Dagur - 12.05.1988, Síða 4

Dagur - 12.05.1988, Síða 4
4 - DAGUR - 12. maí 1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 660 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 60 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 465 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉSPÉTURSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (fþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDIS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Útgerðarfélag Akureyringa Aðalfundur Útgerðarfélags Akureyringa var hald- inn nú í vikunni. Þar kom fram að hagnaður af rekstri fyrirtækisins á síðasta ári var 131,5 milljónir króna en veltan um 922 milljónir króna. Eigið fé Útgerðarfélagsins jókst um 61,9% á milli ára og nemur nú 476,5 milljónum króna. Þetta eru mjög ánægjulegar fréttir og reyndar mun betri en hægt var að búast við, þar sem svo mjög hefur harðnað á dalnum hjá fyrirtækjum í útgerð og fiskvinnslu á síðustu misserum. Þessi ágæta afkoma ÚA er enn ein staðfesting á því að fyrirtækið er tvímælalaust eitt allra best rekna fyrirtæki landsins. Stjórnendur fyrirtækisins hafa staðið skynsamlega að öllum fjárfestingum og gætt fyllstu hagkvæmni í rekstri. Afkoma fyrirtækisins á síðasta ári ber þess ljósan vott. Er Gísli Konráðsson, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, var eftir aðalfundinn inntur skýringa á þessari góðu afkomu félagsins, var svar hans stutt og laggott: „Við rekum eigin skipaflota og vinn- um sjálfir allan þann fisk sem af þeim skipum kemur. Þetta gefur okkur góða nýtingu á okkar vinnslustöðvum og það er það sem skiptir máli, ásamt því að við höfum ekki sent einn einasta ferskan fisk úr landi." Þessi orð framkvæmda- stjórans eru allrar athygli verð. Á sama tíma og mörg útgerðarfyrirtæki, jafnvel þau sem reka eigin fiskvinnslu, hafa keppst við að flytja ferskan fisk úr landi í stórum stíl og með því valdið verðhruni á helstu ferskfiskmörkuðum okkar, hefur Útgerðar- félag Akureyringa unnið allan afla eigin skipa heima fyrir. Afrakstur þessarar skynsamlegu stefnu er smám saman að koma í ljós og ættu stjórnendur útgerðarfyrirtækja víða um land að taka Ú.A. sér til fyrirmyndar að þessu leyti. En það er ekki einungis rekstarafkoma Ú.A. sem er til fyrirmyndar. Undanfarin tíu ár hefur Coldwat- er Seafood samsteypan verðlaunað þau frystihús og frystiskip sem fengið hafa 95 stig eða fleiri af 100 mögulegum fyrir framleiðslu sínu. Þetta gæðaeftir- lit nær frá 1. maí til 30. apríl ár hvert. Að þessu sinni fengu 20 fyrirtæki afhent viðurkenningarskjöl af þessu tilefni og auk þess fengu 7 fyrirtæki skjöld fyrir framúrskarandi framléiðslu. Útgerðarfélag Akureyringa var í síðarnefnda hópnum og reyndar eina fyrirtækið sem á síðustu 12 mánuðum var með algerlega óaðfinnanlega framleiðslu og hlaut 100 stig af 100 mögulegum. Það er athyglisvert að fyrir- tækið hefur verið í þessum hópi öll þau tíu ár sem slíkar viðurkenningar hafa verið veittar. Árangur- inn er enn glæstari í ljósi þess að Útgerðarfélagið er langstærsti framleiðandinn innan Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Betri vitnisburð getur fisk- vinnslufyrirtæki naumast fengið. Það er full ástæða til að óska starfsfólki og stjórn- endum Útgerðarfélags Akureyringa til hamingju með þennan árangur. Hann er óneitanlega glæsi- legur. BB. Krabbameinsfelag Akureyrar og nágrennis: Öflugt starf á síðasta ári Veigamiklar breytingar urðu á sl. ári í starfsemi Krabbameins- félags Akureyrar og nágrennis. Ber þar fyrst að geta, að á stjórnarfundi í apríl á sl. ári var ákveðið að halda aðalfund í maílok og leggja þá fyrir aðal- fundinn ályktun stjórnar þess eðlis að lögum félagsins skyldi breytt, og Krabbameinsfélag Akureyrar yrði framvegis kall- að Krabbameinsfélag Akur- eyrar og nágrennis. Var það gert til þess að sameina sveitar- félögin við Eyjafjörð og veita Olafsfirðingum, Dalvíkingum og Grenvíkingum inngöngu í félagið. Þá var jafnframt ákveðið að aðalfundur Krabba- meinsfélags Akureyrar og ná- grennis, skyldi haldinn í októ- ber ár hvert og næsti aðalfund- ur yrði því haldinn í október 1988. Þessar breytingartillögur voru samþykktar á aðalfundin- um. Þá var og samþykkt ályktun stjórnar þess eðlis að Krabba- meinsfélag Akureyrar og ná- grennis myndi beita sér fyrir því að hefja söfnun fyrir brjóst- myndatökutæki og því til stað- festingar var samþykkt að Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis stofnaði reikning við Búnaðarbanka íslands, útibú á Akureyri og leggði þar inn 300.000 krónur. í lok júní á sl. ári barst svo Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis, minningargjöf frá frú Margréti Halldórsdóttur, til minningar um eiginmann hennar Tryggva Jónsson, kr. 500.000. Með hennar samþykki var ákveð- ið að þeim peningum skyldi varið til fyrrnefndrar söfnunar. Sl. haust var svo ákveðið á stjórnar- fundi Krabbameinsfélags Akur- eyrar og nágrennis að veita sjúkrahúsinu tækið að gjöf, svo fremi sem sjúkrahúsið tæki að sér rekstur tækisins með fullu sam- þykki stjórnar Krabbameinsfé- lags íslands. í framhaldi af því hófust svo síðan viðræður við stjórn F.S.A. og Krabbameins- félags íslands og í lok desembcr 1987 fékkst samþykki sjúkrahús- stjórnar fyrir gjöfinni. Góð aðsókn á kynningarfundi I janúar á þessu ári var svo boðað til blaðamannafundar þar sem sjúkrahúsinu var formlega afhent gjafabréf fyrir fyrrnefndu tæki og má þá segja að hin raunverulega söfnun hafi hafist. Síðan þá hafa formaður félagsins Jónas Franklín og gjaldkeri félagsins Halldóra Bjarnadóttir, haldið fjáröflunar- og kynningarfundi víðs vegar um héraðið og eru fundirnir nú alls 11 talsins. Hefur fundarsókn yfir- leitt verið mjög góð. í upphafi fundar hefur Hálldóra Bjarna- dóttir kynnt starfsemi og sögu Krabbameinsfélags íslands og Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, síðan hefur Jónas Franklín kynnt starfsemi leitar- stöðvanna og sagt frá fyrirhug- aðri hópskoðun kvenna með brjóstmyndatöku og í lok fund- anna hefur Jónas haldið erindi um breytingarskeið kvenna og svarað fyrirspurnum. Eins og áður segir hafa fundirnir verið mjög líflegir. Fyrsti fundurinn var haldinn í Ólafsfirði 27. janúar 1988 og mættu þar 102 á fundinn. 10. febrúar var haldinn fundur á Dalvík og mættu þar 177. Síðan 27. febrúar var haldinn fundur með sjúkraliðum á Hótel KEA á Akureyri og þar voru 52 á fundi, 3. mars var fundur á Grenivík, 50 mættu. Þann 7. og 8. mars voru haldnir fundir á Akureyri í Lóni og mættu þar alls 195. 16. apríl var haldinn fundur að Hlíðarbæ í Glæsibæjarhreppi og mættu þar 32, 6. apríl fundur í Laugarborg, Eyjafirði og mættu 47 á fundinn. 13. apríl haldinn fundur á Árskógsströnd þar sem mættu 53. Síðan var haldinn fundur 19. apríl á Akureyri og mættu 53 og að lokum fóru formaður og gjald- keri félagsins ásamt mökum í matarboð í Lionsklúbbinn HÆNG á Akureyri þar sem félagið var kynnt og gjaldkeri veitti viðtöku 200.000 króna gjöf frá Lionsklúbbnum. Fjáröflun gengur vel Fjáröflun félagsins fyrir tækja- kaupunum, hefur gengið mjög vel. Það síðasta sem Krabba- meinsfélagi Akureyrar og ná- grennis hefur borist, er bréf frá Verkstjórasambandi íslands, þar sem Krabbameinsfélagi Akureyr- ar og nágrennis er heitið 500.000 kr. gjöf og er ætlunin að veita þeirri fjárupphæð viðtöku í byrj- un maí. Samhliða því sem for- maður og gjaldkeri félagsins hafa haldið þessa kynningarfundi, hef- ur verið í gangi söfnun á nýjum félögum og hafa allir fundargestir á fyrrnefndum kynningarfundum skráð sig í Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og hefur félagatal Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis stórlega aukist, svo í dag má ætla að um 1350 manns séu skráðir í félagið. Þá hefur Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis fest kaup á tölvuforriti fyrir félaga- skráningu og er búið að skrá alla þá er hafa óskað eftir að gerast félagar, fram til dagsins í dag. Þetta léttir mjög störf gjaldkera félagsins, því framvegis verður hægt að innheimta félagsgjaldið með gíró-seðli og hægt er að láta tölvuna annast útskrift gíró-seðla og límmiða, þannig að það verð- ur einnig auðvelt'að.spnda upp- lýsingabæklinga til allra sem í félaginu eru. Á fyrrnefndum fræðslu- og kynningarfundum höfðum við meðferðis alla bækl- inga sem Krabbameinsfélagið hefur gefið út og var fundar- mönnum frjálst að taka sér þessi kynningarrit, og var það vel þegið. Höfum við því gengið mjög á birgðir aðalskrifstofu félagsins því í tvígang síðan um áramót höfum við þurft að fá við- bótarsendingu til að geta annað eftirspurn. Bjóstmyndatæki innan tíðar Á þessum kynningarfundum hafa verið líflegar umræður í lok fund- anna og mikið spurt um starfsemi Krabbameinsfélagsins, krabba- meinsleitina og um breytingar- skeið kvenna, jafnframt hefur mikið verið spurt um áframhald- andi fræðslu og fram komið sterkar raddir um að Krabba- meinsfélagið stæði áfram fyrir kynningu og fræðslu á starfsemi félagsins og leitaði næsta vetur á mið karlaklúbba hér í bænum með fræðslu um breytingarskeið karla og kenna. Þá hafa og komið fram raddir um það að Krabba- meinsfélag Akureyrar og ná- grennis beitti sér fyrir því að sam- keyrsla brjóstmyndatöku og leg- hálsskoðunar kæmist á hið fyrsta hér á Akureyri, þ.e.a.s. Krabba- meinsfélag Akureyrar og ná- grennis beitti sér fyrir því að sköpuð yrði aðstaða á Fjórðungs- sjúkrahúsinu fyrir leghálsleitina þannig að öll starfsemi leitarinn- ar gæti farið þar fram. Á framan- sögðu má sjá að Krabbameinsfé- lag Akureyrar og nágrennis hefur næg verkefni framundan og mun stjórn þess gera sitt besta í því að búa í haginn fyrir krabbameins- leitina og er það ætlun okkar að hefja starfsemi næsta árs með aðalfundi sem væntanlega verður haldinn í byrjun október á þessu ári. Að lokum ber svo að geta þess að Krabbameinsfélag íslands hef- ur fyrir hönd Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, pantað brjóstmyndatökutæki, sem Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur ánafnað Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri og er búist við að tækið komi til landsins í næsta mánuði. Gert er ráð fyrir að reglubundin krabba- meinsleit í brjóstum kvenna með röntgenmyndatöku geti hafist hér á Akureyri á miðju þessu ári. Lionsklúbburinn Hængur á Akureyri afhenti Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis 200 þúsund króna pen- ingagjöf til kaupa á brjóstmyndatökutæki á dögunum. Hér má sjá er Rafn Benediktsson formaöur Hængs afhendir Halldóru Bjarnadóttur gjaldkera ávísunina. Henni á hægri hönd er Jónas Franklín formaður Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Mynd: kk

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.