Dagur - 06.06.1988, Blaðsíða 8

Dagur - 06.06.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 6. júní 1988 6. júní 1988 - DAGUR - 9 Knattspyrna 4. deild: Þórariim skoraði 3 fyrir Eflingu Eding sigraði Æskuna þegar liðin mættust á Laugavelli á laugardaginn í D-riðli 4. deildar íslandsmótsins í knattspyrnu. Leikurinn þótti fremur illa leikinn, einkenndist einkum af lönguin spörkum og hlaupum. Lokatölur urðu 3:2 eftir að staðan í leikliléi hafði verið 1:1. Efling hafði lengst af undirtökin í þessum leik. Það var þó Æskan sem skoraði fyrsta mark leiksins en Efling jafnaði fyrir leikhlé. Leikmenn Eflingar voru síðan mun frískari í síðari hálfleik og skoruðu tvö mörk í röð en Æskan náði að rninnka muninn með marki rétt fyrir leikslok. Úrslitin urðu því 3:2 og verður sá sigur að teljast sanngjarn. Þórar- inn Jónsson skoraði öll mörk Eflingar í þess- um leik en Atli Brynjólfsson og Baldvin Hall- grímsson skoruðu mörk Æskunnar. JHB Jafntefli hjá Neista og HSÞ-b Á laugardag inættust Neisti og HSÞ-b á Hofsósvelli í D-riöli 4. deildar. Leikurinn var frekar jafn allan tímann og honum lauk með sanngjörnu jafntefli, 2:2. Staðan í leikhléi var 0:1, HSÞ-b í vil. Það var Ari Hallgrímsson sem skoraði fyrsta mark leiksins fyrir HSÞ-b. Hann var síðan aftur á ferðinni í síöari hálfleik og kom HSÞ-b tveimur mörkum yfir, 2:0. Ari virðist ætla að gera það gott í sumar en hann skor- aði einnig tvö mörk fyrir HSÞ-b í síðasta leik liðsins. Þess má geta að hann er bróðir knatt- spyrnumannsins kunna Jónasar Hallgríms- sonar hjá Völsungi. En leikmenn Neista gáfust ekki upp þrátt fyrir að vera komnir tveimur mörkum undir og náðu að jafna leikinn með mörkum Kristjáns Jónssonar og Hauks Þórðarsonar. Þá átti Oddur Jónsson þrumuskot í þverslá fyrir Neista. En eins og fyrr segir urðu úrslit leiksins sanngjamt jafntefli, 2:2. JHB Aftur frestað hjá Vaski Fresta varð leik Vasks og UMSE-b í D-riðli 4. deildar, sem fara átti fram á Akureyri á laugardag þar sem enginn dómari og engir línuverðir létu sjá sig. Leikurinn er liöur í 2 umferð deildarinnar. Leik Vasks við Æskuna úr 1. umferð var einnig frestað þannig að Vaskur hefur enn ekki leikið í Islandsmótinu á þessu tímabili. JHB íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild: ÍR náði jafntefli á Siglufirði - Liðið jafnaði skömmu fyrir leikslok og fór með eitt stig og tryggðí liði sínu eitt stig. Eftir mikinn barning í vítateig KS, barst boltinn til Eggerts og hann sendi hann af öryggi í netið. Steve Rutter sem lék sinn fyrsta leik með KS á þessu keppnistímabili, stóð sig mjög vel og á örugglega eftir að gera góða hluti með liðinu. Rutter sem er stór og sterkur, lék í fremstu víglínu ásamt Hafþóri Kolbeinssyni og náðu þeir ágæt- lega saman. Varnarmenn liðsins áttu ekki góðan dag og söknuðu greinilega þeirra Baldurs Benónýssonar og Ólafs Ólafsson- ar sem ekki gátu leikið vegna meiðsla. ÍR-ingar léku ágætlega úti á vellinum í þessum leik en tókst ekki að skapa sér nein afgerandi færi. Bragi Bergmann dæmdi leik- inn og gerði það vel. BÞ/KK Knattspyrna 1. deild kvenna: Heppnismark Vals gegn KA Kvennaliö KA lék síðari leik sinn í Reykjavíkurferö sinni þegar liðið mætti Val á nýjum grasvelli þeirra síðarnefndu að Hlíðarenda í gær. Þetta var vígsluleikur vallarins og áður en hann hófst fór fram athöfn þar sem vöilurinn var formlega vígður. Leikurinn, sem var lið- ur í annarri umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu, gat þó ekki hafíst strax að lokinni athöfninni þar sem dómara- tríóið vantaði eins og fram kemur hér á öðrum stað. Það er auðvitað til skammar að slíkt skuli gerast yfírleitt, hvað þá þegar um er að ræða leik í 1. deild. KA-liðið byrjaði á móti mjög sterkum vindi í fyrri hálfleik. Leikurinn einkenndist strax af mikilli baráttu og fór að mestu leyti fram á miðjum vellinum en h'tið var um færi. Valsstúlkurnar voru öllu meira með boltann en náðu þó ekki að ógna KA-liðinu neitt verulega. Síðari hálfleikur var svipaður þeim fyrri allt fram á 20. mínútu en þá fór að draga til tíðinda. Þá náði KA-liðið foryst- unni þegar Inga Birna Hákonar- dóttir skoraði með glæsilegum skalla eftir hornspyrnu frá Hjör- dísi Úlfarsdóttur, staðan orðin 1:0. 5 mínútum síðar fengu Vals- stúlkurnar aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig KA og í framhaldi af henni skoruðu þær glæsilegt mark og jöfnuðu leikinn. Þegar örfáar mínútur voru til leiksloka skoruðu Valsstúlkurnar sitt ann- að mark. Þá kom sending inn fyr- ir vörn KA-liðsins og einn sókn- armaður Vals var þar á auðum sjó og átti ekki í erfiðleikum með að skora. Mikil rangstöðulykt var af þessu marki en einn af stjórn- armönnum knattspyrnudeildar Vals, sem var á línunni, sá ekki ástæðu til að veifa. „Þetta var á Reyni Leikurinn fór fram á malarvelli og bar þess öll merki því knatt- spyrnan var ekki mikið fyrir aug- að. Eins og fyrr segir var lið Þróttar mun sterkara mest allan tímann án þess að nokkur stæði þar upp úr, þetta var fyrst og fremst sigur liðsheildarinnar. Það var Guðbjartur Magnason sem skoraði öll mörk liðsins. Hjá Reyni stóð heldur enginn upp úr að þessu sinni. Flestir leikmenn liðsins voru langt frá sínu besta. JHB færði liðinu sigur á síðustu stundu dálítið furðulegt. Hún var langt fyrir innan, alveg kolrangstæð, en línuvörðurinn sá ekkert athugavert við þetta og sleppti því alveg að veifa. Það má segja að þær hafi fengið sigurinn á silf- urfati," sagði Gunnlaugur Björnsson, þjálfari KA-liðsins í samtali viö Dag. Þrátt fyrir að Valsstúlkurnar hafi fengið síðara mark sitt á silf- urfati sagöi Gunnlaugur að þegar á heildina væri litið þá hefði sigur þeirra scnnilega verið sanngjarn. „En það var gremjulegt að fá þetta mark á sig úr því sem kom- ið var," sagði Gunnlaugur Björnsson. JHB Enginn dómari mætti á leik í 1. deild kvenna - Fyrirkomulag á boðun dómara til skammar fyrir KSÍ Þegar leikur Vals og KA í fyrstu deild kvenna átti að hefjast á hinum nýja grasvelli Valsmanna að Hlíðarenda í gær kom í Ijós að enginn dóm- ari né línuvörður hafði enn lát- ið sjá sig. Upphófst þá mikil leit sem endaði með því að nýr dómari var fenginn á svæðið og tveir línuverðir voru settir honum til aðstoðar. Svo illa vildi til að annar þeirra var stjórnarmaður í knattspyrnu- deild Vals. Að þetta skuli gerast á 1. deild- ar leik er auðvitað til háborinnar skammar fyrir KSÍ. Og reyndar er þetta til skammar í hvert sinn sem þetta gerist, hvaða lið sem eiga í hlut. Boðun dómara og línuvarða hefur alltaf verið mikið vandræðamál á íslandi, einkum í yngri flokkum og neðri deildum, en eins og fram kemur á öðrum stað í blaðinu varð að fresta leik Vasks og UMSE-b sem fram átti að fara á Akureyri á laugardag þar sem enginn dómari lét sjá sig. Fleiri dæmi mætti auðvitað nefna en þess ætti ekki að gerast þörf. Allir þeir sem komið hafa nálægt störfum knattspyrnufélaga kann- ast við þetta vandamál. Þótt svo slysalega hafi viljað til að Valsmaður hafi þurft að standa á línunni í leik KA og Vals í gær er auðvitað ekki viö Valsmenn að sakast. Sökin liggur alfarið hjá KSÍ. Þetta er óþolandi ástand og sérstaklega er þetta slæmt þegar í hlut eiga lið sem hafa ferðast langar leiðir til að spila leikina eins og KA í þessu tilfelli. Hér með er skorað á KSÍ að kippa þessum málum í lag í eitt skipti fyrir öll - það er víst tími til kominn. JHB Knattspyrna 3. deild: Markalaust á Seyðisfirði - í leik Hugins og Hvatar í gær Huginn og Hvöt skildu jöfn á Seyðisfirði í gær, er liðin áttust við í B-riðli 3. deildar í knatt- spyrnu. Hvorugt liðið skoraði mark í leiknum sem fram fór við hinar erfíðustu aðstæður. Hífandi rok var lengst af á meðan leikurinn stóð yfír og fór hann að mestu fram á miðj- um vellinum. Leikurinn átti að fara fram á laugardag en honum varð að fresta þá, þar sem flugvélin er átti að flytja hluta Hvatarliðsins frá Blönduósi til Egilsstaða bilaði á miðri leið og þurfti að nauðlenda í Keflavík. Þó að sennilega hafi far- ið um einhverja leikmenn Hvatar í þessari flugferð, varð þó engum meint af og þeir héldu galvaskir til Seyðisfjarðar í gær. Þeim tókst þó ekki að koma boltanum í netið frekar en heima- mönnum og markalaust jafntefli því staðreynd. Hvatarmenn eru þá komnir á blað í deildinni en leikmenn liðsins hafa þó ekki fundið skotskóna ennþá. Ásgeir Valgarðsson og félagar hans í Hvöt gerðu jafntefli á Seyðisfirði í gær. Staðan 3. deild Úrslit leikja í B-riðli 3. deildar á íslandsmótinu í knattspyrnu um helgina urðu þessi: Einherji-Sindri: Frestað Magni-UMFS Dalvík: Frestað Huginn-Hvöt: 0:0 Þróttur N.-Reynir Á: 3:0 Staðan í riðlinum er þessi: Þróttur N. Reynir Á. Huginn UMFS Dalvík Hvöt Sindri Einherji Magni 2 2-0-0 2 1-0-1 1 0-1-0 1 0-1-0 1 0-0-1 1 0-0-1 0 0-0-0 0 0-0-0 4:0 6 3:4 3 2:21 2:2 1 0:10 1:3 0 0:0 0 0:0 0 Fyrstu mörkin í Ólafsfirði er Leiftur og Þór gerðu jafntefli 1:1 Kristján Kristjánsson og Einar Arason sækja að marki Leifturs. Kristján olli nokkrum sinnum usla upp við mark Leifturs í leiknum á laugardaginn. Mynd: TLV KS-ingar voru klaufar að hirða ekki öll þrjú stigin er þeir fengu ÍR-inga í heimsókn til Siglufjarðar á laugardag í 2. deildinni í knattspyrnu. Þeir áttu mun hættulegri færi í leiknum en urðu að gera sér jafntefli að góðu. Úrslit leiks- ins urðu 2:2 en ÍR-ingum tókst að jafna tveimur mín. fyrir leikslok, eftir að hafa átt í vök að verjast lengst af. Leikurinn á laugardag fór fram við ágætar aðstæður, þurrt veður og logn og að venju voru fjöl- margir áhorfendur á vellinum. Það voru gestirnir sem tóku foryst- una á 20. mín. er Sigurfinnur Sigurjónsson skoraði með föstu skoti. Boltinn fór utan í varnar- mann KS, breytti um stefnu og hafnaði í markinu án þess að Magnús Jónsson markvörður kæmi vörnum við. En Englend- ingurinn Steve Rutter sem lék sinn fyrsta leik með KS, jafnaði skömmu síðar. Róbert Haralds- son tók langt innkast og Rutter stökk hæst allra í vítateig ÍR og skallaði boltann í fjærhornið. í hálfleik var staðan 1:1. Strax í upphafi síðari hálfleiks bætti Jónas Björnsson við öðru marki fyrir KS með góðu skoti úr vítateignum. Heimamenn fengu síðan noklcur góð færi til viðbótar til þess að bæta við mörkum en tókst ekki að nýta þau. Þegar um 2 mín. voru til leiksloka jafnaði Eggert Sverrisson leikinn fyrir ÍR SL-mótið 1. deild: Leiftur komst í hann krappann á laugardaginn er liðið fékk Þór í heimsókn ■ Sl-deild íslandsmótsins í knattspyrnu. Leikurinn var býsna hraður og skemmtilegur en Þórsarar voru hættulegri og geta Leift- ursmenn verið sáttir við sitt þriðja jafntefli í jafn mörgum leikjum. Úrslitin urðu 1:1 og eru þetta fyrstu mörkin í Ólafs- firði í sumar og jafnframt fyrstu mörk beggja liða í deild- inni. Þórsarar byrjuðu leikinn af krafti og strax á 2. mínútu komst Jónas Róbertsson í gott færi eftir sendingu frá Guðmundi Val en skot hans fór yfir Leiftursmarkið. Þórsarar héldu sóknaraðgerðum sínum áfram án árangurs og á 15. mín. snerust vopnin úr höndum þeirra er Hörður Benónýsson óð í gegnum Þórsvörnina en skot hans fór yfir markið. Ekki vildu Þórsarar láta leik- inn þróast á þennan veg og blésu því enn til sóknar og á 17. mín. voru þeir hársbreidd frá marki. Kristján Kristjánsson fékk bolt- ann á vinstri kanti, lék honum eilítið til hægri og með hægri fæti lét hann knöttinn vaða að mark- inu. Þorvaldur virtist frosinn en náði þó að fálma í boltann sem small í þverslánni og niður fyrir fætur Hlyns Birgissonar sem var of seinn að vinna úr færinu. Nú voru áhorfendur, a.m.k. þeir sem komu frá Akureyri, á þeirri skoðun að markið lægi í loftinu og á 28. mín. dró til tíð- inda. Júlíus Tryggvason tók eitt af sínum löngu innköstum inn í vítateig Ólafsfirðinga og Ólafur Sveinsson dómari dæmi umsvifa- laust vítaspyrnu, sennilega á Árna Stefánsson fyrir að hindra Halldór Áskelsson. Júlíus tók vítaspyrnuna og skoraði með föstu skoti í mitt markið, LO fyrir Þór og þannig var staðan í hálf- leik. Seinni hálfleikur var nokkuð keimlíkur hinum fyrri, nokkur færi hjá báðum liðum en Þórsarar meira með boltann, enda réðu þeir miðjunni að mestu. Á 48. mín. greip Kristján enn til hægri fótarins en skot hans fór framhjá. Einni mínútu síðar átti Hafsteinn Jakobsson gott skot úr auka- spyrnu en rétt yfir Þórsmarkið. Á 51. mín. barst boltinn inn í vítateig Þórsara eftir aukaspyrnu sem dæmd var á Birgi Skúlason. Þórsarar voru í basli með að hreinsa frá og Steinar Ingimund- arson potaði boltanum í markið. Staðan 1:1. Þórsarar sóttu stíft eftir markið. Einar Arason skaut framhjá á 65. mín. og Guðmund- ur Valur gerði slíkt hið sama á 69. mín. A 87. mín. kemst Hlyn- ur inn fyrir vörn Leifturs og leik- ur að markinu en þá kemur Árni Stefánsson aðvífandi og hindrar Hlyn og vildu þá margir fá víta- spyrnu en dómarinn lét þetta afskiptalaust. Á 89. mín. sækja Kristján og Guðmundur Valur stíft að Leiftursmarkinu og Þor- valdur bjargar skoti hins síöar- nefnda í horn. Úrslitin því 1:1 og voru Þórsarar ekki alveg sáttir við þá niðurstöðu. Enginn skaraði fram úr í þess- um leik en einna bestir Þórsara voru þeir Jónas Róbertsson, Guðmundur Valur, Júlíus Tryggvason og Hlynur var spræk- ur frammi. Þá skilaði Kristján sínu vel en Halldór sást lítið. Hjá Leiftri má nefna Þorvald mark- vörð og Árna Stefánsson sem hélt Halldóri í skefjum þótt ekki hafi þar ávallt verið löglega að verki staðið. Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson, Gústav Ómarsson, Árni Stefánsson, Sigurbjörn Jakobsson, Guðmundur Garðarsson, Friðgeir Sigurðsson (Róbert Gunnarsson 72. mín.), Hafsteinn Jakobsson, Halldór Guðmundsson, Lúðvík Bergvinsson, Hörður Benónýs- son. Steinar Ingimundarson (Óskar Ingi- mundarson 81. mín.). Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Júlíus Tryggvason, Birgir Skúlason, Nói Björnsson, Einar Arason, Kristján Kristjánsson, Jónas Róbertsson, Guð- mundur Valur Sigurðsson, Siguróli Kristjánsson, Hlynur Birgisson, Halldór Áskelsson. Gul spjöld: Hörður Benónýsson og Guðmundur Garðarsson. Leiftri. Dómari: Ólafur Sveinsson Línuverðir: Haukur Torfason og Árni Arason. SS Jónas Björnsson skoraði annað mark KS gegn ÍR. Knattspyrna 3. deild: Sanngjam sigur Þróttar Þróttur Neskaupstað sigraði Reyni frá Árskógsströnd í B-riðli 3. deildar þegar liðin mættust á Neskaupstað á laugardaginn. Leikurinn var liður í 2. umferð riðilsins. Honum lauk með sigri Þrótt- ara sem skoruðu 3 mörk án þess að Reynismönnum tækist að svara fyrir sig. Staðan í hálf- leik var 1:0. Óhætt er að segja að sigur Þróttara hafi verið sanngjarn. Þeir byrjuðu strax mun betur og eftir aðeins 10 mínútur var stað- an orðin 1:0. Þróttarar sóttu síð- an öllu meira það sem eftir lifði hálfleiksins og fengu nokkur sæmileg færi en leikmenn Reynis virtust aldrei komast almennilega inn í leikinn. Þó áttu þeir einu sinni gott skot að marki Þróttar utan af velli en það fór naumlega framhjá. Eins og fyrr segir var staðan í hálfleik 1:0. Engin veruleg breyting varð á leik liðanna í seinni hálfleik. Þróttarar voru mun frískari og skoruðu sitt annað mark fljótlega eftir leikhlé. Þeir bættu síðan þriðja markinu við þegar 25 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og það var ekki fyrr en þá, þegar staðan var orðin 3:0, sem leikmenn Reynis fóru að komast inn í leikinn. Þeir fóru að sækja meira og áttu m.a. gott skot í stöng en ekkert gekk. Þróttarar fengu einnig fleiri færi, áttu t.d. skot í þverslá og annað í stöng.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.