Dagur - 12.05.1988, Síða 8

Dagur - 12.05.1988, Síða 8
8 - DAGUR - 12. maí 1988 Alþjóðlegur baráttudagur gegn vímuefnum: Boðhlaup og skemmtidag skrá grunnskólanna Hulda Steingrímsdóttir nemandi í Oddeyrarskóla sýndi timleika. Á laugardaginn fór fram boð- hlaup nemenda í 12 grunnskól- um á Akureyri og í Eyjafiröi. Hlaupið var liður í dagskrá í tilefni af alþjóðlegum baráttu- degi gegn vímuefnum. I hlaup- inu var keppt í tveimur aldurs- flokkum stúlkna og pilta, (7.-9.. bekk og 4.-6. bekk). í hverri boðsveit voru 8 hlauparar en alls voru keppendurnir 256 að tölu. Glæsileg verðlaun voru veitt fyrir sigur í hverjum flokki og var keppnin mjög jöfn og spennandi. Það voru Lionsklúbbarnir á Akureyri og í Eyjafirði sem sáu um fram- kvæmdina. Hlaupiö hót'st viö íþróttahöll- ina og því lauk þar einnig. Að hlaupinu loknu fór fram skemmtidagskrá í Höllinni, þar sem sigurvegarnir fengu sín verð- laun og auk þess skemmtu full- trúar grunnskólanna á Akureyri gestum. Valgeir Guðjónsson Stuðmaður var kynnir og söng hann einnig nokkur lög í lokin. Dagskráin hófst á því að Ragn- heiður Guðnadóttir frá foreldra- samtökunum Vímulaus æska, flutti stutt ávarp en síðan tóku við skemmtiatriði frá skólunum. Frá Oddeyrarskóla sýndi Hulda Steingrímsdóttir leikfimiæfingar á gólfi við mikinn fögnuð við- staddra. Síöan söng Kór Lundar- skóla nokkur lög við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur en stjórnandi kórsins er Elínborg Loftsdóttir. Frá Barnaskóla Akureyrar kom leikþáttur, þar sem nokkrir ungir og efnilegir leikarar fluttu leikþáttinn Ari og hinir grislingarnir, í leikstjórn Birgis Sveinbjörnssonar. Fjórða atriðið kom frá Gagnfræðaskóla Akureyrar þar sem þær Ásta Óskarsdóttir og Kristín Óladóttir léku saman á fiölu og píanó. Að því loknu fór fram verð- launaafhending fyrir hlaupið og þaö voru þau Halldór Áskelsson knattspyrnumaður og Guðrún H. Kristjánsdóttir skíðamaður sem afhentu sigurvegurunum í hverj- um flokki, sigurlaunin. Það var svo Valgeir Guðjónsson sem átti síðasta orðið en hann flutti nokk- ur þekkt lög á þann hátt sem hon- um einum er lagið. En úrslit í hlaupinu urðu þessi: Eldri flokkur pilta: mín 1. Hrafnagilsskóli 7,50 2. Gagnfræðaskói Akureyrar 8,07 3. Síðuskóli 8,18 Eldri tlokkur stúlkna: 1. Gagnfræðaskóli Akureyrar 8,56 2. Glerárskóli 9,18 Barnaskóli Akureyrar sigraði í boðhlaupinu í yngri flokki stúlkna. Valgeir Guðjónsson var kynnir á skemmtidagskránni og flutti auk þess nokkur lög. Nemendur í Barnaskóla Akureyrar fluttu leikþáttinn Ari og hinir grisling- Ásta Óskarsdóttir og Kristín Óladóttir nemendur í Gagnfræðaskóla Akur- arnir, í leikstjórn Birgis Sveinbjörnssonar. eyrar, léku saman á fiðlu og píanó. Myndir: kk Kór Lundarskóla undir stjórn Elínborgar Loftsdóttur söng nokkur lög. 3. Grenivíkurskóli Yngri flokkur pilta: 1. Glerárskóli 2. Lundarskóli 9,07 3. Barnaskóli Akureyrar 9,19 Yngri flokkur stúlkna: 1. Barnaskóli Akureyrar 9,17 2. Dalvíkurskóli 9,44 3. Síðuskóli 9,48 Gagnfræðaskóli Akureyrar sigraði í boðhlaupinu í eldri flokki stúlkna.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.