Dagur - 15.04.1988, Page 24
Akureyri, föstudagur 15. apríl 1988
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★ Fermingarveislu
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Blönduós:
Verslunar- og skrif-
stofufólk samþykkti
Iqarasamninginn
Verslunarmannafelag Húnvetn-
inga sem er stéttarfélag versl-
unar- og skrifstofufólks í Aust-
ur-Húnavatnssýslu samþykkti,
á fundi í fyrrakvöld, kjara-
samning sem gerður var þann
8. þ.m. með fyrirvara um sam-
þykki aðildarfélaganna.
Samningurinn var samþykktur
með 14 atkvæðum gegn 11 ög
einn seðill var auður. Ekki mun
þessi niðurstaða þó lýsa því að
fólk sé ánægt með hinn umrædda
samning. Hitt mun hafa ráðið
meiru að það óttast að ekki náist
nema mjög takmarkaðar launa-
hækkanir þótt farið verði út i
verkfall og telur sig hreinlega
ekki þola þann tekjumissi sem
því myndi fylgja. fh
Aðalfundur STAK:
Launaliður
samþykktur
með 2
atkvæðum
- Ásta Sigurðardóttir lét
af formannsembættinu
„Launaliður kjarasamningsins
var samþykktur með tveggja
atkvæða mun,“ sagði Asta Sig-
urðardóttir, fyrrverandi for-
inaður STAK í samtali við
Dag, en eftir aðalfund félags-
ins sem haldinn var á þriðju-
daginn, fór þessi atkvæða-
greiðsla fram.
Á aðalfundinum fóru fram
venjuleg aðalfundarstörf. Eins og
lög félagsins gera ráð fyrir, var
skipt unt hluta af stjórninni og
sömuleiðis var kosinn nýr for-
maður. Ásta hefur gengt þessu
embætti, en hún gaf ekki kost á
sér á ný. í hennar stað var Hulda
Harðardóttir hverfisfóstra, sem
gegndi embætti varaformánns,
kosin formaður.
Eftir fundinn var kynnt breyt-
ing á kjarasamningi. Naumur
meirihluti samþykkti breyting-
una, en töluverðar umræður urðu
um þetta mál á fundinum. „Menn
eru almennt óánægðir, því þeir
telja að markmið samningsins,
sem er að samræma laun hinum
almenna vinnumarkaði, hafi ekki
náð nægilega vel fram að ganga.
Þar hafa iðnaðarmenn væntan-
lega verstan samanburð."
Ásta sagði þeirri spurningu
einnig hafa verið velt upp, hvort
STAK ætti að vera í því samstarfi
sem leiði til að semja þarf við
launanefnd sveitarfélaganna og
þurfa að sækja þá fundi til
Reykjavíkur. „Éað eru ekki allir
sáttir við það fyrirkomulag því
það hefur ekki reynst eins og
menn ætluðu. Menn reiknuðu
með að það starf myndi dreifast
um byggðirnar og menn kæmu
víðar við en í Reykjavík. En þar
situr launanefndin sem fastast,"
sagði Ásta að lokum. VG
Staðsetning gjaldheimtu a vestursvæðinu:
Blönduós réttir
fram sáttahönd
Hljótt hefur verið um gjald-
heimtumál í Norðurlandi
vestra undanfarið, enda hafa
sveitarstjórnir haft frest fram
undir miðjan þennan mánuð
að svara tillögum undirbún-
ingsnefndar um stofnun gjald-
heimtunnar. Nefndin lagði
eins og kunnugt er til að gjald-
heimtan yrði staðsett á Sauðár-
króki, en vitað er til þess að
Siglfirðingar geta ekki hugsað
sér neitt verra og telja sig
hiklaust eiga rétt á henni.
Pað var svo nýlega sem hrepps-
nefnd Blönduósshrepps rétti
fram sáttahönd í málinu, með
samþykkt sem hún gerði er hljóð-
ar þannig: Hreppsnefndin sam-
þykkir að Blönduósshreppur ger-
ist aðili að gjaldheimtunni enda
náist um liana víðtæk samstaða.
Pá beinir hreppsnefndin því til
forsvarsmanna þéttbýlissveitar-
félaganna að þeir láti ekki inn-
byrðisdeilur koma í veg fyrir að
gjaldheimta fyrir Norðurland
vestra verði að veruleika.
Hilmar Kristjánsson oddviti
Blönduóshrepps sagði að þessi
tillaga þýddi samt ekki að
hreppsnefndin væri samþykk til-
lögu undirbúningsnefndarinnar
um staðsetningu og ekkert hefði
verið kveðið úr með hana.
Undirbúningsnefndin hefði fallið
í sömu gryfjuna og þegar opin-
berum þjónustustofnunum væri
valinn staður í Reykjavík, á þeim
forsendum að auðvitað ættu þær
að vera þar sem fólkið er flest.
-þá
Nýju vélarnar prófaðar í verksmiðjunni.
Mynd TLV
Akureyri:
Skattframtölin
skiluðu sér vel
Skil einstaklinga og einstakl-
inga í sjálfstæðum atvinnu-
rekstri á skattskýrslum hafa
gengið mjög vel, og jafnvel
betur nú en oft áður, að sögn
Jóns Dalmanns Armannssonar
Plasteinangrun hf.:
Tunnuframleiðslan
að fara af stað
Á næstu dögum hefst fyrir
alvöru framleiðsla á plasttunn-
um hjá Plasteinangrun á Akur-
eyri. Vélar til framleiðslunnar
voru keyptar fyrr í vetur frá
Þýskalandi og þessa dagana er
verið að prufukeyra og stilla
vélakostinn.
Vélasamstæðan sem tunnurnar
sjálíar eru steyptar í er talsvert
mikil að vöxtum. Plastmassinn
rennur hálfbráðinn í formi eins
konar slöngu, niður í mótið. Par
er „slangan" blásin úl í hliðar
mótsins og tekur þannig á sig
endanlega lögun. Þykktin á
„slöngunni getur verið mjög
breytileg og þannig verða hliðar
tunnanna misþykkar. Breytilegri
þykkt er stjórnað af sérstakri
stjórntölvu eftir að upplýsingar
um óskir framleiðandans hafa
verið slegnar inn í hana. Loks eru
tunnurnar kældar niður með
vatni og síðan sér sjálfvirkur bún-
aður um að losa þær úr mótinu.
Stærð tunnanna er stjórnað með
því að stýra „dýpi" mótsins.
Hægt er að framleiða tunnur allt
frá 50 lítrum að rúmmáH og uppí
150 lítra. Með fullum afköstum
allan sólarhringinn má framleiða
allt að 500 tunnur á sólarhring.
Ketill Guðmundsson ntarkaðs-
stjóri Plasteinangrunar er
nýkominn af sjávarútvegssýningu
í Lofoten í Noröur-Noregi. Þar
eru árlega notaðar um 100 þús-
und tunnur undir síld. Ketill
sagðist ekki útiloka að fyrirtækið
gæti náð þessum markaði eða
hluta hans. ET
hjá Skattstofu Noröurlands-
umdæmis eystra.
Framtalsfrestur félaga rennur
út í maílok, en hlutafélög og slík-
ir aðilar hafa talsvert lengri skila-
frest en einstaklingar í atvinnu-
rekstri, en þeir síðarnefndu
þurftu að skila sínum framtölum
15. mars. Þó var hægt að fá frest
til 15. apríl til að skila inn skatt-
skýrslum þeirra aðila, samkvæmt
lögum.
„Ég hef gert könnun á skilum
framtala hér á Akureyri og þau
virðast síst vera verri en áður,"
sagði Jón Dalmann, en bætti við
að drjúgur tími færi í ýrnis mál
viðkomandi staðgreiðslukerfinu.
Enginn sérstakur eftirlitsmaður
staðgreiðslu starfar hjá embætt-
inu á Akureyri, annar en starfs-
ntenn í skattrannsóknum, sem
sinna hvort eð er rannsóknum á
skattskilum. EHB
Grímsey:
Hafnarlíkaniö prófað í sumar
Vita og hafnamálastofnun
mun hefja tilraunir með líkan
af Grímseyjarhöfn í byrjun
júnímánaðar, og verður lík-
anið hið fyrsta sem prófað er
í sérhönnuðu húsi stofnunar-
innar, en bygging hússins er
nýlega hafin. Endanleg hug-
mynd um gerð nýrrar hafnar í
Grímsey liggur ekki fyrir en
rannsóknir og athuganir
standa yfir.
Gísli Viggósson, forstöðu-
maður rannsóknadeildar Vita
og hafnamálastofnunar, sagði
að hér væri um svokallaða
úthafshöfn að ræða, og því
þyrfti að taka sérstakt tillit til
þunga úthafsöldunnar á mann-
virkjunum.
„Við Þorlákur Sigurðsson,
oddviti í Grímsey, höfum verið
í stöðugu sambandi vegna
hönnunar hafnarinnar, og áður
en við sýnum öðrum hvernig
þetta lítur út förum við vand-
lega í gegnum þetta með heima-
mönnum. Við fáum alltaf
heimamenn til liðs við okkur
Frá Grímsey.
við könnun sjólags og skoðun
fleiri atriða, því aðalsmerki
okkar er að vinna ekkert slíkt
verkefni nema í fullu samráði
við heimamenn," sagði Gísli.
Menn hafa velt hafnargerð-
inni fyrir sér með tilliti til þess
hvort um steinker verði að
ræða, sem sökkva á í sjó við
gerð hafnarinnar, eða hvort sú
leið verði farin að grafa fyrir
höfninni inn í landið. Gísli
Viggósson sagði að sér þætti lík-
legt á þessu stigi að báðar
aðferðirnar verði notaðar að
hluta við verkið. Ekkert er hægt
að gefa upp varðandi fram-
kvæmdakostnað fyrr en endan-
leg hafngerð liggur fyrir, eftir
rannsóknir. EHB