætisráðherra,
Stefán Melsted, lögfræðingur hjá
Iðnlánasjóði og Yngvi Örn Krist-
insson, hagfræðingur í Seðla-
bankanum.“
Til sölu
Rafhitunarketill frá Rafha smíðaár 1980
31.5 KW
3x380 VOLT
Með stýribúnaði og spíral.
Stærð: 160x50 cm er á stálgrind.
Gerð: H.K.R. 150.
Upplýsingar hjá Eimskip í síma 24131.