Dagur - 07.07.1988, Blaðsíða 6

Dagur - 07.07.1988, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 7. júlí 1988 Jafnréttisnefnd Neskaupstaðar: Mótmælir ráðningu Jafnréttisnefnd vill vekja athygli á því að hún telur að við stöðuveitingu sparisjóðs- stjóra Sparisjóðs Norðfjarðar hafi verið brotin 5. gr. jafnrétt- islaga nr. 65/1985, en hún hljóðar þannig: „Atvinnurekendum er óheimilt að mismuna starfsfólki eftir kyn- ferði og gildir þ.m.a. varðandi: 1. Laun, launatengd fríðindi og hvers konar aðra þóknun fyrir vinnu. 2. Ráðningu, setningu eða skipun í starf. 3. Stöðuhækkun og stöðubreyt- ingar. 4. Uppsögn úr starfi. 5. Vinnuaðstæður og vinnuskil- yrði. 6. Veitingu hvers konar hlunn- inda.“ Klara ívarsdóttir settur spari- sjóðsstjóri gaf kost á sér í stöðu sparisjóðsstjóra ásamt Sveini Arnasyni fyrrverandi fjármála- stjóra Neskaupstaðar. Hún hefur starfað í Sparisjóði Norðfjarðar frá 1973 þar af skrif- stofustjóri frá 1980 og verið stað- gengill sparisjóðsstjóra þann tíma og nú síðast samfellt frá febrúar á þessu ári. Jafnréttisnefnd harmar þessa stöðuveitingu, sem nefndin telur vera skýlaust brot á jafnréttis- lögunum og viljum við taka undir orð Ásdísar Rafnar á ráðstefnu í Norræna húsinu 6. febrúar 1988. „Það er hagur þjóðfélagsins, ekki síður en kvenna að hæfileik- ar þeirra fái notið sín. Afleiðing- ar þeirrar óánægju sem safnast hefur upp meðal kvenna eru ófyrirséðar. Lýðræðislegt þjóð- félug er reist á jafnrétti og frelsi til að velja sér lífsstarf og mat á hæfileikum verður að byggjast á rökum en ekki fordómum eða til- finningum. Húsmæðravika Sambandsins og kaupfélaganna Hin árlega húsmæðravika Sambandsins og kaupfélag- anna var haldin á Bifröst í Borgarfirði dagana 11. til 18. júní sl. 33 konur sóttu hús- mæðravikuna að þessu sinni, frá 7 kaupfélögum. Hús- mæðravikur hafa verið fastur liður í fræðslustarfi sam- vinnuhreyfingarinnar allt frá árinu 1960. Dagskrá hús- mæðravikunnar var mjög fjölbreytt. Fyrirlestrar voru um jafnréttismál, samvinnu- mál, tryggingarmál, fræðslu- mál o.fl. Sérstakt snyrti- námskeið var haldið, ferðast um Borgarfjörð, kvöldvökur voru haldnar o.m.fl. Á meðfylgjandi mynd má sjá þátttakendur ásamt umsjónarmanni hús- mæðravikunnar ísólfi Gylfa Pálmasyni. Fremsta röð frá vinstri: Kristín Þórarinsdóttir, Fáskrúðsfirði, Ingibjörg Bergmann, A.-Húnavatnssýslu, Berta Karlsdóttir, Sauðárkróki, Elísabet Stefánsdóttir, Sauðárkróki, Valborg Hjálmarsdóttir, Sauðárkróki, Herdís Sigurjónsdóttir, Sauðár- króki, Helga Erlendsdóttir, Skagafirði, Svanborg Sveinsdóttir, Akureyri, Kristbjörg Eiðsdóttir, Dalvík, Fríða Eðvarðsdóttir, Skagafirði, Helga Valdimarsdóttir, Blönduósi. Miðröð frá vinstri: Guðrún Kristjánsdóttir, Hofsósi, Ágústa Viggósdóttir, Höfn, Jódís Benediktsdóttir, Skagafirði, Svandís Helgadóttir, Fáskrúðsfirði, Álfheiður Magnúsdóttir, Höfn, Hulda Valdimarsdóttir, Bárðardal, Kristín Óskarsdóttir, Svarfaðardal, Guðlaug Jónsdóttir, Húsavfk, Sigurlaug Valdimarsdóttir, Blönduósi, Sig- urveig Níelsdóttir, Fáskrúðsfirði, Sigríður Gunnarsdóttir, Reyðarfirði, fsólfur Gylfi Pálmason, umsjónarmaður. Efsta röð frá vinstri: Vilborg Valgeirsdóttir, Höfn, Hafdís Hilmarsdóttir, Grindavík, Ingibjörg Sveins- dóttir, Skagafirði, Friðrika Ármannsdóttir, Dalvík, María Kristjánsdótt- ir, Bárðardal, Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, Siglufirði, Þórveig Hallgríms- dóttir, Akureyri, Sonja Andresdóttir, Fáskrúðsfirði, Rannveig Bogadótt- ir, Siglufirði, Sigríður Jónsdóttir, Svarfaðardalshreppi, Þorbjörg Beck, Reyðarfirði. Bestu bílakaupin í dag! BMU3B ★ Fíat bílarnir eru á besta verðinu! ★ Skoðaðu úrvalið! ★ Kynntu þér kjörin! Verð frá kr. 369.000,- Einstök lánakjör: 9,9% ársvextir - engin verðtrygging. Mánaðarlcgar greiðslur. Egilsstaðir: Sótt nm lán fyrir 10 kaupleiginbúðuin Meðal umsækjenda um lán til byggingar kaupleiguíbúða er Egilsstaðabær. Sótt hefur ver- ið um lán til byggingar tíu íbúða og er gert ráð fyrir að helmingur þeirra verði félags- legar íbúðir en hinn helming- urinn verði seldur á almennum markaði. Lítið framboð er af húsnæði á Egilsstöðum og á það við bæði um leigumarkaðinn og sölumark- aðinn. Að sögn Guðmundar Pálssonar bæjartæknifræðings standa vonir til að bygging íbúð- anna geti hafist í haust og taki að minnsta kosti eitt og hálft ár. Svars frá Húsnæðisstofnun ætti að mega vænta í lok þessa mán- aðar. Þá verður að sögn Guð- mundar kannað hver þörfin er, með tilliti til félagslega hlutans. Fyrir liggja teikningar að 10 íbúða blokk og er kostnaður áætlaður um 35 milljónir. Kaupleigukerfið er talið henta mjög vel á Egilsstöðum þar sem mikil hreyfing er á íbúum staðar- ins. Árlega má gera ráð fyrir að 100-150 manns flytji til og frá staðnum eða að meðaltali um 10% af íbúum staðarins. Þetta hefur að sögn Guðmundar haml- að mjög allri uppbyggingu og kann að vera að lausnin á þeim vanda felist í þessari nýju leið. ET E ITJV mrn Nýr bíll. Verð 400.000 kr. Útborgun (eða eldri bíll uppí) 200.000 kr. Lán 200.000 kr. með 9,9% ársvöxtum, án verðtryggingar. Endanlegt verð bílsins 411.926 kr. LÁNSUPPHÆÐ 200.000 MÁNUÐUR AFBORGUN VEXTIR ÁÆTL. BANKA PÓKNUN MÁNAÐAR GREIÐSLA 1. afb. 16.667 1.650,00 100 18.417 2. afb. 16.667 1.512,50 100 18.279 3. afb. 16.667 1.375,00 100 18.142 4. afb. 16.667 1.237,50 100 18.004 5. afb. 16.667 1.100,00 100 17.867 6. aíb. 16.667 962,50 100 17.729 7. afb. 16.667 825,00 100 17.592 8. afb. 16.667 687,50 100 17.454 9. alb. 16.667 550,00 100 17.317 10. alb. 16.667 412,50 100 17.179 11. alb. 16.667 275,00 100 17.042 12. afb. 16.667 137,50 100 16.904 Samtals: 211.926 Hafið samband við söludefld okkar Höldursf. Sýningarsalur Tryggvabraut 10. Símar 27015 - 27385 - 21715. Nökkvi félag siglingamanna: Pepsi-Fiðlaramót á AkureyrarpoUi Dagana 9. og 10. júlí nk. mun Nökkvi félag siglingamanna á Akureyri standa fyrir árlegu Pepsi-Fiðlaramóti á Ákureyrarp- olli. Keppni hefst þann 9. júlí kl. 10 f.h. og verður keppt í Optimist- og Topperflokki. Keppnisgjald er kr. 1.500.- Skráning keppenda fór fram 28,- 30. júní. Nánari upplýsingar í síma 96-27103. Styrkaraðilar mótsins eru Veit- ingastaðurinn Fiðlarinn og Sanit- as.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.