Dagur - 06.06.1988, Blaðsíða 13

Dagur - 06.06.1988, Blaðsíða 13
6. júní 1988 - DAGUR - 13 „Og enn er vormeð angan hvítra blóma og ævintýraljóma um dal og fell. “ Vorið er komið með söng fugl- anna og gróðurangan í lofti. Pá barst okkur fréttin. - Hún Helga er dáin. - Alltaf finnst okkur örlögin grimm þegar vinir okkar hverfa á braut í blóma lífsins, en guð ræður. Sá, sem komið hefur í Siglu- fjörð í blæjalogni og séð fjöllin speglast í haffletinum gleymir því aldrei. Pannig hygg ég að Helga hafi hugsað til staðarins, þar sem hún átti sín æskuár ásamt bróður sín- um Hákoni á heimili ástríkra for- eldra. Þau studdu hana alla tíð með ráðum og dáð. Foreldrar hennar eru Ólafur Þorsteinsson læknir og kona hans Kristine, norskrar ættar. Helga varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri 1958. í skólanum kynntist hún Páli Péturssyni frá Höllustöðum. Þau felldu hugi saman og giftu sig 26. júlí 1959, þá flutti Helga í sveit- ina. Börnin urðu þrjú: Kristín bóndi á Höllustöðum, Ólafur Pétur við verkfræðinám í Kaup- mannahöfn og Páll Gunnar við háskólanám. Dóttursonur þeirra Helgi Páll hefur verið þeim sam- tíða og mikill sólargeisli á heimil- inu. Allt eru þetta mannvænleg og elskuleg börn. Frjálst framtak tekur við útgáfu Sjónvarps- vísis Stöðvar 2 Fyrir skömmu var gengið frá samningum milli útgáfufyrir- tækisins Frjáls framtaks hf. og íslenska sjónvarpsfélagsins hf. um útgáfu Sjónvarpsvísis Stöðvar 2. Mun Frjálst framtak taka við útgáfu blaðsins sem kemur út einu sinni í mánuði. Hingað til hefur meginefni blaðsins verið sjónvarpsdagskrá Stöðvar 2 og umfjöllun um einstök dagskrár- atriði en nú hefur verið ákveðið að breyta blaðinu verulega, stækka það og bjóða lesendum upp á fjölbreytt efni. Má segja að með breytingunni verði Sjón- varpsvísir Stöðvar 2 gerður að. tímariti. Eftir sem áður verður ítarleg umfjöllun um sjónvarps- dagskrá stöðvarinnar í blaðinu. Sjónvarpsvísir Stöðvar 2 er nú útbreiddasta tímarit á landinu en það verður prentað í um 40 þús- und eintökum og verður eftir sem áður dreift ókeypis til áskrifenda Stöðvar 2. Jafnframt hafa verið gerðar nokkrar aðrar breytingar á út- gáfustarfsemi Frjáls framtaks hf. Ákveðið hefur verið að auka út- gáfutíðni Frjálsrar verslunar úr 8 blöðum á ári í 12 blöð á ári og gerðar verða töluverðar breyting- ar á blaðinu. Þá hefur verið ákveðið að fella útgáfu tveggja tímarita sem Frjálst framtak hf. hefur gefið út: Iðnaðarblaðsins og Viðskipta&Tölvublaðsins inn í Frjálsa verslun og er stefnt að því að Frjáls verslun verði eftir- leiðis enn öflugra atvinnulífs- tímarit sem tekur til sem flestra þátta atvinnulífsins. Frjáls versl- un kom fyrst út í janúarmánuði 1939 og á blaðið því fimmtíu ára afmæli á næsta;ári. Þegar Páll varð alþingismaður og fleiri félagsmálastörf tóku mikið af tíma hans, varð Helga að taka meiri þátt í stjórn búsins. Fórst henni það vel úr hendi, því hún var harðdugleg, stjórnsöm og fljót að átta sig á hlutunum. Hún hafði líka ánægju aF að umgangast dýrin, einkum hest- ana. Þeir urðu margir vinir henn- ar og hún naut þess að taka hnakk sinn og hest og létta af sér striti dagsins. Helga var náttúruunnandi og hafði gaman af allri ræktun. Fór með gesti sína út í garð og hafði ánægju af að ræða um blómin og jurtirnar. Helga var líka trúuð kona. Það kom fram í umhyggju hennar fyrir sóknarkirkjunni að Svínavatni'. Hún var formaður sóknarnefndar og stjórnaði endurbótum á kirkju og kirkju- garði af röggsemi. Eflaust hefur trú hennar líka veitt henni sálar- styrk, en hún þurfti á því að halda. Við hjónin kynntumst Helgu eftir að hún flutti hingað í sýsl- una, þau kynni voru góð. Það var ekki aðeins gott að koma heim til þeirra hjóna. Það var líka gaman. Þar ríkti bæði glaðværð og gestrisni, sest niður yfir góð- um veitingum og spjallað um það, sem efst var á baugi hverju sinni. Helga tók þátt í umræð- unni á sinn hreinskipta og heiðar- lega hátt og átti létt með að koma skoðunum sínum á framfæri án þess að særa neinn. Hún var vin- ur vina sinna. Sambýlið á Höllustöðum var gott, í hugum okkar, sem þekkj- um þau öll, var heimilið sem eitt þótt húsin væru tvö. Þegar við komum vorum við alltaf hvött til að hitta fólkið, sem bjó í hinu húsinu. í nokkur síðustu ár barðist Helga hetjulegri baráttu við ill- vígan sjúkdóm og þó að hún vissi að baráttan væri vonlítil var aldrei hægt að sjá það á Helgu fram til þess síðasta, annað en allt væri í lagi. Þannig vildi hún vera, það var hennar lífsstíll, að láta það bitna sem minnst á öðrum, þótt hún væri oft sárþjáð. Eg vil að lokum gera orð skáldsins að mínum: „Eg sakna þín. ég syrgi farinn vin, í sálu þinni fann ég dýpsta hljóminn, er hóf sig yfir heimsins dægurglys. “ Við Guðný sendum öllum þeim, sem voru henni kærir, inni- legustu' samúðarkveðjur. Kristinn Pálsson. Þeir Brynjar Tryggvason og Kjartan Sveinarsson héidu hlutaveltu uni dag- inn til styrktar Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Þeir afhentu 3.235 krónur til Hlíðar. Kærar þakkir. Mymi: cb I ísi oan hf. auglýsir 'i k Einangrunargler k ísetningarefni k Hamrað gler k Vírgler k Öryggisgler k Plastgler k Speglar AHt á sama sfað ö ISPAN HF. Norðurgötu 55. Sími 96-22333. Aðalfundur KDE Aðalfundur Knattspyrnudómarafélags Eyjafjarð- ar verður haldinn í Þelamerkurskóla þriðjudag- inn 7. júní kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Fyrirhuguð dómaranámskeið. Önnur mál. Félagar fjölmennið Stjórnin. Ræstingakona óskast Ca. tveir tímar á dag. Umsóknum skal skila í pósthólf 87, Akureyri fyrir 8. júní. Starfsmaður óskast til afgreiðslustarfa. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. BIFREIÐASTÖÐ ODDEYRAR Starfsfólk óskast Leitum eftir fólki til starfa við veitingasölu á úti- hátíð á Melgerðismelum um verslunarmanna- helgi. Hentugt fyrir kvenfélög, íþróttafélög eða önnur félagasamtök í fjáröflunarskyni. Þeir sem hafa áhuga hafi samband við Ómar Pétursson í síma 26611 eða að Brekkugötu 3, Akureyri milli kl. 9 og 12 á daginn. Fjör hf. raðgjöfog fadninönr Natinn starfsmaður óskast strax til að annast hádegisverð, síðdegiskaffi, innkaup og ræstingu í mötuneyti. Til greina kemur að ráða tvo, sem skipti með sér starfinu. Vinnutími kl. 10-16. Sjálfstætt starf, góð laun. Nánari upplýsingar á skrifstofunni aö Brekkugötu 1. Sími 27577. Opið kl. 13-16 í sumar. Stefanía Arnórsdóttir Valgerður Magnúsdóttir

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.