Dagur - 07.07.1988, Page 2
2- DAGUR'- 7. juíí 1988
Listsýning í Randers:
Fjórir Akureyringar
meðal þátttakenda
Kringlumýri 11, Akureyri. Eigandi hússins er óhress með það sem hann hallar afskiptaleysi bæjaryfirvalda.
Kringlumýri 11 á Akureyri:
Bærinn sinni því sem
hann ber ábyrgð á
Ingólfur Jónsson í Kringlumýri
11 á Akureyri segist vera orð-
inn langþreyttur á afskiptaleysi
bæjaryfírvalda af óræktar-
svæði sem þau bera ábyrgð á.
Svæðið er fyrir norðan og vest-
an lóð Ingólfs og hefur verið
afskiptalaust árum saman.
„Við eru hér með stóra lóð
með gróðurhúsi og matjurtagarði
sem mikil vinna er við að halda
hreinu. Síðan fýkur allt inn á lóð-
ina til okkar af óræktarsvæðinu,
aðallega blaðkan og biðukollan
sem síðan dreifir úr sér um lóð-
ina. Maður er plokkandi fífla-
blöðkur alla daga og gengur illa.“
Ingólfur segir að bærinn hafi
aldrei hirt um þetta svæði, hann
hafi áfcamt nágrönnum lengi
reynt að ýta við bæjarverkstjóra,
varðandi það að hreinsa og slá
svæðið, en það hefur ekkert
gengið til þessa, þrátt fyrir ítrek-
aðar kvartanir.
„Mér finnst andstæðurnar vera
orðnar ansi miklar, við hjónin
eigum hér sannkallaðan unaðs-
reit, hér er mikið skjól og mikið
útilíf í þessu horni, mér finnst
vera tími til kominn að grynnka
Tveir piltar frá Akureyri hafa
verið valdir í unglingalandslið-
ið í skák, en það fer til Dan-
merkur nú á næstunni, en þar
tekur liðið þátt í keppni sem
fram fer dagana 20.-27. júlí
næstkomandi. Þetta eru þeir
Tómas Hermannsson og Rún-
ar Sigurpálsson.
í mótinu taka þátt aðilar frá
eitthvað á þessum óhroða hér
fyrir norðan og bæjaryfirvöld
sinni því sem þau bera ábyrgð á.“
kjó
fjórum þjóðum og verður teflt á
10 borðum. Skákfélag Akureyrar
hefur undanfarið. staðið fyrir
þremur mótum og var Kári Elís-
son afar sigursæll, en hann vann
þau öll. Kári fékk 6 og 1/2 vinn-
ing af 7 mögulegum í 10 mínútna
móti sem haldið var um daginn. í
öðru sæti varð Rúnar Sigurpálsson
með 6 vinninga, Jón Arni Jóns-
son í þriðja sæti með 5 vinninga,
Fjórum akureyrskum lista-
mönnum hefur verið boðið að
taka þátt í listsýningu á vina-
bæjamóti sem haldið verður í
Randers í Danmörku. Mótið
hefst í ágúst og verður sýningin
opnuð þá, en hún stendur fram
í október. Listamennirnir eru
feðginin Jón Geir Ágústsson
og Margrét Jónsdóttir, en Jón
vinnur verk úr leðri og Marg-
rét úr leir. Þá eru gullsmiður-
inn FIosi Jónsson og gull-
smíðaneminn Ásdís Frímanns-
dóttir einnig með í sýningunni.
Frá Akureyri fara rúmlega 50
manns á vinabæjamótið, stærsti
hlutinn er úr Tónlistarskólanum,
auk þess sem þrír hópar barna og
unglinga munu taka þátt í mót-
inu, en þeir fást við mismunandi
tegundir myndlistar. Margrét
Jónsdóttir sagði ekki víst hvort
akureyrsku listamennirnir færu
sjálfir til Randers, „en það væri
óneitanlega ánægjulegt að hitta
Þór Valtýsson með 4 og 1/2 vinn-
ing í fjórða sæti.
Næsta föstudag verður haldið
10 mínútna mót í félagsheimili
skákmanna að Þingvallastræti og
hefst það klukkan 20.30. Þá verð-
ur haldið hraðskákmót í göngu-
götunni föstudaginn 15. júlí og er
það haldið í samvinnu við Hljóð-
bylgjuna. mþþ
listamenn frá hinum Norður-
löndunum," sagði hún.
Tildrög þess að listamönnun-
um var boðið að taka þátt í sýn-
ingunni voru þau að þrír aðilar
,em að henni standa komu í
heimsókn til Akureyrar og skoð-
uðu það sem í boði var hvað list-
iðnað varðar. Þau fjögur urðu
síðan fyrir valinu og var boðið að
taka þátt. Margrét sagði listiðn-
aði ekki hafa verið gert hátt undir
höfði á íslandi, en á síðustu árum
hefði orðið nokkur viðhorfsbreyt-
ing þar á og væri ánægjulegt til
þess að vita. mþþ
Vitni
vantar að
árekstri
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri lýsir eftir vitnum að
árekstri sem varð á mótum
Glerárgötu og Þórunnarstrætis
þann 29. júní síðastliðinn.
Áreksturinn átti sér stað um
kl. 15.00 síðasta miðvikudag á
fyrrnefndum gatnamótum þegar
tvær japanskar bifreiðar skullu
saman. Bifreiðinni A-12468 var
ekið suður Glerárgötu, bifreiðin
A-8423 kom niður Þórunnar-
stræti og beygði til norðurs inn á
Glerárgötuna. Þarna eru umferð-'
arljós og telja ökuménn beggja
bifreiðanna að þeir hafi ekið á
grænu ljósi. Þeir sem vitni urðu
að árekstrinum eru beðnir að
hafa samband við rannsóknarlög-
reglu svo úr málinu fái skorist.
mþþ
Akureyri:
Tveir píltar valdir í
ungUngalandsliðið í skák
Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar & Co. hf.:
Reksturiim gekk vel á síðasta ári
Heildarvelta fyrirtækisins var 622 milljónir
Rekstur Niðursuðuverksmiðju
K. Jónssonar & Co. hf. gekk
vel á síðasta ári en velta fyrir-
tækisins var 622 milljónir og
þar af var rekstrarafgangur upp
á 45,4 milljónir. Þetta var m.a.
það sem kom fram á aðalfundi
fyrirtækisins sem haldinn var
fyrir skömmu. Fyrirtækið sem
er það langstærsta sinnar teg-
undar hér á landi, er nú á sínu
41. aldursári og segja má að
reksturinn hali alla tíð gengið
nokkuð vel. í fyrra unnu 84
starfsmenn hjá K. Jónssyni í
heilsársstörfum en oftast eru
um og yfir 100 manns og upp í
140 manns í heils- og hálfs-
dagsstörfum hjá fyrirtækinu,
sem greiddi 63,7 milljónir í
laun á síðasta ári.
Eins og kom fram í Degi fyrir
skömmu hefur K. Jónsson nýver-
ið gert samninga um sölu á rækju
til Þýskalands fyrir yfir 350 millj-
ónir íslenskra króna, sem eiga að
afgreiðast fram á næsta ár. Þá
hefur fyrirtækið einnig gert
samning við Sovétmenn um sölu
á síldarafurðum fyrir um 120
milljónir íslenskra króna og eru
þetta með stærri samningum sem
fyrirtækið hefur gert. Afgreiðslu
á samningnum við Sovétmenn á
að vera lokið fyrir 1. desember á
þessu ári og nýlega sendi K. Jóns-
son frá sér 250 tonn af síldaraf-
urðum, upp í þann samning að
verðmæti 40 milljóna íslenskra
króna en það er stærsta afskipun
sem farið hefur frá fyrirtækinu á
einu bretti.
Niðursuðuverksmiðjan sauð
og lagði niður í um 12,5 milljón
eininga, (dósir og glös) á síðasta
ári og notaði í þá framleiðslu um
4200 tonn af hráefni. Rækju, síld
og grásleppuhrogn en þar af er
rækja stærsti hlutinn. Niðurlagn-
ing á grásleppuhrognum hefur
aukist mikið síðuðstu tvö ár og
eru Frakkar, ítalir og Þjóðverjar
stærstir kaupenda á þeirri vöru. í
ár horfir þó ekki mjög vel með
sölu á grásleppuhrognum. Grá-
sleppuveiði í ár hefur gengið
frekar illa en miklar birgðir eru
til frá því í fyrra en þá var met-
veiði. I ár er reiknað með að fáist
um 25.000 tunnur af grásleppu-
hrognum í heiminum en í metár-
inu í fyrra fengust um 60.000
tunnur. Stærstan hluta gráslepp-
unar veiða íslendingar, Kanada-
menn og Norðmenn. „Við erum
aðilar að Sölustofnun lagmetis og
allt sem fer frá okkur, fer í gegn-
um þá stofnun. Alls eiga 11 fyrir-
tæki aðild að sölustofnuninni en
þar erum við langstærstir með um
65% hlutdeild en það er mjög
nálægt því sem það hefur verið í
gegnum árin,“ sagði Kristján
Jónsson verksmiðjustjóri í sam-
tali við Dag er blaðamaður heim-
sótti hann og Gísla Má Ólafsson
skrifstofustjóra fyrir skömmu.
Aðspurður um hvort fyrirhug-
aðar væru einhverjar breytingar á
rekstrinum sagði Kristján svo
ekki vera að neinu marki. „Það
er stöðugt verið að endurnýja
vélakostinn og eina stærstu
ástæðuna fyrir góðu gengi fyrir-
tækisins, tel ég vera þá, að við
höfum lagt mikið upp úr góðum
vélakosti. Við reynum eins og
hægt er að nota vélar í stað fólks
en það er mjög dýrt að vera með
margt fólk í vinnu. Það er ekki
bara iaunakostnaðurinn heldur
kemur ýmislegt annað til. En
engu að síður höfum við hér
mjög gott fólk í vinnu. Ég tel það
fyrirtækinu til góðs að vera stað-
sett á Akureyri. Hér býr býr gott
fólk og kröfurnar skikkanlegar.
Hér er einnig góð hafnaraðstaða
og reglulegar skipakomur.“
Eins og fyrr sagði er fyrirtækið
á sínu 41. aldursári og sagði
Kristján að áfram ríkti bjartsýni
hjá forsvarsmönnum þess eins og
hefði reyndar gert alla tíð. „Við
höfum hreinlega ekki tíma til
þess að kvarta,“ sagði Kristján
ennfremur. -KK
Hluti starf'sfólks Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar sólar sig í kaffihléinu. Mynd: kk