Dagur - 12.05.1988, Qupperneq 5
12. maí 1988- DAGUR-5
Waf erlendum vetfvangi il
Hætta fyrir geimfara:
Himininn fullur
af brotajárni
Meira er 40.000 aðskotahlutir,
allt frá margra metra löngum
eldflaugahlutum niður í smáflís-
ar, þjóta um gufuhvolfið innan
um allar tegundir af geimförum
og gervitunglum.
Allt þetta rusl flýgur eins og
stórskotahríð með 28.000 km
hraða á klst., þ.e. 30-földum
hljóðhraða, um það svæði sem
flest mönnuð og ómönnuð geim-
för eiga leið um, þ.e. í 250-1.000
km hæð og þyngdarlausa beltinu
36.000 km yfir miðbaug.
Ekki þyrfti að spyrja um örlög
þess geimfars sem lenti í árekstri
við einhvern af þessum hlutum.
Sem stendur er að meðaltali 120
skotið upp árlega. Ef gert er ráð
fyrir áframhaldandi aukningu má
búast við tvöföldun aðskotahluta
í geimnum á næstu 8-10 árum.
Hér leitar Labrador retriever að bráð sinni, sem í þetta skiptið er uppstopp-
aður fasan með gervilykt, og hann leitar með því að hlaupa fram og aftur yfir
lyktarlínuna og síðan í þá áttina sem lyktin er sterkari.
Hvernig tekst hundum
að rekja slóðina?.....
Hvaða tækni er það, sem hundar
beita, þegar þeim er sagt að finna
ákveðna slóð og fylgja henni? Og
hvers vegna hafa menn einmitt
valið hundinn til að leysa slík
verkefni af hendi en ekki einhver
önnur dýr með gott lyktarskyn?
Jú, mönnum, sem hafa lítt
þróað lyktarskyn, finnst hæfi-
leikar hundsins ótrúlegir. Dýrum
eins og manninum, þar sem sjón-
in hefur náð meiri þroska
en öll önnur skilningarvit, er
erfitt að ímynda sér veröld, þar
sem lyktin skiptir mestu máli, en
hjá hundunum er það einmitt
lyktarskynið, sem er mikilvægast.
Rétt eins og menn geta á ótal
vegu lýst útliti einhvers hlutar,
svo sem stærð, lit og lögun, geta
hundar orðið margs vísari af því
að finna lyktina.
Lyktarskyn manna er of lélegt
til þess að við getum greint milli
margra smáatriða, sem mynda
ákveðna lykt en lyktarskyn
hunda er 2-300 sinnum sterkara
og nákvæmara en manna. Telja
má, að það sé eins auðvelt fyrir
hund að greina á milli tveggja
lyktarafbrigða og fyrir mann að
sjá mismun fimmeyrings og
krónu.
Þegar hundur á að leita ein-
hvers, verður honum fyrst að
vera það ljóst, hvernig lyktin er
af því, sem leita skal. Sé hundur
látinn leita eiturlyfja, er byrjað á
því að láta hann þefa af sams
konar efnum og honum er ætlað
að finna.
Hundurinn gleymir ekki lykt-
inni af efninu og þegar honum er
sagt að leita, leitar hann sjálf-
krafa einhvers, sem lyktar eins.
Sé aftur á móti um það að ræða
að finna mann, reynir meira á
hæfileika hundsins. Fyrst verður
hann að kynnast lyktinni af við-
komandi manni, til dæmis með
því að þefa af fötum, sem hann
hefur gengið í, en að því búnu
getur hundurinn farið að leita
spora, sem gefa frá sér sams
konar lykt og þá, sem búið er að
kynna honum.
Tæknin, sem dýrin nota til að
finna ákveðinn hlut, veiðibráð
eða mann, er sú sama hjá öllum
dýrum, sem beita lvktarskyninu
til að leita. Það gildir jafnt um
hákarla sem hasshunda og allt
þar í milli.
Fyrst er að sjálfsögðu að finna
slóðina. Það geta leynst lyktar-
sameindir í gróðri eða í andrúms-
loftinu, og þegar minnst varir
geta einhverjar þessara sameinda
borist að viðkvæmum frumum í
nösum hundsins. Ef það gerist,
fer hundurinn að ganga í hringi
eða hlaupa eftir hlykkjóttri braut
fram og aftur um svæðið. Þá er
hann í fyrsta lagi að fullvissa sig
um, að það sé rétta lyktin, sem
hann hefur fundið, en einnig að
kanna í hvaða átt lyktaráhrifin
séu mest.
Hundurinn heldur síðan áfram
eftir slóðinni til þeirrar áttar, sem
hann finnur lyktina aukast, og
hann heldur áfram þangað til
hann annað hvort finnur það, sem
hann leitar, eða hann verður af
einhverjum ástæðum að gefast
upp við leitina.
Yfirburðir hundsins liggja í
hæfileika hans til að finna margs
konar lykt og greina á milli. Það
eru til ýmis dýr, sem hafa veru-
lega skarpara lyktarskyn en
hundar, en þau geta aftur á móti
ekki rakið slóð nema eftir einni
lykt eða mjög fáum.
(Lars Thomas dýrafræðingur. - Pýd. P.J.)
Aðskotahlutir í himingeimnum.
Þegar fyrir fjórum árum skildi
örlítil stálflís, svo lítil að hún
mældist alls ekki frá jörðu, eftir
sig djúpa rispu í sérsmíðaðan,
hertan glugga á amerískri geim-
ferju. Það er opinbert leyndar-
mál, að bandarísk hernaðaryfir-
völd hafa af því miklar áhyggjur,
að þessir aðskotahlutir eyðileggi
skynjara og spegla geimvarnar-
kerfisins, sem samkvæmt Penta-
gonáætluninni á að koma upp um
miðbik 10. áratugarins.
(Spiegel, Magnús Kristinsson þýddi)
Samkoma!
Nk. laugardag kl. 11.00 verður haldin samkoma í
safnaðarsal Aðventista í Verslunarmiðstöðinni
Sunnuhlíð.
Fjölbreytt tónlist.
Æskulýðskór, karlakvartett og hljóðfæraleikarar
koma fram.
Allir velkomnir.
Söfnuður 7. dags Aðventista.
Saudárkróksbúar
Skagfirðlngar
Höfum til útleigu eftir gagngerar endurbætur 50
manna sal að Suðurgötu 3, Sauðárkróki.
Boðið er upp á veitingar ef óskað er.
Hentugur salur til fundahalda fyrir fyrirtæki,
félagasamtök og einstaklinga.
Upplýsingar í síma 5586 (Lilja).
Stjórnin.
íbúðir í fjölbýlishúsi
við Melasíðu 3, Akureyri
íbúðirnar eru 2ja, 3ja og 4ra herbergja.
Verða tilbúnar til afhendingar í júlí 1989, fullfrágengnar.