Dagur - 07.07.1988, Blaðsíða 5
lesendahornið
7. júlí 1988- DAGUR-5
Þær Helga og Jónína vinna báðar í saltfiski hálfan daginn, en eftir hádegið
er Helga í bæjarvinnunni, en Jónína gætir barns. Mynd: mþþ
Skemmtilegast
að mála
- spjallað við tvær
Krakkarnir í Olafsfírði eru
duglegir mjög. Þegar Dagur
var á ferðinni þar fyrir
skömmu mátti hvarvetna sjá
unglinga að fegra og prýða
bæinn sinn, ruslið var tínt í
plastpoka, grasið slegið og
kantsteinar málaðir. Við hitt-
um þær stöllur Helgu Stefáns-
dóttur og Jónínu Björnsdóttur
önnum kafnar að sinna störf-
um sínum.
Báðar vinna stelpurnar hjá
Salthúsi Sigvalda Þorleifssonar í
Ólafsíjarðardömur
Ólafsfirði þar sem þær stafla salt-
fiski fyrir hádegið, en eftir að
hafa borðað hádegismat skipta
þær um atvinnu. Helga fer í
bæjarvinnuna og Jóhanna að
passa barn. „Það er skemmtileg-
ast að mála,“ sagði Helga þegar
hún var um það spurð. Hún sagði
að mikið væri af krökkum í
bæjarvinnunni og hún væri mjög
skemmtileg. Báðum þótti ágætt
að vera í Olafsfirði og létu vel af
sér yfirleitt, enda mannlífið gott
á staðnum.
I
Dalvík:
Athugasemd við ummælí
Júlíusar Snorrasonar
í Degi þann 6. júní sl. er viðtal
við Júlíus Snorráson undir fyrir-
sögninni „Víkurröst leigð Júlíusi
Snorrasyni." Þar stendur orðrétt:
„Júlíus sagði að undanfarin tvö
ár hefði ákveðinn aðili á Dalvík
séð um rekstur Víkurrastar fyrir
Dalvíkurbæ. Reksturinn hefði
nokkurn veginn staðið á núllinu
DAGUR
Blönduósi
S 954070
Norðlenskt dagblað
og eitthvað fengist upp í viðhald,
eins og hann komst að orði.“
Undirritaður leyfir sér hér með
að gera athugasemd við þessi
ummæli Júlíusar sem eru undar-
leg og mér er ekki ljóst hver til-
gangur þeirra er. Rekstur Vík-
urrastar var í mínum höndum
umrætt tímabil og vil ég því
nefna hér tölur sem Júlíus þorir
greinilega ekki að nefna af ein-
hverjum ástæðum, þótt hann hafi
haft rekstrarreikning Víkurrastar
rfyrir árið 1987 til aflestrar.
Rekstrarhagnaður var 15.487
krónur, viðhald áhalda og innan-
stokksmuna 50.944 kr., viðhald
húss og lóðar 181.920 kr. Samtals
248.351 króna.
Ég geri mér fulla grein fyrir að
þetta er ekki mikill ágóði af
rekstri Víkurrastar en ágóði samt
þar sem rekstrarágóði fyrir árið
1987 gerði ráð fyrir að bæjarsjóð-
ur greiddi 170.000 krónur með
rekstrinum en til þess kom þó
ekki. Ummælum Júlíusar vísa ég
til föðurhúsanna og tel þau sett
fram af einhverjum annarlegum
ástæðum.
„Ákveðinn aðili á Dalvík“,
Valdimar Snorrason.
Geysiskvartettinn
söng á Hlíð
- við mikla hrifningu
Fyrir nokkru söng Geys-
iskvartettinn á Dvalarheimil-
inu Hlíð við mikla hrifningu og
aðdáun. Undirleik annaðist
Jakob Tryggvason, en lögin
sem kvartettinn flutti voru öll
með íslenskum texta, þótt sum
lögin væru erlend.
Söngurinn var ákaflega góður
og hlaut mikla hrifningu. Áheyr-
endur biðja Geysismönnum
blessunar, en þeir eru nú að hefja
ferð til að skemmta fólki og þá
bregðast þeir áreiðanlega ekki
hlustendum sínum. Við í Hlíð
erum innilega þakklát og óskum
þeim góðrar ferðar. L.S.